Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.2002, Qupperneq 38
Helgarblaö X3 V
LAUGARDAGUR IS. JÚNÍ 2002
1
■K
Páll Magnússon flutti sig úrstarfi
fréttastjóra Stöðvar 2 eftir um 20 ára
starf i/ið fjölmiðlun og gerðist upplgsinga-
fulltrúi íslenskrar erfðagreiningar.
Þar gætir hann orðstírs umdeildasta
fyrirtækis á íslandi og orðstírs umdeildasta
forstjóra og frumkvöðuls á íslandi, Kára
Stefánssonar, en þessir tveir hlutir eru eitt
og hið sama. Páll talar við DV um bakteríu
fréttanna, umdeilda yfirmenn og orðspor
Kára Stefánssonar.
ÍSLENSK ERFÐAGREINING ER ÁN EFA mest um
talaða fyrirtæki á íslandi. Á venjulegu ári birtast ríf-
lega 1300 fréttir af starfsemi fyrirtækisins í íslenskum
fjölmiðlum. Það er nálægt því að vera þrjár og hálf
frétt á dag.
Það kemur því ekkert á óvart þótt fyrirtækið hafi á
sínum snærum sérstakan starfsmann sem hefur það
hlutverk að hafa hemil á eða stýra þessu fréttaflóði
því í þessari tölu er ekkert tillit tekið til umfjöllunar
í erlendum fjölmiðlum.
Það vakti talsverða athygli seinni hluta síðasta árs
þegar Páll Magnússon, gamalreyndur fréttahundur til
nærri 20 ára í faginu, stóð upp úr stól sínum sem
fréttastjóri Stöðvar 2 og gerðist framkvæmdastjóri
samskipta- og upplýsingasviðs íslenskrar erfðagrein-
ingar. Það er nefnilega þannig að meðal blaðamanna
og fréttamanna eru þeir sem starfa við almanna-
tengsl, talsmenn og fréttafulltrúar eða upplýsingafull-
trúar eða hvaða nafni þeir eru nefndir, ekki sérstak-
lega hátt skrifaðir. Þeir eru oftast í umbreyttu eöa lítt
dulbúnu sölumannshlutverki og loða við fjölmiðla
eins og kusk, sífellt á höttunum eftir auglýsingum,
kynningum, umfjöllun um framleiðsluvörur, starfs-
fólk eða málstað sins fyrirtækis. Fréttahaukar sem
telja sig vera að elta sannleikann og flytja hann
ómengaðan til almennings eftir faglegum reglum og
siðareglum sem tíðkast i starflnu hafa ekki mikið álit
á þessum mönnum og það liggur viö að innan stéttar-
innar sé litið á þá sem hálfgerða svikara.
Þegar ég þýfga Pál Magnússon um þessa hluti á
glæsilegri skrifstofu hans í nýju og framandlegu húsi
íslenskrar erfðagreiningar í Vatnsmýri þá kannast
hann við þessi sjónarmið.
„Ef ég hefði fengið tilboð um starf frá einhvers kon-
ar almannatengslafyrirtæki eða einhverju þeirra
hefðbundnu og grónu fyrirtækja í íslensku viðskipta-
lífi sem halda úti slíkum störfum þá hefði ég alla
jafna sagt: Takk en nei takk, því mér hefði ekki fund-
ist að það væri neitt starf fyrir mig.
Staðreyndin er samt sú að þegar Kári Stefánsson
hafði samband við mig seint um sumarið 2000 og
kynnti mér þá hugmynd sína að ég kæmi og ynni fyr-
ir þetta fyrirtæki þá varð ég mjög hugsi. Ég var satt
að segja orðinn svolítið leiður á fréttaharkinu og
fannst ég ekki geta gert mikið meira á þeim vettvangi
miðað við þann þrönga kost sem fréttastofunni var
búinn. Ég var búinn að hugsa með sjálfum mér aö ef
ég vildi gera eitthvað í því þá yrði það að gerast áður
en ég yrði fimmtugur.
