Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2002, Qupperneq 20
20
/ / c> l cj a rb l ct ö 33 "V" LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2002
...kíkt í snvrtibudduna
Glimmerbleikur varalitur
„Ég þoli ekki varaliti sem gera var-
irnar þurrar og þess vegna er ég mjög hrif-
in af „Watershine Diamonds" varalitunum frá
Maybelline. Nr. 109 er ómissandi á djammið en sá
litur er ekki bara flottur á litinn heldur er hann einnig
með glimmeri í.“
Gucci-ilmvatn
„Fyrir einu ári var ég í Japan og þá var ilmur-
inn Gucci Rush 2 algjört „hitt“ þar og ég féll al-
veg fyrir honum. Ég veit ekki beint hvernig
ég á að lýsa þessum ilmi nema hann er voða
pæjulegur. Hann virðist þó ekki vera sér-
lega vinsæll hér á landi, ég þekki t.d bara
eina konu sem notar hann, en mér finnst gam-
an að vera með ilmvatn sem allir eru ekki með. Svo
eru umbúðirnar líka svo góðar, þær eru úr plasti
þannig að það er hægt að þeytast með glasið hvert sem er án
þess að eiga á hættu að það brotni.“
Brjostin
þreifuð
Flestor konur hafa einhvern
tímann heyrt um mikilvægi þess að
þreifa brjóstsín reqluteqa. Flestar okk-
Sólarpúður frá Kanebo
„Þetta sólarpúður frá Kanebo er alveg ómissandi
Nj* til að fríska upp á andlitið í prófunum þegar manni
finnst maður vera alveg úldinn.“
ar qleyma hins veqar oftar en ekki þessari sjálfskoðun sem
ætti íraun að fara fram einu sinni ímánuði. Þarsem októ-
bermánuður er helqaður árvekni um brjóstakrabbamein er
Burst Beewax lip balm
„Ég vil helst nota varasalva með pipar-
myntu og hef veriö mjög hrifin af þessum
býflugnavarasalva síðan vinkona mín kynnti mér hann. Það er
svona piparmyntutyggjólykt af honum og eiginlega minnir hann á
brjóstsykur. Hann fæst í apótekum."
Maskari frá Maybelline
„Ég er alltaf með maskara, hvort sem
„i‘J ég er að fara á djammið eða bara
dags daglega. Þessa dagana nota
ég maskara frá Maybelline sem kallast One By One.
Þessi maskari er sérlega auðveldur í notkun þar sem hausinn á
honum er boginn og burstinn er svo mjór að hann litar öll hárin,
líka þessi litlu.“
Mariko Margrét Raqnarsdóttir málaði sig
fyrst 12 ára qömul, þá fór hún í bíó með vin-
konum sínum með qóðan skammt afsvört-
um auqnblýanti krinqum auqum. Síðan þá
hefur mikið vatn runnið til sjávar, Maríkó er
orðin 22 ára nemi í viðskiptafræði í Háskóla
Reykjavíkur oq á mun fleiri snyrtivörur en
svartan auqnblýant ísnyrtibuddunni eins oq
sjá má hér að ofan.
ekki úr veqi að fara yfir hverniq þessi sjálfskoðun er fram-
kvæmd enda qóð vísa aldrei of oft kveðin.
Ár hvert greinast um 160 ís-
lenskar konur með brjóstakrabba-
mein, þar af er nær helmingurinn
á aldrinum frá 30 til 60 ára. Sam-
kvæmt nýjum útreikningum frá
Krabbameinsskránni getur tíunda
hver kona búist við að fá
brjóstakrabbamein einhvem tím-
ann fyrir 85 ára aldur. Röntgen-
myndataka er öruggasta aðferðin
til að finna krabbamein í brjóst-
um en með því að skoða og þreifa
brjóst sín reglulega geta konur þó
sjálfar áttað sig á breytingum.
Slíka skoðun ættu allar konur
sem orðnar eru tvítugar að fram-
kvæma einu sinni í mánuði og er
mælt með því að brjóstin
séu þreifuð um það bil
viku til 10 dögum eftir
að blæðingar hefjast.
