Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2002, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2002, Side 14
Innlendar fréttir vil | LAUGARDAGUR 15. JÚNt 2002 I>V Helgarblað Hátíðarkvöldverður forseta Kína: Silungur, lamb og súkkulaðikaka Hátíðarkvöldveröur til heiðurs Jiang Zemin, forseta Kína, og Wang Yeping, konu hans, var haldinn í Perlunni í gærkvöld og voru alls 183 manns á gestalista. Meðal viðstaddra voru að sjálfsögðu kínversku forseta- hjónin og gestgjafar þeirra, þau Ólaf- ur Ragnar Grimsson, forseti íslands, og Dorrit Moussaief, heitkona hans. Einnig voru mættir Quian Qichen, varaforsætisráðherra Kina, og Tang JiaXuan, utanríkisráðherra Kína. Allir ráðherrar í ríkisstjórn og makar þeirra nutu kvöldverðarins, að undanskildum Tómasi Inga Olrich menntamálaráðherra, og Páli Péturs- syni félagsmálaráðherra, sem báðir eru staddir fyrir norðan, og Sólveigu Pétursdóttur dómsmálaráðherra, sem er erlendis. Halldór Blöndal, forseti Alþingis, og Markús Sigurbjömsson, varaforseti Hæstaréttar, voru á staðn- um ásamt eiginkonum sínum. Meðal annarra gesta má m.a. nefna fyrrverandi forseta Islands, frú Vig- disi Finnbogadóttur, fyrrverandi for- sætisráðherra, Steingrím Hermanns- son, starfsmenn ýmissa ráðuneyta, auk annarra háttsettra embættis- manna bæði frá Islandi og Kína. Matseðillinn var íslenskur og jafti- framt gómsætur; í forrétt var boðið upp á silungatartar með silunga- hrognum á blómkálsbeði, í aðalrétt fengu gestir lambahrygg með rótar- grænmeti og kantarellusveppum, og loks var boðið upp á heita súkkulaði- köku með vanilluís í eftirrétt. Sigrún Hjálmtýsdóttir söng fyrir gesti undir píanóleik Önnu Guðnýjar Guðmunds- dóttur. -vig Fundur Jians Zemins og Ólafs Ragnars Grímssonar: Mikilvægt að gagn- kvæmur skilningur ríki Heft tjáningafrelsi Á fjóröa þúsund mðtmælendur sem komu samn á Austurvelli í gær, andmæltu skoöanakúgun kínverskra stjórnvalda meö táknrænum hætti. Forsetinn og Falun Gong Forseti Kína, Jiang Zenim, hóf opinbera heim- sókn sína hingað til lands á flmmtu- dag og stendur hún enn yfir. Kröfug mótmæla- alda hefur risið vegna þeirrar ákvörðunar ís- lenskra stjómvalda að meina kín- verskum iðkendum Falun Gong að koma hingað til lands en ætlun þeirra var að mótmæla mannrétt- indabrotum í heimalandi sínu á sama tíma og heimsókn forsetans stæði yfir. Rúmlega sjötíu Falun Gong-menn voru i stofufangelsi 1 Njarðvíkurskóla á þriðjudag en var um miðnætti aðfaranótt miðviku- dags sleppt inn í landið með því for- orði að þeir færu í öllu eftir fyrir- mælum lögreglu. Fleiri af þessu sauðahúsi fengu hins vegar ekki að koma inn 1 landið og hefur þess ver- ið vandlega gætt, meðal annars af is- lenskum lögreglumönnum sem stað- ið hafa vakt á erlendum flugvöUum. Byggðastofnun Iðnaðarráðherra veitti Theódóri Bjarnasyni, forstjóra Byggðastofnun- ar, á fimmtudag lausn frá störfum. Sama dag gaf Kristinn H. Gunnars- son, stjórnarformaður stofnunarinn- ar, út að hann gæfi ekki kost á því að sitja lengur í formannsstólnum. Deil- ur mftli þessara tveggja manna hefur borið hátt að undanfornu. í DV sagði forstjórinn að hann hefði mátt þola „stöðuga áreitni og sálrænt ofbeldi" af hálfu stjórnarformannsins. Sá sagði í blaðinu á mánudag að hann hygðist sitja sem fastast í formanns- stól en hafði fyrir vikulok skipt um skoðun. Laxveiðin dræm Laxveiðin fer dræmt af stað en nú hafa veiðst á miUi 50 og 60 laxar í þeim ám sem hafa verið opnaðar. Á sama tíma í