Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2002, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2002, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2002 DV Útgáfufélag: Útgáfufélagið DV ehf. Geri aðrir betur Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson Aðalritstjóri: Óli Bjöm Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aðstoðarritstjóri: Jónas Haraldsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: Skaftahlíð 24,105 Rvik, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5749 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Kaupvangsstræti 1, slmi: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerð og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins I stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. DV greiðir ekki viðmæiendum fyrir viðtöl við þá eða fýrir myndbirtingar af þeim. Viðvarandi ógn Þegar þessi laugardagur er að kveldi kominn er rétt vika liðin frá hörmungaratburðunum á Bali þar sem að minnsta kosti 187 saklausir borgarar, einkum erlendir ferða- menn, létu lífið í einu grimmileg- asta hryðjuverki sögunnar. Á þriðja hundrað manns liggja enn sárir á sjúkrahúsi og margra er enn saknað úr rústunum á Kúta- ströndinni, einum kunnasta ferðamannastað eyjunnar fögru í Indónesiu, eyju sem mun verða brennd þessu hræðilega marki um ókomin ár. Grimmdarverkið á Bali gerist fáum vikum eftir að almenn- ingur og stjórnvöld viðast hvar í heiminum minntust þess að ár var liðið frá hryðjuverkaárásinni á Bandaríkin þar sem fólk frá ríflega níutíu þjóðlöndum missti lífið i viðbjóðslegu illskuverki. Skotmarkið er sem fyrr saklaust fólk á almanna- færi, tilgangurinn sem fyrr að skapa skelfingu og ráðast að undirstöðum þeirra lifnaðarhátta sem flestir kjósa. Það er verið að ráðast á frelsi og öryggi fólks og tiltrú þess á friðinn. Eftir atburðina á Balí spyrja menn hvernig tryggja megi ör- yggi fólks. Líklega er svarið æði einfalt; það verður ekki tryggt. Hryðjuverkamenn þrífast á ótta og mæla árangur sinn í fyrirsögnum fjölmiðla. Æ meiri voðaverk tryggja þeim æ meiri athygli og sem fyrr er hvergi betra að grípa niður en í fjölmenni þar sem eftirliti verður ekki sinnt með góðu móti. Og spyrja verður hvað fólk er tilbúið að ganga langt í að tryggja öryggi sitt. Vill það breyta lífsvenjum sinum? Vill það loka sig af? Kútaströndin er dæmi um stað sem menn munu sækja eft- ir sem áður. Hann er hefðbundinn samkomustaður í seinni tima sögu, nokkurs konar torg fyrir þau gildi sem flestir jarð- arbúar hafa tamið sér. Þrátt fyrir að öllum sé að verða ljóst að hryðjuverkamenn horfa fyrst og fremst til þessara torga í djöfulgangi sínum er eins víst að almenningur mun ekki breyta venjum sínum. Hann mun áfram taka lestina, sækja krárnar, miðbæinn og kappleikina. Og áfram verða skotmark. Stjórnvöld í þeim löndum sem misstu flesta í árásinni á Balí fyrir viku hafa hvatt landa sína til að snúa heim til sín sakir fjölda ábendinga um að hryðjuverkamenn muni láta aft- ur til skarar skríða á Balí og eyjum og öðrum löndum þar í kring. Þetta er eðlileg hvatning. Hún mun hins vegar ekki vara lengi. Áður en langt um líður munu allar Kútastrendur heimsins fyllast að nýju