Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2002, Blaðsíða 59

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2002, Blaðsíða 59
LAUOARDAGUR 19. OKTÓBER 2002 Helcjarblaci 3Z>'Vr 63 Myndirnar tvær virð- ast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur fljós að á annarri myndinni hef- ur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi og senda okkur ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimurvikum liðnum birtum við ntífn sigur- vegaranna. Verðlaun: United feröageislaspilarar með heyrnartólum frá Sjónva rpsm iöstöði n n i, Síðumúla 2, að verðmæti 4990 kr. Vinningarnir veröa sendir heint til þeirra sem búa úti á landi. Þeir sem búa á höfuöborgarsvæöinu þurfa aö sækja vinningana til DV, Skaftahlíö 24. Svarseðill Nafn:_____________________________ Heimili:__________________________ Póstnúmer:----------Sveitar félag: Merkiö umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? nr. 689, c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykjavík. Verölaunahafi fyrir getraun nr. 688: Er vlð framkvæmum botnlangauppskurð byrjum við skurðinn tveimur sm fyrir neðan nafla... Svaka fynriið. Snúið honum við Hann er ekki með neinn nafla!!! Ragnheiöur Sigurðardóttir, Heiöarlundur 7b, 600 Akureyri. Lífiö eftir vinnu i v ^.v •jsdP ' - f r • f. : • T ónleikar ■Stórtónleíkar Airwaves í Laugar- dalshöll Þaö er komið að aöalatburðinum á Airwaves- hátíðinni - sjálfum stórtónleikunum í Laugar- dalshöll. Húsið verður opnað klukkan 19 og tónleikarnir hefjast kl. 20 og standa alveg til 3. Fyrir ptan Höllina verður stærðarinnar veit- ingatjald þannig að fólk má búast við sannri tónlistarhátíðarstemningu. Fram koma: App- arat Organ Quartet, Blackaliclous, The Hi- ves, Gus Gus og Fatboy Slim. Á milli atriða sjá plötusnúöarnir Alfons X, Agzilla og Ti Mike um stemninguna. Miðaverð er 5.500 krónur, selt í verslunum Tals og á staðnum ef einhverj- ir eru eftir. Það er nýja söngkona Gus Gus sem er hér á myndinni að ofan. BFærevskt í Smáralind Hljómsveitirnar Clickhaze og A.R.T. frá Fær- eyjum koma fram í Smáralind kl. 15. Tónleik- arnir eru hluti af Fairwaves 2002. BSouth River Band í Kaffi- leikhúsinu South River Band frá Syðri-Á í Ólafsfirði, sem nýlega gaf út samnefnda hljómplötu, gengst fyrir söngkvöldi i Kaffileikhúsinu i kvöld. South River Band mun leiða sönginn og öllum textum veröur varpað á sýningartjald þannig að auð- velt verður aö fylgjast með og taka undir. Á efnisskránni eru íslensk alþýðu- og dægurlög með innskotum af eigin efni hljómsveitafinnar, lögum og textum. Allir textar eru á íslensku. Söngkvöldið hefst kl. 22. Miðasala við inn- ganginn. •Opnanir BLeirlist i Gallerí Fold Leirlistarmaðurinn Bjarni Sigurðsson opnar sýningu i Gallerí Fold undir nafninu Kakkla- myndir - hughrif úr íslenskri náttúru. Sýning- in stendur til 4. nóvember en sýningin verður opnuð kl. 15. •Síðustu forvöð BÞórunn í Gallerí List Þórunn Guðmundsdóttir lýkur sýningu sinni í Gallerí List í dag. Hún sýnir vatnslitamyndir sem hún kallar Litbrigði. Þórunn er fædd í Vog- um á Vatnsleysuströnd og er nú búsett í Sand- gerði. •Leikhús MNvtt íslenskt leikrit Nýtt íslenskt barnaleikrit verður frumsýnt i Möguleikhúslnu I dag kl. 14. Leikritiö nefnist Heiðarsnælda og er saga úr sveitinni í leik- stjórn Bjarna Ingvarssonar. Sýningin er farand- sýning fyrir börn á aldrinum 1-6 ára. ■Grettissaga Hafnarfjarðarleikhúsið sýnir Grettissögu, leikrit eftir Hilmar Jónsson, kl. 20 í kvöld. ■Krvddlegin hiörtu Kl. 20 er sýningin Kryddlegin hjörtu í Borgarlelkhúsinu. Miða má nálgast í síma 5688000. ■Meó fulla vasa af grióti Með fulla vasa af grjóti er sýnt í Þjóðleikhúsinu í kvöld á stóra sviðinu kl. 20. ■Færevskt á Grand Rokk Það eru tónleikar í Fairwaves-tónleikarööinni á Grand Rokk í kvöld. Færeysku sveitirnar