Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Qupperneq 2
LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002
Fréttir
DV
Davíð Oddsson gagnrýnir fréttaflutning af ummælum Bondeviks um ESB:
Hrein fréttafölsun
hjá Ríkisútvarpinu
- við stöndum við fréttina, segir fréttastjóri Útvarps
Davíð Oddsson forsætisráöherra
segir að fréttastofa RÚV hafi falsað
fréttir af ummælum Kjells Magne
Bondeviks, forsætisráöherra Nor-
egs, um ESB. Kári Jónasson, frétta-
stjóri Útvarps, segir orðalag í frétt-
inni hafa getað verið nákvæmara en
fréttastofan standi við fréttina.
í hádegisfréttum Útvarps í gær
var sagt að Bondevik teldi aö aðild
að Evrópusambandinu yrði helsta
kosningamál í næstu þingkosning-
um. Þá var sagt aö hann spáði þvi
að innan fárra ára yrði boðað til
þjóðaratkvæðagreiðslu um málið.
Loks var gefið í skyn að Bondevik
hefði sagt að til greina kæmi að
hann endurskoðaði afstööu sína til
ESB, en hann hefur um árabil verið
eindreginn andstæðingur aðildar
Noregs að ESB. „[Bondevik] ljær nú
í fyrsta sinn máls á því að endur-
skoða afstöðu sina til sambands-
ins,“ sagði í fréttinni.
„[Það er] orðin lenska aö menn
hlaupa af stað með vitlausar frétt-
ir,“ sagði Davíð Oddsson um þessa
frétt í umræðum á Alþingi í gær.
Hann vitnaði orðrétt - á norsku - í
frétt norska blaðsins Aftenposten af
ummælum Bondeviks. í blaðinu er
haft eftir Bondevik að hann telji
hugsanlegt að afstaða Noregs til
ESB setji svip sinn á næstu kosning-
ar. Hann telji ekki að hugsanleg að-
ild verði ein og sér aðalmál kosning-
anna heldur verði hún „eitt af
nokkrum mikilvægum málum.“ Þá
hefur Aftenposten eftir Bondevik að
hann hafi ekki skipt um skoðun
varðandi aðild Noregs að ESB.
Hann telji EES-samninginn hafa
dugað Norðmönnum vel.
„Þannig að þarna var um hreina
fréttafolsun hjá Ríkisútvarpinu að
ræða,“ sagöi Davíð.
Aftenposten og RÚV
Aftenposten slær ekki upp í fyrir-
sögn ummælum Bondeviks um þessi
efni, heldur svari hans við spurn-
ingu blaðsins um hvort hann telji
liklegt að efnt verði til þjóðarat-
kvæðagreiðslu um ESB-aðild í þriðja
dagar til jóla
Opiðtilkl. 22.00 ICrUqLA
111 jola [« Hil/iUIiyRH iAlih
„Ég hef ekki
komist í
skemmtilegri
bók í háa
herrans tíð!"
1 L j Viiii/u ' % 1*0 IV. Ik ndardúmur íij.mn’iívit/u tic /orTÍUu
■ J ’t f [ Tií t. 'J 3Tr. S Otl ’ 1 1
Hans Kristján
Árnason / DV
99
Iitrík sdflQ.
((
Þorgeröur E. Siguröardóttir / KASTLJÓSIÐ
„ ... ófeimin við að segja frá göllum sínum
og mistökum. Hún er kvenhetja, lífsnautnakona
og kynvera sem opinberar kinnroðalaust fjölda
elskenda sem hún hefur átt."
Kristín Heiöa Kristinsdóttir / MORGUNBLAÐID
ijj%
JPV ÚTGÁFA
Bræöraborgarstígur 7 • Sími 575 5600
„Ótrúlega skemmtileg bók
sem greip mig heljartökum/
Öuur Skarphéöinsson / DV
Davíð Oddsson. Kári Jónasson.
sinn fyrir árið 2010. Bondevik segist
telja meiri líkur til þess en minni.
