Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2002, Blaðsíða 28
28
Helgarblað 31>"V LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 2002
Þj áningin
er góð svipa
„Ég fór stundum hjá mér þegar ég horfði á tantra-þætt-
ina. Það er erfitt að horfa á fólk opinbera sig eins og
gert var. Það er alveg skiljanlegt að surnir áhorfendur
hafi hlegið eða farið undan í flæmingi. Mér þótti líka
lciðinlcgt að aðrir fjölmiðlar þögðu um þessa þætti og
tóku því ekki fagnandi að umræðu um kynlíf hefði verið
lyft á hærra plan. Áfram héldu fjölmiðlar að tala um
súlustaðina. vændið og klámvæðingu Netsins."
DV-mvndir ÞÖK
Guðjón Bergmann varð þjóðþekktur
fyrir þætti sína um tantra-kgnlíf.
Hann seqir frá reynslu sinni af and-
legum málum, hvernig hann brynjaði
sig fyrir umtali og hvernig jóga leiddi
hann af braut fíknarinnar.
HVERNIG VAKNAÐI ÞESSI JÓGAÁHUGI?
„Það er ekki svo langt slðan ég byrjaði að stunda
jóga. I upphafi árs 1997 dró þáverandi kærasta mín
mig á byrjendanámskeið. Hún hætti eftir námskeiðið
og ég hélt áfram. Ári síðar fór ég á kennaranámskeið
og hef kennt síðan. Ég fann eitthvað í jóganu. Ég
hafði daðrað við andleg málefni frá því ég var 15 ára
en í jóganu fann ég heildræna nálgun. Oft er áhersl-
an bara á mataræði, bara æfingar eða bara hugleiðslu
en í jóganu er að finna fordómalausa og heildræna
nálgun fyrir einstaklinginn til að þroska sjálfan sig.“
Þú hefur verið leitandi:
„Já, og það eru auðvitað ýmsar ástæður fyrir því.
Það var ný leið fyrir mig að horfa á þjáningar sem
merki um að einhverju þyrfti að breyta í stað þess að
hugsa: af hverju kemur þetta alltaf fyrir mig? Margir
eru fastir í þeirri hugsun. Eins og oft er þá gekk ekki
allt snurðulaust fyrir sig hjá mér. Ég fann þörf fyrir
jafnvægi og andlega tengingu sem er laus við for-
dóma.“
Var eklvi á góðri leið
„Foreldrar minir, Guðrún og Guðlaugur Berg-
mann, fóru á sínum tima að leggja stund á stjörnu-
speki. í gegnum þau kynntist ég nýaldarmenning-
unni. Ég hitti nuddara, miðla, reikimeistara og nála-
stungusérfræðinga þannig að ég hef víðtæka reynslu
á mörgum sviðum. Ég get ekki sagt að ég hafi verið á
kafi í þessu. Ég myndi frekar segja að ég hafi daðrað
við nýaldarmenninguna. Það var engin alvara. Ég
hélt mínum lífsstíl, eða, eins og góður ráðgjafi sagði,
þá var það frekar „deathstyle" en „lifestyle“. Á tíma-
bili stefndi líf mitt í algjört óefni. Ég reykti mikið,
drakk og prófaði eiturlyf. Ég var ekki á góðri leið.
Jóga innihélt ekki þá hluta sem mér fundust miður
góðir í hinum fræðunum. Ég lærði að þekkja sjálfan
mig. Ég ætla mér ekki að verða heilagur maður en ég
stefni á að mér líði betur í dag en í gær - annars væri
ég á rangri leið.
Eftir að ég kynntist jóga hefur margt breyst tO hins
betra í lífi mínu. Tveimur mánuðum eftir að ég byrj-
aði í jóga hætti ég að reykja og tveimur árum síðar
hætti ég að drekka. Mér fannst það ekki passa við
nýjan lífsstíl; ég gat ekki sagt að ég væri góður jóga-
kennari ef ég hitti nemendur mína blindfullur niðri í
bæ. Sumir segja að það skipti ekki máli en það myndi
skipta mig máli. Ég þurfti því að velja á milli, ekki af
því mér væri sagt að gera það heldur af því mér
fannst ég þurfa þess.
Sjálfsviröing mín hefur aukist jafnt og þétt með
jógaástunduninni og þar með hefur þol mitt minnkað
gagnvart þeim hlutum sem maður gerir til að skaða
sjálfan sig.“
Þú ert allur í húðflúri, það er ekki alveg jógastíll-
inn:
„Nei, nei, það er ekki jógalegt að vera með húðflúr.
Ég bætti þessu reyndar á mig i fyrra,“ segir Guðjón
og bendir á lítið austurlenskt tákn á framhandlegg
sínum. „Húðflúr fyrirfinnst ekki í því jóga sem stund-
að er í Indlandi. Mér fmnst hins vegar skipta miklu
máli að aðlaga jóga vestrænum lífsstíl. Ég spila á gít-
ar og syng; var í hljómsveitum á sínum tíma. Ég hef
gaman af því að skemmta mér þótt ég fari lítið á
skemmtistaði. Ég er ekki að segja aö skemmtistaðir
séu slæmir, þeir henta mér bara ekki í dag þótt þeir
hentuðu mér á sínum tima. Það getur vel verið að ég
detti í að dansa aftur á skemmtistöðunum en ekki í
bili. Nú er fjölskyldulífið mikilvægara og það að hitta
góða vini.“
Grínið oft gott
„Ég vann í tæp tvö ár á Rás 2 og sá líka um tónlist-
arumfjöllun á DV þar sem hátindur ferilsins var við-
tal við Prodigy. Þegar ég var um tvitugt fór ég ekki í
grafgötur um það að ég ætlaði mér að meika það sem
poppari. Ég ætlaði alltaf að verða frægur söngvari en
þess í stað varð ég frægur jógakennari."
Þú varst svo með jóga á Skjá einum og eftir það
hina frægu Tantra-þætti. Hvernig kom sú hugmynd
upp?
„Ég þýddi árið 1998 bók sem heitir Tantra - listin
að elska meðvitað. Hún seldist ekki mikið en ég gekk
með það í maganum að kynna þetta fleiri. Tantra
virkar fyrir venjulegt fólk. Þegar ég byrjaöi að vinna
á Skjá einum gaukaði félagi minn því að mér hvort ég
ætlaði ekki að gera þætti um tantra. Ég lagði höfuðið
í bleyti og velti því fyrir mér hvernig væri hægt að
gera þetta þannig að það væri áhugavert, án þess að
fara yfir strikið.
Ég var geysilega heppinn með pör. Þrjátíu pör sóttu
um og ég gat valið milli fimmtán góöra para. Það kom
mér á óvart að umsækjendurnir voru flestir eðlilegt
fólk. Ég bjóst við einhverjum klikkhausum með sýni-
þörf en þetta var fólk sem hafði verið lengi í sam-
bandi og vildi prófa eitthvað nýtt. Ferðin í Karíbahaf-
ið skemmdi ekki fyrir. Eftir á sögðu þau sem tóku
þátt í þessu að þau myndu gera þetta aftur þrátt fyr-
ir allt umtalið og grínið. Þau höfðu fengið það mikið
út úr þessu sjálf.
Ég fór stundum hjá mér þegar ég horfði á þættina.
Það er erfitt að horfa á fólk opinbera sig eins og gert
var. Það er alveg skiljanlegt að sumir áhorfendur hafi
hlegið eða farið undan í flæmingi. Mér þótti líka leið-