Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Síða 4
4 LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 Fréttir DV Kristján Stefánsson, forstjóri Litla-Hrauns, um hungurverkfall tuga fanga: Vitum ekki hverju fang- arnir eru aö mótmæla Londonlamb, ís, reykt folaldakjöt með uppstúfi og grænum baunum, pitsa, grænmetissnitsel og sjávarréttasúpa. Þetta er meðal þess sem var á matseðlinum á Litla- Hrauni í síðustu viku. Þegar kom hins vegar að bjúgum í hádeginu á mið- vikudag ákvað á þriðja tug fanga að fara í hung- urverkfall - þeir segja matinn vondan, of fiturík- an og ekki nægilega ferskan. Á fimmtudag bættust nokkrir fangar í hungurhópinn en þá voru kjúklingar og franskar i boði. í gær var svipað uppi á teningnum en þá voru djúpsteiktir rækjunaggar í boði með súrsætri sósu og hrís- grjónum, grænmetisrétt- ur og súkkulaðikex. Kristján Stefánsson, forstöðumaður fangelsis- ins, segist vita til þess að hluti fanganna á Litla- Hrauni hafi ekki borðað hádegismat en þá er bor- [FSffild IIMbwbö 27.11.02. miðv. Reykt folald með uppstúf og graenum baunum Grbuff. Kv. sjávarrétta súpa 28.11.02. fimt Hakkabuff með lauksósu og eggi Gr. snitsel Kakósúpa 29.11.02. föst Steiktur fiskur með salati Gr. salat Kv. beykonogegg 30.11.02. laug. Pizza Kv. grjónagrautur og salat 1.12.02. sunu. Londonlamb með steiktum kartöflum ís Kv. súpa að haetti hússins 2.12.02. mánu. Soðnar kjötbollur með hvítkáli Gr. buff Kv.skyr 3.12.02. þrið. Fiskur að hætti hússins Gr. saiat Kv. Pastaréttur inn fram hin daglega heita máltíð (sjá matseð- il). „Ég tel ekki að fangar hafi neina ástæðu til að kvarta yfir matnum i fangelsinu. Þeir fá vel úti- látinn heitan mat í hádeg- inu og svo hafa þeir mat- væli inni á deildum hjá sér, til dæmis morgun- mat, brauð, en einnig létt- an kvöldmat,“ sagði Krist- ján við DV. „Við höfum ekki fengið neina formlega kvörtun en við vitum að hluti fanganna hefur ekki borð- að eða viljað borða hádeg- ismat undanfarna daga af ástæðum sem eru okkur ekki kunnar.“ Sami matseðill er fyrir fanga og þá starfsmenn Litla-Hrauns sem borða í fangelsinu í hádeginu. Sjálfstæður rekstraraðili er í mötuneyti fangelsisins sem sér um að framreiða mat samkvæmt útboði og samningi sem gerður var við Fangelsismálastofnun. „Þessi rekstraraðili hefur alla að- stöðu hér. Maturinn er því ekki fluttur utan úr bæ en fangar fá mat- inn inn á deildir til sín í bökkum," segir Kristján. „Það er töluvert um liðið frá því að fangar gerðu athugasemdir við það magn sem þeir fengu að borða en yfirleitt hefur þetta gengið vel í gegnum tíðina. Við vitum í raun og veru ekki hverju fangamir eru að mótmæla. Ég borða reyndar yfirleitt ekki heitan mat hér i hádeginu en þá sjaldan ég geri það þá er þetta hinn besti matur,“ sagði Kristján Stefánsson. -Ótt Varðhald framlengt Gæsluvarðhald yfir þremur Pól- verjum sem grunaðir eru um innbrot víða um land hefur verið framlengt tU 9. janúar. Pólveijar, fjórir talsins, voru handteknir við Hítará á dögun- um en einn þeirra kastaði sér út úr bU á ferð og hryggbrotnaði. Sá var úr- skurðaður í gæsluvarðhald tU 20. des- ember eftir spítalavistina. Gæsluvarð- hald yfir hinum þremur átti hins veg- ar að renna út í gær en var framlengt. Pólverjamir virðast hafa brotist inn í hús og sumarbústaði víða um land, mestmegnis i nágrenni borgarinnar og á Vesturlandi. Lögregla hefur þeg- ar afhent húseigendum sem urðu fyr- ir barðinu á þjófunum stóran hluta ránsfengsins. -hlh Þurrkuð epli Möndlur Blandaðir ÞURRKAÐIR ÁVESTIR ... allt sem þarfí baksturínn! Sérfræðingar í viðgerðum og viðhaldi á Sony Einholti 2 • sími 552 3150 Panasonic og Panasonic tækjum. DV-MVND SIGURÐUR JÖKULL Sorapyttur hreinsaður upp á Nesjavöllum Starfsmenn á vegum Orkuveitu Reykjavíkur unnu að því í gær að soga upp og hreinsa skólppytt sem myndast hafði skammt neðan Nesbúðar þar sem frárennslismál voru í ólestri. Skólpvandamálin á Nesjavöllum leyst í kjölfar fréttar DV: Snör viðbrögö Orkuveitunnar - sorapyttur hreinsaður upp og frárennslismál lagfærð Viðbrögð Orku- veitu Reykjavíkur við frétt DV um að1 skólpmál við Nes-' búð væru i miklum ólestri hafa verið mjög snör og fum-t laus. Þar rann skólp óhindrað úr opinni lögn út í náttúruna þar sem myndast hafði