Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2002, Síða 37
LAUGARD AGU R 19. OKTÓBER 2002
37
HeÍQarblacf H>"Vr
Ákærður fyrir að hafa stolið persónulegum munum frá Díönu prinsessu:
Brytinn á
sakamannabekk
Díana prinsessa heitin kallaði hann klettinn í lífi
sinu. Núna situr sami maður á sakamannabekk í
Old Bailey dómhúsinu í London, ákærður fyrir að
hafa stolið rúmlega þrjú hundruð munum sem voru
í eigu Díönu. Hann neitar ákæruatriðum.
Maðurinn sem hér um ræðir heitir Paul Burrell,
44 ára gamall vörubílstjórasonur. Hann er fyrrum
bryti prinsessunnar ástsælu, bæði fyrir og eftir að
hjónaband hennar og Karls ríkisarfa á Englandi fór
út um þúfur fyrir margt löngu.
Réttarhöldin yfir Burrell fara ffam í dómsal eitt í
Old Bailey, sama sal og réttað hefur verið í mörgum
æsilegustu sakamálum Bretlands. Þar voru til dæm-
is haldin réttarhöld yfir Ruth Ellis, síðustu konunni
sem var hengd á Bretlandi.
Blaðamenn fjölmennir
Reiknað er með að réttarhöldin yfir Burrell standi
yfir í allt að sex vikur. Þau hófust í byrjun þessarar
viku og strax á fyrstu dögunum dró til tíðinda. Dóm-
arinn gerði sér nefnOega lítið fyrir og leysti kvið-
dóminn frá störfum á miðvikudag og skipaði nýjan.
Ekki hefur gerið greint opinberlega frá ástæðum
þessarar ákvörðunar dómarans, enda ekki leyfdegt.
Mál Burrels hefur vakið mikla athygli víða um
heim. Erlendir blaða- og fréttamenn eru fjölmennir í
Old Bailey. í þeim hópi er einhver frægasti blaða-
maður og rithöfundur Bandaríkjanna sem skrifar
um ríka og fræga fólkið og vandræði þess. Dominick
Dunne heitir hann og skrifar reglulega fyrir tímarit-
ið Vanity Fair. Hann skrifaði meðal annars um rétt-
arhöldin yfir ruðningshetjunni og kvikmyndaleikar-
anum O.J. Simpson sem var sýknaður af ákæru um
að hafa myrt eiginkonu sína. Fyrir þá frásögn var
Dunne verðlaunaður.
Díana prinsessa og allt sem henni við kemur held-
ur því áfram að vekja áhuga almennings, þótt nú séu
liðin rúm fimm ár frá því hún fórst í bílslysi í Paris.
Og ekki spiilir fyrir að mál Burrells er allt hið ólik-
indalegasta.
Það var um klukkan hálfíjögur að nóttu, skömmu
eftir dauða Díönu prinsessu, aö lögregluþjónn á vakt
við Kensingtonhöll, heimili Díönu, kom að Paul
Burrell þar sem hann var að bera muni úr höllinni
í Ford Escort-bifreið sína sem hann hafði bakkað að
hallarinnganginum. Lögregluþjónninn spurði þá
Burrell hvað hann væri að gera.
„Ég er að fjarlægja muni sem fjölskyldan hefur
beðið mig um að farga,“ svaraði Burrell þá að
bragði.
Laganna vörður spurði þá hvort það væri til siðs
að gera það á þessum tíma sólarhringsins. Burrell
sagði svo vera, þegar það þyrfti að gera svo lítið bæri
á.
Það var látið gott heita.
Díana örlát kona
Það var svo ekki fyrr en snemma á síðasta ári að
persónulegir munir úr eigu Díönu prinsessu fundust
á heimili Burrels. Hann haföi þó þrætt fyrir að hann
geymdi nokkuð slíkt á heimili sínu. Þegar hið rétta
kom aftur á móti í ljós hafði brytinn fyrrverandi á
reiðum höndum alls kyns skýringar, meðal annars
að hann hefði ekki enn komið sér til að skila þeim
Paul Burrell, fyrrum bryti Díönu prinsessu, og
eiginkona hans, Maria, voru heldur þung á brún
þegar þau komu til hins fræga dómhúss Old
Bailey í London í vikubyrjun. Þar mun Burrell
svara til saka næstu vikurnar fyrir að hafa tekið
mörg hundruð muni úr eigu Díönu traustataki
eftir dauða hennar.