Hann bendir á að ESB sé að
ganga í gegnum breytingar á stjórn-
skipulagi sem ljúka eigi fyrir lok
næsta árs. Rétt sé að bíða og sjá
hver niðurstaðan verður. „Verður
þróunin í átt til aukins lýðræðis eða
dregur úr því?“ spyr Bondevik. í
frétt Útvarpsins var hins vegar haft
eftir honum að „fyrir lok árs 2003
verði væntanlega samþykktar
breytingar á stjómskipulagi [ESB]
og það fært í lýðræðisátt."
Aftenposten hefur eftir Bondevik
að „allir stjómmálaflokkar sem vilji
láta taka sig alvarlega verði að búa
sig undir að ræða í þaula afstöðu
sína til ESB í tengslum við lang-
tímastefnumótun sína.“ Útvarpið
hafði hins vegar eftir honum að
hann teldi að „flokkur sinn Kristi-
legi þjóðarflokkurinn verði því að
undirbúa sig fyrir að endurskoða af-
stöðu sína til ESB.“
Þá var haft eftir Bondevik í Út-
varpinu að ESB „geti á skömmum
tíma orðið fýsilegur kostur." Þau
ummæli er ekki að fmna í frétt Af-
tenposten. Blaðið hefur því annað-
hvort ekki haft af þeim spurnir eða
ekki talið þau sæta tíöindum.
Standa viö fréttina
„Við stöndum við fréttina," segir
Kári Jónasson, fréttastjóri Útvarps-
ins, en bætir við að nákvæmara hefði
verið að segja að Bondevik teldi að
Evrópusambandið yrði eitt af kosn-
ingamálunum. „En hann er að koma
með nýja sýn á málið því að hann hef-
ur verið mjög andvígur ESB-aðild
innan síns flokks,“ segir Kári.
Sjá bls. 6 -ÓTG
Jólasveininn í-heimsókn
Stekkjarstaur kom fyrstur jólasveina til byggöa. Hann var ekki fyrr mættur í
bæinn en hann birtist í DV-húsinu viö Skaftahlíö þar sem hann gladdi bæöi
börn og fulloröna. Fengu börnin gotterí og sögukorn en sveinki haföi komiö
viö hjá Nóa-Síríusi á leiö sinni, öllum til óblandinnar ánæg/u.
Frumvarp dómsmálaráðherra afgreitt:
Ráðherra vill þyngja
kynferðisbrotadóma
Ríkisstjómin hefur af-
greitt frumvarp Sólveigar
Pétursdóttur dómsmálaráð-
herra, sem lagt verður fram
á Alþingi eftir áramót, um
að herða fangelsisrefsingar
vegna kynferðisbrota gegn
börnum. Þetta er meðal
annars gert i ljósi þess að
það hafi þótt skjóta skökku
við að lögin hafi litið svo á
að sá verknaður að misnota
bam kynferðislega sé léttvægari en
nauðgun gegn fullorðnum einstak-
lingi. Hámarksrefsing fyrir nauðg-
un er 16 ára fangelsi en hámarks-
refsing fyrir að misnota kynferðis-
lega bam eða stjúpbam, yngra en
sextán ára, er 10 ára fangelsi.
Sólveig leggur til að refsimörk
vegna grófustu kynferðisbrota gegn
bömum verði hækkuð upp í 8 og 12
ára fangelsi í stað 6 og 10 ára sem
nú er.
Þetta er gert í ljósi þess skaða
sem böm verða fyrir þegar þau eru
misnotuð. Gert er ráð fyrir að
Sólveig
Pétursdóttir.
dæmd verði þyngri refsing
vegna þessara brota verði
frumvarpið að lögum á Al-
þingi.
