Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2002, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2002, Blaðsíða 56
•***»> eo HelQorblctö H>V LAUCARDAGUR 19. OKTÓBER 2002 islendingaþættir Umsjón Kjartan Gunnar Kjartansson Hannes Jónsson fyrrv. sendiherra verður 80 ára á sunnudaginn Dr. Hannes Jónsson, fyrrv. sendiherra, Gullsmára 10, Kópavogi, verður áttræður á morgun. Starfsferill Hannes fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann lauk iðnskólaprófi í Reykjavík 1942, Samvinnu- skólaprófi 1944, sveinsprófi í prentiðn sama ár, bandarísku stúdentsprófi (CBEE) til inntöku í Rutgers University 1946 en hafði undanfarið ár verið við undirbúningsnám í Rider Coliege, N.J. Á árinu 1948 lauk hann BA-prófi í félagsfræði og hagfræði við Rutgers University og 1949 MA-prófi í sömu greinum frá University of North Carolina, Chapel Hill. Hann lauk doktorsprófi í þjóðfélagsfræði og þjóðarétti frá Vínarháskóla 1980. Hannes var sendill og síðar útibústjóri við Vesturgötuútibú Silla og Valda 1935-40, prentnemi og prentari í Gutenberg 1940-45, blaðamaður á Vísi 1948, fulltúi hjá SÍS 1949-52, starfsmaður Framsóknar- flokksins 1952-53, embættismaður í utanríkis- þjónustunni 1953-89, starfaði þá m.a. sem sendiráðs- ritari í Bonn og London, fulltrúi og deildarstjóri í utanríkisráðuneytinu í Reykjavík, sendiráðunautur og viðskiptaráðunautur í Moskvu, varafastafulltrúi hjá SÞ og ræðismaður í New York, blaðafulitrúi ríkisstjórnarinnar 1971-74, sendiherra í Moskvu og jafnframt i Búkarest, Berlín, Búdapest og Soffíu 1974-80, og í Úlan Bator í Mongólíu 1977-80, sendiherra og fastafulltrúi hjá EFTA (formaður fastaráðsins 1982), GATT, SÞ og öörum alþjóða- stofnunum i Genf 1980-83, jafnframt sendiherra í Egyptalandi, Eþíópíu, Keníu og Tansaníu sama tímabil, sendiherra í Bonn og jafnframt sendiherra í Austurríki og Sviss 1983-86, heimasendiherra og þá sendiherra á Kýpur, Indlandi, í Pakistan, Bangladesh og Túnis, með aðsetri í Reykjavík 1986-89 og fékk lausn frá sendiherraembætti að eigin ósk 1989. Hannes var formaður alþjóðaklúbbs stúdenta við University of North Carolina 1948-49, formaður Kaupfélags Kópavogs 1952-55 og Byggingarsamvinnu- félags Kópavogs sama tímabil, trúnaðarmaður landeigandans í Kópavogi 1952-55, kjörinn í hreppsnefnd og byggingamefnd Kópavogshrepps 1954, setti fram, ásamt Jósafat Líndal, tillögu um að Kópavogur yrði gerður kaupstaöur 1955 sem og varð sama ár, kjörinn í fyrstu bæjarstjórn Kópavogs 1955, forstjóri Félagsmálastofnunarinnar og ritstjóri bókasafns hennar 1961-66 (frístundastarf, og sat í miðstjórn Alþjóðasambands félagsfræðinga 1966-69. Ritstörf: Iceland and the Co-operative Trend, MA- ritgerð við University of North Carolina, USA 1949; Framleiðslusamvinna, Reykjavík 1953; Iceland’s Unique History and Culture (landkynningarrit) 1960 (4. útgáfa 1988); Félagsstörf og mælska 1963; Fjölskylduáætlanir og siðfræöi kynlífs 1964; Samskipti karls og konu 1965; Lýðræðisleg félagsstörf 1969, 2. útg. 1989; Iceland and the Law of the Sea, 1972; Iceland’s 50-miles and the reasons why, febrúar 1973, önnur útg. maí 1973; Grunnene for utvidelsen av den islandske