Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2002, Qupperneq 47

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2002, Qupperneq 47
LAUGARDAGUR 19. OKTÓBER 2002 Helgorblaö 33"V" 51 Afganistan: Leikbrúður til bjargar barnslífum / Afqanistan Hqqja 10 millj- ónir af i/irkum jarðsprenqj- um íjörðu. Þar að auki liqqja einhver ósköp af ósprunqn- um sprenqjum á vettvanqi eftir árásir Bandaríkja- manna oq fqlqismanna þeirra. Helminqur þeirra sem slasast oq látast af völdum þessara stríðstóla eru börn. Það er ekki vandalaust að kenna börnum að var- ast jarðsprengjur og koma þeim í skilning um hve hættulegar þær eru. Þau þurfa að læra að þekkja hættumerki sem sums staðar er komið upp, hvað þau merkja og síðan að varast að fara um þau svæði þar sem sprenginga er von. Til þessa hefur gengið illa að koma því inn í höfuðið á börnum að jörðin geti allt í einu sprungið undan fótum þeirra og hvaða afleiðingar það hefur. Nú er fundin lausn á málinu sem kemur væntanlega að einhverjum not- um, þó enn eigi mörg börn eftir að stíga á jarð- sprengjur og missa útlimi og jafnvel deyja. Endan- leg lausn er ekki önnur en algjört bann við fram- leiöslu og notkun jarðsprengna, en um þaö tekst seint samkomulag. Að minnsta kosti ekki á meðan helstu lýðræðisríki heims, sem þykjast vera i for- svari mannréttinda, eru helstu framleiðendur vopna sem drepa og limlesta fleiri börn en her- menn. Nú hafa fyrrum starfsmenn Jim Henson, höfund- ar Prúöuleikaranna, komist að því að börn í Afganistan eru mjög móttækileg fyrir leikbrúðum og spennt að sjá brúðuleikhús. Hjónin Fraggie Rock og Kathlyn Mullen hafa skapað átta nýjar brúður til að hafa áhrif á börn í Afganistan. Michael Frith-sem var hægri hönd Hensons á sínum tíma er einnig einn af höfundum brúðukennslunnar í Afganistan. Þegar farið var að senda stríðshrjáðum börnum brúður frá Vesturheimi kom í ljós að þau tóku þeim af miklu ástfóstri og var greinilegt að brúðurnar höfðu mikil áhrif á hugmyndaheim þeirra. Þegar þau hjón fóru austur að sýna brúður og leik þeirra vaknaði hugmyndin um að nota aðferðina til að kenna börnum að varast jarðsprengjusvæði, en áður kunnu menn lítið til að leiða huga barnanna að þeim hættum sem þar bíða og að varast þær. Börn læra meira af skemmtilegum leikbrúðum og Þessi leikbrúða er gerð til að kenna unglinguni í Suð- ur-Afríku hvernig varast eigi að smitast af HlV-veiru. Víðar er í undirbúuingi að nota brúðuleikhús til þeirrar uppfræðslu. Leikbrúður eru vel til þess fallnar að kenna börnum. Auðvelt er að ná atliygli ungdómsins nteð fjörugu atferli þeirra og koma þannig boðskap á framfæri. Leikbrúðurnar vekja mun meiri áhuga en leiðinlegar viðvaranir full- orðna fólksins. uppátækjum þeirra en leiðinlegum kennslustundum fullorðna fólksins sem ekki veit hvernig á að fanga barnshugann. illa og ódýrra leikhúsa. í frumstæðu og sárafátæku landi eins og Afganistan er þetta einföld og áhrifa- rík leið til að fræða börn. Gosi á afgönsku Fundinn er upp afganski strákurinn Chuchi sem er búin til úr teppi og er persónan að nokkru leyti sótt í söguna af Gosa neflanga. Verið er að gera tilraunir með hvernig strákurinn fer i afgönsku börnin og ef vel tekst til verður hann og félagar látnir annast margs konar kennslu. Til dæmis er þegar farið að undirbúa hvernig á að vara unglinga við HlV-veirusmiti. í brúðuleikhúsinu er pilturinn leiddur út á víða- vang um jarðsprengjusvæði. Sá sem fer með hann á þennan hættulega stað er óvættur sem er vel þekkt í afganskri þjóðtrú. En strákurinn bjargast gegnum hættusvæðið vegna hrópa barna sem leiðbeina hon- um og segja honum hvar varast eigi að stíga niður fæti. Verið er að safna fé til að koma á fót og reka brúðuleikhús á þeim stöðum sem jarðsprengjur hafa verið lagðar og mikil striðsátök hafa átt sér stað. Snillingarnir sem störfuðu að sköpun Prúðuleik- aranna vinna að því að koma verkefninu af stað en síðan mun Mullen verða eftir til að kenna heima- fólki að búa til brúður og reka leikhúsin. Fleiri hópar leikbrúðuhöfunda og starfsfólks leik- húsanna eru í Afganistan til að freista þess að nota kunnáttu sína til kennslu á fleiri sviðum en það er löngu vitað að börn eru sérstaklega móttækileg fyr- ir látbragði leikbrúða og hægt er að hafa áhrif á þroskaferil þeirra með þvi sem fram fer á sviði lít- Aninian vefur bamabamið Brúðubíll sem verið er að undirbúa til að aka á milli þorpa er málaður skærum litum og því mjög áberandi innan um gamla ryðskrjóða og ryklituð hergögn á hjólum. Þar sem leiksýningar eiga að hefjast er bílnum breytt snarlega i tæknilega full- komið brúðuleikhús og persónurnar lifna á sviðinu. Söguhetjan, strákurinn Chuchi, er 75 sentímetrar á hæð. Hann er oflnn af einmana ömmu, en barna- barn hennar dó þegar það sté á jarðsprengju. Chuchi er með kollhúfu, svipaða þeim sem strák- ar í Afganistan nota. Amman er með andlitshlæju en er ekki hulin frá toppi til táar eins og talibanar gerðu sínum konum að hylja sig. Höfundar brúðuleiksins vonast til að börnin þekki strákinn þegar hann birtist á sviðinu, eða kannist við að hann er einn af þeim. Hann er send- ur til manns sem veit lengra en nef hans vísar og fær þar kennslustund í hvernig á að forðast jarð- sprengjur. Brúðustráknum eru sýndar myndir af jarð- sprengjum og sagt í einfóldu máli og með látbragði hvernig á að forðast þær, en svo er hann leiddur af- vega af illum verum. Þegar vondu vættirnar fara með hann um jarð- sprengjusvæði og hann gleymir því sem hann lærði til að varast þær, glymja við viðvörunarhrópin frá áhorfendum og hann er leiddur á réttar brautir. (Heimild: BBC-fréttir) 1
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.