Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2002, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2002, Síða 8
8 Útlönd LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 2002 DV Mótmæli við kínverska sendiráðið. Kína skammar Suður-Kóreu Kínverjar létu sendiherra Suður- Kóreu í Peking heyra það en þeir voru afar óhressir með framgöngu sendiráðsstarfsmannanna. Þeir eru með norður-kóreskan mann í sendi- ráðinu sem hefur óskað pólitisks hælis í Suður-Kóreu. Kínversku lög- reglunni hefur verið skipað að handtaka manninn en að lokum þurfti lögreglan að brjótast inn i sendiráðið til að koma höndum yfir manninn. í kjölfarið hafa sprottið upp mikil mótmæli við sendiráð Kínverja í Suður-Kóreu yfir framgöngu þeirra fyrrnefndu í þessu máli en það hef- ur mikið færst í aukana að íbúar Norður-Kóreu reyni að sækja um pólitískt hæli hjá erlendum sendi- ráðum í Kína. Skip vísinda- manna í vanda Skip hefur fest sig í ís þegar það var á siglingu nálægt Suðurskauts- landinu en í þvi eru um 100 manns, þar af 79 rússneskir vísindamenn. Yfirvöld i Suður-Afríku hafa boð- að til björgunaraðgerða og munu Argentínumenn leggja þeim lið. Samkvæmt fréttum eru vísinda- mennirnir við góða heilsu, þó svo að öðru máli gegni um andlegu lið- anina. Þegar hávetur er á þessum slóð- um getur hitastigið farið niður í allt að 50 gráða frost. Hamid Karza. Karzai lofar friði og öryggi Hamid Karzai, nýkjörinn leiðtogi Afganistans, hefur lofað að koma á friði í landinu, sem og öryggi fyrir samlanda sína. í þakkarræðu sinni sagði hann að hann myndi vinna að þvi „af hógværð og ötulsemi" að koma Afgönum, sem eiga um sárt að binda, til hjálpar. Hann sagði einnig að hann myndi reyna af fremsta megni að inn- heimta fjárhæðir sem erlendir aðil- ar hafa lofað til uppbyggingar í landinu en hafa enn ekki borgað. Hann þarf nú að koma saman ráðuneyti sinu og mun mikið mæða á honum þar að koma saman full- trúum allra þeirra mörgu þjóðernis- hópa sem búa í landinu. ^ 11 létust í sprengjutilræðinu í Karachi í morgun: Oþekkt samtök á bak við tilræðið Óþekkt samtök hafa lýst yfir ábyrgð á sprengjutilræðinu við skrifstofu bandariska ræðismanns- ins í pakistönsku borginni Karachi í gærmorgun. Samtökin kalla sig Al- Qanoon og í yfirlýsingu, sem barst frá þeim síðla dags í gær, segja þeir að að sprengjan hefði verið ætluð Bandaríkjamönnum og bandamönn- um þeirra, þar á meðal þeim pakist- önsku „þrælum“ sem styðja Banda- ríkjamenn. Yfirvöld vestra hafa brugðist afar illa við árásunum og í gær var sendiráði Bandaríkjanna í höfuð- borginni Islamabad lokað. Auk þess hefur öllum stjórnmálalegum tengslum verið slitið við landið. „Atvikið minnir allt of vel á þá staðreynd að þjóð okkar stendur í striði gegn hryðjuverknaði þar sem ráðist er með öllum tiltækum ráð- um á Bandaríkjamenn og aðra,“ sagði Ari Fleischer, talsmaður REUTERSMYND Dregur dllk á eftir sér Bandaríkjamenn hafa lokaö sendi- ráðinu í Islamabad. Hvíta hússins í Washington í gær. Alls létust 11 í sprengingunni í gær sem atvikaðist þannig að bíl sem var fullur af sprengjuefni var ekið inn í sjoppu sem var við skrif- stofu ræðismannsins og sprakk bíll- inn í loft upp. Tilræðismaðurinn var meðal þeirra látnu en tala slas- aðra var komin upp í 40. Þó voru engir erlendir menn meðal þeirra sem létust, þó svo að einn banda- rískur hermaður hafi slasast, auk 5 pakistanskra starfsmanna skrifstof- unnar. Það var aðeins dagur liðinn frá heimsókn Donalds Rumsfels, varn- armálaráðherra Bandaríkjanna, til Pakistans, þar sem hann reyndi að þrýsta á stjórnvöld þar og á Ind- landi að mætast á miðri leið í Kasmírdeilunni. Tilræðið kom þvi sem mikið reiðarslag fyrir yfirvöld í Pakistan og skapar mikla óvissu á þessu svæði. REUTERSMYND Konungur poppslns í Bretaveldl Michael Jackson ræöir hér viö miöilinn Uri Geller (til vinstri) og töframanninn David Blaine viö komuna í iávaröadeiid breska þingsins. Jackson er i stuttri heimsókn í Englandi þar sem hann tók, ásamt köppunum sem eru meö honum á myndinni, þátt í fjáröfiunarskemmtun í Exeter