Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2002, Blaðsíða 4
4
LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2002
DV
Fréttir
Samningar um norsk-íslenska síldarstofninn:
Stefnir í stjórn-
lausar síldveiðar
- hörð átök um nýjustu kröfur Norðmanna
Allt er nú komið í harðan hnút i
samningum um veiðar úr norsk-ís-
lenska síldarstofninum og virðist síldar-
stríð vera í uppsiglingu milli aðildar-
ríkja samningsins.
Upp úr viðræðum
slitnaði á fundi i St.
Pétursborg í fyrra-
dag eftir að Norð-
menn lögðu fram
kröfu um stórauk-
inn kvóta sér til
handa á kostnað
..... allra annarra aðild-
Ragnarsson.
ms nema Russa.
Deilt er m.a. um veiðar á síld á hafsvæð-
um miili íslands og Noregs. Þá er líka
ósamið um kolmunnaveiðar ríkjanna
en fundað verður um þau mál í Norð-
austur-Atlantshafsnefndinni í London i
annarri viku nóvember. Búist er við erf-
iðum samningum um kolmunnaveið-
amar en líklegt er að síldarviðræður
verði þar áfram á dagskrá.
Kristján Ragnarsson, stjómarformað-
ur LÍÚ, er í samninganefnd íslendinga
og segir hann kröfur Norðmanna með
öllu óviðunandi. „Það hefur ekkert kom-
ið fram sem réttlætir þessa breytingu á
samningnum núna.“ Hann segist því
ekki skilja í Norðmönnum að steypa
þessu öllu í harðan hnút en samingar
hafa verið í gildi síðan 1997 eftir margra
ára erfiðar samningaviðræður. í þeim
samningum höfðu Norðmenn fmm-
kvæði að því að gefa Evrópusambands-
ríkjum hlutdeild í samningum um síld-
veiðamar sem Kristján telur hafa verið
algjörlega óþarft. ESB-ríki hafi ekki haft
neinn sögulegan síldveiðirétt á svæð-
inu. í samningaviðræðunum nú tóku
þátt auk fuiltrúa íslendinga, fulltrúar
Færeyinga, Norðmanna, Rússa og ESB-
ríkja.
Samkvæmt samningnum sem í gildi
hefur verið var þjóðunum samtals heim-
ilt að veiða 850.000 tonn af síld á svæð-
inu á síðasta ári. Vfsindamenn hafa ráð-
lagt að dregið verði úr veiðunum
þannig að heildarkvótinn verði 710.000
tonn til að freista þess að byggja upp
stofninn. Hafa Rússar reyndar óskað eft-
ir endurskoðun á því mati en íslending-
ar hafa ekki gert athugasemdir við til-
lögur vísindamanna.
Samkvæmt samningum sem í gildi
hafa verið hafa íslendingar mátt veiða
15,54% kvótans, Færeyingar 5,46%,
Norðmenn 57%, Rússar 13,62% og ESB-
riki 8,38%. Tillögur Norðmanna nú mið-
ast við að þeirra kvótahlutdeild aukist í
70% og að Rússar haldi óbreyttum
kvóta, 13,62%. Kristján segir að Norð-
menn hafi síðan boðið hinum þjóðunum
að slást um það sem eftir er. Miðað við
kröfur Norðmanna og hlutfallslega
óbreytta skiptingu út frá því þýða tillög-
Síldarskip að veiðum
Veiöar úr norsk-íslenska síldarstofninum hafa ætíö veriö umdeildar og mikiö
bitbein, ekki síst Norömanna og íslendinga.
Hlutdeild velða úr norsk-íslenska síldarstofninum
Gamli samnlngurinn Tonn % Tillögur Norömanna Tonn %
ísland 132.090 15,54% 61.486 8,66%
Færeyjar 46.410 5,46% 21.655 3,05%
Noregur 484.500 57,00% 497.000 70,00%
Rússland 115.770 13,62% 96.702 13,62%
ESB-ríki 71.230 8,38% 33.157 4,67%
Samtals: 850.000 100,00% 710.000 100,00%
ur Norðmanna - Hvað er þá fram undan?
að hlutur fs- „Ef fram fer sem horfir mun það fara
lands færi í svo að þjóðimar veiði hver í kapp við
8,66%, hlutur aðra og setja stofhinn f stórhættu."
Færeyinga færi Jörgen Niclasen, sem fer með fisk-
í 3,04%'og hlut- veiðimál í færeysku landstjóminni,
ur ESB-ríkja sagði eftir að upp úr samningum slitn-
færi í 4,67%. aði í Pétursborg að búast mætt: viö stór-
vandræðum i veiðum á uppsjávarfiski
Þettagraf eða „uppsjóvarkreppu," eins og hann
föV er aðtela6^ oröaði hað' Færeyto8ar °8 íslendingar
um í nýjum hafi en8an veginn getað kyngt kröfu
síldveiöisamn- Norðmanna um aukna hlutdeild í veið-
Ingum. unum. -HKr.
Hefur stóraukið
veiðina
Ámi M.
Mathiesen sjávar-
útvegsráðherra fór
yflr stöðu smábáta
í flskveiðikerfmu í
ræðu sinni á aðal-
fundi Landssam-
bands smábátaeig-
enda 1 gær. Þar
kom fram að sú
ákvörðun að breyta
dagakerfinu svo-
kallaða í þá vem að útivist bátanna
væri miðuð við hvem klukkutíma en
ekki heila sólarhringa frá því lagt er úr
höfn, virðist hafa gjörbreytt stöðunni.
