Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2002, Side 39
38
HelcjarblacS X>"Vr LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2002
LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2002
/ /c / c) a rh / a c) X>V
43
+
Pólitíkin
ræður RÚV
Logi Bergmann, varafréttastjóri RÚV,
vill verða fréttastjóri þar á bæ en telur
að pólitískar atkvæðagreiðslur útvarps-
ráðs muni ráða úrslitum þess máls.
Hann talar um skoðanir, trúverðugleika,
kgnþokka og dellurnar í lífinu.
Það er sanngjarnt að segja að Logi Bergmann Eiðs-
son sé heimilisvinur allrar þjóðarinnar. í ríflega áratug
hefur hann vakað á skjánum í Ríkissjónvarpinu, fyrst í
hlutverki íþróttafréttamanns, síðan sem fréttamaður og
hin síðari ár sem vaktstjóri, varafréttastjóri og frétta-
lesari. Logi getur augljóslega hugsað sér að fara lengra
upp metorðastigann því hann er einn umsækjenda um
starf fréttastjóra Sjónvarpsins en starfið er laust eftir
að Bogi Ágústsson var ráöinn yfirmaður fréttasviðs
RÚV í kjölfar skipulagsbreytinga.
Einn mótumsækjenda Loga er Elín Hirst, samstarfs-
kona hans til margra ára, sem einnig gegnir starfi vara-
fréttastjóra og er staðgengill fréttastjóra. Orðrómurinn
í samfélaginu segir að umsókn Loga sé nánast formsat-
riði því löngu sé ákveðið að Elín fái starfið og fullyrt að
þrír fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í útvarpsráði muni
greiða henni atkvæði og það muni duga en það er út-
varpsráð sem veitir umsögn.
Pólitíkin ræður
Getur verið að Logi sé kominn upp að einhverju póli-
tísku glerþaki sem stöðvi frekari frama hans í starfi?
„Ég geri mér alveg grein fyrir því að meðan Ríkisút-
varpinu er pólitískt stjómað þá verða ráðningar póli-
tískar. Menn eru valdir til starfa í útvarpsráði á þeim
einu forsendum að þeir standa einhvers staðar í pólitík
og meðan svo er þá ræður pólitík öllu og það væri
bjánalegt að blekkja sig með þvi að svo sé ekki.
Munurinn á því að pólitískum ráðningum og þeim
samsæriskenningum sem menn henda á loft er hins
vegar talsverður. Það hefur tíðkast árum saman hjá rík-
inu að ráða menn eftir pólitík en þegar fólk síðan kem-
ur til vinnu þá skilur það sína pólitik eftir. Ég hef
aldrei staðið neinn vinnufélaga minna að því að gera
fréttir pólitískar eða beita sér á einhvern pólitískan
hátt og á örugglega aldrei eftir að gera það. Mín sam-
skipti við útvarpsráð hafa verið þannig að ég bíð mjög
rólegur eftir niðurstöðu þeirra,“ segir Logi þegar hann
ræðir þessi mál við DV yfir kaffibolla á háværu veit-
ingahúsi. Hann er bindislaus og órakaður og einhvern
veginn ekki eins sléttur og felldur og hann virðist vera
á skjánum. Gengilbeinan þekkir hann og er á hjólum i
kringum okkur meö vatn og kaffi.
SkeUi eldíi á eftir mér
- En skyldi Logi verða svekktur ef hann fær ekki
starfið?
„Ef Elín verður ráðin þá er það í flnu lagi. Hún er
góður vinur minn, mikill fagmaður og fullkomlega hæf
sem fréttastjóri. Ég er ekki svo mikil prímadonna að ég
skelli á eftir mér og fari. En þetta er. pólitísk ráðning,
sama hver verður ráðinn og sá byrjar sinn feril sem
fréttastjóri sem maður sem var ráðinn á pólitískum for-
sendum. Hvort sem það verður ég eða hún eða einhver
annar. Það er pirrandi.“
Útvarpsráð gegn RÚV
„Allt þetta fólk sem situr í útvarpsráði er ekkert
endilega að vinna að hagsmunum Ríkisútvarpsins held-
ur fyrst og fremst að ganga erinda síns flokks og það er
dapurlegt að horfa upp á það hvernig það vinnur á
stundum hreinlega gegn hagsmunum RÚV. Þeir eru í
vinnu hjá flokknum og telja það sitt hlutverk að tryggja
að flokkurinn og hans sjónarmið komist til skila. Þarna
hefur setið fólk sem beinlínis hefur unnið gegn Ríkisút-
varpinu og það á við um alla flokka,“ segir Logi og er
greinilega mikið niðri fyrir en telur augljóst að allir
séu pólitískir á einhvem hátt.
