Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2002, Blaðsíða 42
-4-e
/ / e í L) o rb / a ö H>V LAUGARDAGUR 15. JÚNf 2002
Gamanið er byrjað
YIANG ZEMÍN, FORSETI KÍNA, ER AÐ koma í
heimsókn til Bessastaða. Ég hef verið sendur á vett-
vang til þess að fanga stemninguna við Bessastaði.
Klukkan er að ganga tíu á fóstudagsmorgni þegar ég
geng fram hjá Bessastaðakirkju en áður en ég kemst
lengra stöðvar lögregluþjónn mig.
„Þú ert ekki með neina gula borða eða svarta
klúta,“ spyr hann mig brosandi. Ég neita þvi en spyr
um leið hvort þeir myndu geyma mig inni í Bessa-
staðakirkju ef svo væri. Lögreglumaðurinn hlær og
segir það hugsanlegt. Hann skoðar skilríkin mín og
rekur mig síðan inn í einhverja rétt, svona afgirt
svæði fyrir pressuna ef ég á að vera nákvæmur, og
skipar mér að bíða þarna. Ég vorkenni eiginlega lög-
reglumönnunum sem eru staddir þarna. Ekki endi-
lega bara vegna þess að ég veit að þeim finnst leiðin-
legt að hlíta undarlegum fyrirmælum, sem hafa verið
nokkur að undanförnu, en líka vegna þess að þeir
þurfa að vera kappklæddir í þessari hitabylgju sem
nú gengur yfir suðvesturhornið. Þeir eru sveittir.
Það dylst engum að mikilmenni er senn að koma aö
heimsækja forsetann okkar. Fjölmennt lögreglulið er
á svæðinu ásamt íjölmörgum jakkafataklæddum kín-
verskum lífvörðum. Ég ákveð að spjalla við kínversk-
an kollega minn sem var skipað að bíða í réttinni
með mér. Ég spyr hann út í Falun Gong og álit hans
á þeim félagsskap. Hann segir að leikfimiæfingarnar
séu ágætar og hann stundi þær meira að segja sjálfur
en hins vegar finnist honum heimspekin óttalega
barnaleg. „Þeir ætla að bjarga heiminum," segir hann
og brosir. Þetta er í fyrsta sinu á ævinni sem ég ræði
við kaldhæðinn Kínverja.
Réttin fyllist smám saman af fjölmiðlafólki, bæði
kinversku og íslensku, og ég tek strax eftir því að
hið fyrrnefnda er mun glaðbeittara en hið síðar-
nefnda. Á meðan hið íslenska fjölmiðlafólk bíður
ábúðarfullt eftir því að verða hleypt inn á Bessa-
staði stilla hinir sér upp við hliðina á lögreglu-
mönnum og láta mynda sig og alltaf með Bessastaði
í baksýn. Fyrir þá er þetta ekki síður skemmtiferð
en leit að sannleikanum, eins og fjölmiðlamenn
segja stundum til að réttlæta tilveru sína.
En svo ber loksins til tíðinda. Fjórir ráðherrar úr
rikisstjórn íslands keyra í hlað og skömmu síðar
kemur forseti Kína ásamt fjölmennu föruneyti.
gegn heimsliðinu
Skákþátturinn
Umsjón
Sævar Bjamason
Stórmót fram undan:
Rússland
Þann 12. júní 2002 var haldinn
blaöamannafundur í Moskvu og
voru aðalforkólfarnir Kirsan
Ilyumzhinov og Gary Kasparov. Þar
var tilkynnt um „einvígi aldarinn-
ar“ á milli Rússa og heimsliðsins.
í Belgrad 1970 og aftur í London
1984 var haldin keppni á milli Sov-
étmanna og heimsliðsins. í þetta
skipti mun Rússland, móðurland
skáklistarinnar, glíma við
heimsliðið. Mótið fer fram dagana
8.-12. september 2002 í Moskvu og
verður teflt á 10 borðum. Tefldar
verðar atskákir (25 mín. +10 sek. á
hvem leik).
Stígamót Hellis
Alþjóðlegi skákmeistarinn Sæv-
ar Bjarnason og Sigurður Daði Sig-
fússon sigruðu á Stigamóti Hellis.
Sævar og Daði hlutu 5 1/2 vinning
í 7 skákum. Sævar sigraði Lenku
Ptacnikova en Daði sigraði Hrann-
ar Bjöm Arnarsson í síðustu um-
ferð. í 3.-4. sæti urðu bræðumir
Bragi og Björn Þorfinnssynir með
4 1/2 vinning. Fimmti varð Stefán
Kristjánsson með 4 vinninga.
Nýstárleg keppni
í Garðabæ hefur veriö öflug
skákstarfsemi i allan vetur og nú
stendur enn eitt alþjóðlegt mót fyr-
"* ir dyrum þar, Búnaðarbankamótið
sem er 7. alþjóðlega mótið sem
Taflfélag Garðabæjar heldur.
Mótið er liðakeppni 4 liða. Þessi
lið eru lið Glefsis (TG), Unglinga-
landslið íslands, Kvennalandslið
íslands og úrvalslið unglinga frá
Katalóníuhéraði á Spáni. Hvert lið
er skipað 4 aðilum auk varamanna.
