Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2002, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2002, Blaðsíða 52
! ' 56 HelQarblctcf I>V LAUGARDAGUR 19. október 2002 Skemmtilega breyttur sportjeppi með evrópskri vél Cherokee sportjeppinn kom fyrst á markaðinn sem sportjeppi árið 1984. Þetta er þriðja kynslóðin en önnur kynslóðin kom árið 1993. Lítið hefur verið um innflutn- ing á honum á allra síðustu árum, allt frá því að Jöfur lagði upp laupana. Nokkur kippur hefur þó verið í inn- flutningi hans á þessu ári og hafa aðallega tvær bílasöl- ur flutt inn nokkra tugi slíkra á árinu, önnur þeirra Nýr bíll ehf. sem við prófuðum bíl frá. Ræsir hefur ekki haf- ið innflutning á bílum frá Chrysler enn þá en vænta má kynningar á Cherokee og fleiri bílum í nóvember. DV-bíl- ar prófuðu einn 35 tommu breyttan bíl og einnig óbreytt- an til samanburðar. Með ítalskri dísilvél - > Prófunarbíllinn var af Evrópugerð, vélin í bílnum er ítölsk að hönnun og skilar 140 hestöflum að hámarki. Hún hefur gott tog við allar aðstæður þótt upptakið mætti vera betra. Taka skal þó fram að óbreytt drif voru í prófunarbílnum en með lækkuðum drifhlutföllum myndi upptakið verða frískara. Þeir bílar sem Ræsir munu flytja inn eru allir með V8 bensínvélum eða 2,7 litra dísilvélinni úr M-jepp- anum frá Benz. Sú vél hefur reynst mjög vel í Benz jepp- anum og engin ástæða til að ætla annað en að hún geri það líka í Grand Cherokee. Hún er 163 hestöfl og hefur snúningsvægi upp á 370 Nm. Evrópska VM vélin hefúr þó aðeins meira tog, 385 Nm sem finnst vel við erfiðari aðstæður. Myndi ráða við 36 tommur Bílnum er vel breytt af Jeppaþjónustunni og enga hnökra að finna á breyting- unni sjálfri. Allar stífufest- ingar eru færðar niður til samræmis við hækkunina og dekk rekast aldrei í. Myndi bíllinn eflaust ráða við að- eins breiðari 36 tommu dekk með sömu breytingu. Bíllinn , u-w, —“—~~~~* BREYTINGAR: Hækkun á grind: 80 mm Afturhásing færð aftur: 25 mm Dekk: 35" BF Goodrich All Terrain Felgur: 10x15 Brettakantar: Formverk AÐRAR BREYTINGAR Klippt úr framan og aftan, Gangbretti, Aurhlífar VERÐ BREYTINGA Breytingaraðili: Jeppaþjónustan Laredo: 790.000 kr. Limited: 740.000 kr. er búinn svokölluðu Quadra-Trac kerfi, en það er við- námskúpling í millikassanum sem jafnar átak milli fram- og afturhjóla. Gallinn við það kerfi er sá að ef til dæmis framdrifið fer er ekki hægt að aftengja það sem gæti komið sér illa á fjöllum. Myndi undirritaður frekar kjósa hefðbundið Command Trac drif, eða Selec-Trac sem get- ur læst mismunadrifinu í miilikassanum. Sjálfskiptingin er fuUkominn enda byggir hún á hinni sterku 727 skipt- ingu og ætti því að þola vel öll átök sem breyttur jeppi getur lent í. Góð fjöðrun fyrir jeppa Einn af helstu kostum bílsins fyrir breytingar er sú staðreynd að hann er á heilum hásingum að framan og aftan. Það þýðir að bíllinn er á gormum allan hringinn sem er alltaf kostur í breyttum bílum. Að vísu er fjöðr- unin frekar mjúk þegar lagt er mikið á bilinn á malbiki og leggst hann dálítið til hliðanna, en hún étur allar ójöfnur á grófari vegum og veghljóð þar er einnig mjög lítið. Við prófuðum einnig óbreyttan bíl til samanburðar og var hann eins að öllu leyti nema í innréttingu enda sá bíll í Limited útgáfu með leðurinnréttingu. Leðurinnrétt- ingar eru mikOl kostur á breyttum fjallajeppum sem þurfa að þola mikið álag á innréttingu en ekki er fyrir henni að fara í Laredo útgáfunni. Hún er hins vegar stað- albúnaður í Limited sem er mun dýrari kostur enda miklu meiri búnaður i þeim bíl. Því myndi borga sig að klæða innréttingu Laredo bílsins sem er fúll boðlegur að öðru leyti. Annað kom líka á óvart, en í báðum.bílunum fannst undirrituðum stýrið frekar þungt, sérstaklega í samanburði við hversu létt stýrið var í gamla bilnum. Vinnslan í óbreytta bílnum var einnig betri eins og fyr- irfram var búist við. Hvað varðar verðið er það svipað á Limited bilnum og M-jeppanum. Breytingamar eru örlít- ið dýrari á Laredo útgáfunni þar sem sprauta þarf neðri hluta stuðara til samræmis. -NG JEEP GRAND CHEROKEE LAREDO Vél: 3,1 lítra, 5 strokka dísilvél með forþjöppu Rúmtak: 3124 rúmsentímetrar Þjöppun: 21:1 Gírkassi: 4ra þrepa sjálfskiptur UNDIRVAGN: Fjöðrun framan: Öxull á gormum Fjöðrun aftan: Öxull á gormum Bremsur: Loftkældir diskar/diskar, ABS, EBD Dekkjastærð: 205/70 R15 YTRI TÖLUR: Lengd/breidd/hæð: 4610/1840/1760 mm Hjólahaf/veghæð: 2690/210 mm Beygjuradíus: 11.1 metrar INNRI TÖLUR: Farþegar m. ökumanni: 5 Fjöldi höfuðpúða/öryggispúða: 4/2 Farangursrými: 1105-2060 lítrar HAGKVÆMNI: Eyðsla á 100 km: Vantar uppl. Eldsneytisgeymir: 78 lítrar Ábyrgð/ryðvörn: 1/6 ár Grunnverð Laredo: 4.790.000 kr. Umboð: Nýr bíll ehf. Staðalbúnaður: Rafdrifnar rúður og speglar, aðfellan- legir speglar, 2 öryggispúðar, geislapilari, skriðstillir í styri, alfelgur, þokufjós, fjarstyrðar samlæsingar, raf- dnfin sæti, aksturstölva, utvarp og geislaspilari SAMANBURÐARTÖLUR: Hestöfl/sn.: 140/3600 Snúningsvægi/sn.: 385 Nm/1800 Hröðun 0-100 km: Vantar uppl. Hámarkshraði: 170 km/klst. Eigin þyngd: 1856 kg " ' in"""*n" "" ' ' ' " _ rr,, J © Bíllinn er verklegur á 35 tomma dekkjunum og breiðari 36 tomma dekk myndu líklega sleppa undir án vandræða. © Chrysler keypti nýlega VM vélaverksmiðjuna og kemur ítalska vélin vel út. ® Farangúrsrými er með besta móti í Cherokee. © Innréttingin er einföld og sportleg í Laredo en laus við leðrið. Taltið eftir hvítum mælaborðsbotnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.