Áður en brjóstin eru
þreifuð eru þau fyrst
skoðuð í spegli, bæði
með hendur niður með
hliðum og með hendur
spenntar á hnakka.
Þreifa skal hvort brjóst-
ið fyrir sig og nota til
þess alla höndina nema
þumalfingur. Til að
koma í veg fyrir að ein-
hver hluti brjóstsins
verði út undan eru fing-
urnir hreyfðir eftir
reglubundnu mynstri.
Ekki skal þrýsta of fast
en auðveldast er að
þreifa brjóstin í sturtu
eða liggjandi. En hverju
er maður eiginlega að
leita að í þessari sjálfs-
skoðun? „Hnútum eða
þykkildum. Einhverju
afbrigðilegu. Þessir
hnútar eru oft á stærð
við baun,“ segir Laufey
Aðalsteinsdóttir hjá
Leitarstöð Krabbameins-
félagsins. Einnig geta
verkir eða eymsl í
brjóstum verið merki
um að eitthvað sé að en
þó er vert að benda á það
að flestir hnútar í brjóst-
um eru góðkynja.
Silíkonbrjóst verður
líka að þreifa
Konum á aldrinum
40-69 ára er boðið að fara í
röntgenmyndatöku annað hvert
ár en yngri konur fara venjulega
ekki í slíka myndatöku nema
grunur leiki á um að eitthvað sé
að. Að sögn Laufeyjar geta konur
þó beðið um brjóstaþreifingu um
leið og þær fara í leghálsskoðun
og einnig farið í sérskoðun á
brjóstum ef grunur leikur á að
eitthvað sé að. Það er ekki úr
vegi að spyrja Laufeyju út í
hvernig það sé fyrir þær konur
sem eru með silíkon að finna
breytingar á brjóstunum. „Þær
verða náttúrlega að læra að
þekkja brjóst sín upp á nýtt eftir
slíka aðgerð til þess að geta
greint breytingar,“ segir Laufey
og bendir um leið á þá staðreynd
að eftir að farið var að setja silí-
konpúðana bak við brjóst-
vöðvann í staðinn fyrir framan
hann þá eigi konur mun auðveld-
ara með að fylgjast með breyting-
um á brjóstunum.
Ókeypis sturtuspjöld
Konur geta nú nálgast
sturtupjöld með leiðbeiningum um
það hvernig framkvæma eigi sjálf-
skoðun á brjóstum og haft spjaldið í
sturtunni heima til að minna sig á
að skoða brjóstin reglulega. Spjöld
þessi liggja frammi á heilsuvernd-
arstöðvum, í apótekum, verslunum
og víðar og eru ókeypis en einnig
verða hengd upp veggspjöld á sund-
stöðum og í íþróttamannvirkjum
með sömu upplýsingum. Það er
snyrtivörufyirtækið Estée Lauder
sem safnaði fyrir þessum spjöldum
með hanskasölu í fyrra. í ár býður
fyrirtækið skoska
ullartrefla til sölu
sem eru með hinu
alþjóðlega tákni
fyrir átak um ár-
vekni um
brjóstakrabbamein,
bleikri slaufu. Öll-
um ágóða af söl-
unni verður varið
til brýnna verkefna
sem valin verða í
samráði við
Krabbameinsfélag-
ið og Samhjálp
kvenna sem eru
samtök kvenna sem
greinst hafa með
krabbamein i
brjóstum. í fyrra
seldi snyrtivörufyr-
irtækið leður-
hanska í sama til-
gangi en fyrir ágóð-
ann af þeirri sölu
hafa verið búin til
sturtuspjöld með
leiðbeiningum til
kvenna um sjálfs-
skoðun brjósta.
Þannig að ef ein-
hver er að leita að
góðri og hlýrri gjöf
þá er gott að hafa
þessa hugmynd á
bak við eyrað.
-snæ
Snyrtivörufyrirtækið Estée Lauder
selur skoska ullartrefla í október
til styrktar átakinum árvekni um
brjóstakrabbamein. í fyrra seldi
fyrirtækið leðurhanska og var
ágóði þeirrar sölu notaður til þess
að búa til sturtuspjöld sem kenna
konum hvernig þreifa skal brjóst