Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2002, Side 34
34
H&lgctrblað 33 "V LAUGARDACUR l<=). OKTÓBER 2002
Aldrei
liðið betur
Selma Björnsdóttir söngkona stendur í
ströngu um þessar mundir. A dögunum
kom út platan Sögur af sviðinu þar sem
hún sgngur þekkt söngleikjalög ásamt vin-
konu sinni, Jóhönnu Vigdísi Arnardóttur.
Og þar að auki á hún von á barni ídesem-
ber. Hún settist niður með blaðamanni DV
og sagði frá plötunni og meðgöngunni sem
hefur fgllt hana lífskrafti.
Selma Björnsdóttir skaust upp á stjörnuhimininn
árið 1999 þegar hún söng sig inn í hjörtu þjóðarinnar
og Evrópu í Evróvisjónkeppninni. Lagið hét eins og
allir vita „AU out of luck“ en Svíar stálu sigrinum með
lagi og söngkonu sem enginn man eftir lengur. Síðan
eru liðin þrjú ár og tvær sólóplötur en nú á dögunum
kom út plata með Selmu og Jóhönnu Vigdísi Arnar-
dóttur (Hönsu) sem heitir Sögur af sviðinu. Á henni
eru lög úr ýmsum söngleikjum frá öldinni sem leið,
m.a. úr Chess, Fame og Rent. Salan nú þegar gefur til
kynna að líklega muni hún rata í marga jólapakka í ár.
Fáráiileikinn lieillandi
Samstarf Selmu og Hönsu byrjaði árið 1998 þegar
þær stöllur sungu saman í söngleiknum Grease. Þá
myndaðist vinátta á milli þeirra sem m.a. var byggð á
sameiginlegum áhuga þeirra á söngleikjatónlist. „í
fyrra ákváðum við að setja saman dagskrá. Við sett-
umst niður og hlustuðum og söngleikjaplöturnar okk-
ar og völdum nokkra dúetta og lög. Síðan héldum við
litla jólatónleika í Vesturporti og síðar Borgarleikhús-
inu. Tónleikarnir heppnuðust vel og Skífan sýndi
þessu verkefni áhuga og vildi gefa út disk með þessum
lögum í okkar flutningi. Megnið af lögunum á plötunni
er af þessum tónleikum en sumt af þeim hefur ekki
heyrst áður í okkar flutningi. Við eigum svo mörg
uppáhaldslög að við gætum örugglega gefið út þrjátíu
laga disk.“
„Hvað er það við söngleikjatónlist sem heOlar þig?“
spyr ég.
„Hún er eitthvað svo melódísk og ævintýraleg en
það sem er kannski dásamlegast við söngleiki er þessi
fáránleiki, þ.e. að bresta allt í einu í söng við minnsta
tilefni. í söngleikjunum sameina ég mín þrjú helstu
áhugamál: söng, dans og leiklist. Svo finnst mér út-
setningarnar oft svo fallegar, þessi ævintýrabragur.
Þegar ég fer til London er það algjört forgangsatriði
fyrir mig að komast alla vega á einn söngleik."
„Upp á hvaða söngleik heldurðu helst?“ spyr ég.
„Ég hef verið spurð að þessu sjálf og ég svara eins
og þá að ég á yfirleitt ekki neitt eitt uppáhalds, hvort
sem það er söngleikur, plata eða eitthvað annað. Ég fæ
æði fyrir einum söngleik í einu og hlusta mikið á hann
í ákveðinn tíma. Svo flyt ég mig yfir í næsta og svo
koll af kolli. Sá síðasti sem ég fékk æði fyrir var
Chigaco og síðan hef ég náttúrlega gaman af Singing in
the rain og Rent. Þeir söngleikir sem maður vinnur að
hverju sinni fanga hjarta manns og núna er ég að
vinna í barnasöngleiknum Benedikt búálfur þannig að
ég hlusta mikið á hann núna.“
Gagnrýnin ósanngjöm
Eins og áður sagði hefur Selma unnið að fjölmörgum
hljómplötum en að þessu sinni er unnið öðruvísi að
því leytinu til að reynt að var taka sem flest upp „læf ‘
þ.e. að öll hljóðfærin eru tekin upp í einu. „Þetta
fannst mér mjög skemmtilegt. Flest lögin eru tekin upp
í einni töku i Stúdíó Sýrlandi og maður heyrir þennan
lifandi keim á plötunni."
Á síðustu árum hefur verið áberandi útgáfa á plöt-
Selma um meðgönguna: „Mér finnst ég hafa ótrúlega orku til að takast á við alla skapaða hluti.“
DV-myndir Hari
um með áðurútgefnu efni, svokölluð, en í flutningi
annarra listamanna. Þekktustu dæmin hér á landi er
líklega plötur Páls Rósinkranz sem komu út í fyrra og
hittifyrra. Gagnrýnendur hafa oft á tíðum ekki verið
par hrifnir af slíkum plötum og kallað þær í niðrandi
merkingu „karaoke-plötur.“ Finnst þeim að þessar
plötur beri vott um hreina sölumennsku þar sem list-
rænt gildi tónlistarinnar sé látið litlu skipta. Eins og
oft áður er almenningur ekki sammála gagnrýnendum
og plötur af þessu tagi seljast í bílfórmum. Selma
kannast vel við þessa gagnrýni en finnst hún ósann-
gjörn.
„Þetta hefur verið mikið í umræðunni og fólk er
annaðhvort algerlega á móti þessu og skilur ekkert í
þessu fyrirbæri eða þá að fólki finnst þetta óskaplega
skemmtilegt. Ég verð að segja það fyrir mitt leyti að al-
veg eins og píanóleikari æfir sig til að getað spilað
Rakhmanínov á sviði eða á plötu þá eru þetta lög sem
mig og Jóhönnu langar til að syngja og við höfum
sungið þau inni í stofu heima hjá okkur i mörg ár.
Okkur dreymdi um að syngja þessi lög rétt eins og það
er draumur margra óperusöngvara að geta sungið ein-
hverja ákveðna aríu. Mér finnst í raun hið sama eiga
við um okkur. Ég hef t.d alltaf haldið mikið upp á
George Michael og mér finnst æðislegt að hlusta á plöt-
una hans, Songs from the last century, en á henni
syngur hann eingöngu lög eftir aðra tónlistarmenn.
Það virðist vera viðurkenndara að klassískir tónlistar-
menn gefi út plötur með þekktum aríum. Popparar
virðast ekki vera settir undir sama hatt. Ég hef alla
vega ekki heyrt gagnrýnisraddir hvað varðar klassíska
tónlistarmenn sem syngja lög eftir aðra. Páll Rósin-
kranz hefur verið gagnrýndur mikið fyrir þetta en af
hverju? Hann selur gríðarlega mikið af plötunum sín-
um og hann er frábær söngvari. Ég sé ekkert að
þessu.“
„Meikið“ er spurning uin heppni
Selma gaf út tvær plötur á ensku. Sú fyrri, I am,
kom út árið 1999 í kjölfar velgengninnar í Eurovision
en henni var síðan fylgt eftir árið eftir með plötunni
Life won’t wait. Báðar plöturnar þóttu prýðisgóðar
poppplötur enda unnar undir styrkri stjórn Þorvalds