Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 Tilboð Tilboð Tilboð Ódýrir pallettutjakkar Tilboðið gildir út desember, eða meðan birgðir endast. Standard kr 28.573,- m/vsk Galvaniseraður kr 72.808,- m/vsk Langur (180 cm) kr 52.260,- m/vsk /v.yft‘9eta ■ \ 2000 K9/ ^ KRAFTVtLAR Dalvegur 6-8 • 200 Kópavogur • Sími 535 3500 • Fax 535 3509 • www.kraftvelar.is S|| Bflastæðasióður | f ...svo í borg sé leggjandi Gott skjól fýrír bílinn þinn *) Ef þú kaupir 6 mánuði borgarðu aðeins fyrir 5. Bílastæðahúsið við Vitatorg er ódýrt skjól á góðum stað fyrir þá sem eiga erindi á Laugaveginn og næsta nágrenni. Fyrsta klukkustundin kostar aðeins 80 kr. eða 1,33 kr. mínútan, síðan greiðir þú 10 kr. fyrir hverjar 12 mínútur sem þú notar. Fyrir þá sem starfa eða búa í miðborginni er í boði mánaðarkort á aðeins 4.000 kr. *) Það fæst varla betra skjól en þetta fyrir Vitatorg bílinn þinn. á homi Vitastígs og Hverfisgötu Útlönd DV Leiðtogafundur ESB í Kaupmannahöfn: Harðsoðið sam- komulag í augsýn - segir Gerhard Schröder um stækkunina Leiðtogar Evrópusam- bandslandanna, sem síð- ustu tvo daga hafa fundað í Kaupmannahöfn, virðast vera komnir langleiðina með að ná settu marki um tíu landa stækkun sam- bandsins til austurs, eftir að samkomulag náðist viö Pólverja um aukna fjár- styrki, sem aðallega eru ætlaðir til uppbyggingar í landbúnaðar- og byggða- málum. Gerhard Schröder, kanslari Þýska- lands, sagði eftir stöðug fúndahöld í gær að samþykkt hefði verið að veita Pólverjum, sem eru fjölmennasta inn- gönguþjóðin, eins milljarðs evra auka- styrk við það sem áður hafði verið ákveðið, sem greiðast ætti á næstu þremur árum og einnig hefði verið ákveðið að aðrar inngönguþjóðir fengju hver um sig 300 milljóna evra aukastyrk. Schröder lýsti samkomu- laginu sem náðist á síðustu stundu í gær sem tíma- mótaskrefi og sagðist sann- færður um að harðsoðinn samningur væri nú loks í höfh. Pólverjar vildu sjálfir lít- ið segja um samkomulagið, en þeir höfðu farið fram á að framlög til inngöngu- landanna, eftir að þau gengju formlega inn, yrðu aukin um tvo milljarða evra. „Við munum beij- ast áfram fyrir bættum aðildarskil- málum,“ sagði einn pólsku samninga- mannanna Enginn árangur náöist i umræð- unum um sameiningu þjóðarbrotanna á Kýpur á fundinum og var umræðum frestað um óákveðinn tíma. Gerhard Schróder. REUTERSMYND Róð í Frakklandi Mikiö vatnsveöur hefurgert íbúum í Suöur-Frakklandi lífiö leitt síðustu daga en í kjölfariö hafa oröiö mikil flóö sem oröiö hafa tveimur aö bana. Flóðin hafa boriö mikinn aur inn í þorp og bæi á svæöinu og hér á myndinni sjáum viö einn íbúa í bænum Sommieres í nágrenni Montpellier hreinsa aurinn af þröngri götu bæjarins. Vopnayfirlýsing íraka full af gloppum - segja bandarískir embættismenn Bandarísk stjórnvöld segja að vopnaskýrsla íraka, sem þeir skiluðu Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna um síðustu helgi, sé full af gloppum og að þar hafi ekki verið gerð grein fýrir öllum efha- og sýklavopnabirgð- um sem vitað sé að írakar eigi í fórum sínum. Þetta kemur fram í grein í bandaríska dag- blaðinu New York Times i gær. Þar segir að fulltrúar Bandaríkjamanna og Rússa hafi kynnt Hans Blix, yfir- manni vopnaeftirlits SÞ, skýrsluna eftir fyrstu yfirferð í gær. Þeirri vinnu sé engan veginn lokið enda skýrslan hvorki meira né minna en tólf þúsund blaðsíður og muni taka nokkrar vikur að ljúka því verki. Haft er eftir ónafiigreindum banda- rískum embættismanni að hann sjái ekki annað en írakar séu með skýrsl- unni að brjóta gróflega gegn settum skilmálum Öryggisráðsins sem ætti að nægja til að réttlæta