Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2002, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2002, Blaðsíða 36
36 HelQa rblaö DV LA.UGARDAGUR OKTÓBER 2002 Verndardýr- lingur listanna I mörg ár seldi Ólafur Maríusson föt og fékk máluerk ístaðinn. Um næstu helgi ætlar hann að halda sölusýningu á verkum Jóhannesar Geirs. I uiðtali við DVsvarar hann þvíhvers vegna hann skaut skjóls- húsi yfir fátæka listamenn. Ólafur Maríusson raálaði sem lítill drengur en fannst hann aldrei ná almennilegum tökum á tækninni. Þegar ég heimsæki hann í Hafnarfjörö verður mér samt strax ljóst að hér er á ferðinni mikill smekkmaður. Garðurinn er hreint listaverk og innandyra eru allir veggir þaktir mál- verkum. Þarna má finna mörg málverk eftir fremstu lista- menn þjóðarinnar, m.a. Magnús Tómasson og þá Jóhann- es Kjarval og JóhcUines Geir. Á laugardaginn eftir viku verður opnuð sölusýning á pastelmyndum hins síðar- nefnda sem Ólafur hefur átt í mörg ár. Ólafur var annar eigenda herrafataverslunarinnar P & Ó ásamt Pétri Sigurðssyni. „Kjarval var góður vinur minn,“ segir Ólafur brosandi og bendir á teikningu eftir Kjarval. „Ég man alltaf eftir því þegar hann kom í heim- sókn í búðina eftir góðan dag á vinnustofunni. Hann kom inn til okkar og fyrir utan var leigubíll með fullt aftursæt- ið af málverkum. Þá sagði hann gjarnan: „Jæja strákar, Mynd af konu með læri: Myndirnar á sýningunni eru frá árunum 1963-1970. Margir telja að á þessum árum liafi Jóhannes Geir málað þær myndir sem muni halda orðstír hans á lofti. Sumir telja að kraftinn sem í myndunuin býr megi skýra út frá persónulegum að- stæðum listainannsins. Þessar niyndir virðast hafa hjálpað honum í því sálarstríði sem hann stóð í því myndir sem hann málaði síðar voru yfirvegaðri. Þessi mynd sýnir þungbúna konu með kjötlæri. Mynd af Esjuuni: Séð yfir Laugarnesið. Ólafur Maríusson er orðinn áttatíu og eins árs. Hann ætlar að selja málverkin sín því „mcnn geta ekki átt allt“. DV-mynd Teitur nú fáum við okkur smá „gillegogg" og átti þá við hvítvín eða rauðvín. Við fórum heim til hans og hann sauð ýsu og við skoðuðum málverkin hans og spjölluðum um allt undir sólinni. Kjarval var afar skemmtilegur maður. Hon- um fannst t.d. svo frískandi að færa til húsgögn þar sem hann bjó að hann hafði þau öU á hjólum. Eins og gefur að skilja þá var ekki hægt að styðja sig við skápa eða hillur heima hjá honum,“ segir Ólafur og manni verður strax ljóst að hér er maður sem hefur ekki einungis unun af fal- legri list heldur er hann líka hugfanginn af listamönnun- um sjálfum. Alinn upp við list Svo hugfanginn var hann reyndar af list og listamönn- um að hann skipti á fatnaði og fékk málverk í staðinn. „Kynni mín og Jóhannesar Geirs voru fyrst og fremst við- skiptalegs eðlis,“ svarar Ólafur þegar ég spyr hann hvers eðlis samband hans við listamanninn hafi verið. „Ég hafði haft augastað á honum lengi. Mér fannst hann sjálf- ur vera skemmtilegur en það var áhugi minn á hans list sem dró okkur saman. Hann hafði frumkvæði að þeim samningi sem við gerðum á milli okkar og sá samningur var virkur allt þar til við lokuðum búðinni," segir Ólafur. „Hann kom til okkar með möppu og í henni voru pastelmyndir. Við þáðum myndirnar að sjálfsögðu og hann mátti taka út föt á sig og fjölskyldu sína. Hann var auðvitað ungur og bláfátækur listamaður á þessum árum og við elskuðum list, þannig að þetta kom sér vel fyrir báða aðila.