Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Blaðsíða 27
LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 H (> / cj C3 r b / o ö 31>V sjúklingur utan vinnunnar þar sem ég reyni að fylgj- ast með hverju fótmáli á fréttasviðinu. Eitt af mínum áhugamálum er heimildarmyndagerð og þar fæ ég meiri útrás fyrir sköpunarþörfina. Núna er ég meðal annars með í smíðum mynd um fólk með Downs-heilkennið. Það hefur verið frábært verkefni og veitt mér nýtt sjónarhorn á hlutina. Ég er áhugamanneskja um íslendingasögur og sit núna á Njálunámskeiði hjá Jóni Böðvarssyni. Forn- konan Elin Hirst, er hægt að vera leiðinlegri!" segir Elín og hlær við. „Við Jón ætlum að búa til mynd af Njáluslóðum og erum að reyna að fjármagna það núna. Svo ákvað ég í haust að skrá mig í sagnfræði i Háskól- anum. Þar er komið fínt hobbí.“ Er Hallgerður langbrók í uppáhaldi hjá þér? „Neinei. Hún hefur svo marga galla, sú ágæta kona: hún er þjófótt, ákaflega illvíg og kemur mönnum fyrir kattarnef með því að klaga í fóstra sinn. Svo láta hún og Bergþóra í frekjugangi sínum vega mann og ann- an.“ Er þetta eitthvað likt lífinu á RÚV? „Nei, ekki neitt. Njála er frábær saga. Ég held ég hefði samt tosað úr mér einhverjar hárlufsur og reynt að búa til bogastreng fyrir Gunnar karlinn." Á skólabekk Var það ekki undarlegt fyrir þjóðþekkta manneskju í áberandi starfi að setjast á skólabekk? „Ég var að stríða syni mínum, sem er á öðru ári í MR, á því að innan skamms yrðum við skólasystkin í Háskólanum. Honum leist ekki illa á það en þurfti samt að melta það. Það var mjög skrýtið að koma í fyrsta tímann. Flest- ir eru um tvítugt en einnig eru þar nokkrir jafnaldrar mínir og eldri. Annars reyni ég bara að láta lítið fyrir mér fara; hlusta bara á kennarana. Sá kennari sem hefur kennt mér mest er Eggert Þór Bernharðsson. Það hefur verið virkilega gaman í tímum hjá honum." Þú ert sem sagt ekkert að trana þér fram í tímum? „Nei. Ég tilkynnti Eggerti Þór að ég myndi hafa mig hæga. Mér leiðist fólk sem er gasprandi í tímum. Ég vil hverfa inn í fjöldann enda kann ég ekkert í sagn- „Ég geri mér grein fyrir því að vinahópur minn tengist Sjálfstæðisflokknum. Þegar menn hafa verið að draga fagmennsku mína sem fréttamaður í efa, sem reyndar gerist mjög sjaldan, þá hef ég spurt hvernig það væri ef ég væri læknir. Myndi einhver láta sér detta í hug að læknir sem tekur starf sitt alvarlega vildi lækna ineinta skoðanabræður sína betur en aðra sjúklinga sem til hans leituðu? Hvers konar læknir væri það?“ segir Elín Hirst, fréttastjóri Sjónvarpsins. DV-mynd Hari fræði og veitir ekki af að hlusta og fylgjast með nýjum heimi opnast." Hefur sagnfræðinámið breytt viðhorfi þínu til vinn- unnar? „Ég finn strax breytingu. Ég hef meiri áhuga á því hvernig efni er geymt. Ríkisútvarpið býr yfir ómetan- legum munnlegum heimildum og myndheimildum. Það er algjör fjársjóður sem verður að gæta vel að.“ Erfitt að taka persónulegri gagnrýni Starf þitt í sjónvarpinu gerir það að verkum að þú ert undir smásjánni. Þú ert alltaf nefnd þegar valin er kynþokkafyllsta kona landsins og ýmist ertu valin best eða verst klædda konan. Hvernig kemur það við þig? „Það venst. Maður fær smám saman skráp og umtal- ið hættir að hreyfa við manni eins og öll gagnrýni gerði fyrst. Það er alltaf erfitt að taka mjög persónu- legri gagnrýni og fyrst þurfti ég að melta það í nokkra daga þegar sett var út á útlit mitt og klæðaburð. Mér finnst þessi umræða ná síður til mín nú en áður.“ Þú átt tvo drengi sem hafa heyrt þessa umræðu líka. Hefurðu beitt einhverjum sérstökum aðferðum í upp- eldi vegna þessa? „Ég hef unnið í fjölmiðlum frá því þeir fæddust og þeir þekkja mömmu sína ekki öðruvísi en svona. Mér hefur ekki fundist það hafa áhrif á þá og þeir kvarta ekki yfir því þótt þeir nöldri stundum og biðji mig til dæmis að koma ekki á íþróttamót því allir horfi á mig. Mér hefur ekki fundist starfið lita heimilislíf okkar.