Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2002, Side 35
LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2002
Helcjctrblað DV
35
Bjarna úr Todmobile. Þær voru
hugsaðar fyrir heimsmarkað en að
sögn Selmu var „meikið" aldrei að
veruleika því þær komu út á vit-
lausum tíma. „Þetta gerðist allt of-
boðslega hratt,“ segir Selma og
hlær þegar ég spyr um afdrif
„meiksins". „Við fengum samning
og það gekk mjög vel fyrstu sex
mánuðina. Við gerðum myndband
og kláruðum diskinn og eins og vill
verða með flesta íslenska listamenn
sem hafa komist á samning erlend-
is að þá vorum við ekki gefin út á
réttum tima og popp úreldist mjög
snemma. Viö vorum búin að bíða í
eitt ár og þá riftum við samningn-
um því við sáum ekki ástæðu til að
halda þessu áfram. Og þetta er mál-
ið. Áttatíu prósent þeirra lista-
manna sem gera samning hjá er-
lendum plötufyrirtækjum koma
aldrei út. Síðan þetta gerðist hef ég
séð marga lenda í nákvæmlega
sömu sporum og ég. Það skiptir öllu
máli að vera á réttum stað á réttum
tíma og að miklu leyti um heppni."
„Fyrir mig var þetta frábært,"
heldur Selma áfram. „Ég söng úti
um alla Evrópu og skemmti og söng
hjá sjónvarpsstöðvum og á tónlist-
arhátíðum og gerði dýr og flott
myndbönd. Þannig að ég lærði hell-
ing á þessu.“
„En er „meikið" þá úr sögunni?"
spyr ég.
„Þetta var nú aldrei spurning um
„meik“. Ég er mjög jarðbundin og
áttaði mig á því að heimsfrægðin
var ekki hinum megin við dyrnar.
Þetta er erfitt og langt ferli en það
var gaman aö fá að spreyta sig. Eins
og stendur er það ekkert i bígerð
aftur. En maður veit aldrei hvar
maður lendir. Það er alla vega ekki
skipulagt markmið eins og er.“
„Hvernig birtist þessi heimur
þér. Var „bransinn" eins og slæmur
og sagt er?“ spyr ég.
„Ég kynntist því lítið en ég sá
hins vegar hvað maður þarf að vera
ofboðslega tilbúinn fyrir svona. Það
eru svo margir sem reyna toga í þig
og reyna stjórna þér. Maður þarf að
hafa mjög skýra sýn á það hvað
maður ætlar að gera og hvernig, því
allir eru tilbúnir að segja þér
hvernig þú átt að haga þér. Þetta
fannst mér erfitt en ég náði ekki að
kynnast neinum leiðinlegum hlið-
um. Ég sá hins vegar hvað það er
erfitt að koma sér áfram erlendis og
þetta var mikið andlegt álag. Það
eru allir að reyna græða og þú verð-
ur að halda þér á jörðinni og hafa
þitt á hreinu. Ef ég gerði þetta aftur
væri ég örugglega mun harðari og
ég myndi gera ýmislegt öðruvísi."
Er að verða fullorðin
Selma og unnusti hennar, Rúnar
Freyr Gíslason, eiga von á erfingja
um’ næstu jól. Selma þarf því að
bregða sér í enn eitt hlutverkið
fljótlega. Ég spyr hana hvernig
henni lítist á að takast á við for-
eldrahlutverkið.
„Mér líst óskaplega vel á það.
Þetta var allt planað og skipulagt
þannig að ég er tilbúin til að takast
á við þetta. Mér hefur eiginlega
aldrei liðið betur, ef ég á að segja al-
veg eins og er. Ég hef aldrei verið
frjórri og hamingjusamari en á
þessari meðgöngu og þetta hefur
opnað algerlega nýjan heim fyrir
mér. Fyrir mér er þetta skref í átt-
ina að því að verða fullorðin og mér
fannst ég verða kona þegar ég áttaði
mig á því að ég væri að fara eignast
bam. Þegar ég segi frjórri þá meina
ég að hugmyndir eins og þessi
plata, sem við vorum að gefa út, er
oröin að veruleika, og ég er byrjuð
að skrifa fyrir Stundina okkar
ásamt Halldóri Gylfasyni. Mér
finnst ég hafa ótrúlega orku til að
takast á við alla skapaða hluti. Ég
mæli með þessu,“ segir Selma að
lokum og brosir eins og mjög ham-
ingjusöm og fullorðin kona.
® TOYOTA
betri notaðir bílar
EICÐ'ANN
EÐA LEIGÐ'ANN
I fyrsta skipti á Islandi:
Tvær auðveldar leiðir að
öruggum bílaviðskiptum.
Skráður: maí.01
Corolla
Skráður: maí.Ol
Rekstrarleiga á mán. frá: 19.200 kr.m/v24 mán. Bílalán á mán. frá: 12.564 kr. m/v60mán.‘ Rekslarleiga á mán. frá: 24.500 kr. m/vn mán. Bílalán á.mán. frá: 16.644 kr. m/v6ó mán.‘ Rekstarleiga á mán. frá: 29.000 kr. m/v24 món. Bílalán á mán. frá: 20.874 kr. m/v 60 mán.‘
Verðfrá: 820.000 kr. Verð frá: 1.090.000 kr. Verðfrá: 1.370.000 kr.
*Bíla!án miðast við 30% útborgun af kaupverði og 9% verðtryggða vexti með 3.5% stofngjaldi.
““
----------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
, ■ I ■ ■'" ■■ f ,
TOYOTA
í fyrsta skipti á íslandi geta einstaklingar fengið sér bíl á rekstrarleigu. Toyota býður nú takmarkað magn bílaleigubíla á
frábærum kjörum og þú velur hvort þú kaupir þér bíl til eignar eða tekur hann á rekstrarleigu, án útborgunar. Þú einfaldlega
kvittar undir samninginn og ekur af stað. Þetta er því einstakt tækifæri til að fá sér betri notaðan bíl frá Toyota með auðveldum
og öruggum hætti. Komdu strax í dag, hringdu í síma 570 5000 eða kíktu á www.toyota.is
..það sem
fagmaðurinn
notar!
-JKÁ