Cllckhaze og Krít kveða sér hljóðs. Clickhaze hafa fariö mikinn að undanförnu og hvarvetna fengið frábær viðbrögð og m.a. verið sögð „besta hljómsveit í Skandinavíu í dag". Eivör Pálsdóttir er söngkona Clickhaze og kemur fram með þeim á öllum þeirra tónleikum hér heima. •Uppákomur ■Albióóavlka i Kópavogí Það er alþjóðavika í gangi í Kópavogi. í Smáralindinni veröur af því tilefni í gangi „Heimsþorp“ frá kl. 11-18 þar sem verða menningarkynningar, fræðsla, uppákomur og skemmtun. Dagskrá Alþjóðavikunnar stendur til 24. okt og má nálgast dagskrána á heimsíöunni kopavogur.is. Brídge Opna heimsmeistaramótið 2002: Bill Gates hefur ánetjast bridgebakteríunni Það kom nokkuð á óvart á opna heimsmeistaramótinu í Montreal fyrir stuttu að meðal þátttakenda var auðugasti maður heimsins, Bill Gates, tölvukóngur með meiru. Bridgeáhugi hans til þessa hafði ein- skorðast við Bandaríkin en þar hafði hann tekið þátt í örfáum mót- um ásamt makker sínum, banka- stýrunni Sharon Osberg. Nú var hins vegar markið sett á æðstu verðlaun spilsins þ.e. heims- meistaratitilinn. En þrátt fyrir sín miklu auðæfi þurfti Gates eins og allir aðrir að taka þátt í und- ankeppni til að öðlast rétt til að spila til úrslita um heimsmeistara- titilinn. Sharon Osberg var makker hans og þau reyndu fyrir sér í keppni blandaðra para. Meðal andstæðinga þeirra var bridgemeistarinn og ritstjóri mál- gagns bridge-blaðamanna, Patrick Jourdain, ásamt makker sínum ung- frú Farr-Jones, af alkunnri ætt rug- byspilara. Hann hefir sjálfsagt hugs- að sér gott til glóðarinnar að fá tæki- færi til að segja frá bridgeafrekum tölvukóngsins af eigin raun. Og viti menn, strax í fyrsta spili fór Gates á kostum með dyggri aðstoð banka- stýrunnar, sem kastaði meðfæddri varkárni þeirra sem gæta fjárhags annarra og sinna, fyrir róða. Skoð- um spilið nánar. N/A-V 4 DG1084 »G9864 ♦ DG * D * K72 V D7532 4 953 •» ÁKIO ♦ K10652 * 65 4 8 * ÁK83 N V A S 4 A6 ♦ Á9743 * G109742 Bill Gates. Þar sem Gates og Osberg sátu n- s, en Farr-Jones og Jourdain a-v, gengu sagnir á þessa leið: Noröur Austur Suöur Vestur 1» pass 1 * pass 2 4 pass 6lauf pass pass pass Gates gaf viðvörun á grandsögn- ina og upplýsti að hún væri krafa um umferð. Það kom lika í ljós þegar Osberg stökk í slemmu í næstu umferð. Vegna hjartaopnunarinnar og þeirrar staðreyndar að Gates gat verið að segja tvö lauf á allt niður í tvíspil var sexlaufasögnin nokk- uð áhættusöm. Þegar blindur kom síðan upp leist Gates síður en svo illa á spilið. Vandamál hans var hins vegar hvorn rauða litinn hann gæti nýtt sér í leit að tólfta slagnum. Þótt hann ætti samtals sex tígla, en aðeins fimm hjörtu, var ekki sjálfgefið að ráðast á tígulinn. Gates drap spaðaútspilið heima, tók einu sinni tromp og sá drottn- inguna falla. Síðan trompaöi hann hjarta, fór heim á tromp og tromp- aði aftur hjarta, þegar kóngurinn kom frá austri. Nú kom tigulás, tígull trompaöur og hjarta tromp- að. Þegar ásinn kom frá austri var tólfti slagurinn kominn. Þetta gaf tölvukónginum 369 stig af 414 mögulegum. Margir hefðu samt staldrað við þegar trompdrottningin birtist og skipt um áætlun. Nú blasir við að hægt er að fá níu trompslagi með því að trompa rauða liti á víxl. Tveir á spaða og tígulás gera tólfl Spila- mennska Gates er samt nokkuð góð því hún gerir ráð fyrir að geta nýtt tígullitinn ef hjartað liggur illa. Með því að trompa þrjú hjörtu og þrjá tígla er jafnvel hægt að vinna sjö. íslandsmótið í einmenning íslandsmótið í einmennings- keppni hófst í gærkvöld og heldur áfram í dag. Núverandi íslarids- meistari er Vilhjálm- ur Sigurðsson jr. Spilað verður fram á kvöld í aðalstöðvum Bridgesam- bandsins við Síöumúla. Nánar verður sagt frá mót- inu í næsta þætti. Umsjón Stefán Guðjohnsen
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.