Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2002, Síða 2
2
LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2002
DV
Fréttir
Þolir ekki þennan barlóm og endemis bull í kartöflubændum:
Þeirra eigin sölufyrir-
tæki eru að drepa þá
- segir Karl Ölafsson, kartöflubóndi á Lyngási
Karl Ólafsson, kartöflubóndi á Lyng-
ási 4 skammt frá Hellu, furðar sig á
barlómi Sigurbjartar Pálssonar, kart-
öflubónda og stjómarmanns í Kartöflu-
verksmiðju Þykkvabæjar hf. „Þetta er
endemis bull. Það em þeirra eigin sölu-
fyriræki sem em að drepa þá en ekki
lágt verð frá stórmörkuðunum," segir
Karl og vill að bændur hendi út þess-
um milliliðum.
Sigurbjartur Pálsson sagði í DV í
fyrradag nánast útilokað fyrir kartöflu-
bændur að selja sína vöm beint. Tveir
aðilar væm langstærstir á markaðnum
í hópi kaupenda, Baugur og Búr. Auk
þeirra eru Samkaup líka nokkuð stór
kaupandi en samanlagt segir hann að
þessir þrír aðilar kaupi um 90% af allri
kartöfluframleiðslunni. „Verðið fyrir
afurðimar er bara handónýtt. Smásölu-
verslunin tekur svo stóran hluta af
verðinu tfl sín að lítið er eftir fyrir okk-
ur,“ sagði Sigurbjartur Pálsson í DV í
fyrradag.
Hann segir að kartöflubændur hafi
verið að fá um 35 krónur fyrir síðasta
árs uppskem í sumar. Venjulega hef-
ur verðið síðan farið eitthvað upp
með nýjum kartöflum á markaði.
Hann segist þó ekki sjá annað en það
verði áfram um 35 krónur fyrir kíló-
ið sem síöan er selt út úr búð á um
150 krónur.
Þoli ekki þetta væl
„Ég er búinn að selja mínar kart-
öflur sjáifur í 12 ár,“ segir Karl Ólafs-
son. „Ég get því ekki kvartað yfir að
geta ekki selt á eigin spýtur eins og
Sigurbjartur er að kvarta undan. Ég
sel t.d. mflliliðalaust tfl Bónus og
kvarta ekki fyrir því. Ég er líka með
allt á einni hendi, framleiðsluna,
flokkunina og pökkunina. Hagræð-
ingin hjá mér er því mikil þar sem
engir milliliðir era í þessu ferli.
Þama sleppi ég alveg Sölufélaginu og
Ágæti sem era miIlUiðir og eru að
taka alveg gríðarlega mikið tfl sín.
Þama er flöskuhálsinn í kerfi bænd-
anna.
Það eru þeirra eigin sölufyriræki
sem eru að drepa þá. Ég er margbú-
inn að segja þeim þetta en þeir hlusta
ekki á mig. Þeir eiga sjálfir að taka
þama völdin - henda þessum mönn-
um af spenunum og láta þá fara að
vinna á gólfinu. Ég þoli ekki þegar
DV-MYND NJÖRÐUR HELGASON
Á fullu við kartöfluuppskeruna
Karl Ólafsson, kartöflubóndi á Lyngási
4, segist vera meö allt á einni hendi,
framleiösluna, flokkunina og pökkunina.
Hann skammar kollega sína fyrir aö hafa
ekki dug til aö henda út þeirra eigin
milliliöum sem séu aödrepa þá, Sölufé-
laginu ogÁgæti.
menn eru að væla og líta ekki í eigin
barm.
Hvað mig varðar þá er alveg
sama hvar ég kem að bændakerf-
inu. Það er alltaf lokað á mig hurð-
um vegna þess að ég passa ekki í
kramið. Mínar kartöflur fara milli-
liðalaust i Bónus þar sem þeir selja
tvö kUóin út á 124 krónur með virö-
isaukaskatti."
- Hvað færð þú fyrir þinn snúð?
„Ég fæ mjög gott verð. Ég vU ekk-
ert fara nánar út í það, en ég veit að
álagningin hjá Bónusi er mjög skor-
in við nögl,“ segir Karl og fuUyrðir
að þar sé ekki lagt meira en 3-9% á
hans framleiðslu, misjafnt eftir því
hvenær ársins það er. Karl segist
einnig selja sína framleiðslu til
annarra kaupmanna en hann verði
þó að hafna viðskiptum þar sem
hann anni ekki eftirspurn.
