Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2002, Blaðsíða 8
8
Útlönd
LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2002
Mótmælt í Róm.
Fjöldamótmæli
og allsherjar-
verkfall á Ítalíu
Hundruð þúsunda ítala tóku í gær
þátt í mótmælum í um 120 bæjum og
borgum í landinu til þess að mótmæla
efnahagsstefnu ríkisstjórnar Silvios
Berlusconis og fyrirhuguðum breyt-
ingum á vinnulöggjöf landsins.
Mótmælin voru hluti af dagskrá
eins dags allsherjarverkfallsins sem
stærstu samtök ílutningaverkamanna
boðuðu til í gær, en samtökin þykja
þau róttækustu og vinstri sinnuðustu
í landinu.
Verkfallið hafði mjög lamandi áhrif
á vöruflutninga og samgöngur um allt
land og ríkti víða algjör ringulreið á
flugvöllum og jámbrautarstöðvum,
auk þess sem framleiðsluiðnaðurinn
stöðvaðist víða. Þurfti rikisflugfélagið
Alitalia til dæmis að aflýsa 200 áætl-
unarferðum auk þess sem járnbraut-
irnar þurftu að aflýsa um 40% ferða.
Þetta er annað allsherjarverkfallið
sem samtök verkafólks boða til á
þessu ári vegna óánægju með boðaðar
breytingar á vinnulöggjöfinni, sem að
mati verkalýðshreyfingarinnar skerða
mjög rétt launafólks, en auk þess hafa
fyrirhugaðar aðhalds-aðgerðir Fíat-
verksmiðjanna valdið mikilli reiði, en
fyrirtækið hefur boðað uppsagnir allt
að fimmta hluta starfsmanna.
Enskur afi fórnar-
lamb alsælu
Eric Whittle, 63 ára afi frá Warr-
ington á Norður-Englandi, er elsta
fórnarlamb alsælu svo vitað sé, en
hann lést á sjúkrahúsi í heimabæ
sínum eftir að hafa tekið inn fjórar
alsælutöflur ofan í kókaín, kanna-
bis og alkóhól.
„Við mælum ekki með því að
nokkur taki inn fjórar alsælutöflur í
einu, hvað þá eftir að hafa tekið inn
önnur örvandi lyf,“ sagði talsmaður
breskra samtaka sem berjast gegn
misnotkun fíkniefna.
Bertie Ahern.
írar með framtíð
ESB í höndunum
írar ganga að kjörborðinu í dag tfl
þess að kjósa um það hvort leyfa eigi
inngöngu tólf nýrra ríkja í ESB sam-
kvæmt svokölluðum Nica-sáttmála,
en til þess að svo megi verða þarf
samþykki allra ESB-landanna í þjóð-
aratkvæðagreiðslu.
Hörð barátta hefur staðið síðustu
vikurnar þar sem Bertie Ahern, for-
sætisráðherra írlands, hefur hvatt íra
til þess að kjósa með fjölguninni á
meðan helsti andstæðingur hennar,
Sinn Fein-leiðtoginn Gerry Adams,
hefur beitt sér hart gegn henni.
Pat Cox, forseti ESB-þingsins, sagði
í viðtali í gær að hann treysti á íra að
kjósa rétt. „Þeir myndu sá beisku fræi
með því að kjósa gegn sáttmálanum,"
sagði Cox, en írar höfnuðu sáttmálan-
um í atkvæðagreiðslu á síðasta ári og
er eina ESB-landið af fimmtán sem
ekki hefur samþykkt hann.
Sjá nánari umfjöllun á bls. 12
íraksmálið:
Rússar Ijá máls á
her naðaraðgerðu m
Rússar léðu i gær í fyrsta skipti
máls á því að styðja hemaðaraðgerðir
gegn írökum, gangi þeir ekki að skil-
yrðislausum kröfum Sameinuðu þjóð-
anna um vopnaeftirlit.
Þessi breytta afstaða Rússa kom
fram i gær á fundi fulltrúa ríkjanna
fimm sem hafa neitunarvald í Örygg-
isráði SÞ, þ.e.a.s. Bandaríkjanna,
Bretlands, Frakklands, Rússlands og
Kína og í kjölfar þess að Bandaríkja-
menn hafa gefið eftir í kröfum sínum
um að ný ályktun heimilaði beinar að-
gerðir gegn írökum, yrðu þeir ekki
skilyrðislaust við settum kröfum.