af fólki sem þráir að njóta lífsins. Frelsið er á tíðum yndislegra en svo að því fylgi nokkur for- sjálni. Þjóðarýjallið Vel fer á því að íslendingar velji sér þjóðarfjall á alþjóðlegu ári fjalla. Fáar þjóðir geta státað af öðrum eins fjölda ólikra fjalla en eyjaskeggjar í norðri en margir þeirra bera reyndar sterkari taugar til náttúrunnar en svo að það verði útskýrt með eðlilegum jarðfræðiáhuga. Skáld hafa reyndar sagt að ís- lendingar séu fjallslegir í útliti og innræti þeirra reyndar svo erfitt uppgöngu að líkja megi við bröttustu skriður. Vissulega væri landið lítið án fjalla. Og fólkið niðurlútara. Landvernd hefur í samvinnu við DV staðið fyrir kjöri á þjóðarfjallinu síðustu daga. Þátttaka i kjörinu er afar góð eins og við var að búast enda hægðarleikur að skella sér inn á vef- síðu samtakanna eða blaðsins og greiða fjalli sínu atkvæði. Skoðanir eru skiptar um hvaða fjall standi upp úr og ugglaust verður niðurstaðan umdeild enda hver fugl fagur í þessum efnum sem öðrum. Aðalatriði þessa kjörs er að vekja athygli og áhuga á íjöllum. Þau eru og verða þjóðargersemi. Sigmundur Ernir. Ólafur Teitur Guðnason blaðamaður Ritstjórnarbréf Það er ekki ólíklegt að mörgum neytandanum finnist hann vera eins og hálfgert ginningarfífl við matarinnkaupin þessa dagana. Undanfarið hefur dunið í eyrum okkar ákall um „Evrópuverð" á matvörum og ásakandi hróp um skaðlega fákeppni á matvöru- markaði. Við hljótum að spyrja okkur í kjölfarið hvort verið sé að hafa okkur að fíflum við búðar- kassann. Viðtalið Þessi nýjasta matvöru- verðsvakning náði hámarki í mögnuðu viðtali við Jóhannes Jónsson kaupmann i þættinum ís- land í bítið á Stöð 2 í vikunni en þar var saumað rækilegar og harkalegar að Jóhannesi en nokkrum öðrum viðmælanda í ís- lensku sjónvarpi í háa herrans tíð. Jóhannes var spurður um álagningu í verslunum Baugs en hafði ekki fyrr svarað en stjóm- endur þáttarins dembdu yfír hann margfalt hærri tölum, studdar gögnum frá starfsmönnum og fyrrverandi viðskiptafélögum Jó- hannesar. Jóhannes sagði tölum- ar „þvælu“ en þeim var óðara varpað feitletruðum á skjáinn. Sextíu prósent! Sjötíu prósent! Margir hafa sjálfsagt hugsað Jó- hannesi þegjandi þörfína þegar þeir keyptu í matinn um kvöldið. Sjötíu prósent! Kemur engum við Það var að vísu sitthvað grun- samlegt við tölurnar. Ekki varð betur séð en að inn í samanburð- inn vantaði að taka tillit til flutn- ingskostnaðar, tolla, vörugjalda og virðisaukaskatts. Þáttarstjórn- endur nefndu þetta raunar hafi ég tekið rétt eftir. Prósentutalan var þvi ekki bara feitletruð á skjánum heldur lika feitari en efni stóðu til. Það breytir því auðvitað ekki að hún var svo langt frá tölum Jó- hannesar sjálfs að réttmætar spurningar hlutu að vakna um hvort hann hefði greint rétt frá. Aðalatriðið er hins vegar þetta: Það kemur engum við hver álagn- ingin er í Bónus. Eða leggja menn það í vana sinn þegar þeir fara á hárgreiðslustofu eða veitingahús að spyrja: Hver er eiginlega álagn- ingin hjá ykkur? Nei, menn spyrja um verðið og fara annað telji þeir það of hátt. Og séu kjörin hvergi hagstæð- ari - eins og raunin hefur verið með Bónus í hverri verðkönnun- inni á fætur annarri - vaknar þessi