Mér fannst einfaldlega aö þetta fyrirtæki væri svo
einstakt í sinni röð bæði hérlendis og erlendis og til-
urð þess öll og verkefni með þeim ólíkindum að ég gat
ekki séð að ég fengi annað og meira spennandi tæki-
færi til að skipta um starfsvettvang þegar ég yrði
fimmtugur. Þess vegna sló ég til. Mig langaði einfald-
lega til að vinna hjá þessu fyrirtæki," segir Páll og
við horfum út um gluggann yfir hinn umdeilda
Reykjavíkurflugvöll og síðan lengra til austurs þar
sem hægt er að rekja samfellda línu eftir fjallabrún-
um frá Bláfjöllum, um Grindaskörð, Lönguhlíð, Gull-
bringu, Sveifluháls, Trölladyngjur, Fagradalsfjall og
Keili.
Frainboð og eftirspum
Hann bætir svo við að hlutverk sitt sé svolítið
öðruvisi en margir myndu ætla.
„Ég stend ekki í því frá degi til dags að ýta þessu
fyrirtæki inn í fjölmiðla eða koma þvi á framfæri,
eins og það heitir.
Það er meiri eftirspurn eftir fréttum héðan og um-
fjöllun um fyrirtækið en framboð."
Það er staðreynd að það er nánast aldrei talað um
íslenska erfðagreiningu án þess að talað sé um stofn-
anda og frumkvöðul fyrirtækisins, Kára Stefánsson,
sem kom eins og vígahnöttur inn í íslenskt samfélag
og viðskiptalíf og stofnaði fyrirtæki sem hefur orðið
tilefni hatrammra deilna í samfélaginu um nánast
allt sem fyrirtækið hefur gert.
„Það er í sjálfu sér rétt að Kári er mjög rammgerð-
ur persónugervingur íslenskrar erfðagreiningar,“
segir Páll.
„Annars vegar er það auðvitað vegna þess að hann
átti hugmyndina að stofnun þess og gerði það að
veruleika með fulltingi annarra. Hins vegar er það
vegna þess að hann er, eins og fyrirtækið, mjög áber-
andi, fyrirferðarmikill og umdeildur. Ég hygg að
þessu sé oft svona farið um frumkvöðlafyrirtæki eins
og þetta, en man í svipinn ekki eftir neinni hliðstæðu
í íslensku viðskiptalífi. Þetta er reyndar einnig svona
á erlendum vettvangi aö menn setja gjarnan sama-
semmerki milli hans og fyrirtækisins. Ég geri hins
vegar ráð fyrir að þetta breytist eftir því sem fyrir-
tækið eldist og þroskast."
Af framanskráðu má Ijóst vera að Páll Magnússon
hefur meðal annars þann starfa með höndum að gæta
orðstírs fyrirtækisins og lítur eftir þvi að umfjöllun
um það sé með þeim hætti að ekki skaði orðspor þess
. Þess vegna hlýtur það að vera jafnmikið í hans
verkahring að gæta þess að orðstír Kára Stefánsson-
ar skaðist ekki eða orðspor hans skaði fyrirtækið.
Finn ekki fjöðrina
Nánast allir íslendingar þekkja ýmsar skrautlegar
sögur af persónulegu framferði Kára Stefánssonar og
hafa heyrt þær jafnvel í ýmsum myndum. Hér verður
ekkert dæmi nefnt um slíkar sögur enda eru þær oft
varla eða ekki prenthæfar.
Páll segir að þessi samtvinnun manns og fyrirtæk-
is birtist í því að hann er nánast aldrei spurður
hvernig sé að vinna hjá deCODE en allir spyrja hann
hvernig sé að vinna með Kára. DV bætist í hópinn og
vill endilega heyra svar við þessari algengu spurn-
ingu. Hvernig er að vinna með Kára?
„Það er bara gott og spennandi og gengur vel. Það
er ögrandi upplifun og ég vil jafnvel segja að það sé
þroskandi lífsreynsla.
Ég hef á 20 ára ferli mínum í og við fréttamennsku
aldrei orðið vitni að jafnmiklu umtali um nokkurn
einstakling í samfélaginu eins og Kára. Ég hef séð
menn koma og fara í sviðsljós frægðarinnar og marg-
ir dvelja þar aðeins skamma stund og hverfa síðan.