„Ef þú vildir ráða íþróttafréttamann sem ætti að
vera svo hlutlaus að hann hefði aldrei farið á leiki,
haldið með liði eða verið í félagi, þá fengir þú ekki góð-
an íþróttafréttamann. Það sama á við um fréttamenn.
Ef þú vilt fá fréttamann sem aldrei hefur komið nálægt
pólitísku starfi eða myndað sér pólitíska skoðun þá
færðu ekki góðan fréttamann. Það hafa allir hugsandi
menn skoðanir eða grunnhugsun sem eru pólitískar.“
Gólandi kommúnisti
„Ég var gólandi kommúnisti á mínum unglingsárum.
Pabbi minn, Eiður Bergmann, var framkvæmdastjóri
Þjóðviljans og ég leit mjög upp til hans og er meira og
minna alinn upp á Þjóðviljanum. Mín skoðun er sú að
ef þú ert ekki pabbapólitíkus á unglingsárum þá ertu
annaðhvort mjög undarlegur eða það er eitthvað að
sambandi ykkar feðga. Munurinn á þeim sem hafa póli-
tískar skoðanir sem lita viðhorf þeirra og hinna sem
eru flokksbundnir er að þeir flokksbundnu halda bara
með flokknum eins og fótboltaliði á hverju sem gengur
og það er gjarnan svoleiðis fólk sem situr í útvarpsráði.
Sem betur fer getur útvarpsstjóri gengið gegn áliti ráðs-
ins, ef hann er á öðru máli, og það hefur hann gert.“
Lidar þakkir
Logi segir að með starfsháttum sínum sé útvarpsráð
ekki aðeins að vinna gegn hagsmunum RÚV og baka
því tjón heldur setji virinubrögö þess einnig blett á
starfsheiður og mannorö einstakra starfsmanna.
„Tökum Boga Ágústsson sem dæmi. Hann er að skila
af sér fréttastofu sjónvarps með meira en 50% áhorfi
sem er sennilega heimsmet miöaö við markaðsstærð.
Ég hef aldrei vitað hvar hann stendur í pólitík nema
vegna þess að fólk er alltaf að segja að hann sé sjálf-
stæðismaður. Hann er alger fagmaður í sínu starfi.
Hvaða þakkir fær hann frá útvarpsráði í það starf sem
hann er að taka við? Hann fær þrjú atkvæði. Meirihluti
útvarpsráðs sem sagt treystir honum ekki vegna þess
að hann var í Vöku fyrir 30 árum. Þetta er auðvitað
grin. Það er af ástæðum eins og þessum sem við viljum
losna við útvarpsráö."
- Umræða um Ríkisútvarpið er mjög oft á þeim nót-
um að menn halda því fram að fréttastofa þess dragi
taum Sjálfstæðisflokksins og sumir hafa notað uppnefn-
ið Bláskjár í þessu samhengi. Samkvæmt því sem Logi
segir er það fjarri sanni.
„Ég á erfitt með að sætta mig við að menn slái fram
slíkum gífuryrðum og reyna að klína einhverjum
stimpli á menn án þess að geta nefnt nein dæmi. Með
þessu er aðeins verið að hræða menn til einhvers kon-
ar ósjálfstæðis í skoðunum og sjálfsritskoðunar. Mér
finnst þessi málflutningur barnalegur en tek hann
sennilega of mikið til mín því ég er vaktstjóri og stjórna
þess vegna fréttaröð og fleiri þáttum sem geta haft
áhrif.“
Fyrirgefðu, Logi minn
- Logi byrjaði í blaðamennsku á Þjóðviljanum og
skrifaði um íþróttir og fór síðan á Morgunblaðið og var
þar í fjögur ár. Þaðan lá leiðin á Sjónvarpið og var hann
búinn að vera þar i eitt og hálft ár þegar umsókn hans
um fastráðningu í starfið fór fyrir útvarpsráð.
„Mér skildist fyrst að þetta væri nánast formsatriði
því mér hafði gengið vel í starfl. Það gekk ekki betur en
svo að ég fékk ekki eitt einasta atkvæði. Þó hafði ég hitt
eina konu í ráðinu sem sagði að ég þyrfti engar áhyggj-
ur að hafa. Ári seinna hitti ég svo útvarpsráðsmann
sem gekk frá atkvæðum sjálfstæðismanna í þessu máli
og spurði hann kurteislega hvers vegna hann hefði ekki
stutt mig. Hann svaraði: Fyrirgefðu, Logi minn, en ég
var bara búinn að lofa þessu. Svo núllaði ég nokkrum
sinnum áður en ég var ráðinn fyrir rest. Svona vinnur
útvarpsráð einfaldlega.“
- Lögum samkvæmt er skylt að auglýsa allar stöður
og þótt 100 umsóknir berist um tvær stöður frétta-
manns eins og gerðist nú í sumar þá er á allra vitorði
að verið er að fastráða starfsmenn sem verið hafa í
lausráðningu. Logi segist telja að þarna sé eingöngu
verið að dansa eftir bókstafnum og sé þetta óþarfa sýnd-
armennska.