flskerigrensen 1973; The Evolving Limit of Coastal Jurisdiction 1974; Framsóknarstefnan 1974; Fischereiwesen und Aussenpolitik Islands -Ihr Einfluss auf das Seerecht, fjölrituð doktorsritgerð varin við Vínarháskóla 12. mars 1980; Friends in Conflict 1982; Islensk sjálfstæðis- og utanríkismál, 1989; Evrópumarkaðshyggjan 1990; Sendiherra á sagnabekk 1,1994 og II, 2001. Hannes var ritstjóri og höfundur að hluta ritanna: Verkalýðurinn og þjóöfélagið, 1962; Fjölskyldan og hjónabandið, 1963; Efnið, andinn og eilífðarmálin, 1964; Kjósandinn, stjórnmálin og valdið, 1965. Auk þess höfundur fjölda greina í innlendum og erlendum blöðum og tímaritum, einkum um félagsfræðileg efni, milliríkja- og alþjóðamál. Viðurkenningar: Kjörinn félagi i Alpha Kappa Delta, heiðursfélagi afburðanemenda við University of North Carolina 1948, stórriddari af fálkaorðunni 1976, stórkrossriddari með axlarborða og stjörnu þýsku Verdienst-orðunnar 1986. Fjölskylda Hannes kvæntist 4.9. 1948 Karin Waag, f. 16.8. 1926, húsmóður. Hún er dóttir Hjálmars Waag, skólastjóra í Færeyjum, og k.h., Kristínar Árnadóttur, prests, Þórarinssonar frá Stóra-Hrauni. Börn Hannesar og Karinar eru Hjálmar Waag Hannesson, f. 5.4.1946, sendiherra í Ottawa í Kanada; María Inga Hannesdóttir, f. 30.5. 1950, sérkennari í Reykjavík; Jón Halldór Hannesson, f. 22.5. 1952, d. 27.4. 1997, heimspekingur, kennari og bóndi að Hjarðarbóli í Ölfusi; Jakob Bragi Hannesson, f. 5.9. 1956, skólastjóri í Reykjavík; Kristín Hanna Hannesdóttir, f. 5.9. 1956, hjúkrunarfræðingur í Reykjavík; Karin Elísabet Hannesdóttir, f. 1.1. 1960, fóstra; Guðmundur Hannes Hannesson, f. 25.3. 1965, bankamaður í Reykjavík. Alsystir Hannesar er Herdís Jónsdóttir, f. 13.1. 1924, sérkennari í Reykjavík. Hálfsystir Hannesar, sammæðra, er Jóhanna Þórunn Ingimarsdóttir, f. 18.12., 1947, kennari í Reykjavík. Foreldrar Hannesar voru Jón Guðmundsson, f. 15.11. 1890, d. 15.1. 1926, bóndi að Bakka í Ölfusi, og k.h. María Hannesdóttir, f. 5.4. 1902, d. 4.6. 1992. Hannes og Karin ráðgera aö vera á Flórída á afmælisdaginn. Þú nærö alltaf sambandi M _ viö okkur! H (?) 550 5000 U mánudaga til fimmtudaga kl. 9-20 föstudaga kl. 9 -18 sunnudaga kl. 16 - 20 smaauglysingar@dv.is hvenær sólarhringsins sem er DV 550 5000 Afmælí Laugard. 19. október 9QÁ8A Guöbjörg M. Franklínsdóttir, Suöurgötu 12, Siglufirði. 85 ÁRA____________________ Emilía K. Kristjánsdóttir, Hringbraut 50, Reykjavík. Höröur Davíösson, Víghólastíg 5, Kópavogi. Þorvaröur Guömundsson, Dalbraut 21, Reykjavík. 80 ÁRA Halldóra Sigurjónsdóttir, Kirkjulundi 6, Garðabæ. 75 ÁRA____________________ Jón Björgvin Stefánsson, Skólavegi 22, Keflavík. 70 ÁRA ___________________ 0Gísli Jósefsson, tekur á móti vin- mönnum að Engjateigi 3, aust- urenda, kl. 16.00-19.00. Kristbjörg Gestsdóttir, Lagarási 2, Egilsstöðum. 60 ÁRA Hjörtur Guömundsson, Sævangi 39, Hafnarfiröi. Örnólfur Þorleifsson, Leynisbraut 21, Akranesi. 