Þessi nýja staða virðist hafa komið
skriði á málið, sem ekkert hafi þokast
í heilar fimm vikur og fara Rússar og
Frakkar, sem hafa verið samstiga í
málinu, nú yfir stöðuna áður en þeir
gefa Bandaríkjamönnum ákveðið svar
við þessari nýju málamiðlun.
Igor Ivanov, utanríkisráðherra
Rússlands, sagði í gær að ef vopnaeft-
Igor Ivanov.
irlitsmenn Sameinuðu þjóðanna yrðu
á einhvern hátt hindraðir við störf
sín, þá gæti komið til þess að hemað-
araðgerðir yrðu óumflýjanlegar. Þess
vegna komi til greina að samþykkja
ályktun þess efnis í Öryggisráðinu og
nú væri verið að fara yfir nýja stöðu í
málinu.
Frakkar hafa lýst ánægju sinni með
málamiðlun Bandaríkjamanna sem
nú hafa fallið frá þeirri kröfu að beita
öllum hugsanlegum ráðum gegn Irak
og að sögn Cecili Pozzo di Borgo, tals-
manns franska utanríkisráðuneytis-
ins er einnig verið að skoða stöðuna
þar á bæ með opnum huga. Eftir
standi þó kröfur sem geri ráð fyrir
hernaöaraðgerðum, eins og til dæmis
ef írakar reyni að hindra störf vopna-
eftirlitsmannanna.
í málamiðluninni er gert ráð fyrir
því að vopnaeftirlitið tilkynni án tafar
ef þeir verða fyrir hindrunum og ef
ekki verði farið að öllum kröfum. Þar
hefur einnig verið felld út krafa um
vopnaða eftirlitssveit sem fylgi vopna-
eftirlitsmönnunum, en það var krafa
sem vopnaeftirlitsnefndin hafnaði al-
farið. Þá er talið að krafa Bandaríkja-
manna um að vísindamenn íraka
verði fluttir úr landi á meðan eftirlitið
fer fram muni falla um sjálfa sig þar
sem það virðist óframkvæmanlegt.
Gelmskutlan Atlantls komin til baka
Geimskutlan Atlantis lenti í gær heilu og höldnu viö Kennedy-geimferöastööina á Canaveral-höföa í Flórida eftir ellefu
daga viögerðarferö til alþjóölegu geimstöövarinnar sem er á braut um jöröu. Sex geimfarar tóku þátt í förinni og fóru
þeir 1 einar þrjár geimgöngur til þess aö koma fyrir nýrri buröargrind utan á geimstöðinni.
írakar skila Kúveitum aftur
brottnumdum skjölum
írakar munu í dag skila aftur skjöl-
um sem þeir námu á brott með sér frá
Kúveit, eftir sjö mánaða hemám og
setu í landinu á árunum 1990 til 1991,
eða þar til þeir voru flæmdir burt af
alþjóðlegum hersveitum undir forystu
Bandaríkjamannna í upphafi Persa-
flóastríðsins.
Að sögn talsmanns íraska utanrik-
isráðuneytisins héldu flmm fullhlaðn-
ir herflutningabílar frá Bagdad í gær,
en skjölin verða afhent í dag undir eft-
irliti fulltrúa Sameinuðu þjóðanna í
bænum Abdalli, sem er á hlutlausa
beltinu milli landanna.
Skjölin munu aðallega vera úr
skjalasafni kúveiska utanríkisráðu-
neytisins, en í farminum er einnig að
finna skjöl frá ráðuneyti öryggismála
og forsætisráðuneytinu. Auk þess
mun þar að finna skjöl sem varða við-
skiptasambönd við Bandaríkin, sem
numin voru á brott úr sérstakri stofn-
Fullhlaðnir skjalabílar
íraskir hermenn Ijúka viö aö hlaða
kúveiskum skjölum í fimm
herflutningabíla.
un sem fór með þau mál og kölluð hef-
ur veriö ráðuneyti Bandaríkjanna í
Kúveit.
Samkomulag um að írakar skiluðu
skjölunum náðist á þingi Arababanda-
lagsins í Beirút í Líbanon í mars sl. og
stjómvöld í Kúveit segjast efins um að
írakar muni standa við samkomulag-
ið og vilja fyrst fá að sjá hvað sé í bíl-
unum áður en þeir samþykkja að taka
við farminum.
