Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2002, Blaðsíða 6
6
LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2002
DV
Fréttir
Ákærður þurrfiskútflytjandi úr Garðabæ sem lét sig hverfa sporlaust frá London:
Dularfullt hvarf sem varö
að ókláruðu sakamáli
- ríkislögreglustjóri hefur reynt í þrjú ár að fá manninn framseldan
Héraösdómur Reykjaness
Þegar Þorgeir Ingi Njálsson héraösdómari sagöi rétt settan sat Ragnar Sigurjóns-
son sem ákæröur maöur i máli Ríkislögreglustjórans gegn honum. Nigeríumaöur kæröi
hann fyrir fjögurra milljóna króna Ijársvik. Þegar Ragnargekk út eftir fyrstu vitnaleiöslu
sneri hann ekki aftur. Hann var á leiö til útlanda - ætlaöi ekki að koma aftur.
Þrír og hálfur mánuður í óvissu á ár-
inu 1999 gerði mál 58 ára þurrfiskút-
flytjanda úr Garðabæ að einu sérstæð-
asta mannhvarfs-
máli aldarinnar
hér á landi -
mannsins sem sat
fyrir framan Ní-
geríumann í dóm-
sal í Hafnarflrði
fóstudaginn 26.
mars þar sem út-
lendingurinn lýsti
því yfir að íslend-
ingurinn hefði
svikið tæpar fjórar milljónir króna út
úr sér í viðskiptum með herta þorsk-
hausa. Viku síðar, fóstudaginn langa,
fór hinn ákærði fiskútflytjandi utan -
flúði undan væntanlegum réttarhöld-
um í fjársvikamáli þar sem sökin varð-
aði við nokkurra ára fangelsi. Hann
hefur enn ekki
snúið til baka og
kaus að fljúga til
London þaðan
sem hann lét sig hverfa án þess að láta
nokkum vita. Ekki einu sinni eigin-
konu og böm. Þess er enn beðið að
maðurinn komi heim.
Mætti ekki á fund
Flókinn og miður farsæl fiskútflutn-
ingsviðskipti urðu til þess að Ragnar
Sigurjónsson var búinn að koma sjálf-
um sér og öðmm á kaldan klaka í fjár-
málum. Að auki hafði hann verið
ákærður í fjársvikamáli og dómur var
ffam undan án þess þó að nokkuð af
hans fólki hefði hugmynd um það.
Hann kvaddi fólk sitt og fóstudaginn
langa flaug hann til London. Ástæðan
fyrir sakamálinu var sú að Nígeríu-
maðurinn hafði greitt Ragnari um 4
milljónir króna inn á reikning hans i
Hamborg án þess að þorskhausar bær-
ust til Nígeríu eins og íslendingurinn
hafði lofað. Maðurinn lagði því fram
kæra og Ragnar var svo ákærður.
Ragnar mætti tvisvar fyrir dóm en
áður en þriðja þinghaldið fór frarn hélt
Ragnar til London á hoppmiða, hafði
samband daglega heim um páskana
eins og hann var vanur í viðskiptaferð-
um en svo spurðist ekkert til hans eft-
ir 5. apríl þegar hann ræddi síðast við
konu sína. Daginn eftir, klukkan 11,
hafði Ragnar ákveðið fund með Nigel
Francis, umboðsmanni í skreiðarvið-
skiptum, á hóteli sínu. En Ragnar
mætti ekki. Nigel komst að því að ís-
lendingurinn var búinn að tékka sig út,
horfinn á braut.
Lögreglan í Bretlandi og á íslandi
rannsökuðu málið svo vikum og mán-
uðum skipti. Það olli lögreglu ytra
heilabrotum að Ragnar hafði átt ham-
ingjuríkt fjölskyldulíf en menn vora
líka uggandi yfir að hann hefði tekið
hjartalyf reglulega. Hvað hafði gerst?
Leitað var á sjúkrahúsum, í líkhúsum
og rætt við viðskiptavini. Allt var gert
en ekkert spurðist til Ragnars.
Þegar tæpur mánuöur var liðinn frá
hvarfmu rseddi DV við Peter Johnston,
lögreglumann í Kensington í London.
Honum fannst óneitanlega líkur á að
Ragnar hefði látið sig hverfa af ásettu
ráði - hann hefði ekki orðið fyrir slysi,
honum rænt eða fyrirkomið.
Þetta er algjör ráögáta
„Vissulega hafa allir sitt frelsi og
eiga rétt á aö láta sig hverfa. En við
verðum að leita áfram,“ sagði Peter lög-
reglumaður. „Við
höfum enga hug-
mynd um hvert
Ragnar hefúr farið.