50 ÁRA ___________________ Gréta Kjartansdóttir, Heiðvangi 50, Hafnarfirði. Guöbjörg Jóhannsdóttir, Laugarvegi 37, Siglufirði. Guðmundur Halldórsson, Dalseli 36, Reykjavík. Gunnar Jónsson, Tunguvegi 68, Reykjavík. Izudin Vajzovic, Kirkjuvegi 16, Ólafsfirði. Jóhann Thoroddsen, Bakkavör 9, Seltjarnarnesi. Jóhannes Ásgeirsson, Huldulandi 32, Reykjavík. Kristín Þorbergsdóttir, Mararbraut 7, Húsavík. Rósa Guðný Bragadóttir, Jakaseli 36, Reykjavík. Sigríöur Gísladóttir, Faxabraut 25b, Keflavík. Steinar Harðarson, Lækjarhvammi 14, Hafnarfirði. Valgeröur K. Guölaugsdóttir, Móasíðu 2e, Akureyri. 40 ÁRA____________________ Blrgir Blöndal Birgisson, Gígjulundi 6, Garðabæ. Einar Sigmundsson, Langholtsvegi 79, Reykjavík. Elín Sigurbergsdóttir, Skúlagötu 80, Reykjavík. Hafstelnn Bao Duong, Sólheimum 24, Reykjavík. Hrafnhildur Markúsdóttir, Norðurvangi 31, Hafnarfiröi. Ingibjörg Tómasdóttir, Dalsbyggö 5, Garöabæ. Jerzy Serwatko, Þjóðólfsvegi 14, Bolungarvík. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, Bergstaöastr. 62a, Reykjavík. Magnús Sigurösson, Grýtubakka 14, Reykjavík. Magnús Skúlason, Suðurengi 9, Selfossi. Ragnheiöur M. Júliusdóttir, Grænahjalla 1, Kópavogi. Reynir Steinarsson, Grensásvegi 45, Reykjavík. Siguröur Magnússon, Hringbraut 63, Hafnarfirði. Steina Ósk Gísladóttir, Einigrund 3, Akranesi. Sunnud. 20. október 90 ÁRA__________________ Ingibjörg Sigvaldadóttir, Hóli, Hólmavlk. Hún tekur á móti gestum í Færeyska sjómannaheimilinu, Brautarholti 29, Reykjavík, sunnud. 20.10. kl. 15.00-18.00. 85 ÁRA Gertrud M. Sigurjónsson, Krókahrauni 12, Hafnarfirði. Guöný 0. Einarsdóttir, Garðvangi, Garði. Njáll Sveinbjörnsson, Háaleitisbraut 22, Reykjavík. Jakobína Anna Olsen, og Karl Olsen, Hólagötu 31, Njarðvík. Þau taka á móti gestum í Stapanum, Njarövík, sunnud. 20.10. kl. 15.00-18.00. Sigríður Loftsdóttir, Víðilundi 24, Akureyri. 70 ÁRA Auöur Lella Eiriksdóttir, hárgreiðslumeist- ari, Lækjasmára 72, Kópavogi. Eiginmaður hennar er Benedikt Eyfjörö Sigurðsson flugvirki. Hún tekur á móti gestum i félagsheimili Rug- virkja, Borgartúni 22 á afmæl- isdaginn kl. 17.00-19.00. Einar Gunnarsson, Hléskógum 12, Reykjavík. Erlingur Kristinn Æ. Jónsson, Klébergi 5, Þorlákshöfn. Eymundur Lúthersson, Skuggagili 6, Akureyri. Héöinn Jónsson, Frostafold 97, Reykjavík. Kristinn Magnússon, Kleppsvegi 30, Reykjavik. Marinó Óskarsson, Básbryggju 51, Reykjavík. Ólöf Guöbjörg Tryggvadóttir, Hríseyjargötu 6, Akureyri. 60 ÁRA Grétar K. Ingimundarson, Breiðvangi 23, Hafnarfirði. 50ÁRA Elín Ebba Guðjónsdóttir, Lækjasmára 62, Kópavogi. Ingvar Engilbertsson, Lönguhlið 21, Akureyri. Jakobína S. Stefánsdóttlr, Gautavík 29, Reykjavík. Hún verður að heiman. Kristín Guöbjörg Páisdóttir, Eiðsvallagötu 1, Akureyri. Ragnar Ragnarsson, Klapparstíg 1, Reykjavík. Unnur Ragnarsdóttir, Grettisgötu 77, Reykjavík. 40 ÁRA____________________ Ásbjörn Björnsson, Seilugranda 3, Reykjavík. Ásbjöm Sigþór Snorrason, Bjarmahlíð 8, Hafnarfiröi. Claus Hermann Magnússon, Smyrlahrauni 29, Hafnarfirði. Edda Arndal, Nökkvavogi 15, Reykjavík. Guðrún M. Siguröardóttlr, Blikaási 14, Hafnarfiröi. Halldóra Kr. Hartmannsdóttlr, Hólatúni 3, Sauðárkróki. Halldóra Ólöf Siguröardóttir, Kríuási 13, Hafnarfirði. Hermann Stefánsson, Lækjarvöllum 6, Grenivik. Kristján V. Kristjánsson, Laugateigi 37, Reykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.