Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2002, Qupperneq 57
LAUGARDACUR 19. OKTÓBER 2002
Helcjorblað DV
J. Guðmundsdóttir
ferðafræðingur á Selfossi er 60 ára í dag
Sigríður J. Guðmundsdóttir (Sirrý), ferðafræðing-
ur, Engjavegi 59, Selfossi, er sextug í dag.
Starfsferill
Sigríður fæddist á Hofsósi en ólst upp í Reykjavik.
Hún var í Melaskólanum í Reykjavik en flutti í Kópa-
voginn 1955, lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla
Kópavogs og lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla
Suðurlands 1984.
Sigriður flutti til Selfoss 1965 og hefur átt þar
heima lengst af síðan. Hún hefur stundað ýmis störf í
gegnum tíðina en var lengst af ritari kaupfélagsstjóra
KÁ á Selfossi auk þess sem hún sá um þjónustu fyrir
Samvinnuferðir-Landsýn.
Sigríður starfar nú á Ferðaskrifstofunni Suður-
garður á Selfossi sem er söluskrifstofa Flugleiða, Úr-
vals-Útsýnar og Plúsferða.
Sigríður hefur gegnt ýmsum trúnaðar- og stjórnun-
arstörfum á vegum verkalýðsfélaganna á Suðurlandi.
Hún sat um árabil í stjórn Sjálfstæðiskvennafélags
Selfoss, var formaður Leikfélags Selfoss og sat í stjórn
þess auk þess sem hún var aðalbúningahönnuður fé-
lagsins sl. tuttugu ár, var formaður íslendingafélags-
ins í Lúxemborg þar sem hún bjó í þrjú ár, var for-
maður Starfsmannafélags Kaupfélags Árnesinga, for-
seti Inner Wheel Selfoss í tvígang og viðtakandi um-
dæmisstjóri Inner Wheel ísland.
Fjölskylda
Sigríður giftist 12.5. 1963 Jóni Péturssyni, f. 4.11.
1936, tæknimanni Sjúkrahúss Suðurlands. Hann er
sonur Péturs Brandssonar, f. 29.3.1902, nú látinn, loft-
skeytamanns, og Hönnu Jónsdóttur, f. 7.3. 1904, d.
2.11.1986, húsmóður. Þau bjuggu lengst af á Vatnsstíg
í Reykjavik.
Alfa Kristjánsdóttir
bókasafns- og upplýsingafræðingur
Börn Sigríðar og Jóns eru Guðmundur Pétur Jóns-
son, f. 19.3. 1963, starfsmaður hjá Odda í Reykjavík;
Hanna Björk Jónsdóttir, f. 26.1. 1965, húsmóðir en
maður hennar er Egill Egilsson, f. 17.8.1964 og er dótt-
ir þeirra Rakel Björk, f. 3.5. 1996, en fyrir á Hanna
Björk synina Viktor Inga Jónsson, f. 28.2. 1983, og Jón
Anton Stefánsson, f. 17.1. 1989. Viktor Ingi er jafn-
framt fóstursonur Sigríðar.
Sigurður H. Sigurðsson
kvikmyndagerðarmaður í Reykjavík
Systkini Sigríðar: Ólöf Sigurlaug Guðmundsdóttir,
f. 29.7. 1947, d. 20.1. 1989, nuddkona; Sigurlína Guð-
mundsdóttir, f. 27.9. 1949, sérfræðingur við Lands-
banka íslands; Guðmundur Þröstur Guðmundsson, f.
7.9. 1953, kerfisfræðingur.
Foreldrar Sigríðar eru Guðmundur Jóhannsson, f.
18.12. 1919, fyrrv. fangelsisstjóri, og Ólöf María Guð-
mundsdóttir, f. 20.9. 1919, húsmóðir.
Eiginkona Guðmundar er Bryndís Magnúsdóttir, f.
24.12. 1934, húsmóðir.
Ætt
Guðmundur er sonur Jóhanns Benediktssonar og
Sigríðar Jónsdóttur sem bæði eru ættuð úr Fljótum í
Skagafjarðarsýslu.
Ólöf María er dóttir Guðmundar Péturssonar og Slgurlaugar
Jakobínu Sigurvaldadóttur sem bæði eru Vestur-Húnvetningar.