aðgerðir. „Nógu gróft er það alla vega til þess að keyra skriðdreka í gegn,“ sagði maðurinn. Á sama tíma halda vopnaeftirlitsmenn SÞ áffam störfum sínum í írak og var m.a. leitað á sóttvarnarstofnun og í vopnaverksmiðju í nágrenni Bagdad í gær. Meira en 300 fulltrúar íraskra sfjómarandstæðinga funda i Lund- únum um helgina til að ræða hugs- anlega yflrtöku á stjóm landsins eftir væntanlega innrás en hópur- inn er samansettur af fuUtrúum meira en fimmtíu áhrifahópa sem verið hafa undir auknum þrýstingi Bandaríkjamanna um aðstoð við að steypa Saddam af stóli. Vopnaeftirlit í gangi. Evran í hámarki Staða evrunnar gagnvart Bandarikja- dollar hefur ekki ver- ið sterkari síðan í janúar 2000 og fór gengið upp í 1,0257 í gærmorgun eftir að hafa verið í 1,0183 síð- degis á fimmtudag en þá tók hún verulegt stökk upp á við en sérfræðingar tengja það auknum áhyggjum um hægan efnahagsbata í Bandaríkjunum. Tvöföld lukka Eldri hjón frá Belmont í Kalifomíu duttu heldur betur í lukkupottinn i vikunni þegar þau unnu tvo risalottó- vinninga sama daginn. Fyrri vinning- inn, 17 mUIjónir dollara, eða um 1,5 miUjarðar íslenskra króna, unnu þau í Super Lottó Plus en þann seinni að upphæð 124 þúsund doUara, eða rúm- ar tíu miUjónir króna, í milli-lottóleik. Hjónin notuðu númeraðar bingó- kúlur tU að velja númerin. Moi hyggst boða frið Daniel Arap Moi, forseti Kenía, sem nú leitar sér lækn- inga i London eftir umferðarslys, segir það þvætting að hann hyggist stjórna á bak við tjöldin eft- ir forsetakosning- amar sem fram fara í landinu þann 27. desember nk. „Ég æUa að vinna að friði í Afríku og tU þess þarf ég góðan tíma. Ég mun styðja kosfim forseta og vonast eftir friðsamlegum kosning- um,“ segir Moi, sem setið hefur við völd í 24 ár. Tengsl milli árásanna Að sögn lögregluyfirvalda í Indó- nesíu em tengsl miUi sjálfsmorðsárás- arinnar á McDonald’s-hamborgara- staðinn á eyjunni Sulawesi í síðustu viku, þar sem þrir menn létust, og árásarinnar á Balí fyrr í vetur þar sem meira en 190 manns létust. „Þeir sem handteknir hafa verið grunaðir um aðUd að árásunum þekkjast aUir og eru þeir aUir grunaðir um að vera liðsmenn íslömsku Jemaah-samtak- arrna sem talin eru tengjast al-Qaeda- samtökunum," sagði talsmaður lög- reglurmar. Spjallrásarmorð Þýskur 41 árs gamaU karlmaður frá Rotenburg hefúr verið handtekinn, grunaður um morö á 42 ára gömlum manni frá Berlin sem hann komst í kynni við á spjallrásinni. Að sögn saksóknara er málið aUt hið furðulegasta því svo virðist sem verknaðurinn hafi verið framinn með vUja og vitund fórnarlambsins og hafa verið lagðar fram myndbandsupptök- ur því tU sönnunar. Þar með er ekki öU sagan sögð því morðinginn hefur viðurkennt að hafa étið hluta af fómarlambinu en bana- meinið var hnifstunga í hálsinn. Boston-biskupi veitt lausn Jóhannes PáU páfi hefur veitt Bemard Law, erkibiskupi í Boston í Bandaríkj- unum, lausn frá embætti í kjölfar ásakana um að hann hafi reynt að hylma yfir kynferðisafbrot bandarískra presta gegn bömum. Erkibiskupinn fór sjálfur fram á lausnarbeiðnina. Skotið á borgarstjórann Óþekktur byssumaður gerði í gær skotárás á embættisbifreið Doru Bak- oyianni, borgarstjóra Aþenu, með þeim afleiðingum að bDstjóri hennar særðist iUa. Sjálf slapp Dora, sem er fyrsti kvenborgarstjóri Aþenu, með skrámur eftir glerbrot. Kjarnorkuver rannsökuð Vopnaeftirlitsmenn SÞ munu í febrúar nk. rannsaka tvö ný kjam- orkuver í Iran en Bandaríkjamenn telja hugsanlegt að þar verði hægt að framleiða kjamavopn. Sjálfir segja íranir að verið sé einungis ætlað tU orkuframleiðslu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.