Karl gagnrýnir harðlega það sem
hann kaUar bruðl í stéttinni. „Mik-
ið kaupa þessir bændur af nýjum
vélum, það vantar ekki. - Nær væri
hjá þeim að samnýta þær í stað
þess að halda uppi óbreyttu eyðslu-
stigi sem þeir telja sig svo geta fjár-
magnað með því að moka inn pen-
ingum frá neytendum." -HKr.
Símafélög sameinast
Íslandssími og Tal
sameinast á næstunni í
kjölfar samninga sem
undirritaðir vora í
gær. Fullrúar íslands-
sima og Westem Wirel-
ess Intemational Inc.
hafa náð samkomulag
um kaup Íslandssíma á
57,3% hlutafjár í Tali af
WWI, en gert er ráð fyr-
ir að íslandssimi muni
í framhaldinu kaupa
ÖU bréfi í Tali.
„Hið nýja félag hef-
ur náð þeirri lágmarkstærð sem nauð-
synleg er tU að veita markaðsráðandi
aðfla virka samkeppni," sagði Óskar
DV-MYND: ÞOK
Sameinlng kynnt
Á blaðamannafundi í gær. Þórólfur
Árnason, forstjóri Tals, mun ekki
starfa hjá hinu sameinaöa félagi.
Magnússon, sem
verður forstjóri sam-
einaðs félags. Þórólf-
ur Ámason, forstjóri
Tals, víkur af vefli en
hann sagði í gær að
þörf fyrir samstarf og
samrana á síma-
markaði hefði lengi
verið augljós. Sam-
einað félag mun veita
yfir 120 þúsund við-
skiptavinum ijöl-
breytta þjónustu.
Kaupin á Tal era íjár-
mögnuð með sölu á nýju hlutafé í ís-
landssíma upp á 1,9 mUljarða króna.
-sbs
Óvinurinn
EMMANUEL CARRÉRE
Sönn frásögn af skelfilegum
blekkingum og mordum
„Að morgni
laugardagsins
9. jonúar 1993,
ó sama tímo
og Jean-Claude
Romand var að
myrða konu sína
og börn, var ég
með f jölskyldu
minni ó foreldra-
fundi í skólanum."
Þannig byrjar
Carrére, meistari
sálfræöispenn-
unnar, frásögn
sina.
Jjj'O
JPV ÚTGÁFA
Bræðraborgarstíg 7
Sími 575 5600
m
Óvinurinn
SlGUHDUH PÁL6SON »»VDOI
DV-MYND HARI
Lena Cronqvist tók við 2. verölaunum úr hendi Davíös Oddssonar
Lena er ekkja hins heimsþekkta rithöfundar og íslandsvinar Görans Tun-
ströms og verðlaunamálverkin fjalla um sorgina viö ótímabæran dauöa hans.
Carnegie-sýningin opnuð í fimmta sinn:
Listin er yndisleg
- þó enn megi deila um hana
„Art is wonderful,“ sagði Lars Nittve,
formaðm' dómnefndar Camegie-verð-
launanna, og brosti breitt þegar hann
hafði lýst fyrir blaðamönnum inntaki og
gUdi verka þeirra myndlistarmanna
sem í ár hljóta önnur og þriðju verð-
launin, Lenu Cronqvist frá Svíþjóð og
Tal R frá Danmörku. Brosið var ekki
eins áreynslulaust þegar hann varði
handhafa fyrstu verðlaunanna, Troels
Wörsel frá Danmörku, fyrir ágengum
spumingum.
Wörsel er ekki einlægur í list sinni
eins og hin tvö heldur má líta á verk
hans sem (vel heppnaðan) listrænan
brandara, ekki óskyldan hvita listaverk-
inu í leikriti Yasminu Reza um árið.
Wörsel festir striga á ramma en í stað
þess að mála ffaman á strigann eins og
venjan er málar hann aftan á hann - og
þar með rammann líka - með grófum
pensUdráttum. „Bakhliðin sem við sjá-
um yfirleitt ekki skiptir hér höfuðmáli,"
sagði Nittve og bætti við að Wörsel hefði
óskaplega gaman af að mála og elda
mat!
