Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2002, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2002, Blaðsíða 54
58 HelQCirktlacf H>V LAUGARDAGU R 15. JÚNÍ 2002 GMC SIERRA TRUCKMASTER 44“ Vél: 6,6 lítra V8 einbunu dísilvél Rúmtak: 6587,6 rúmsentímetrar Þiöppun: 17,5:1 Ventlar: 32 Gírkassi: 5 þrepa sjálfskiptur UNDIRVAGN Fiöðrun framan: Klafar á qormum Fiöðrun aftan: Blaðf jaðrir Bremsur: Loftkældir diskar framan oq aftan YTRI TÖLUR Lenqd/breidd/hæð:___________________5781/2438/1808 mm í Hjólahaf:______________________________________3645 mm Beyqjuradíus:________________________________14,3 metrar INNRI TÖLUR Farþeqar með ökumanni: 5 Fjöldi höfuðpúða/öryqqispúða: 4/2 Faranqursrými í skúffu: 1611 lítrar HAGKVÆMNI Evðsla á 100 km: 10 lítrar Eldsneytisqeymir: 80 lítrar Verð sjálfskiptur: 5.100.000 kr. Verð á 44 tommu breytinqu: 1.300.000 kr. Umboð: Truckmasters á islandi Í Breytinqaraðili: Fjallasport Staðalbúnaður: 2 öryggispúðar, rafstýring í rúðum og í speglum, upphitaðir speglar, rafdrifin og upphituð sæti, ; útvarp og geislaspilari, baksýnisspegill með áttavita, leð- ursæti. Innibúnaður: NMT-sími, CB-talstöð, staðsetninqartæki, fartölva. VHF-talstöð, GPS- 44 tommu breytingarpakki: Breikkaðar stálfelgur í 16 tommur, sérsmíðaðir íslenskir brettakantar, gangbretti og aurhlífar, toppgrind, spilbitar að framan og aftan, drullutjakksfestingar framan og aftan, loftkerfi frá Quick Air, með 10 lítra loftkút og Quick Air 2 og Quick Air 3 loft- dælum. 44x18-16,5 Dick Cepek-dekk, Copra-grillgrind, Hella Xenon-kastarar, Piaa-þokuljós og hliðarljós, IPF-leit- arljós með fjarstýrinqu, Lerr-pallhús SAMANBURÐARTÖLUR Hestöfl/sn.: 300/3000 Snúninqsvægi/sn.: 705 Nm/1800 Eiqin bvnqd: 2900 kq t í i Gúlliver í Putalandi Kostir: Ótakmarkað afl, mikill burður Gallar: Þrengsli í aftursœtum Sumir bilar eru einfaldlega stærri en aðrir og þegar þeim hefur verið breytt fyrir 44 tommur getur öku- manni þeirra eflaust liðið eins og Gúlliver í Putalandi. DV-bílar skruppu upp á Langjökul á nýjum GMC með 6,6 lítra Duratec-dísilvélinni í hópi annarra stórra jeppa. Hópurinn samanstóð af Land Cruiser 90, Hyundai Terracan og Nissan Patrol, öllum á 38 tomm- um, auk Isuzu Trooper á 44 tommum. Meira að segja Trooper í yfirstærð og alvöru-Patrol urðu eins og dvergar við hliðina á GMC-tröllinu sem þó er ekki enn fullbreyttur. Lítil upphækkun á 44 tommum Bíllinn er frá Truckmaster í Kanada þar sem honum hefur verið breytt fyrir meiri burð. Þessi bíll er gríðar- lega vinsæll til breytinga í Bandaríkjunum en þar hækka þeir bilinn um 6 tommur, eða 150 mm, til að setja „aðeins" 38 tommu dekk undir bílinn. Þessi er þó ekki hækkaður þar heldur er bætt blöðum í fjaðrimar og skipt um öxla. Aðalbreytingin fer fram hérlendis, nánar tiltekið hjá Fjallasporti, og er þá yfirbygging hækkuð um rúma 60 mm og undirvagn um 20 mm. Þetta er óvenjulítil upphækkun á 44 tommu bíl en í staðinn eru aksturseiginleikar með allra besta móti og þægilegt er að ganga um bílinn og það kemur verulega á óvart hversu lítið klifur er upp í hann. Bíllinn er nokkuð rúmgóður og þægilegur að innan, nema þá helst í aftursætum sem eru fullnálægt framsætum. Pallurinn er risastór, enda myndi hann líklega rúma meðalstóran vélsleða, en samt er þetta það sem kallast „Short Box“ og hægt að fá stærri kjósi menn svo. Öflug Duramax-vél 1 akstri á fjöllum er nánast engin fyrirstaða of mikil fyrir svona tæki. Duramax-vélin ber þennan mikla þunga vel en þyngdin er ekki svo mikil þegar haft er í huga að ekki munar miklu á þessum og jafn mikið breyttum Patrol sem dæmi. Sierra er líka léttari en sambærilegur bíll frá Ford sem er 3,3 tonn óbreyttur, á móti 2,9 tonnum. Samkvæmt vigtarseðli er bíllinn u.þ.b. 3170 kg eftir breytingu. Uppi við Þursaborgir var reynt viö stóru brekkuna á öllum bílunum í frekar þungum og erfiðum snjó sem leyfði ekki mikinn hraða. Allir hinir jeppamir þurftu nokkrar atrennur og til- hlaup til að komast yfir hjallann en Gemsanum dugði að gefa vel inn viö rætur brekkunnar og rann hann þá upp hana eins og að drekka vatn. Það er alveg með ólíkindum hvað aflið skilar sér vel úr Duramax-vélinni út í þessi stóru hjól en úr 300 hrossum er að spila. Hún hefur líka svo hrikalegt tog, 705 Newtonmetra, að mik- il geta í torfærum verður eiginlega sjálfsögð þrátt fyrir að ennþá vanti læsingar, Meiri breytingar fyrirhugaðar Að sögn Reynis í Fjallasporti er enn töluvert eftir að vinna í bílnum og til dæmis verður smíðuð gormafjöðr- un undir hann að aftan. Setja á 4,56: drifhlutfóll i stað 3,73:1 sem nú eru í honum, en þessi drif verða tilbúin í haust. Loks fara 100% Meca-læsingar í hann um leið en það eru vakúmstýrðar læsingar með rofa inni bil. -NG DV-myndir TÞ o Grindarbitinn undir bílnum minnir meira á límtrés- bita í leikfimihúsi, slík er stærðin. © 6,6 lítra Duratec-dísilvélin er með einbunu inn- spýtingarkerfi og hefur hrikalegt afl. 0 Stærsta afturhásing sem undirritaður hefur séð. 11,5 tommu drif ætti að þola nánast hvað sem er. © Patrol á 38 tommum hefur þótt með allra stærstu jeppum hingað til. © Stóru brekkuna við Þursaborgir fór Gemsinn auð- veldlega þrátt fyrir engar læsingar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.