- Ef þaö sem Logi kallar pólitískar ráðningar spillir
mannorði fréttamanna og rýrir álit Ríkisútvarpsins,
hvernig ætti þá að standa að mannaráðningum?
„Það á einfaldlega að treysta yfirmönnum fréttastof-
unnar og Ríkisútvarpsins fyrir því. Ef þeim er
treystandi til að halda úti fréttastofunni allan ársins
hring þá ætti þeim að vera treystandi til að velja sér
starfsfólk í staðinn fyrir að draga þær í gegnum asna-
legar atkvæðagreiðslur sem eru ákveðnar annars stað-
ar. Útvarpsráð tók sér tveggja mánaða sumarfrí í sum-
ar sem er mjög einkennilegt ef þeir telja sig hafa eitt-
hvert hlutverk í stjórnun RÚV.“
Menn kaupa sér völd
- Meö reglulegu millibili verður mönnum tíðrætt um
hlutverk og tilvist RÚV. Hvernig á þá að losa stofnun-
ina úr viðjum útvarpsráðs?
„Þessari stofnun verður alltaf stjórnað pólitískt með-
an hún er í rikiseigu. Við skulum viðurkenna að menn
vilja ráða yfir fjölmiðlum og eiga þá vegna þeirra valda
sem því fylgir. Það er ein helsta ástæða þess að menn
kaupa fjölmiðla og takast á um yfirráð yfir þeim. Það er
hægt að fá betri ávöxtun á fé í flestum öðrum atvinnu-
greinum. Við skulum ekki vera að telja okkur trú um
að þetta snúist um neitt annað en völd.“
- Eftir nokkrar hafnanir hjá útvarpsráði var Logi far-
inn að svipast um eftir öðru starfi en þá lenti hann við
hliöina á Boga Ágústssyni við barinn á árshátíð RÚV og
þar var það fastmælum bundið að Logi flytti sig af
íþróttadeild yfir á fréttastofuna og þar hefur hann ver-
ið síðan.
„Þetta gerðist rétt fyrir tvö og sjálfsagt höfum viö
báðir verið orðnir þéttir. Ég var eiginlega búinn að fá
pláss í íþróttum uppi á Stöð 2. Ég hef ekki misst úr dag
síðan.“
Ertu biinbó?
- Logi hefur ekki verið í vandræðum með að fá at-
kvæði á ýmsum öðrum vígstöðvum en í útvarpsráði því
hann hefur ítrekað verið kosinn kynþokkafyllsti karl-
maður landsins í kosningum á opinberum vettvangi og
eins og það sé ekki nóg þá bárust nýlega fréttir af því
að hann hefði sigrað í slíkri kosningu innanhúss á
RÚV. Nýjasta staðfestingin á kyntöfrum hans barst svo
í skoðanakönnum DV. Hefur þessi nafnbót aðeins kosti
en enga galla?
„Ég hef kosið að líta á þetta á jákvæðan hátt þótt
grínið og stríðnin geti orðið svolítið þreytandi. Þetta
þýðir ekki að ég gangi um þrútinn af kynþokka en auð-
vitað kitlar þetta egóið svolitið.“
- Hefur þetta áhrif á trúverðugleika þinn? Ef kona í
þínu starfi væri ítrekað kosin kynbomba ársins myndu
femínistar án efa segja að þaö drægi úr trúverðugleika
hennar. Kemur fólk fram við þig eins og „bimbó“?
„Ég hef ekki orðið var við það. Ég hef ekki velt mik-
+
Logi Bergmann hefur verið heiniilisvinur
á skjá Ríkissjónvarpsins í 11 ár.
Hann segir að stofnuninni sé stjórnað með
pólitískum liætti og það sé barnaskapur
að lialda öðru fram.
DV-myndir E. Ó1
ið fyrir mér trúverðugleika mínum. Ég velti því lítið
fyrir mér hvað sæmi minni stöðu og geri bara það sem
mér finnst skemmtilegt. Ég les ekki bara fréttir, heldur
lýsi golfi, Eurovision og hverju sem mér dettur í hug og
geri aðallega það sem ég hef gaman af.“
Sextán í forgjöf
- En hvað skyldi það nú vera sem Logi hefur gaman
af? Heimildir DV segja að hann sé mikill keppnismaður
og dellukall sem hellir sér í áhugamál af ástríðu. Logi
segist hafa mikinn áhuga á íþróttum en ekki hvaða
íþróttum sem er.
„Ég hef mikinn áhuga á golfi og hef sextán í forgjöf.