Um þetta mat dómnefndar eiga gest-
ir Listasafns Reykjavíkur - Hafharhúss
eflaust eftir að deUa beisklega, en því
miður komst Wörsel vegna veikinda
ekki tU að taka við verðlaununum,
ávísun á um fimm mUljónir ísl. kr.
Lars Nittve tjáði DV að þótt val verð-
launahafa væri yfirleitt erfitt hefði
aldrei verið nokkur vafi í huga dóm-
nefndar að Wörsel væri best aUra að
fyrstu verðlaununum kominn.
Þetta er í fyrsta skipti sem Camegie-
farandsýningin kemur hingað í heUu
lagi, áður hefur hún aUtaf verið skert á
leiðinni. Ástæðan er sú að nú eram við
fyrst í röðinni, og verðlaunin voru af-
hent í Hafnarhúsinu í gær að viðstöddu
fjölmenni.
Þrir íslenskir listamenn vora valdir
tfl þátttöku aö þessu sinni, Kristín
Gunnlaugsdóttir, Katrín Sigurðardóttir
og Georg Guðni sem Ulrika Levén sýn-
ingarstjóri sagði að málaði kjama ís-
lensks landslags. Sýningin stendur tU
10. nóvember og aðgangur er ókeypis.
-SA
Ógeðfellt
Tilraunir Alcoa
til að troða sér inn
í umræður um út-
færslu verndar-
svæða eða þjóð-
garða á hálendi ís-
lands eru óviðeig-
andi og ógeðfelld-
ar. Þetta segir
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur VG, vegna ummæla Alcoa um
þjóðgarð á hálendinu norðan
Vatnajökuls.
Mikið um rjúpnaskyttur
Mikið hefur verið um rjúpna-
skyttur í Dölum síðustu daga, en
veiðitímabilið hófst á þriðjudag.
Undantekingalítið hafa veiðimenn
verið með sín mál í lagi en mikil
umferð rjúpnaskyttna var fyrstu
dagana. Veiði á ríkisjörðum sem
ekki eru í ábúð er bönnuð, en í
Dölum ræðir þar um Ólafsdal í
Gilsfirði.
Vilja skjóta hreindýr
Hreindýraráð hefur óskað eftir
að umhverfisráðuneytið heimili
að fella 24 hreindýr á Nesjum og í
Suðursveit í nóvember og desem-
ber. Þetta eru dýr sem ekki náðist
að fella á hefðbundnum veiðitíma
sem lauk 15. september. Á Horn.is
segir að mikfivægt þyki að halda
stofnstærð í skufjum og því sé leit-
að heimUdar til að klára kvótann.
Fjórir læknar hætta
Það er forgangsverkefni stjórn-
valda að leysa vandann í heU-
brigðisþjónustunni segir bæjar-
stjórn ísafjarðarbæjar, en fjórir af
sex heUsugæslulæknum þar
vestra hætta störfum um áramót-
in. Enginn hefur enn verið ráðinn
í þeirra stað og telur bæjarstjórn
málið mjög alvarlegt.
Stofna kvótasjóð
Byrjað er að
undirbúa stofnun
kvótasjóðs Lands-
sambands smá-
bátaeigenda. Öm
Pálsson, fram-
kvæmdastjóri
samtakanna,
kveðst að því er »
fram kom í RÚV binda vonir við
að sjóðurinn tryggi aukna hlut-
deUd smábáta í heildaraflanum
Schengen upp og ofan
Reynsla íslend-
inga af Schengen-
samstarfinu um
sameiginlegt
landamæraeftirlit
og fleira er upp og
ofan. Þetta sagði
Davíð Oddsson for-
sætisráðherra.
Hann segir það vera ávinning að
vera hluti af stærri heild en líka
verði að gæta að fuUveldi þjóðar-
innar. íslendingar verði nú að
treysta á önnur ríki tU að gæta
ytri landamæra svæðisins og afar
mismunandi sé hvernig þau sinni
þvi hlutverki. Afleiðingin sé með-
al annars mun fleiri hælisleitend-
ur hér á landi.
-sbs