Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Side 42

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Side 42
4-2 H<2Igarbloö J3V LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 Maður verður að vera góður við skáldagvðj una Hilmor Örn Hilmarsson, tónskáld og tón- listarmaður, ræðir um rímur, rapp, sinfón- íu hafsins og flóttann undan tónlistinni. „Ég hef af veik- um mætti reynt að vera praktískur og það hefur mis- tekist herfilega. Það verður að segjast eins oj* er að ég hef smá-talent á sviði tónlistar en er vita talentlaus á flestum öðrum sviðum. Ég verð bara að sætta mig við það og halda mig við tónlist- ina.“ DV-mynd Sig- urður Jökull Það er btjálað veður, sannkallað gjömingaveður, daginn sem ég legg leið mína út á Álftanes til að tala við Hilmar Öm Hilmarsson tónskáld. Bíllinn hendist til í verstu rokunum og ég býst allt eins við þvi aö mæta skapara himins og jarðar í Garðabænum, eins vandræðalegt og það væri fyrir okkur báða. Þegar ég renni í hlað hjá Hilmari þakka ég guði, Óðni og vegamálastjóra fyrir að hafa komist lífs á leiðarenda. Hilmar Öm stendur á bak við útgáfu hljómdisksins Rímur og rapp þar sem kvæðamenn, tónskáld og rapparar leiða sam- an hesta sína. Tónlistin var að mestu tekin upp á tónleikum sem haldnir vom í Gallerí Rifi á menningamótt síðastliðið sumar. „Það var rosaleg stemning," segir Hilmar Öm um þessa kvöldstund. „Ég fann að þama var einstakt augnablik. Straumurinn lá þangað, það var mikill spenningur og kemi- strían góð. Þetta var geníalt.“ Ég sá einhvers staðar að hugmyndin hefði fæðst á Snæfjallaströnd. „Já, hún kviknaði við opnun rímnaseturs á Snæljalla- strönd. Þar var stefnt saman rímum og öðm sem tengist svæðinu. Við Stetndór Andersen kvæðamaður fluttum Snjá- fjallavísur Jóns lærða, blöndu af kvæðamennsku, ákvæða- skáldskapar og elektróníkur. Erpur Eyvindarson hafði ætlað að koma á staðinn og i fjarveru hans veltum við því fyrir okk- ur hvað hefði gerst ef hann hefði komið. Ég talaði um kenn- ingar minar um að Islendingar hefðu fundið upp rappið og að við ættum að fá rappið heim, rétt eins og handritin. Þá fædd- ist hugmyndin að því aö leiða saman rappara og kvæðamenn. Rappbyltingin er merkilegustu framfarir í varðveislu ís- lensks máls frá því Megas hóf upp raust sína. Þar fara krakk- ar sem hafa rosalegt gott vald á málinu og það fmnst mér frá- bært. Mitt framlagt til dægurlagatextagerðar er fremur rislágt; ég veit um alla fúlu pyttina. Fyrir mig var þetta verk- efni líka ákveðin leið til að kynnast því sem er að gerast á þessu sviði.“ Ríinur standast árásir Rímur hafa ekki verið í hávegum hafðar á íslandi. Hvem- ig kynntist þú þessum arfi? „Fyrst kynntist ég rímum við lestur Sjálfstæðs fólks og Brekkukotsannáls eftir Laxness þegar ég var krakki. Ég varð mjög hrifrnn af Rauparímum í Brekkukotsannál og varð mér úti um þær, ellefu ára gamall. Sextán ára gamall kynntist ég Sveinbimi Beinteinssyni og fór alla tíð síðan vel á með okk- ur. Upp úr 1980 var Sveinbjöm oft fenginn til að kveða rím- ur fyrir tónleika, til dæmis hjá Purrki Pilnikk og Þey. Á þeim tíma ræddum ég og tveirþriðjunafni minn, Hilmar Öm Agn- arsson, um að gera eitthvað meö Sveinbimi, en feimni á báða bóga hamlaði því. Síðar vorum við Sveinbjöm með áform um tón- og hljóðsetta útgáfu af Eddukvæðum og þrátt fyrir ótíma- bært fráfall Sveinbjamar hefur hugmyndin lifað með mér og hlutgerist vonandi í einhverri mynd. En eitthvað kom þó út úr þessu öllu saman því ég náði að hafa milligöngu um út- gáfú plötu með Sveinbimi í Bretlandi. Rímur hafa því lengi veriö mér hugleiknar. Það var þó ekki fyrr en ég byrjaði að vinna með Steindóri Andersen að ég byrjaði að kafa í rímum- ar fyrir alvöru. Það þarf að stíga yfir þröskuld og yfir í heim rímnanna. Flestir sem fengið hafa vestrænt tónlistaruppeldi em í ákveðnum fjötrum. Það var nokkurt átak fyrir mig að byrja að hlusta á indverska tónlist og svipað er það með rím- umar. Maður verður að leyfa tónlistinni að koma til sín á eig- in forsendum; það má