Höfuðstafir______________
í dag ætla ég að hefja þáttinn með visu eftir einn af
ritstjórum blaösins, ljóðskáldið Sigmund Erni Rúnars-
son. Einhverju sinni þegar hann stóð í útgáfumálum
orti hann til útgefanda síns:
Haföu frá mér heila þökk
og heilsu alla daga.
Þú veist vió erum skœld og skökk
skáldin sem þig plaga
Á hagyrðingamóti á Akranesi fyrir nokkru voru
pallverjar látnir botna vísur eins og tíðkast gjarnan
við slík tækifæri. Varð um það nokkur umræða að
fyrripartarnir væru erfiðir og jafnvel illbotnanlegir
sumir. Þá orti Hákon Aðalsteinsson:
Hinn furöulegi fyrripartasmiöur
finnst mér lítiö spennandi, því miöur.
Hann hnoöar þessu saman eins og álfur. -
Ætli hann geti botnaö þetta sjálfur?
Alfa Kristjánsdótt-
ir, bókasafns- og upp-
lýsingafræðingur,
Hlíðarhjalla 14,
Kópavogi, er fertug í
dag.
Starfsferill
Alfa fæddist í
Reykjavík. Hún lauk
stúdentsprófi frá MH
1982 og BA-prófi í
bókasafns- og upplýs-
ingafræðum frá HÍ
1988.
Alfa var spjald-
skrárritari í tónlist-
ardeild Ríkisútvarpsins 1983-87, starfaði við greina-
safn Morgunblaðsins 1987-88, hefur starfað í eigin fyr-
irtæki, Skipulagi og skjölum ehf. sem starfar á sviði
skjalastjórnunar og þekkingarstjórnunar, frá 1989, er
umsjónarmaður bóka- og skjalasafns Félagsþjónust-
unnar 'í Reykjavik frá 2002 og er um þessar mundir að
hefja störf í Skjala- og bókasafni Orkuveitu
Reykjavíkur.
Alfa hefur haldið fjölda námskeiða á sviöi
skjalastjórnunar frá 1995.
Ritstörf: Skjalastjórnun. Reykjavík: Framtíðarsýn,
1995 (Ritröð Viðskiptafræðistofnunar Háskóla Islands
og Framtíðarsýnar hf; 1995-5).
Fjölskylda
Eiginmaður Ölfu er Sigmar Þormar f. 19.10. 1957,
þjóðfélagsfræðingur og starfsmaður í eigin fyrirtæki,
Skipulagi og skjölum ehf.
Börn Ölfu og Sigmars eru Valgeir, f. 1.8. 1987; Vig-
dís, f. 16.12. 1988; Aðalsteinn, f. 28.6. 1996.
Systkini Ölfu: Jóhanna M. Kristjánsdóttir, f. 1941, d.
2002, sjúkraliði, var gift Bárði Halldórssyni húsgagna-
bólstrara; Guðbjörg Kristjánsdóttir, f. 1946, d. 2002,
tækniteiknari, var gift Grétari Sveinssyni húsasmíða-
meistara; Kristján E. Kristjánsson, f. 1950, pípulagn-
ingameistari en sambýliskona hans er Áslaug Gísla-
dóttir, húsmóðir; Brynhildur Kristjánsdóttir, f. 1955,
hárgreiðslumeistari, gift Stefáni Sigurðssyni, veit-
ingamanni í Sandgerði; Auður Kristjánsdóttir, f. 1959,
leikskólakennari, búsett í Danmörku.
Foreldar Ölfu: Kristján Jóhannes Þorkelsson, f. 29.6.
1917, vélvirki, vélstjóri og verksmiðjustjóri á Siglu-
firði og Stykkishólmi, vatns- og hitaveitustjóri í Kópa-
vogi, og k.h., Rannveig Kristjánsdóttir, f. 2.7. 1921,
húsfreyja á Siglufirði, Stykkishólmi og Garðabæ.
Sigurður Hreinn
Sigurðsson, kvik-
myndagerðarmaður
og framkvæmda-
stjóri Uss!, Sogavegi
78, Reykjavík, verð-
ur fertugur á morg-
un.