sem fór fram í gær. Frakkar ganga til þingkosninga á morgun: Jacques Chirac býst við stórsigri hægriflokkanna í kosningunum Eftir 5 ára samveru með vinstrisinnuðum þingmeirihluta hugsar Jacques Chirac Frakklands- forseti sér gott til glóðarinnar í ann- arri umferð þingkosninganna á morgun. Skoðanakannannir stað- festa stórsigur hægriflokkanna í fyrstu umferð og lítur út fyrir að Chirac verði í góðra manna hópi næstu 5 árin. Flokkur Chiracs mun samkvæmt könnunum vinna allt að 400 sæti á þingi á meðan vinstrimenn gætu glataö um helmingi af 200 sætum sínum. Helsta von þeirra felst í því að aldrei hafa færri kjósendur mætt á kjörstað og í fyrstu umferðinni og hafa þeir unnið hörðum höndum að því alla undanfama viku að hvetja kjósendur sína að láta hendur standa fram úr ermum og mæta á kjörstað á morgun. Þjóðfylking öfgamannsins Jean- REUTERSMYND Jacques Chirac Forsetinn er ánægöur meö frammi- stööu manna sinna kosningunum. Marie Le Pen getur í besta lagi vonast eftir tveimur sætum í franska þinginu en stuðningsmenn öfgamannsins voru vongóðir um gott fylgi eftir árangur hans í forsetakosningunum fyrir skömmu. Fari kosningamar á þennan veg verður Jacques Chirac með valda- mestu forsetum síðari tíma, aðeins nokkram vikum eftir að hann fékk þð minnsta fylgi í fyrstu umferð forseta- kosninga sem sitjandi forseti hefur fengið. Hægrisinnaðir eru í meirihluta í öldungadeild þingsins og horfir Chirac nú fram á að eiga meirihluta fulltrúa í neðri deild þingsins. Loforð hægriflokkanna um lækkun á sköttum og hertari refsilög virðast hafa lagst vel í kjósendur. Fram undan era þó erfiðar ákvarðanir, sér í lagi varðandi velferðarkerfið og lífeyris- mál, og gæti það komið Chirac í koll þegar líða tekur á kjörtímabilið. Kosið í Tékklandi Almennar kosn- ingar fóra fram í Tékklandi I gær en mjótt var á munum demókrata og sósí- alista í skoðana- könnunum. Demókratinn Vaclav Klaus, fyrr- um forsætisráðherra landsins, von- ast til að leiða Tékka inn í Evrópu- sambandið ef allt gengur að óskum. íraki ákærður um njósnir Bcmdaríkjamenn hafa skipað íröskum sendimanni hjá Sameinuðu þjóðunum í New York að fara úr landi þar sem hann er grunaður um njósnir. Búist er við að hann verði farinn fyrir lok mánaðarins. Eftir 15 ára leit hafa stjörnufræð- ingar fundið sólkerfi líkt þvi sem við búum í. ífyrsta sinn hafa þeir fundið stóran gasbolta sem líkist mikið Júpiter og snýst um stjömu sem svipar mikið til sólarinnar. Fræðimenn velta fyrir sér hvort pláneta lík jörðinni leynist þar á milli. 13 látnir í Kongó 8 skæruliðar og 5 almennir borg- arar í Kongó voru drepnir í bænum Brazzaville í gærmorgun þegar her- inn varðist atlögum skæruliðanna. 100 manns voru handteknir í kjöl- farið á átökunum. Peres á í viðræðum 'mh Utanríkisráðherra ísraels, Shimon Per- 'w es, sagði í gær að ig _ M hann hefði undan- i * * Wm farið átt í viðræðum Jœ við palestínska ráða- I - jKJ menn en taldi þó | SB ekki að það mundi Bk—leiða til viðræðna við Yasser Arafat, forseta Palestínu. Hann sagði enn fremur að friðarvið- ræður mundu ekki eiga sér stað fyrr en Palestínumenn hættu öllum árásum á ísraela. II þorpsbúar létust í Alsír 11 þorpsbúar í Alsír, þar af 2 böm, létust í árásum íslamskra uppreisnarseggja i Alsír. Einn hóp- ur er talinn hafa framið tvær árásir nærri þorpinu Douera sem er um 20 kílómetra suður af Algeirsborg, höf- uðborg landsins. Winona fyrir rétt í ágúst Leikkonunni bandarísku, Winonu Ryder, er gert að mæta fyrir rétt i New York þar sem hún er kærð fyrir búðahnupl 14. ágúst. Hún átti að mæta í síðustu viku en brotnaði á hönd í viðskiptum við einn af fjöldamörgum myndatöku- mönmun sem voru á staðnum. Ný lög gegn hryðjuverkum Bandaríska öldungadeildin sam- þykkti í gær ný lög sem kveða á um að auðveldara verði að framselja grunaða sprengjutilræðismenn. Þá vom einnig samþykkt lög með mikl- um meirihluta þingsins sem segja að ólöglegt sé að styrkja með fjár- framlögum samtök eða hvem þann sem stendur í hryðjuverknaði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.