“ „Þetta er kannski ekkert ósvipað þvi þegar listelskir konungar eða furstar fyrr á tímum borguðu listamönnum fyrir listaverk," segi ég. Ólafur kinkar kolli en virðist ekki vera fulkomlega sammála. „Þetta er kannski ekki óskylt," segir hann loks. „Þegar ég var ungur drengur bjó ég með fjölskyldu minni við þröngan kost í kjallara í húsi sem var í eigu Markús- ar Ivarssonar sem rak og átti vélsmiðjuna Héðin. Markús var listelskur mjög og ég man eftir því þegar hann kom hjólandi heim úr vinnunni, grútskítugur upp fyrir haus, en með málverk undir handleggnum. Þetta voru myndir eftir menn eins og Kjarval og hann hafði ekkert pláss fyr- ir þær allar heima hjá sér þannig að margar rötuðu nið- ur í kjallara til okkar. Það sem ég gerði var i raun ekkert ósvipað því sem Markús gerði nema hvað að Jóhannes Geir fékk fatnað hjá mér.“ „Varstu áhugamaður um list strax frá barnæsku?" spyr ég. „Já, eins og ég sagði áðan þá voru verk eftir alla gömlu meistarana hangandi á veggjum heima hjá mér. Þetta ólst ég upp við og ég man hvernig Markús kenndi mér að njóta verkanna. Hann náði sér í blað, bjó til kramarhús til að einangra myndina þannig að það var ekkert í kring- um myndina sem truflaði. Ég er alinn upp við þetta og áhuginn sem kviknaði á þessum árum dofnaði aldrei.“ Getur ekki átt allt Myndirnar sem verða til sölu á sýningunni eru frá ár- unum 1963 til 1970 og hefur verið sagt um myndirnar að þær eigi sér enga hliðstæðu í íslenskri myndlist því ofs- inn og tilfinningahitinn sé svo mikill. „Þessar myndir eru sérstaklega merkilegar því þetta eru frumdrögin að mó- tívum sem síðar áttu eftir að verða stærri myndir. Að mínu mati er neistinn sterkari á þessum myndum, hann var mjög fljótur að gera þær þannig að verkin eru gagn- sýrð af tilfinningum.“ „Þú ert búinn að eiga þessar myndir í mörg ár, er ekki erfitt að missa þær?“ spyr ég. „Nei, það er ekki erfitt. Eins og þú sérð eru mörg mál- verk uppi á vegg hjá mér en megnið af þeim hefur verið í geymslu. Ég hef ekkert pláss fyrir þetta allt saman og þessar myndir eru það fallegar að þær eiga að vera til sýnis. Þar fyrir utan ætla ég að selja húsið því ég er orð- inn einn og ekki get ég tekið allar þessar myndir með mér. Hugmyndin að þessari sýningu er kannski fyrst og fremst komin frá Aðalsteini Ingólfssyni listfræðingi. Hann skoðaði myndirnar og hans skoðun var sú að þær væru góðar og frá sérstöku tímabili í lífi listamannsins og því sniðugt að halda sölusýningu. Það hefur verið ótrú- lega skemmtilegt að fara í gegnum þessar myndir og ým- islegt rifjast upp. En maður getur ekki átt allt, sérstaklega þegar maöur eldist.“ Þrátt fyrir að Ólafur sé kominn á níræðisaldur litur hann ótrúlega vel út og útgeislunin núna er eflaust álíka mikil og þegar hann seldi föt á herra áður fyrr. „Lykill- inn að hamingjusömum efri árum er að spila golf,“ segir Ólafur. „Og þar fyrir utan hef ég alltaf tamið mér jákvæða hugsun. Maður á aldrei að gera neinum neitt vísvitandi," segir Ólafur og botnar síðan setninguna eftir svolitla um- hugsun: „Þaö er algjört „möst“.“ JKÁ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.