fyrra voru laxarnir orðnir helmingi fleiri. Veiðimenn segja að tveggja ára laxinn skili sér ekki enn en binda þó vonir við að hann gangi upp í ár á næstu dögum. Þúsund á biðlista AUs eru 967 aldraðir á öUu land- inu á biðlistum eftir plássi, ýmist í þjónustuhúsnæði eða hjúkrunar- rými sjúkrahúsanna. Þetta er skv. nýjustu tölum úr vistunarskrá heU- brigðis- og tryggingamálaráðuneytis- ins frá i maí. Talsmenn aldraðra segja ástandið vera geigvænlegt. Blíðskaparveður var í gærmorg- un þegar Jian Zemin, forseti Kína, heimsótti Ólaf Ragnar Grímsson, forseta íslands. Fundurinn var, að sögn Ólafs, árangursríkur og með- al þess sem rætt var voru málefni er vörðuðu sjávarútveg, jarðhita og ferðamennsku. Ólafur taldi gríðarlega mikilvægt fyrir ís- lensku þjóðina að rækta samskipti sín við Kína, ekki eingöngu í við- skiptalegu tiUiti heldur einnig menningarlegu. Mannréttindamál voru jafn- framt rædd á fundinum og sagði Ólafur að ítarlegar umræður hefðu átt sér stað um stöðu lýð- ræðisins. „Ég lýsti því fyrir forset- anum að hið opna lýðræðislega samfélag væri mjög ríkur þáttur, ekki aðeins í stjórnkerfi okkar ís- lendinga heldur einnig í viðhorf- um okkar og menningu og að það væri okkur kappsmál að leggja áherslu á þessa þætti í viðræðum okkar við aðrar þjóðir," sagði Ólafur. í viðræðum forsetanna tók Ólaf- ur það einnig fram að mikilvægast væri að mannréttindamál i Kína þróuðust í réttar áttir og gagn- kvæmur skilningur ríkti á milli hópa með ólíkar skoðanir. Til dæmis yrðu mótmælendur að hafa tækifæri til að hafa áhrif á þróun- ina með opnum hætti. Ólafur taldi það ánægjulegt hve hið íslenska samfélag hefði verið opið fyrir Falun Gong og gefið þeim tækifæri til að koma sínum skoðunum á framfæri. „Mér finnst það í raun ekki sanngjörn gagn- rýni á stjórnvöld að við höfum ekki gefið Falun Gong tækifæri til þess að láta rödd sína heyrast. Ég held að margar mótmælendahreyf- ingar hefðu fagnað því að hafa jafn greiðan aðgang að fjölmiðlum og fengið jafn víðtækan stuðning meðal þjóðarinnar og Falun Gong hefur fengið á Islandi," sagði Ólaf- ur. -JKÁ Falun Gong og forseti Kína Liðsmönnum Falun Gong tókst aö komast í sjónlínu forseta Kína. Hér situr hann í BMW bifreiö á leið frá Bessastööum. Nýir bæjarstjórar Lúðvík Geirsson tók við starft bæjar- stjóra í Hafnarfirði á þriðjudag og sama dag settist Ámi Sigfússon í bæjarstjóra- stólinn i Reykjanesbæ. Mikil uppstokkun er í röðum bæjar- og sveitarstjóra þessa dagana eftir bæjarstjómarkosningamar og auglýst er eftir átta slíkum til starfa víða um landiö. Deilt nm bætur Lögfræðingar Síldarvinnslunnar og Baltasars Kormáks leikstjóra deila mn bætur vegna eldsvoða sem upp kom í geymsluhúsi fyrirtækisins eystra í janúar þegar Baltasar og hans fólk unnu þar að upptökum á myndinni Hafrnu. Tjón vegna elds- voðans nemur 70 milljónum króna. Forstjóri Síldarvinnslunnar vonast til að málið leysist án atbeina dómstóla. DV-MYNDIR ÞOK Jian Zemin, forseti Kina við komuna til íslands Hér heilsar hann Halldóri Ásgrímssyni utanríkisráöherra ásamt Davíö Oddssyni forsætisráöherra og Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta íslands. Velkominn, Jian Zemin Kínverjar á íslandi fögnuöu komu forseta síns til landsins á á Keflavíkurflugvelli á fimmtudaginn. Ekkl fara of nærri Hér er kínverskur fréttamaöur leiddur burt af iögreglu eftir aö hafa hætt sér of nærri í móttökunni á Keflavíkurflugvelli.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.