Þetta er algjör ráðgáta. Okkur er sagt
að Ragnar hafi átt í fjárhagsvandræð-
um í viðskiptum sínum. Þess vegna er
sá möguleiki alls ekki útilokaður að
hann hafi farið í felur,“ sagði Peter.
April leið án þess að spyrðist til
Ragnars, siðan maí, þá júni en í júlí
hringdi siminn á heimili á höfuðborg-
arsvæðinu hjá einu bama Ragnars.
Pabbinn var í símanum!
Ragnar var í Taílandi. Hið dularfulla
mannshvarf var upplýst.
Neitaði að koma heim
En málið hvorki var né er búið.
Efhahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra-
embættisins vann nú að því að fá Ragn-
ar heim til að ljúka máli sínu fyrir
dómi - svara til saka eins og öllum er
skylt að gera sé opinbert mál höfðað.
Jón Snorrason, saksóknari hjá ríkislög-
reglustjóra, sagði við DV, 10 mánuöum
eftir að Ragnar hringdi fyrst heim frá
Taílandi, að unnið
væri að því að fá
hann framseldan
þaðan.
„Þegar kemur að
þessu máli ytra og
allt gengur eftir
verður Ragnar
líklega handtekinn,
honum haldið og
hann fluttur sem
sakamaður á milli
landa. Ég hef trú á
því að þetta gerist -
miðað við eðlilegan
ffamgang," sagði
Jón.
Saksóknarinn
sagði aö Ragnar
hefði beinlínis neit-
að að koma heim til
að svara til saka
þegar lögreglan fór
ffarn á það. „Hann
er ekki tilbúinn að
koma samkvæmt beinni ósk okkar til
hans.“ Beiðni var send um handtöku-
skipun til stjómvalda í Taílandi en án
árangurs. Ragnar sat sem fastast ytra.
Skrifstofa Interpol hér heima fór fram
á framsal en þar sem ísland er ekki
með samning um ffamsal sakamanna
við Taíland „hafði málið ekki forgang
ytra“, eins og Jón orðaði það.
Og það vora orð að sönnu. Málið
hafði ekki forgang. Það var ekki einu
sinni unnið í því. Þegar DV ræddi við
Jón Snorrason í gær, fóstudag, sagði
hann að mál Ragnars Sigurjónssonar
hefði verið sent ffá Héraðsdómi
Reykjaness til embættisins. Þar bíði
það þangað tfl Ragnar kemur heim.
Jón sagði málið „vera í farvegi" en
svaraði ekki hvort embættinu væri
kunnugt um hvar Ragnar væri niður
kominn í dag. Hins vegar sagði Jón
ljóst að kerfi taílenskra stjómvalda
hefði ekki virkað með öðrum hætti en
raun hefur borið vitni - það sé sein-
virkt.
Þegar Ragnar Siguijónsson fór frá
íslandi varð mál hans að óupplýstu
mannshvarfi. í dag, þremur og hálfu
ári síðar, biður málið í hirslum ríkis-
lögreglustjóra sem óklárað sakamál
sem hófst með því að svikinn Nígeríu-
maður kærði hinn íslenska þurrfiskút-
flytjanda fyrir ijársvik. -Ótt
Peter Johnston, lögreglumaöur í London
Hann sagöi aö óneitanlega heföu líkur bent til aö Ragnar
heföi látiö sig hverfa afráönum hug.
Ragnar
Slgurjónsson.
Velta á Mlklubraut
Tveir bílar ultu á Miklubraut ígær eftir aö annar ók í veg fyrir hinn þar sem
þeim var ekiö í vesturátt. Bílarnir lentu uppi á umferöareyju þar sem þeir rifu
niöur grindverk á 20 metra kafla. Annar bíllinn fór á hliöina á eyjunni en hinn
fóryfir hina akbrautina og endaöi þar utan vegar. Báöir ökumennirnir voru
fluttir á slysadeild eftir óhappiö því þeir kvörtuöu yfir eymslum.
Bæjarstjóri Akraness telur starfsmann hafa brotið af sér:
Viðkvæmt í Ijósi
pólitískrar stöðu
mannsins
Gísli Gíslason, bæjarstjóri Akraness,
hefur sent formanni starfsmannafélags
bæjarins bréf þar sem hann tilkynnir
að verið sé að undirbúa ákvörðun um
viðurlög vegna brots hans í starfi.
Hann hafi sem umsjónarmaður sorp-
mála og forstöðumaður Gámu safiiað
saman góðmálmum sem bárast stöð-
inni til fórgunar og selt þá til Hringrás-
ar og lagt á eigin reikning. Hér er um
að ræða fjórar innlagnir á 5 ára tíma-
bili, samtals að andvirði 331 þúsund
krónur.
