Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2002, Blaðsíða 6
6
LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 2002
Fréttir
Formaður Verkalýðfélags Húsavíkur sakar yfirvöld um siðleysi:
Skil ekki að menn fái
laun án þess að vinna
- segir Pétur Blöndal þingmaður um starfslokasamninga ríkisins
Verkalýðshreyfmgin er ósátt við aö
gerður sé greinarmunur á almennum
launamönnum og yfirmönnum þegar
kemur að uppsögnum og starfsloka-
samningum. Aðalsteinn Baldursson,
formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur,
sakar yfirvöld um siðleysi í þessum
efnum og Gylfl Ambjömsson, fram-
kvæmdastjóri ASÍ, benti í DV í gær á
þann mikla mun sem er á ríkinu og
einkageiranum þegar toppar hætta.
Theódór Bjarnason, fráfarandi for-
stjóri Byggðastofnunar, gat samið um
full laun auk hlunninda í tvö ár þrátt
fyrir að hann hefði sjálfur sagt upp
störfum. Ef ráðherra hefði sagt honum
upp starfinu hefði ríkið orðið að greiða
laun í 3 og hálft ár, þ.e.a.s. eftirstöðv-
amar af fimm ára ráðningarsamningi
þar sem forstöðumenn ríkisstofnana
eru ráðnir til fimm ára. Aðalsteinn
bendir á að ekki sitji allir við sama
borð. „Hinn almenni launamaður er
Aðalsteinn Pétur
Baldursson. Blöndal.
alla jafna að bítast um vikur eða mán-
uði þegar uppsagnir eru annars vegar
og í því Ijósi er gjörsamlega siðlaust að
menn skuli vinna svona. Þetta er ekki
fyrsti samningurinn sem við verðum
vitni að. Svona hefur þetta gengið
árum saman,“ segir Aðalsteinn.
Ekki eru gerðir lengri starfsloka-
samningar er til 12 mánaða í einka-
geiranum og alla jafna 3-6 mánuöir.
„Það er dýrt að vera með opinbera
embættismenn á þessum skilmálum,
ekki síst þar sem mörg dæmi eru um
að þeir vinni ekki sína vinnu. Án þess
að ég nefni nein nöfn þá er þetta mjög
einkennilegt," segir Aðalsteinn. Hann
segir kröfu verkalýðshreyfingarinnar
þá að allir sitji við sama borð. Óeðli-
legt sé að kona sem unnið hefur við
ræstingar í fjölda ára hafi minni rétt
en ríkisforstjórar.
Skil þetta ekki
„Ég hef aldrei skilið að menn fái
laun fyrir þann tíma sem þeir vinna
ekki,“ segir Pétur Blöndal, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins. Hann telur að
frekar eigi að greiða mönnum hærri
laun á starfstímanum enda sé góðum
starfsmönnum alla jafna ekki sagt upp.
Hvað varðar fimm ára starfsregluna
kom hún f kjölfar æviráðningar hjá
ríkistoppum en Pétur segir þetta úrelt
fyrirkomulag frá þeim tíma þegar að-
allinn réð ríkjum. „Mér finnst ekki
óeðlilegt að þessu yrði breytt þannig
að ríkisstarfsmenn fengju einfaldlega
þriggja til sex mánaöa uppsagnarfrest
eins og tíðkast á almennum markaði.
Spumingin er líka hvernig önnur fríð-
indi ríkisstarfsmanna eru metin til
launa, eins og lífeyrisréttindi sem
aldrei eru tekin með í reikninginn þeg-
ar laun opinberra starfsmanna eru
borin saman við almennan markað.
Ríkisstarfsmenn eru með ýmis forrétt-
indi,“ segir Pétur.
Aðalsteinn Baldursson telur það
mótsagnakennt að forstjóri Byggða-
stofnunar hætti af eigin hvötum en fái
á sama tíma laun í 24 mánuði. Hann
rifjar upp Símamálið og starfsloka-
samningana sem kostuðu ríkið millj-
ónatugi. Á sama tíma lemji menn í
borðið þegar launþegar biðji um
100.000 króna lágmarkslaun. -BÞ
Stærstl lax sumarsins
Þóröur Pétursson meö laxinn úr Laxá í Aöaldal, 20,5 punda fisk sem tók
maök í Háholu efri. Er þetta langstærsti lax sumarsins en sá næsti veiddist
á Munaöarnessvæöinu i Noröurá í Borgarfiröi og var 13 pund.