Ghassan Muhsen, talsmaður íraska
utanríkisráðuneytisins, sagðist von-
ast til þess að þetta fyrsta sáttaskref
yrði aðeins upphafið að góöum sam-
skiptum ríkjanna til framtíðar, en
kúveisk stjórnvöld hafa sakað íraka
um að hafa einnig numið á brott
hundruð kúveiskra fanga sem enn þá
séu vistaðir við þröngan kost í
íröskum fangelsum. Það kannast
írakar ekki við og hafa oftar en einu
sinni vísað þeim ásökunum á bug.
mmm
Chavez hafnar sölubanni
Hugo Chavez, for-
seti Venesúela, sem
er fimmta stærsta ol-
íuframleiðsluríki
heims og einn helsti
birgir Bandaríkja-
manna, segist ekki
ætla að taka þátt í ol-
íusölubanni
arabaríkja á Bandaríkin til þess að
mótmæla fyrirhuguðum hemaðarað-
gerðum gegn írak. Chavez segir að
OPEC-ríkin verði að vinna að þessu
innan frá. „Við getum ekki tekið þátt
í slíku og munum aldrei nota olíuna í
pólitískum tilgangi. Olían er nauð-
synjavara sem almenningur getur
ekki verið án og þess vegna erum við
ekki til viðræðu um sölubann," sagði
Chavez.
Tók fjóra í gíslingu
Vopnaður unglingur réðst í gær inn
í barnaskóla í bænum Waiblingen í
nágrenni Stuttgart í Þýskalandi og tók
Qóra 12 ára nemendur í gíslingu.
Byssumaðurinn, sem lögreglan segir
16 ára gamlan brottrekinn nemanda
skólans, var vopnaður skammbyssu
og tók í upphafi heilan bekk í gíslmgu
áður en hann leyfði öllum nema fjór-
um að yfirgefa skólastofuna og þar á
meðal kennaranum.
Hann fer fram á eina milljón evra í
lausnargjald, flóttabíl og nýjan far-
sima. Þegar blaðið fór í prentun voru
sérfræðingar lögreglunnar að reyna
að fá piltinn til að gefast upp.
Ætlaði að sprengja
Sautján ára unglingur var í gær
handtekinn í nágrenni híbýla banda-
rískra hermanna í b'ænum Fintas í
nágrenni Kúveit-borgar með tíu
flöskur af bensíni í bifreið sinni.
Kveikur var í hverri flösku þannig að
auðséð var hvað vakti fyrir pilti. Við
yfirheyrslur viðurkenndi hann að
hafa fengið fyrirmæli á Netinu frá
Pakistan um árás á stórhýsi í Fintas
þar sem fjöldi bandariskra hermanna
frá Ahmad al-Jaber herstöðinni býr.
Tíu mínútna vopnahlé
Stærstu samtök skæruliða í Súdan,
SPLA, saka stjórnvöld í landinu um
að hafa brotið vopnahléssamkomulag
aðeins tíu mínútum eftir að það var
undirritað fyrr í vikunni. Talsmaður
samtakanna sagði að stjómarherinn
hefði ráðist á bækistöðvar SPLA í
austurhluta landsins og varaði við
afleiðingunum.
Sprengt á Filippseyjum
Að minnsta kosti
þrír fómst og meira
en tuttugu slösuðust
þegar sprengja
sprakk i rútubifreið
í nágrenni Manilla,
höfuðborgar Filipps-
eyja, í gær. Ekki er
vitað hver stóð að til-
ræðinu en grunur beinist að Abu
Sayyaf-samtökunum sem talin eru
tengjast al-Qaeda, en þau stóðu í
fýrradag fyrir sprengingum sem urðu
sjö manns að bana í borginni Zam-
boanga.
Spilling í Angóla
í ársskýrslu alþjóða gjaldeyrissjóðs-
ins, IMF, kemur fram að um einn
milljarður dollara hafi horfiö úr sjóð-
um angólska ríkisins á síðasta ári.
Upphæðin er mun hærri en verð-
mæti þeirrar alþjóðlegu neyðaraðstoð-
ar sem Angólar hafa þegið á þessu ári,
en lélegum reikningsskilum er kennt
um hluta tapsins auk viðvarandi spill-
ingar í stjómkerfinu. í skýrslunni
kemur einnig fram að fjórir milljarð-
ar króna hafa horfið úr ríkissjóði á
fimm síðustu árum.
Páfagarður hafnar
Páfagarður hefur hafnað steftiu
rómversk-kaþólskra biskupa í Banda-
ríkjunum um það hvernig tekið verði
á málum presta sem uppvísir verða að
kynferðislegri misnotkun.
í yfirlýsingu ífá Vatíkaninu segir
að umrædd stefna, sem mótuð var í
sumar eftir röð kynferðisafbrotamála
innan bandarísku kirkjunnar, sé óljós
og gæti því valdið misskilningi, auk
þess sem hún brjóti í bága við reglur
kirkjunnar.