Menn telja málið snúið og viðkvæmt
í ljósi stöðu mannsins, Valdimars Þor-
valdssonar, sem dugmikils forystu-
manns starfsmannafélagsins en einnig
í ljósi þess að hann er formaður Fram-
sóknarfélags Akraness. í sveitarfélag-
inu era framsóknarmenn í meirihluta
ásamt Samfylkingu en sjálfstæðismenn
í minnihluta (3-2). Bæjarstjórinn er
hins vegar ráðinn.
Valdimar fékk leyfi Hringrásar til að
safna góðmálmunum af brotajámi fyr-
irtækisins - samningur var svo m.a.
gerður um að Hringrás fengi málmana
keypta sjálf. Valdimar, sem vann starf-
ið í eigin frítíma og leit á það sem
aukavinnu, hefúr bent á að hefði hann
ekki unnið þetta starf með þessum
hætti hefði bærinn þurft að greiða fyr-
ir söfnunina. Því sé hæpið að telja það
brot á starfsskyldum þegar verið sé að
spara fyrir bæinn.
Gisli Gíslason bæjarstjóri sagði við
DV að Valdimar hefði fengið frest til að
skila greinargerð í samræmi við and-
mælarétt stjómsýslulaga.
-Ótt
Sóiaf,
sjl w&ii
REYKJAVÍK AKUREYRI
Sólariag í kvöld 17.55 17.40
Sólarupprás á morgun 08.32 08.17
Síódegisflóð 17.41 22.14
Árdegisflóð á morgun 05.57 10.29
Norölæg átt, víöa 8-13 metrar á
sekúndu. Él noröan- og austanlands
en léttskýjaö sunnan- og suövestan-
lands. Vægt frost í nótt en hiti um
eöa yfir frostmarki aö deginum.
ViiÚJL Si JJJLtijllJJ
Norölæg átt, víöa 8-13 metrar á
sekúndu. Él norðan- og austanlands
en léttskýjað sunnan- og suövestan-
lands. Vægt frost í nótt en hiti um
eða yfir frostmarki aö deginum.
Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur
HHi 0“
tii 5°
Vindur:
8-13"/»
Hiti 2“
til 8»
Vindur:
8-13 m/»
Hiti 2°
til 8“
Vindur:
8-13"«/*
Slydda eða Slydda eða Slydda eða él
él norðan- og él norðan- og norðan- og
austanlands, austanlands, austanlands,
en þurrt aö en þurrt aö en þurrt aö
kalla suö- katla suö- kalla suð-
vestan tll. vestan tll. vestan tll.
■i 7mm,
m/s
Logn 0-0,2
Andvari 0,3-1,5
Kui 1,6-3,3
Gola 3,4-5,4
Stinnlngsgola 5,5-7,9
Kaldl 8,0-10,7
Stlnnlngskaldi 10,8-13,8
Allhvasst 13,9-17,1
Hvassvlöri 17,2-20,7
Stormur 20,8-24,4
Rok 24,5-28,4
Ofsaveður 28,5-32,6
Fárviðri >= 32,7
J iJíiJ'
AKUREYRI snjóél 1
BERGSSTAÐIR úrkoma f grennd 1
BOLUNGARVÍK snjókoma 2
EGILSSTAÐIR skýjaö 2
KIRKJUBÆJARKL léttskýjaö 4
KEFLAVÍK léttskýjaö 5
RAUFARHÖFN snjóél 1
REYKJAVÍK léttskýjað 4
STÓRHÖFÐI léttskýjaö 5
BERGEN léttskýjaö 6
HELSINKI alskýjaö -2
KAUPMANNAHÖFN skýjaö 3
ÓSLÖ skúr 1
STOKKHÓLMUR 2
ÞÓRSHÖFN úrkoma í grennd 4
ÞRÁNDHEIMUR -1
ALGARVE skýjaö 20
AMSTERDAM skúr 9
BARCELONA léttskýjað 20
BERUN skúr 8
CHICAGO rigning 4
DUBLIN léttskýjaö 9
HAUFAX skúr 11
FRANKFURT þoka 8
HAMBORG 8
JAN MAYEN snjóél -1
LONDON skýjaö 9
LLJXEMBORG skýjaö 9
MALLORCA léttskýjaö 22
MONTREAL heiöskfrt 2
NARSSARSSUAQ léttskýjaö -2
NEW YORK léttskýjaö 8
ORLANDO léttskýjaö ' 17
PARÍS skýjaö 10
VÍN skúr 10
WASHINGTON heiöskírt 1
WINNIPEG alskýjaö -1