Díana hcitin prinsessa er nú aftur á allra vörum
vegna málaferlanna gegn fyrruin brvta hennar.
til konungsfjölskyldunnar.
„Ég var mjög tregur til þess vegna þess að minn-
ingar mínar um dauða hennar voru enn of erfiðar,"
ku Burrell hafa sagt lögregluþjónunum sem yfir-
heyrðu hann, að því er fram kom í réttarsalnum.
Þá sagði Burrell lögreglu að Díana hefði verið af-
skaplega örlát kona og að hún heföi áreiðanlega lagt
blessun sína yfir að hann tæki munina.
Munirnir sem Burrell hafði í sínum fórum voru af
margvíslegum toga. Þar voru nokkur bréf, meðal
annars bréf frá prinsessunni til Johns Majors, þáver-
andi forsætisráðherra Bretlands, og bréf frá Móður
Teresu, nunnunni frægu á Indlandi. Þá tók Burrell
traustataki fót af Díönu, meðal annars undirfot, og
ljósmyndir sem að sögn saksóknara eiga hvergi
heima nema í fjölskyldualbúminu. Tesía frá Díönu
fannst einnig við húsleitina, svo og salt- og pipar-
staukar.
Alveg ómissandi
Paul Burrell var meira en bara bryti Díönu. Hann
var trúnaðarvinur hennar og dyggur með eindæm-
um. Til þessa hefur hann ekki í eitt einasta skipti
látið uppi þaö sem hann kann að hafa orðið vitni að
í vist sinni hjá prinsessunni sem átti æði storma-
sama ævi.
Traustið sem Díana bar til hans sést best á því að
þegar hún var eitt sinn spurð hverju hún vOdi
bjarga úr mislukkuðu hjónabandi sínu og Karls rík-
isarfa, skrifaði hún aðeins tvö orð á blað: Paul
Burrell.
Óhætt er að segja að Paul Burrell hafi snemma
ákveðið hvar hann ætlaði sér að vinna. Strákurinn
var ekki nema tólf ára þegar hann fór eitt sinn með
foreldrum sínum að fylgjast með vaktaskiptum varð-
mannanna við Buckinghamhöll Elísabetar drottn-
ingar. Hinn ungi Paul var svo upprifinn að hann
lýsti fjálglega því yfir þar og þá að þarna ætlaði hann
sér að vinna þegar hann yrði stór.
Tæpum sex árum síðar fékk hann vinnu við höll-
ina en þá hafði hann stundað nám í hótelstjórnun og
veisluþjónustu í Buxton.
Burrell frétti þó ekki fyrr en eftir lát móður sinn-
ar að hún hefði átt sinn þátt í því að höllin varð
vinnustaður hans. Þegar hann var átján ára bárust
honum nefnilega tvö atvinnutilboð. Annað var frá
höllinni en hitt frá Cunard-skipafélaginu. Mamma sá
bréfin fyrst og brenndi bréfið frá Cunard.
Heimshomaflakk
Burrell gekk í þjónustu konungsfjölskyldunnar ár-
ið 1976 sem þjónslærlingur. Innan árs var hann skip-
aöur persónulegur þjónn Elísabetar (jrottningar. Á
árinu 1984 gekk hann að eiga eiginkonu sína, Mariu,
sem á þeim tíma var þerna Filippusar drottningar-
manns. Þau eignuðust tvo syni, Alexander sem nú er
ellefu ára og Nicholas sem er níu ára.
Strákamir tveir voru oft hafðir með þegar Díana
fór eitthvað út með syni sína tvo, prinsana Vilhjálm
og Harrý.
Burrell og Maria voru síðan flutt í starfslið Karls
og Díönu árið 1986 og störfuðu á sveitasetrinu High-
grove. Hann gegndi þar starfi bryta en hún var bæði
þema og kjólakona.
Burrell hélt tryggð við Díönu á meöan hjónaband
hennar var að leysast upp og var í þjónustu hennar
allt þar til hún lést 1997.
Eftir andlát Díönu var honum falið að stjóma
minningarsjóði prinsessunnar og hann flaug heims-
homa á milli til að safiia fé fyrir málefiii sem hún
hafði barist svo ötullega fyrir í lifanda lífi.