Ráðherra sagði í ræðu sinni að það lægi
fyrir að bátar í dagakerfmu veiddu
12.329 tonn á síðasta fiskveiðiári í stað
7.879 tonna árið áður, en þess ber að
geta að þakbátamir svokölluðu bættust
við en þeir vom um 75 talsins. Dagabát-
ar hafa haft heimild til að vera í heild 23
daga á sjó á ári. Hver bátur í kerflnu
veiddi þannig 36 tonn á fiskveiðárinu
2000-2001, þ.e. áður en kerflnu var breytt,
en 41 tonn á síðasta fiskveiðiári. -HKr.
Ráðherrann kynnir kjöt í skóla
„Ef þiö ætliö aö veröa stórogsterk veröiö þiö aö boröa lambakjöt, “ sagöi Guöni Ágústsson landbúnaöarráöherra
þegar hann heimsótti nemendur Háteigsskóla í Reykjavík í gær. Þangaö mætti ráöherrann tii aö hvetja nemendur,
framtíöarneytendur landsins, til aö boröa meira lambakjöt en sala á því hefur dregist stórum saman á síöustu miss-
erum. Meö honum á myndinni eru Móna Sif Hadaya og Snorri Már Arnórsson.
Veirusýking
í rénun
Veirusýking sem varð vart á
Hrafnistu í Reykjavík og Hafnar-
firði er í rénun. Sveinn Skúlason,
framkvæmdastjóri Hrafnistu, segir
þetta vera sömu sýkingu og vart
hefur orðið um allan bæ, og það sé
rangt að stofnunin hafi lagst gegn
heimsóknum ættingja.
Ungt fólk sé um sólarhring að ná
sér af sýkingunni en gamalt fólk eitt-
hvað lengur og í einhverjum tilfeOum
hafi þetta lagst þyngra á það, og enn
séu einhverjir veikir en ekki hafi orð-
ið vart nýrra tilfella. Um 90 af um 540
vistmönnum urðu veikir. -GG
DV-MYND E.ÖL.
Stórtónleikarnir kynntir
Sykurmolinn Sigtryggur Batdursson
ræöir hér viö Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur borgarstjóra og Önnu
Kristínu Ólafsdóttur.
Mikill áhugi á Airwaves:
Stórtónleikar
í kvöld
Hápunktur Iceland Airwaves-tón-
listarhátíðarinnar er i kvöld þegar
flöldi stórra listamanna leikur á
stórtónleikum í Laugardalshöll. Bú-
ist er við því að Höllin verði full að
þessu sinni enda er dagskráin ekki
af verri endanum. Þekktasta nafnið
er án efa Fatboy Slim en búast má
við að sænsku rokkararnir í The Hi-
ves keppi við hann mn hylli áhorf-
enda. Aðrir sem fram koma eru
bandariska rappsveitin Blackalici-
ous og íslensku sveitirnar Gus Gus
og Apparat Organ Quartet auk
nokkurra plötusnúða.
Hátíðin hófst af fullum krafti í
fyrradag og hefur gengið mjög vel
til þessa. Miöasala hefur gengið vel
en enn er eitthvað af lausum miðum
á tónleikana í Höllinni í kvöld. Af
þeim sökum hafa tónleikahaldar-
arnir ákveðið að koma til móts við
áhugasama og lækka miðaverðið í
dag. Óseldir miðar eru fáanlegir í
Laugardalshöll frá klukkan 14 í dag
og er miðaverðið 3.900 krónur en
var áður 5.500 krónur.
ítarleg umfjöllun var um Iceland
Airwaves á CNN í gær auk umfjöll-
unar á MTV og BBC. Þá var fjallað
um hátíðina í New York Times auk
fleiri miðla. Mikill íjöldi blaða-
manna er staddur hér til að fylgjast
með hver verði næsta uppgötvunin
frá íslandi en áður hafa hljómsveit-
ir á borð við Quarashi og Sigur Rós
stigið sín fyrstu skref til frægðar í
útlöndum á hátíðinni. -hdm/GG
Pp«;rv NJotn/Pmi'v Jfó»»{H#«v/KÍPT WT 44r»
Gríðarleg ásókn í ódýr
Flugleiðasæti
Gríðarleg sala hefur verið á far-
miöum á lægstu fargjöldunum til
Kaupmannahafnar og London eftir
að Flugleiðir kynntu allt að 37%
lækkun fargjalda sl. miðvikudag.
Ferð til þessara staða kostar um
19.800 krónur. Þegar hafa selst lið-
lega 1.000 sæti og nokkrar dagsetn-
ingar hafa „hreinsast upp“, þ.e. öll
sæti á þessu verði hafa selst í nóv-
ember og desember, þó aðallega
kringum helgar. Bóka þarf með 21
dags fyrirvara.
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Flugleiða, segir að eftir-
spurnin hafi verið gríðarleg síðan
þessi nýju fargjöld voru auglýst. í
gær voru sæti laus 14. til 21. nóvem-
ber og 22. til 22. nóvember til
London og helgina 14. til 17. nóvem-
ber til Kaupmannahafnar. -GG