Víöa furðulega há laun
- segir Lúðvík Geirsson bæjarstjóri
Lúðvík Geirsson, bæjar-
stjóri í Hafnarfirði, segir að
ákvörðun Samfylkingarinnar
um lækkun bæjarstjóralauna
sé ekki endilega hugsuð
þannig að hún sé fordæmis-
gefandi fyrir bæjarfélög
landsins. „Launakjör hér
voru töluvert hærri en í sveit-
arfélögunum í kring og við
töldum þann mismun ekki
eðlilegan," segir Lúðvík.
Hann segist hafa tekið eftir þvf að
víða fái sveitar- eða bæjarstjórar lítilla
Lúðvik Geirsson.
byggða oft á tíðum mjög há
laun og margir furði sig á því.
„Auðvitað hlýtur starfið að
fara eftir umfangi sveitarfé-
lagsins og það þarf að vera
samhengi í hlutunum," segir
Lúðvik.
Magnús Gunnarsson,
fyrrv. bæjarstjóri í Hafnar-
firði, telur að Samfylkingin
stefni að lækkun launa bæjar-
fulltrúa einnig en Lúðvík segir enga
ákvörðun hafa verið tekna um það.
-BÞ
Stund milli stríða
Þessar stúlkur úr Aftureldingu í Mosfellsbæ köstuðu mæöinni milli leikja
í Vestmannaeyium ígær.
Pæjumót í Eyjum:
600 stúlkur í fótbolta
Um helgina fer fram hið árlega
pæjumót í knattspymu í Vest-
mannaeyjum. Mótið ber heitið
Vöruvalsmótið og eru 600 stúlkur
víðs vegar af landinu á aldrinum
7-13 ára komnar út í Eyjar til að
keppa sín á milli í markaskorun og
boltafimi. Ekki er að efa að þar sjást
snilldartaktar sem gefa því sem sést
í heimsmeistarakeppninni ekkert
eftir. Um 200 foreldrar og fylgis-
menn em einnig mættir til Eyja til
að fylgjast með og hafa gestimir sett
skemmtilegan svip á bæjarlífið.
Mótið var sett á fímmtudagskvöldið
og var farið í skrúðgöngu, flugeld-
um var skotið upp, þrautakeppni
var fyrir stúlkumar og stórleikur
var háður milli fararstjóra og þjálf-
ara liðanna. Stemningin er góð enda
hefur veðrið leikið við keppendur
og spáin fyrir helgina er nokkuð
góð. Keppninni lýkur svo á morgun
þegar úrslitaleikimir fara fram og
bestu leikmenn mótsins verða verö-
launaðir. -ÓSB
Fleiri nýnemar við MA
- þrátt fyrir minni árgang - fækkun hjá MR
Fleiri nýnemar hafa innritast í
Menntaskólann á Akureyri fyrir næsta
skólaár en árið á undan. Þetta segir
Tryggvi Gíslason skólameistari
ánægjuleg tíðindi í ljósi þess að árgang-
urinn i ár sé minni en í fyrra. 197 hafa
sótt um skólavist næsta haust en í
fyrra vom þeir 187. Tryggvi segir mik-
inn fjölda góðra umsókna hafa borist
skólanum.
1 Menntaskólanum í Reykjavík
skráðu 279 nýnemar sig til leiks. Það er
fækkun um 20 frá í fyrra en Yngvi Pét-
ursson rektor segir að skólinn megi vel
við una. Gert hafi veriö ráð fyrir um
250 nýnemum.
í Menntaskólanum í Hamrahlíð
sagði Láras H. Bjamason rektor að
heldur fleiri umsóknir hefðu borist en
í fyrra. Skólinn hyggist innrita milli
240 og 250 nemendur.
Á ísafirði hafa um 250 manns skráð
sig í dagskólanám sem er fækkun um
30 nemendur. Skólayfirvöld Mennta-
skólans á ísafirði segja engu að síður
ánægjuefiii hve grunnskólanemar af
svæðinu skili sér vel í skólann.