Starfsferill
Sigurður fæddist
við Sogaveginn i
Reykjavík og hefur
átt þar heima. Hann
lauk stúdentsprófi
frá MH 1983, stund-
aði nám í Raftónlist við Instituut voor Sonologie, í
Utrecht í Hollandi og stundaði nám í kvikmyndagerð
við Den Danske Filmskole í Kaupmannahöfn 1989-93.
Sigurður starfaði hjá Sjónvarpinu sem hljóðmaður
og útsendingarstjóri 1986-89 og hefur frá 1993 starfað
við kvikmyndagerð, oftast með hljóð sem viðfangs-
efni. Hann hefur komið að gerð fjölmargra kvik-
mynda í Danmörku, á íslandi og í fleiri löndum. Síð-
astliðin tvö ár hefur hann verið í forsvari fyrir hljóð-
fyrirbærið Uss!
Einnig er hann meðlimur í alþjóðahljómsveitinni
Jörð Bifast.
Sigurður er hrellir hinn mesti, eindreginn um-
hverfisverndarsinni og andstæðingur gróðahyggju og
hryðjuverka, hvort sem þau beinast gegn fólki, dýr-
um eða náttúrunni.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 20.4. 2001 dr. Elviru Méndez
Pinedo, f. 18.12.1966, doktor í evrópskum lögum. For-
eldrar hennar eru Antonio Méndez Garcia lögfræð-
ingur í Madrid á Spáni, og María Dolores Pinedo
Rozas, listakona þar.
Systkini Sigurðar eru Ágúst Úlfar Sigurðsson, f.
18.9.1946, tölvunarfræðingur; Halldóra Sunna Sigurð-
ardóttir, f. 27.3. 1949, dr. í liffræði í Svíþjóð; Sigrún
Lóa Sigurðardóttir, f. 3.8. 1951, arkitekt í Noregi; Páll
Ragnar Sigurðsson, f. 29.1. 1954, vélaverkfræðingur.
Foreldrar Sigurðar: Sigurður Þórir Ágústsson, f.
7.12. 1922, d. 2.5. 1975, flugvirki í Reykjavík, og Odd-
rún Inga Pálsdóttir, f. 22.8.1922, umsjónarmaður Dag-
deildar Breiðagerðisskóla. Þau bjuggu lengst af á
Sogavegi 78 í Reykjavík.
Sigurður verður í sundi á afmælisdaginn.
Næst er visa eftir Rósberg G. Snædal. Hún er eins
konar tilbrigði við fræg orð Guðrúnar heitinnar Ósvíf-
ursdóttur.
Kort meó nesti, krappan skó,
klafa og festar bar ég.
En lengst og mest mig þreyttu þó
þeir sem bestur var ég.
Þá hefur mér borist nýleg vísa eftir Friðrik Stein-
grímsson. Jarðskjálftar voru fyrir skömmu í nágrenni
við Grímsey og íbúar þar um tima við öllu búnir. Um
þetta orti Friðrik:
Hristir Grímsey skjálftaskriö
skal því enginn lá þeim
bráöum þó aö bœtist viö
barnahópinn hjá þeim.
Og nú eru kosningar á næsta leiti og frambjóðendur
famir að huga að atkvæðum sínum. Rifjaðist af því til-
efni upp vísa eftir Hjálmar Freysteinsson:
Ómar nú háreysti, urr og gelt
um annes til fremstu dala,
hlaupiö, rióiö og froöufellt, -
framsóknarmenn aö smala.
Ég rakst nýlega á merkilega vísu eftir þann þjóð-
þekkta snifling Sverri Stormsker. Hún hljóðar þannig:
Óljós draumur djúpt í hvers manns geöi
drífur áfram lífiö, fœrt í hlekki.
Vonin eftir varanlegri gleöi
er varanleg - en þaö er gleöin ekki.
Og Kristján Stefánsson, Gilhaga, orti nýlega:
Baöast sólargeislagliti
grund og vogur, fell og sker;
sunnan þeyr og sumarhiti.
Samt er kominn október.
Að lokum er hringhend oddhenda eftir Rögnvald
heitinn Rögnvaldsson, bæjarstarfsmann á Akureyri:
Brims viö sand er búiö grand,
brýtur aö vanda úr öldu.
Klakabandi lýst er land,
lífiö andar köldu.
Umsjón