Dómsmálaráöherra hefur
greint ríkisstjóminni frá
því að þegar réttarstaðan í
kynferðismálum annars
staðar á Norðurlöndum sé
borin saman við ísland
komi í ljós að meira sam-
ræmi er almennt þar milli
refsiramma fyrir nauðgun annars
vegar og kynferðislegri misnotkun
barna hins vegar. Hámarksrefsing
fyrir kynferðislega misnotkun
bama sé almennt ekki lægri hér á
landi en annars staðar en bent er á
þá staðreynd að í Svíþjóð, Noregi og
Finnlandi séu ákvæði um lágmarks-
refsingar sem vissulega stuðli að
þyngri refsingum. Ráðherra telur að
í samræmi við uppbyggingu is-
lenskra refsilaga sé rétt að fara
framangreinda leið til að stuðla að
lengri dómum i alvarlegum brotum
á þessu sviði. -ótt
Geðhjálp styrkt
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra hefur fært
Geðhjálp styrk að
upphæð 3 milljónir
króna. Það er því
mat ráðherra að
samtökin verðs-
kuldi enn frekari
stuðning samfélags-
ins til þess að gera
þeim betur kleift að rækta hlutverk
sitt. Með styrkframlagi vill ráðherr-
ann þakka félaginu fyrir framlag
sitt til heilbrigðara samfélags.
Lækkar vexti
Bankastjóm Seðlabanka íslands
hefur ákveðið að lækka vexti bank-
ans í endurhverfum viðskiptum við
lánastofnanir um 0,5% í 5,8% í
næsta uppboði sem haldið verður
17. desember nk. Verðbólguspá í
byrjun nóvember hefur aukið líkur
á að verðlagsþróun næstu tveggja
ára veði undir verðbólgumarkmiði
bankans að óbreyttri peningastefnu
og án stóriðjuframkvæmda.
Kominn í 57.000 tonn
Síldaraflinn er kominn í 57.000
tonn og þar af hafa 31.000 tonn farið
til frystingar og söltunar. Mestu hef-
ur verið landað í Neskaupstað, lið-
lega 10.000 tonnum, og litlu minna á
Homafirði. Síld hefur verið landað
hjá 11 aðilum víðs vegar um land.
Heildarkvóti er tæplega 130.000 tonn
og því enn óveidd um 73 þúsund
tonn.
Eignaraðild rædd
Eignaraðild Akureyrarbæjar að
Landsvirkjun var rædd á fundi bæj-
arráðs Akureyrar í vikunni og telur
ráðið að fyrirhugaðar framkvæmdir
Landsvirkjunar við Kárahnjúka-
virkjun gefi ekki tilefni til endur-
skoðunar á aðild Akureyrarbæjar
að fyrirtækinu. Akureyrarbær á 5%
í Landsvirkjun en talið er að fram-
kvæmdirnar við Kárahnjúkavirkj-
un kosti um 100 milljarða króna og
er um að ræða dýrustu virkjunar-
framkvæmdir sögunnar á íslandi.
Starfandi fjölgar um 0,5%
Samkvæmt áætlun Hagstofunnar
voru 173.300 manns starfandi á
þriðja ársfjórðungi 2002 samanborið
við 172.500 árið áður. Það jafngildir
0,5 % fjölgun starfandi. Starfandi
körlum fækkaði um 900 en konum
fjölgaði um 1.800 á þriðja ársfjórð-
ungi 2002 miðað við sama ársfjórð-
ung ári áður. Þessir útreikningar
eru byggðir á gögnum ríkisskatt-
stjóra um staðgreiðslu af launum og
reiknuðu endurgjaldi.
Minningargjöf
Landhelgisgæslunni hefur borist
mmningargjöf sem nemur 10 millj-
ónum króna í sjóð sem stofnaður
var vegna söfnunar fyrir nætur-
sjónaukum, nauðsynlegum fylgi-
búnaði og þjálfun flugáhafna til
notkunar á sjónaukunum. Gefendur
óskuðu nafnleyndar að svo stöddu.
-GG
Haldiö til haga
í Magasíninu síðastlið
fimmtudag misritaðist aö tónlei
Vox academica yrðu í dag lauj
dag í Háteigskirkju. Hið rétta ei
Vox academica mun syngja j<
inn í Háteigskirkju á sunnudag
17. A efnisskráinni eru íslensk
erlend jólalög.