Sem annað dæmi af landsbyggðinni
má nefna að 42 nýnemar skráðu sig í
Framhaldsskólann á Húsavík. Otskrif-
aðir 10. bekkingar frá Húsavík vora 44
í vor og skráðu langflestir sig til náms
við FSH. Skólameistarar sögðust al-
mennt ekki sjá
miklar breytingar
frá ári til árs og
töldu sumir hugs-
anlegt að þrátt fyr-
ir lítinn árgang nú
myndi nýnemum
ekki fækka að
ráði. Það gæti
skýrst af auknu
hlutfalli þeirra
sem hyggjast feta
menntaveginn. Samkeppnin um nem-
endur milli framhaldsskóla hefúr verið
óvepju hörð þetta áriö og kynningar-
starfsemin fjölbreytileg. Skólamir fá
fjárveitingar eftir fjölda nema. -BÞ
Tryggvl
Gíslason.
Sólargan
REYKJAViK AKUREYRI
Sólariag í kvöld 24.00 23.45
Sólarupprás á morgun 02.56 02.41
Síödegisflóö 21.49 14.56
Árdegisflóö á morgun 10.23 02.22
'iÞummú
<33
c3
<23 /s)
8) ^ —
<® fþ
<H3 33
Kólnar lítilega
Norðaustlæg eða breytileg átt 3-10
m/s. Skýjað með köflum og viða
þoka við ströndina, en skúrir
síðdegis í uppsveitum suðvestan-
lands. Heldur kólnandi veður og
hiti 5 til 15 stig á morgun, hlýjast
suðvestan- og vestanlands.
10<23. io-
13<23 v^D 10Q =
10Q iP-*
Léttskýjað sunnan til
Austlæg átt, 5-10, þokuloft og súld
með köflum norðan- og austanlands,
en víða léttskýjað suðvestan- og
vestanlands. Áfram verður hlýtt í
veðri, hlýjast sunnan og vestan til.
Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur
O
Hftt 7° Htti 6° Hiti 7°
til 15° til 15° til 15°
Vtndur: 5-10 m-/s Vindur: 5-10 "V* Vindun 5-10 "v*
Austlæg átt og rigning austanlands, annars skýjaö meö köflum. Hvessir síödegis meö úrkomu. Austlæg eöa breytileg átt og rigning víöast hvar. Breytiieg átt og rigning víöast hvar um landiö, þurrt aö kalla vestanlands.
>
Víndhraðí
Logn m/s 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kul 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stlnningsgola 5,5-7,9
Kaldi 8,0-10,7
Stinningskaldi 10,8-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassviðri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveöur 28,5-32,6
Fárviöri >= 32,7
Veöriö kl. 12 J iiitl
AKUREYRI skýjaö 10
BERGSSTAÐIR skýjaö 12
BOLUNGARVÍK hálfskýjaö 17
EGILSSTAÐIR alskýjaö 9
KIRKJUBÆJARKL alskýjaö 12
KEFLAVÍK hálfskýjaö 16
RAUFARHÖFN alskýjaö 7
REYKJAVÍK léttskýjaö 18
STÓRHÖFÐI alskýjað 9
BERGEN skýjaö 20
HELSINKI rigning 14
KAUPMANNAHÖFN skýjaö 18
ÓSLÓ skýjaö 20
STOKKHÓLMUR rigning 12
ÞÓRSHÓFN rigning 12
ÞRANDHEIMUR hálfskýjaö 15
ALGARVE heiðskírt 25
AMSTERDAM skýjaö 20
BARCELONA heiöskírt 23
BERLÍN alskýjaö 16
CHICAGO léttskýjaö 16
DUBUN súld 16
HAUFAX léttskýjað 11
FRANKFURT skýjaö 23
HAMBORG skýjað 17
JAN MAYEN alskýjað 6
LONDON alskýjað 20
LÚXEMBORG hálfskýjaö 21
MALLORCA hálfskýjaö 25
MONTREAL heiöskírt 16
NARSSARSSUAQ NEWYORK rigning 14
ORLANDO heiðskírt 25
PARÍS léttskýjað 27
VÍN léttskýjaö 28
WASHINGTON alskýjaö 17
WINNIPEG heiöskírt 14