Þar ætti keppnin að geta verið at-
hyglisverð og er mikill fengur að
komu þeirra Katalóníupilta og
væntanlega stúlkna (?). Aðaluppi-
staða liðsins mun vera frá
Barcelona. Aöaldómari á Búnaðar-
bankamótinu verður alþjóðlegi
skákdómarinn Ólafur Ásgrímsson.
Meðdómarar em Haraldur Bald-
ursson og Bragi Kristjánsson. Mót-
ið fer fram dagana 19.-23. júni 2002
í Garðabæ.
Glæsileg skák
Sérlega glæsileg skák var tefld á
Stigamóti Hellis, einhver glæsileg-
asta skák sem tefld hefur verið af
íslendingi lengi!
Hvítt: Sigurður Daði Sigfússon
Svart: Bragi Þorflnnsson
Sikileyjarvöm.
Stigamót HeUis (4), 07.06. 2002
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 Rc6 6. Bc4 e6 7.
Be3 a6 8. Bb3 Dc7 Næsti leikur
hvíts er fyrsti leikurinn í
Velimirovic-árásinni svokölluðu.
Velimirovic var júgóslavneskur
sóknarskákmaður og er, af guðs
náð, og kom fram með margar
skemmtilegar hugmyndir. Fyrst
um 1965 og hann tefldi á einu af
Reykjavíkurskákmótunum, á Kjar-
valsstöðum 1974. 9. De2 Be7 10. 0-
0-0 0-0 11. g4 Rd7 12. Hhgl Rc5
13. Rf5!?
Allt er
nú hægt! Ef
svartur
þiggur
manninn,
13. - exf5
kemur 14.
Rd5 Dd8 15.
exf5 eða 15.
gxf5 með öflugri sókn. Þessi fórn
vekur upp margar skemmtilegar
minningar hjá mér, upp úr 1970 sá
ég marga skákmenn þjást í þessari
stöðu og tók sjálfur upp á þvi að
tefla Franska vörn. En í dag er ég
eldri en tvævetur og ekki eins auð-
velt að skjóta mér skelk í bringu!?
En veikleiki Braga er byrjanakunn-
átta, enn þá, og svo teflir hann vörn
verr en sókn. Sigurður Daði var ný-
búinn að fá bók í hendurnar með
þessu afbrigði og því öllum hnútum
kunnugur. Aumingja Bragi, hann
afræður að reyna að blása til sókn-
ar. 13. - b5 14. Bd5! Bb7 Það virð-
ist vera stórhættulegt að opna g-lín-
una, afbrigðið 14. exf5 15. gxf5 Kh8
16. Dg4 með öflugri mátsókn?! Enn í
gamla daga var oft drepið með e-
peðinu og leikið Hg3-h3 og síðan g5
og Dh5. Hvað sem því líöur þá er
erfitt að þiggja mannsfórnina á
móti manni sem fæddist um líkt
leyti og afbrigðið var í tísku og er
með glampann í augunum, „ég
kann þetta allt saman!" Sumt eldist
vel eins og e.t.v. þetta afbrigði! 15.
g5 b4 16. Dh5 Re5?! Hvað gerist
eftir 16. bxc3 treysti ég mér ekki að
fullyrða, ekki mikill reiknimeistari
nema í undantekningartilfellum.
En af svipnum á Daða mátti ráöa að
hann hefði svar við því. Getur það
verið? 17. f4! bxc3 18. fxe5 cxb2+
19. Kbl Rxe4
Bragi
hafði treyst
á að þessi
staða væri
unnin hjá
sér, mikil
gagnsókn
og 2 menn í
uppnámi,
þ.e. keppendur og mennirnir á f5 og
d5. En nú kemur öflugt gegn-
umbrot! 20. g6! Rc3+ 21. Kxb2
Rxdl+ 22. Kcl! Það eru hótanir
hvíts sem ráða ferðinni. Mun fleiri
menn í sókninni, það er ekki slæmt
fyrir Sigurð Daða? 22. - fxg6 23.
Hxg6 Hxf5 24. Bxe6+ Kh8 25.
Bxf5 Þetta virðist vera þvingað allt
saman en nú leikur Bragi sig í mát!
25. - dxe5??
I stað 25.
dxe5
koma
nokkrir
leikir til
greina. 25.
Bh4, 25.
Bc8 26.
He6 g6 27.
Bxg6 Bf8 28. exd6 með óljósu
tafli. Hvað er best fyrir svart er
ráðgáta, en nú er þvingað mát!
26. Dxh7+!! Kxh7 27. Hh6+! Kg8 28.
Be6+ 1-0. Stórglæsilegt.
Sigurslták Hannesar
í Malmö, Svíþjóð, er Hannes að-
eins að rétta úr kútnum. Hér vinn-
ur hann liðsfélaga sinn í liði Hellis
og kemur i veg fyrir að hann nái
stórmeistaraáfanga? Norðmaður-
inn þurfti 1 v. af 2 síðustu og þess
skák var í næstsíðustu umferð.
Hvítt: Hannes H. Stefánsson (2598)
Svart: Leif E. Johannessen (2452)
Katalónsk byrjun.
Sigeman alþjóðlega mótiö
i Malmö (8), 13.06. 2002
1. c4 e6 2. Rf3 Rf6 3. g3 d5 4.