Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2002, Qupperneq 31
LAUGARDAGU R \<3. OKTÓBER 2002
Helqarblaö I>V
3
ítalska landsliðið hefur byrjað vel:
Framtíð Trappatonis
hangir á bláþræði
Framtíö Giovanni Trappatonis, landsliösþjálfara Ítalíu,
hangir nú á bláþræði eftir tap liðsins gegn Wales í und-
ankeppni Evrópukeppninnar í knattspyrnu á miðviku-
dagskvöld. Helgina þar á undan gerði liðið aðeins jafn-
tefli gegn Júgóslavíu á heimavelli sínum. Þessi úrslit
þykja ekki ítalska liðinu sæmandi og eru fjölmiðlar og al-
menningur á Ítalíu ævareiðir vegna frammistöðunnar og
viija sumir hverjir karlinn burt.
Forseti ítalska knattspyrnusambandsins hefur þó lýst
yfir stuðningi sínum við Trappatoni, en hann gerði það
reyndar fyrir leikinn gegn Wales. Nú hins vegar segir
hann að liðið sé tvímælalaust komið í erfiða stöðu í riðl-
inum og það verði að fara vandlega yfir alla þætti ítalska
liðsins til þess að tryggja það að liðið mæti sterkt í næsta
leik, sem er gegn Finnum í mars næstkomandi. Ef allir
legðust á eitt myndi liðið tvímælalaust komast í úrslita-
keppnina í Portúgal. Varðandi þá gagnrýni að það eigi að
reka Trappatoni eftir aðeins þrjá leiki i riðlinum, þá seg-
ir hann að það væri eins og að reka blaðamann eftir að
hann væri búinn að skrifa þrjár lélegar greinar.
Afsökunarbeiðni
í grein sem ég skrifaði í DV mánudaginn 14.
október síðastliðinn og bar yfirskriftina „Jón og
séra Jón“ fer ég með rangt mál þar sem ég vísa til
reglugerðarbókar Jóhanns. Þar átti ég að sjálf-
sögðu við reglugerðarbók Knattspyrnusambands
Evrópu sem Jóhann Kristinsson, vallarstjóri
Laugardalsvallar, fer eftir i hvívetna. Bið ég Jó-
hann Kristinsson hér með afsökunar á þessum
leiða misskilningi og vona að ég hafi ekki valdið
honum tilfinningalegu tjóni eða öðru hugarangri
með þessum skrifum mínum. Ég vil þó ítreka þá
skoöun mína að Jóhann gengur einum of vasklega
fram í samskiptum sínum við fjölmiðlamenn, þá
sérstaklega ljómyndara, og ætti að tileinka sér
orð Einars Benediktssonar, „aðgát skal höfð í
nærveru sálar“. Óskar Hrafn Þorvaldsson
Boniek til í að
segja af sér
Pólski landsliðsþjálfarinn
Zbigniew Boniek sagði í gær að ef
pólska liðið kæmist ekki í úrslita-
keppni Evrópukeppninnar i knatt-
spyrnu árið 2004 myndi hann segja
af sér.
Boniek tók við starfinu eftir
slaka frammistöðu i úrslitakeppni
HM í sumar, en þrátt fyrir að hafa
breytt liðinu talsvert hefur honum
ekki tekist að rífa liðið upp, en lið-
ið tapaði fyrsta leiknum í riðlinum
fyrir Lettum 1-0. Þegar Boniek tók
við liðinu í sumar var hann
varaforseti pólska knattspyrnu-
sambandsins en steig úr því sæti
til að taka við landsliðinu. -PS
Kýpurmenn
gráðugir
ísraelsmönnum þykir Kýpur-
menn vera gráðugir, en þeir hafa
sent ísraelum reikning vegna ör-
yggisgæslu í leikjum í Evrópu-
keppninni í knattspyrnu sem
leiknir hafa verið á Kýpur vegna
ástandsins í ísrael.
Vegna leiks Maccabi Haifa og
Olympiakos fékk Haifa-liðið reikn-
ing upp á um 200 þúsund dollara og
eru ísraelsmennirnir allt annað en
ánægðir með framkomu Kýpur-
mannanna, en völlurinn sem leikið
var á tekur aðeins um 24 þúsund
manns þegar hann er fullsetinn.
-PS
Prestur
ráðinn til
Dinamo
Zagreb
Króatíska liðið Dinamo Zagreb
hefur ákveðið að ráða prest til liðs-
ins, en þjálfari liðsins segir að fé-
lagið sé fullt af illum öndum sem
prestinum sé ætlað að reka á dyr.
Presturinn mun ferðast með lið-
inu jafnt innanlands sem erlendis
og verða til reiðu fyrir leikmenn
sem þurfa á andlegri aðstoð að
halda eða þurfa að skrifta með litl-
um fyrirvara. Hann myndi einnig
halda andlegar æfingar sem og að
reyna að efla fjölskylduandann
innan liðsins.
Forráðamenn liðsins leita nú að
heppilegum starfsmanni til verk-
efnisins og segja þeir að nauð-
synlegt sé að vanda valið enda sé
verkefnið mikilvægt.
Dinamo Zagreb leikur í Evrópu-
kepnninni gegn Fulham og sagði
þessi sami þjálfari að nú væri kom-
inn tími til að hefna fyrir þátttöku
Breta í framsali þúsunda Króata til
Eystrasaltsríkjanna að lokinni síð-
ari heimsstyrjöldinni. -PS
Opið virka daga kl. 9-18
Laugardaga kl. 11-16
Skútuvogur 1 • Sími 568 8660 • Fax 568 0776
*Miðast við að greitt sé með Visa- eða Euroraðgreiðslum Verð miðast við staðgr.