En ekki Kári. Hann hefur nú staðið í þessu sterka
ljósi í sex ár og það er ekki heiglum hent.“
-En fylgist þú með sögunum af honum?
„Sögur af Kára eru legíó og ég hef heyrt þær marg-
ar og í ýmsum myndum. Flestum hef ég tekið með af-
skiptaleysi en sumar hafa verið þess eðlis að ég hef
mér til gamans gert svona nokkurs konar stikkpruf-
ur á sannleiksgildi þeirra, eða öllu heldur reynt að
grafast fyrir um hvernig þær gátu orðið til.
Skemmst er frá því að segja að þær hafa reynst
rakalaus uppspuni og ekki einu sinni verið flóarfótur
fyrir þeim. Svo gripið sé til algengrar líkingar um
fjöðrina sem varö að fimm hænum þá hef ég ekki
einu sinni fundið fjöðrina.
Menn eins og Kári verða aftur á móti að sætta sig
við að af þeim verða sagðar sögur og um þá verða
búnar til sögur. Við því er ekkert sérstakt að gera.“
Umdeildustu yfirmenn íslands
Páll Magnússon er ekkert sérstaklega óvanur því
að vinna með umdeildu fólki því sennilega er óhætt
að halda því fram að þrír yfirmanna hans hafi verið
og séu meðal umdeildustu og mest umtöluðu mönnum
á íslandi seinustu tvo áratugina. Þetta eru auk Kára
þeir Jón Ólafsson, aðaleigandi og stjórnarformaður
Stöðvar 2 til margra ára, og Jón Óttar Ragnarsson,
stofnandi og frumkvöðull þeirrar sömu stöðvar. Allt
eru þetta menn sem eru þekktir fyrir að fara sínar
eigin leiðir og kæra sig lítt um álit almennings. En
skyldi vera eitthvað líkt með þessum þremur mönn-
um?
„Það er nákvæmlega ekkert sem þessi þrír menn
eiga sameiginlegt nema hvað þeir hafa allir verið
þeirrar vafasömu gæfu aðnjótandi að hafa unnið með
mér,“ segir Páll og er aldeilis ófáanlegur til að fara í
einhvern nánari mannjöfnuð meðal þessara þriggja.
Páll Magnússon ólst upp í Vestmannaeyjum við
leik og störf. Hann varð nokkrum sinnum íslands- og
bikarmeistari með yngri flokkum ÍBV í fótbolta og
spilaði jafnan stöðu tengiliðar sem má kannski segja
að hann geri enn.
Hann tók fil.cand próf í stjórnmálafræði og hag-
sögu frá háskólanum í Lundi í Svíþjóð og í ljósi þess
að Magnús H. Magnússon, faðir hans, starfaði að
stjórnmálum áratugum saman er freistandi að spyrja
hvort hann hafi ætlað að feta í fótspor gamla manns-
ins og verða pólitíkus. Ekki vill Páll viðurkenna það
og segist ekki hafa haft neitt sérstakt starf í huga með
náminu heldur einungis lagt stund á þær námsgrein-
ar sem vöktu áhuga hans. Þegar hann kom heim frá
námi fékk hann starf viö afleysingakennslu og lenti
síðan sem sumarmaður inn á Dagblaðið Vísi sem þá
barðist enn harðri baráttu við DB þótt blöðin ættu
síðar eftir að renna saman. Veturinn eftir var Páli
boðið fast starf á Vísi og þá fór hið eiginlega starfsval
fram þegar hann tók blaðamennskuna fram yfir
kennslu. Og áframhaldandi rækt við fræðigreinina.
„Þetta þótti mér skemmtilegt og spennandi starf.
Þarna fékk ég bakteríuna sem ég hef eiginlega aldrei
losnað viö síðan."
Að grípa gæs
Páll sat ekki alveg kyrr í starfinu því hann varð
fljótt fréttastjóri á Tímanum en slapp þaðan kalinn á