Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2002, Síða 29
LAUCARDAGUR 15. J Ú N { 2002
HelQoröfaö DV
2<3
inlegt að aðrir fjölmiðlar þögðu um þessa þætti og
tóku því ekki fagnandi að umræðu um kynlíf hefði
verið lyft á hærra plan. Áfram héldu fjölmiðlar að
tala um súlustaðina, vændið og klámvæðingu Nets-
ins. Þeir nýttu sér ekki tækifærið sem gafst til að
koma af stað umræðu heldur gerðu frekar grín að
þessu. Grinið var oft mjög gott, til dæmis var skets-
inn eftir Þorstein Guðmundsson mjög fyndinn. Það
var lika gaman að koma í áramótaskaupinu. Ég hef
örugglega hlegið manna mest að þessu. Það var gam-
an að fá þau viðbrögð en hefði líka verið gaman að fá
alvarleg viðbrögð."
Elíki tantra-meistari
Leitar fólk ekki til þín sem sérfræðings í kynlífi eft-
ir þetta?
„Ég er ekki tantra-meistari. Ef ég væri dýralæknir
eða eróbikkkennari myndi enginn setja orðið meist-
ari eða snillingur á eftir titlinum. Ég er ekki jóga-
meistari og ekki tantrameistari. Ég hef lesið mikið
um tantra og stunda það heima hjá mér en er ekki að
fjalla um það opinberlega. Mér þótti eðlilegt að tala
um tantra í þáttunum en ef ég hefði viljað leggja það
fyrir mig að kenna tantra þá hefði ég tekið boðinu um
að gera aðra þáttaröð. Ef ég hefði viljað græða á þessu
hefði ég haldið námskeið og skrifað aðra bók. En ég
er fyrst og síðast jógakennari og það er það sem ég
ætla mér að gera - hvort sem ég næ að lifa af því eða
ekki, það verður að koma í ljós. Ég mun halda áfram
að nema jógafræðin það sem eftir er.“
En tantrað hefur borið árangur, þú átt von á barni?
„Ég kvæntist Jóhönnu Bóel í nóvember í fyrra og
við eigum von á barni í desember. Jóhanna á fyrir
þrettán ára stelpu, Báru Steinunni. Þetta verður mitt
fyrsta barn. Það verður geysilega gaman. Ég hef búið
mig undir foðurhlutverkið alla mina ævi. Öll fjöl-
skylduboð hafa farið í leiki með börnum, ég vann á
leikskóla í níu mánuði og tapaði þá hálfri milljón þvi
launin eru svo lág. Ég hlakka mjög til að takast á við
föðurhlutverkið sem er væntanlega stærsta hlutverk
sem maður getur tekið að sér í lífinu. Ég hef stúder-
að mikið hvaða áhrif uppeldi hefur á börn. Það ætla
sér allir stóra hluti í uppeldinu og ég mun gera mitt
besta. Ég er vel undirbúinn."
Mystíkin horfin
„Það skemmtilegasta við þróunina í jóga hér á
landi er að mystíkin í kringum það hefur horfið. Þetta
er líkamsrækt, öndun og slökun sem hjálpar fólki til
að líða betur. Svifandi menn og naglabretti hafa ekk-
ert með jóga að gera. Jógar sitja ekki mikið i hellum
nútildags. Ég hef reynt að ná jóga niður á hversdags-
planið. Fólk hefur lítinn tima til að hreyfa sig og
sinna sjálfu sér. Ef líkamsrækt, hugareinbeitingu og
slökun er hægt að stunda á sama tima er mikill tíma-
sparnaður í því. Ég hef sterka tilfinningu fyrir þvi að
jóga sé líkams- og hugrækt 21. aldarinnar. Jóga er
ekki tískusveifla. Jóga hefur staðið af sér tiskusveifl-
ur síðustu fimm þúsund ára.“
Þurfum við ekki á jóga að halda í öllum þeim hraða
og spennu sem er í vestrænum þjóðfélögum?
„Ég ætla ekki að setja mig í dómarasæti og dæma
samfélagið. Það eru margir góðir hlutir í samfélaginu.