“ Vinatengslin ekld erfið Hefurðu einhvern tíma haft pólitískan metnað og tekið þátt í flokksstarfi? „Ég var í Vöku í Háskólanum en þegar ég lauk námi sá ég að pólitík og fréttamennska gæti ekki farið sam- an. Og þá ekki bara flokkspólitík heldur líka eig- endapólitík. Margir vilja að fréttamenn séu hlutlausir en enginn maður getur verið hlutlaus. Það elst enginn upp í tómarúmi, allir eru litaðir af umhverfi sinu, menntun og uppeldi. Fréttamenn eiga hins vegar að vera hlut- lægir og vinna á hlutlægan hátt. Það er grundvallarat- riði. Það er dálítið út í bláinn að tala um hlutleysi." Þú hefur oft verið orðuð við Sjálfstæðisflokkinn. „Ég geri mér grein fyrir því að vinahópur minn tengist Sjálfstæðisflokknum. Þegar menn hafa verið að draga fagmennsku mína sem fréttamaður í efa, sem reyndar gerist mjög sjaldan, þá hef ég spurt hvernig það væri ef ég væri læknir. Myndi einhver láta sér detta í hug að læknir sem tekur starf sitt alvarlega vildi lækna meinta skoðanabræður sína betur en aðra sjúklinga sem til hans leituðu? Hvers konar læknir væri það? Ef ég vildi kalla mig fagmann yrði ég að starfa sem slíkur. Það er lika að fleiru að hyggja í þessu sambandi. Hvernig yrði ferill blaðamanns sem starfaði ekki faglega? Hann fengi engan frama neins staðar; enginn hefði áhuga á hans verkum, almenning- ur hlustaði ekki á hann og ritstjórnir myndu hafna honum. Það er svo einfalt.“ Hafa þessi vinatengsl gert þér erfitt fyrir? „Nei.“ RÚV er nauðsynleg stofnun Þú hafðir áður sótt um starf fréttastjóra og verið hafnað af út- varpsráði. „Bogi Ágústsson fór í leyfi frá störfum árið 1996 og þá var aug- lýst eftir afleysingafréttastjóra. Þá sótti ég um en Helgi H. Jónsson varafréttastjóri fékk fleiri atkvæði í útvarpsráði og var ráðinn af út- varpsstjóra.“ Er ekki erfitt að þurfa að leggja feril sinn fyrir apparat eins og út- varpsráð? „Ef manni líkar ekki við stjórn- sýslu stofnunar þá sækir maður ekki um. Ég ákvað að sækja um og samþykki þar af leiðandi þetta ferli. Útvarpsráð er pólitískt skip- að eins og mælt er fyrir í íslensk- um lögum. Annars ætla ég ekki að tjá mig um þetta ferli og atkvæða- greiðsluna; ég er búin að fá starf- ið og mun halda mínu faglega striki hvernig sem hlutir hafa æxlast í aðdraganda þess.“ Kom þér niðurstaða ráðsins á óvart? „Nei. Ég hafði vonast til að fá fleiri atkvæði en það hafði kvisast út að ráðið væri búið að ákveða sig og að þetta yrði niðurstaðan." Logi Bergmann Eiðsson sagði í viðtali í Helgarblaði DV að það væri pirrandi fyrir fréttamann að vera póli- tískt ráðinn. „Það er eitthvað sem maður gengst undir. Það hefur hver sjálfdæmi í þessu máli; það er enginn neyddur til að sækja um. Við búum í lýðræðisríki. Við kjósum þing sem býr til lög sem síðan er framfylgt. Ef þar er vilji til breytinga þá verða breytingar. Ef menn treysta sér ekki til að sækja um undir þessum kringumstæð- um þá sækja þeir ekki um. Baráttan fyrir öðru fyrir- komulagi verður að fara fram á öðrum vígstöðvum." Hvert er draumarekstrarform fjölmiðils að þínu mati? „Ég sé alltaf betur og betur hvað Ríkisútvarpið er nauðsynleg stofnun. Öryggishlutverk þess er gríðar- lega mikilvægt; að hér sé einhver sem hefur þær skyld- ur að fylgjast með og flytja tíðindi sem til dæmis tengj- ast öryggi þjóðarinnar. Það er einnig mikilvægt að hafa miðil til að flytja þjóðinni svokallaða þjóðarvið- burði, hvort sem það eru ólympíuleikar, kosningar eða Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. í litlu landi þarf að vera til fjölmiðill sem hefur burði til að vera slík miðstöð. Menningarlegt hlutverk RÚV er einnig afar mikilvægt. Ég finn það vel í sagnfræðinni hversu dýrmæt íslensk menning er fyrir okkur sem þjóð og hvað Ríkisútvarpið getur komið sterkt inn í varðveislu hennar og viðgang. Núna tek ég við frábæru búi frá Boga Ágústssyni sem er að skila fjórtán ára starfi. Við höfum aldrei staðið betur í samkeppninni við fréttastofu Stöðvar 2 og fréttastofa Sjónvarpsins nýtur mests trausts ís- lenskra fjölmiðla. Ég þarf því að vanda mig að stýra fleyinu áfram. Við höfum einvalaliði á að skipa hér á fréttastofu Sjónvarps. Sá sem verður minn nánasti samstarfsmaður og staðgengill er Logi Bergmann Eiðs- son varafréttastjóri og keppinautur um fréttastjóra- stöðuna. Það er traustur bakhjarl." -sm „pqo eist engmn upp i tómarúmi, allir eru lit- aðir af umhverfi sínu, menntun og uppeldi. Fréttamenn eiga hins vegar að vera hlutlægir og vinna á hlutlægan hátt. Það er grundvall- aratriði. Það erdálítið út íbláinn að tala um hlutleysi.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.