Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2002, Síða 44
43
H e l<go rlb lctð 3OV LAUGARDAGU R 19. OKTÓBER 2002
í þeim tilvikum þar sem ljósmyndir
af ástafundum fólks í bílum hafa
koinist í umferð undanfarin ár hafa Iitlar
Toyota bifreiðir verið í aðalhlutverki.
Það er annað hvort tilviljun eða þá að Toyotan
er rýmri en hún sýnist vera.
Kynlífið og hestöflin
jafnvel kynllf á fjórum hjólum. Þessi veruleiki endur-
speglast skemmtilega í mörgum kvikmyndum og næg-
ir að nefna Last Picture Show, American Graffiti og
Grease þótt þessar þrjár myndir eigi ekkert sameigin-
legt nema að fjalla um ungt fólk, ástir og öfluga bíla.
Af þessu leiddi að afskaplega margir af þeirri kyn-
slóð sem ólst upp eftir stríðið átti sína fyrstu kynlífs-
reynslu í bílnum og það ýtti áreiðanlega enn frekar
undir þær hugmyndir að bílar væru tengdir frjálsum
ástum.
Allt það sem hér hefur verið sagt um Ameríku má
heimfæra upp á ísland því við komum líka óskemmd
með fullar hendur fjár undan stríðinu og sá „rúntur“
sem verið hafði frá aldamótum vettvangur ungs fólks
sem var að draga sig saman fótgangandi varð að
samskonar fyrirbæri nema þar sem allir voru akandi.
Ástir í aftursæti
Endurminningar leigubílstjóra sem stundaði starf
sitt öll stríðsárin í Reykjavík og hétu Ástir í aftursæti
bera þvi vott að það voru ekki aðeins unglingar í leit
að athvarfi sem notuðu bílinn til að fá útrás fyrir
fýsnir sínar. Fullorðið fólk, sérstaklega konur sem
áttu náin samskipti við setuliðið, notaði aftursæti
leigubílsins sem vinnustað þegar „afgreiða" þurfti
kúnnana og ef veður var gott steig bílstjórinn út á
meðan en ef rigndi sat hann inni og horfði sennilega
í baksýnisspegilinn.
Svo virðist vera sem íslendingar hafi snemma til-
einkað sér þann hugsunarhátt að bilar og bílstjórar
sérstaklega kæmu veikara kyninu fyrir sjónir sem al-
gerlega ómótstæðileg fyrirbæri. Um það vitna gamlir
dægurlagatextar eins og Bjössa á mjólkurbílnum sem
vefur öllum heimasætum um fingur sér og töfrar þær
upp úr skónum. í gömlum gamanvísum, sem Bjarni
Björnsson gamanleikari söng og heita Bílavísur,
segir:
„Og bíllinn þaut sem örskot út úr bænum
oft er kátt i fjaðrasófum grænum."
Getur verið að mörgum firwist kgnlíf íbíl-
um eitthvað alveg sérstaklega aðlaðandi?
Efsvo er hvernig skgldi það viðhorf hafa
skapast? Skoðum málið aðeins.
skilgreindu sig útfrá. Bílarnir urðu nokkurs konar
framlenging af eigandanum og kraftur hans og glæsi-
leiki gaf til kynna að það væri enginn aukvisi sem
ætti annað eins tryllitæki.
Þetta endurspeglaðist síðan í kvikmyndum sem
sýndu ungt fólk dansandi og syngjandi, kyssandi og
kelandi en umfram allt akandi. Amerísk millistéttar-
heimili voru afar siðavandar stofnanir á fimmta og
sjötta áratugnum og unglingarnir sóttust í að lifa
nokkurs konar bílalifi eftir að skyggja tók. í bílnum
var hægt að krúsa um rúntinn og skyggna stelpur og
í bílnum var hægt að hlusta á tónlist af því tagi sem
manni sýndist á þeim styrk sem maður vildi.í bílnum
bjó nefnilega frelsið.
Eigum við að fara í bíltúr?
Það er því ekkert óeðlilegt við að náin samskipti
milli kynjanna færðust einnig inn í bílana og þegar
strákur og stelpa vildu vera í friði frá
forvitnum augum þá var bílnum
ekið á afvikinn stað sem var
sérstaklega ætlaður til
þess að stunda
kelerí og
Um þessar mundir eru liðin um 100 ár síðan bíla-
öld hófst. Það tók hinsvegar langan tíma fyrir bílinn
að verða almenningseign og sennilega er sanngjarnt
að segja að bílamenning eins og við þekkjum hana í
dag hafi ekki mótað samfélagið líkt og það gerir í dag
fyrr en á árunum eftir stríðið. Þá var velsældin í
Bandaríkjunum slík að kraftmiklir bílar urðu al-
menningseign og urðu um leið að því stöðutákni sem
ungir karl-
beir rita ek/.i jiversa:
• r á Sigliiiiröa
V
bá eiztyL ðeir aö
Lsf
— — VX.ii.iiB.
b.ióöviijinr.
árum
Frábærir tónleikar með Ríó, Birni Thoroddssen og Gunnari Þórðarsyni
í Salnum í kvöld, 19. okt. kl. 20:30
Miðasala í Salnum frá kl. 19:30 sími 570 0400
Einstakt tækifæri til þess að sjá og heyra félagana á sviðiii
bestu lög Ríó tríósins á
glæsilegri tvöfaldri geislaplötu.
Snyrtilegir,Tel klipptir pi'ivar
ineð iireinar, iieilar og vel íiir'car
ten/íur og ósði'innanlega iramiiomu.
ö ei va te&nc x 7 o