ljót- ur skólppyttur. Starfsmenn Orku- veitunnar fóru á staðinn strax sama dag og fréttin birtist til að kynna sér aðstæður. í framhaldinu var kallaður út vinnuflokkur. Þá mátti sjá menn að störfum með gröfur og önnur tól og tæki í gær við að laga frárennslismálin við Nesbúð. Var þar einnig unnið að því að hreinsa upp sorapytt sem myndast hafði DV á þriöjudag. skammt neðan Nesbúðar. Var allt í fullum gangi er ljósmyndara DV bar að garði og virðist Alfreð Þorsteins- son, stjórnarformaður Orkuveitunn- ar, hafa þar staðið fyllilega við orð sín sem hann gaf í DV á þriðjudag um að brugðist yrði skjótt við til að skoða hvað hefði farið úrskeiðis. Al- freð sagði í samtali við DV í gær að svona mál væru afar slæm fyrir ímynd fyrirtækisins og því hafi ekki verið um annað að ræða en að bregðast snarlega við frétt blaðsins. Er búist við að skólp- mál við Nesbúð á Nesja- völlum, í næsta ná- grenni hinna miklu hitaveitumannvirkja Orkuveitu Reykjavíkur, verði því komin í samt lag á næstu dögum. Orkuveita Reykjavíkur ætti þar með að geta staðið við yfirlýsta um- hverfisstefnu sína sem segir m.a.: „Orkuveita Reykjavíkur vinnur í sátt við náttúruna á öllum sviðum. Stuðlað er að góðri nýtingu náttúru- auðlinda, fegrun lands og umhverf- is.“ -HKr. Sekúndu frá bronsinu Öm Amarson var einu sæti og aðeins 8/100 úr sekúndu frá bronsverðlaunum í 50 metra baksundi á Evrópumótinu í 25 metra laug í gær. Örn varð Evrópumeistari í sjötta sinn á fimmtudaginn með sigri í 200 metra baksundi en hann varði fjórði í 50 metra baksundi í gær á nýju íslandsmeti, 24.70 sekúndum. Örn synti alls fimm sinnum í gær og setti þrjú íslandsmet því hann setti tvö íslandsmet í 100 metra skriðsundi fyrr um daginn og endaði í 9. sæti á 48.57 sekúndum, 8/100 úr sekúndu frá því að komast í úrslitasundið. Viðræður í strand Viðræður forsvarsmanna Heil- brigðisstofnunar Suðumesja og full- trúa heilsugæslulækna hafa reynst árangurslausar til þessa. Þær hafa strandað á kröfum læknanna, að því er fram kemur hjá HSS. Um 'er að ræða heilsugæslulæknana sem sögðu upp störfum 1. nóvember sl. Meðal annars hefur strandað á kröfum læknanna um að fá aksturs- tíma til og frá vinnustað metinn til vinnutímans og kröfu um viðbótar- launaflokka. Stjórnendur HSS teija sig ekki hafa lagalegan grundvöll til að semja um sérkjör af þessu tagi við læknana og hefur þessi skilning- ur verið staðfestur af heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Stjómendur HSS hafa boðið öll- um læknunum sem sögðu upp störf- um kjör sem eru í fullu samræmi við nýlegan úrskurð kjaranefndar um laun heilsugæslulækna. Ljóst er að þessi niðurstaða hefur í for með sér að áfram verður tíma- bundin röskun á starfsemi heilsu- gæslunnar á svæðinu. Tekið er fram að heilbrigðisstarfsmenn sem starfandi em á Heilbrigðisstofnun Suðumesja munu áfram reyna að leysa úr vanda þeirra sjúklinga sem leita til HSS. 50 rúma hjúkrunarheimili Ákveðið hefur verið að opnað verði um 50 rúma hjúkrunarheimili fyrir aldraða á Vífilsstöðum. Leitað hefur verið eftir því við Landspítala - háskólasjúkrahús að annast nauð- synlegar breytingar á húsnæðinu í samráði við heilbrigðisráðuneytið. Allt kapp er lagt á að hraða þeim breytingum sem allra mest þannig að hægt verði að taka hjúkrunar- heimilið í notkun sem fyrst á nýju ári. Heilbrigðisráðuneytið er í við- ræðum við Hrafnistu um rekstur heimilisins. Jón Kristjánsson heilbrigðisráð- herra sagði að tryggt hefði verið á ijáraukalögmn fjármagn til lagfær- inga á húsnæðinu annars vegar og rekstrar hins vegar. Til lagfæringa væru ætlaðar 130 milljónir króna en 310 milljónir til rekstrar. Ef ekki tækist að semja við einhvem aðila sem væri i þessum þjónustugeira yrði reksturinn boðinn út. Húðdeild er síðasta deildin sem starfrækt hefur verið á Vífilsstöð- um. Nú er unnið að því að finna henni stað innan LHS, að sögn Magnúsar Péturssonar, forstjóra LHS. Vífilsstaðir verða áfram í eigu ríkisins og á snærum spítalans. . . Magnús sagði að ástand húsnæð- isins væri gott en það var byggt fyr- ir níutíu árum. Því hefði verið vel við haldiö. Hins vegar þyrfti að laga ýmislegt að nútímakröfum, án þess að umturna öllu húsinu. -ÓÓJ/JSS/HKr.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.