Ég tók framforum í sumar og held að ég geti spilað á
móti flestum án þess að verða mér til skammar."
- Sagan segir líka að Logi sé með heiftarlega bíladellu
og aki um á kraftmiklum Porsche sportbíl. Logi vill
ekki alveg gangast við því aö hann sé með hefðbundna
bíladellu. En hvað þá?
„Ég keypti þennan bíl fyrir tveimur árum og hann er
sá þriðji í röðinni. Ég gæti hins vegar ekki bent þér á
neitt sem skiptir máli í bílnum. Ég bara keyri hann en
aðrir sjá um að gera við hann.“
- Logi segist ekki nostra við bílinn og halda honum
stífbónuðum og glansandi.
„Ég lenti í smáóhappi með hann um daginn. Ungur
piltur sem kom í heimsókn ákvað að „lita“ bílinn með
steini á báðum hliðum og þá þurfti hann sprautun. Þeg-
ar hann kom úr þeirri yfirhalningu bónaði ég hann og
það var í fyrsta sinn sem ég bónaði bíl og þótti það
hundleiðinlegt.“
- Svo ljóstrar Logi því upp hver sé stóra dellan í lífi
hans.
„Mín della er eiginlega fyrst og fremst sjónvarpið. Ég
kann ekkert annað og finnst það skemmtilegast af öllu.
Ég ætlaði að verða blaðamaður en endaði uppi í sjón-
varpi og hef verið þar í ellefu ár. Ég vinn mjög mikið
og er alltaf með einhver verkefni í gangi og líður best
ef ég er með aðeins of mikið að gera.“
Á skólabekk
- Logi segist þó reyna að verja tíma með fjölskyld-
unni en hann er kvæntur maður og á þrjár dætur
barna. Eiginkona hans er Ólöf Dagný Óskarsdóttir
stjórnmálafræðingur og dæturnar heita Elín Tinna, 14
ára, Fanndís Birna, 7 ára og Linda Björg, 5 ára. Fyrir
utan vinnuna er Logi þó að feta í fótspor eiginkonunn-
ar og stefnir að því að ljúka prófi í stjórnmálafræði frá
Háskóla íslands í vor.
„Ég byrjaöi á þessu fyrir nokkrum árum fyrir rælni
og hef bitið það í mig að klára í vor og á að geta það.
Ég mæti ekki í tima en reyni að loka mig af fyrir próf.
Ég er þarna í harðri samkeppni viö Gísla Martein, vin
minn og félaga, og tel að ég sé að hafa hann á loka-
sprettinum.“
- Logi er ekki með stúdentspróf og þótt hann hafi
ekki látið þá vöntun tefja sig í starfi þá segir hann að
skortur á háskólaprófi hafi oft verið notaður sem afsök-
un til að veita honum ekki brautargengi t.d. í atkvæða-
greiðslum hjá útvarpsráði. En var hann með einhvern
komplex yfir menntunarleysi?
„Ég vildi vita hvort ég gæti þetta og þegar ég sá að ég
gat þetta þá hætti það eiginlega að vera eins spennandi.
Svo kemur þrjóskan inn og nú vil ég klára þetta mál.“
Ég er bara svona
- Starf Loga er undarlegt að því leyti að hann er inni
í stofu hjá landsmönnum á hverju kvöldi. Andlit hans
er því nógu þekkt til þess að hann þarf áreiðanlega
aldrei að kynna sig neins staðar. Sumir telja frægð af
þessu vera hálfgert dóp og menn haldi dauðahaldi í
sviðsljósið eins lengi og kostur er en aðrir telja að
frægðin svipti menn frelsinu til að ferðast óþekktur um
samfélagiö. Hvað finnst Loga?
„Ég hef ekki uppplifað frægðina sem dóp. Ég held að
þetta snúist frekar um miðilinn og mörgum flnnist
erfitt að hætta að vinna í sjónvarpi því það er svo
skemmtilegt. Ég hef samt séö menn sem eru fegnir að
hætta. Ég er ekkert stressaður í þessu starfi og hef mjög
gaman af því og held að ég myndi sakna þess ef ég hætti
en ég myndi ekki sakna frægðarinnar. Ég myndi sakna
spennunnar sem stundum liggur í loftinu i beinni út-
sendingu og er betri en nokkurt dóp. Ég hef heyrt menn
væla yfir því að þeir geti ekki farið út að skemmta sér
af því að allir þekki mann. Þá er eitthvað að, annað-
hvort ofsóknaræði eða feimni. Það truflar mig ekki
neitt. Það koma margir og tala við mann og ég tala við
marga. Það virðist sem fólki komi stundum á óvart að
ég sé svona eða hinsegin, öðruvísi en það hélt. En ég er
bara svona.“
-PÁÁ