Fólk verður sífeUt meðvitaðra um mikilvægi þess að
rækta sjálft sig í stað þess að keyra sig endalaust
áfram. Fólk getur ekki sett sjálft sig og fjölskyldu sína
til hliðar. Það er alveg sama hvað ég segi, fólk mun
leita inn á þetta svið því þörfin er fyrir hendi. I góð-
ærinu er minni þörf fyrir hugrækt en hún er mest
áríðandi í kreppu. Þjáningin er góð svipa tU að reka
menn til að gera eitthvað í sínum málum.
Margir hafa skrifað bækur sem fordæma vestrænt
samfélag. Sumir halda því fram að stóllinn sé versta
uppflnning sögunnar og svo framvegis. Ég lærði einu
sinni áð tU að vera góður kennari þurfi fyrst að kaUa
fram bros hjá nemandanum. Þá opnar hann sig og
tekur betur við. Það gengur ekki að ráðast á fólk og
ætlast svo til að það hlusti á mann. Það hjálpar aldrei
að dæma aðra en fólk gerir það til að upphefja sjálft
sig.“
Jóga er vísindi
„Ég hef tekið eftir því að eftir því sem fólk gerir
meiri æfingar þá eykst áhugi þess á jógaheimspekinni.
Fólk þarf ekki að notfæra sér jóga meira en það viU.
Það er ekki skylda að breyta um lífsstíl og mataræði.
Það er nóg að gera æfingar, það þarf ekki að fara
lengra. En ef fólk viU þá er margt í boði sem það getur
tileinkað sér.
Fólk spyr oft hvort jóga sé trúarbrögð. Ég svara því
neitandi. Trúarbrögðin segja „trúðu!“ en í jóga eru æf-
ingarnar vísindalegar rannsóknir á manni sjálfum.
Maður prófar og ef maður uppsker ekki þá hættir mað-
ur. Þess vegna eru jógafræðin vísindi en ekki trúar-
brögð. Það eru engir kennibálkar um hvernig maður
eigi að vera heldur byggist jóga á persónulegri reynslu
sem kemur í framhaldi af tilraunum og æfingum."
Ertu grænmetisæta?
„Eins og með allt þá er ég smám saman að breyta
hlutum. Það tók smátíma að hætta að drekka og
reykja. Það tók smátíma að hætta að borða kjöt en ég
borða enn fisk og mjólkurvörur. Maður verður að
spyrja sig af hverju maður borðar. í dag vil ég halda
mér í formi og þá finnst mér gott að borða fiskinn.
Með tímanum mun ég borða meira með það að leiðar-
ljósi að halda mér hreinum fyrir hugleiðslu og breyta
mataræði mínu í samræmi við það.“
Lífið á að vera erfitt
Þú hlýtur að lifa mjög meðvituðu lífi:
„Það er stefnan að vera meðvitaður um lífið og um
sjálfan mig. Stærstu vandamálin í lífi mínu hafa
sprottið af því að ég hef verið ómeðvitaður um sjálf-
an mig, reiður út i fortíðina og reynt að deyfa mig fyr-
ir óþægindum. Núna flnnst mér viturlegra að takast
á við verkefnin; horfast í augu við vandann í stað
þess að líta á þau sem óyfirstíganleg. Lífið er erfitt og
það á að vera erfitt.
Það var dálítið fyndið en þegar ég hætti að reykja
og drekka spurðu sumir mig að því hvort ég ætlaði að
verða alveg heilagur. Er slæmt að stefna í þá átt? Það
er betra en stefna í hina áttina og þá niðurrifsstarf-
semi sem fylgir því. Margir eru óánægðir með eigið
líf og þá finnst þeim gott að geta bent á „þennan hálf-
vita sem þykist vera heilagur og yfir aðra hafinn".
Ég vandist umtali þegar ég var yngri; það var ekki
lítið talað um foreldra mína. Ég hef mjög sterk bein
gagnvart umtali og ég held að það hafi gefið mér mik-
ið frelsi þegar ég uppgötvaði að mér myndi aldrei líka
við alla og öllum myndi aldrei líka við mig.“
-sm