stóra spurning: Fyrst Bónus leggur tugi prósenta ofan á verðið „Þessi nýjasta matvöru- verðsvakning náði há- marki í mögnuðu viðtali við Jóhannes Jónsson kaupmann í þœttinum ísland í bítið á Stöð 2 í vikunni en þar var saumað rœkilegar og harkalegar að Jóhannesi en nokkrum öðrum við- mœlanda í íslensku sjón- varpi í háa herrans tíð. “ hjá sér, hvers vegna treystir sér enginn til að bjóða betur? Barnanna bestir Þegar rýnt er í vísitölur verður ekki séð að matvöruverslunin sé að færa sig upp á skaftið - eða öllu heldur dýpra í vasa okkar neytenda. Síðustu tíu ár - frá nóv- ember 1992 til október 2002 - hef- ur vísitala neysluverðs hækkað um 38,8%. Á sama tíma hefur vísi- tala matvöruverðs hækkað um 33,7%. Það er rétt að stimpla þetta rækilega inn: Síðustu tíu ár hefur matvöruverð hækkað um 33,7% en almennt verðlag í landinu um 38,8%. Til gamans mætti nefna nokkra sem hafa sannarlega fært sig upp á skaftið. Vegna þess hvaða tölur eru aðgengilegar hjá Hagstofunni er miðað við síðustu fimm ár. Á þessum tíma hefur almennt verð- lag í landinu hækkað um 24,3%. Tökum nú eftir: Á sama tíma hefur tóbak hækk- að um 54,6%, en það vegur þyngra í útgjöldum meðalheimilisins en grænmeti og kartöflur, svo að dæmi sé tekið; hreinsun og við- gerðir á fötum hafa hækkað um 34%; viðgerðir og viðhald bifreiða um 73%; það er 53% dýrara að fara á smurstöð nú en fyrir fimm árum; strætisvagnar hafa hækkað um 38,6% og leigubílar um 46%; blóm eru 44,5% dýrari; kvik- myndahús og myndbönd 31%; það kostar 37,2% meira að fara á veit- ingahús; hótel og gistiheimili hafa hækkað um 42,7%; klippingin um 42,5%; skartgripir og úr um 46%; dagmæður um 39%; og blessaðar bílatryggingarnar um hvorki meira né minna en 73%. Þetta voru siðustu fímm ár. Á sama tíma hefur mat- og drykkj- arvara hækkað um 28,6% sem er hlægilegt í samanburði við allt of- angreint. Þess má líka geta að fatnaður hefur lækkað um 8,6% síðustu fimm ár en á þeim mark- aði er Baugur fyrirferðarmikill, bæði í gegnum Hagkaup og að undanfornu í gegnum fjölda sér- verslana með föt. Og samt er kveinað og Jóhannes gerður að yf- irskúrki. Græögi neytenda Tölurnar sem hér hafa verið grafnar upp benda sem sagt ekki til þess að Jóhannes sé barnanna verstur þótt hann sé tekinn sér- staklega fyrir. En hann verður að sætta sig við að neytendur vilja margir hverjir ekki bara lágt vöruverð - þeir viija lægsta vöru- verð sem kaupmaðurinn getur boðið án þess að fara á hausinn. Kenningin um að gróði fyrirtækja sé af hinu vonda er lífseig. Það er í sjálfu ser skiljanlegt og ágætt að halda kaupmönnum við efnið, fylgjast með, bera saman verðlag í öðrum löndum og þar fram eftir götunum. Og það má vel vera að Jóhannes gæti boðið miklu hagstæðara matvöruverð án þess að fara á hausinn. Þing- menn ætla að láta rannsaka það og þá kemur kannski í ljós hvort við þurfum að ganga í Evrópu- sambandið til þess að tryggja „Evrópuverð“ á matvælum eða hvort kaupmönnum sé í lófa lagið að færa okkur það þegar þeim þóknast. Það er hins vegar ljóst að óræk- asta sönnunin fyrir meintri okur- starfsemi Jóhannesar og félaga hans væri að aðrir gerðu betur. - ■hmHHBhí
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.