ekki nálgast hana með niðurbrjótandi hugarfari og reyna að klína henni inn í einhvem ramma eða tónskala. Ég hafði líka fordóma sem vom kveiktir af lista- skáldinu góða, Jónasi Hallgrímssyni, og sennu hans við Sig- urð Breiðfjörð. Ég hef lesið Sigurð Breiðíjörð mér til skemmt- unar og dáðst að andríki hans og húmor en aldrei hleypt hon- um alveg að mér. Jónas fór aðeins yfir strikið með skrifum sínum eins og kemur skemmtilega fram í Ævisögu hans sem Páll Valsson skrifaði. Rimumar hafa staðist allar árásir hingað til og skipti engu máli hversu hart biskupar, prestar og yfirvöld gengu fram í baráttunni gegn þeim. Guðbrandur biskup gerði sálmabók til höfuðs rímnakveðskapnum en honum þótti tilhneiging manna til að velta sér upp úr fomri frægð vera mannskemm- andi.“ Rímur og kveðskapur tengdust líka göldram, til dæmis Snjáfjailarímur. „Jú, það er hefð hjá íslendingum að binda hluti niður. Við höfum átt kraftaskáld í gegnum tíðina og sagan segir að Hall- grímur Pétursson hafi verið sviptur skáldgáfunni þegar hann orti Tófústefhu. Islendingar voru líka með Home Entertainment Center sem var kvæðamaðurinn. Kvöldvökur áður fyrr voru líkar því sem nú tíðkast með sjónvarpinu. Kveðskapur kvæða- mannsins var upplýsandi, skemmtilegur og heillandi. Meðal- bardagaríma tekur Ice-T og aUa þessa karla í nefið.“ Lítil eru geð guma Það er mikill frumkraftur í sterkri hrynjandi rímnanna og íslendingar virðast hafa einhverja þörf fyrir þessa sterku bindingu textans. Fannstu fyrir þessari þörf hjá Dönum þeg- ar þú bjóst þar? „Menn hafa lengi deilt um hvað það merkti í Hávamálum þegar segir: Lítilla sæva / litilla sanda / lítil eru geð guma. Þegar ég kom til Danmerkur varð mér ljóst að skáldið hefúr verið í Danmörku og horft upp á flatneskju lands og þjóðar. Mér fmnst Danir flatir; maður finnur ekki fyrir þeirri sturluðu ástríðu fyrir orðinu og skáldskapnum sem maður finnur á íslandi. Þegar Danir byrjuðu að rappa þótti mér það fyndið því hvað er hægt að rappa um í dönskum úthverfúm? Fátækt? Eymd? Vondar löggur? Það eina sem Danir geta kvartað yfir er ef ske kynni að bjórinn hækkaði um einhverja aura eða að það sé erfiðara að vera á sósíalnum en áður. Dan- ir komu hins vegar með húmorinn sinn inn í rappið og hann er sérstakur þótt hann sé leiðigjam til lengdar. íslendingar tóku rappformið í sínar hendur og gerðu það ólíkt öllu öðra rappi. Það er gaman að fylgjast með því hvemig þjóðarsálin birtist í þessu formi.“ Forgengileg popptónlist Hvenær byijaðirðu að sýsla við tónlist? „Ég var eiginlega kommn á kaf í tónlist fjórtán ára gamail og alla tíð síðan hef ég verið á hröðu undanhaldi og reynt að gera eitthvað annað." Tónlistin hefur ásótt þig? „Ég hef reynt að fást við aðra hluti en enda alltaf í tónlist aftur." Varstu ekki í hljómsveitum þegar þú varst unglingur? „Jú, ég var í hljómsveitum og á tímabili sótti ég mikið kvöld hjá Djassvakningu. En mér hefur alltaf leiðst að spila í hljómsveitum. Það sem hefur heillað mig er stúdíóvinnan og tæknin. Mér þykir gaman að vinna með fólki en best er ef meira hangir á spýtunni en bara tónlist og verkefiiið er í bók- menntalegu eða myndrænu samhengi. Kvikmyndin er því draumaform fyrir mig þar sem tónlist, texti, mynd, áferð og leiklist koma saman.“ Byrjaðirðu á hefðbundnum lagasmíðum? „Þegar ég horfi til baka þá hef ég alltaf haft meiri áhuga á þvi óhefðbundna. Ég er agalegt snobb í mér og þykir popptón- list forgengilegt fyrirbæri. Eins og orðið dægurlag ber með sér þá er slík tónlist hér í dag og farin á morgun. Ég vil sækja í einhveija hefð, hvort sem hún er klassísk, grísk eða tónlist Miðausturlanda. Ég vil leita út fyrir hið einfalda samhengi hlutanna. Ég vil búa til hijóð sem aldrei hafa heyrst áður og heyrast jafnvel aldrei aftur.“ Geltíð í púðluhundi nágrannans Hvemig var tónlistarlegi umhverfi þitt? Þú leitar að hljóð- um og hljóðfærum - af hveiju? „Ég veit það ekki. Ég ólst upp á hæðinni fyrir neðan Pál ís- ólfsson sem var kvæntur ömmusystur minni og ég var eins og heimilisköttur hjá þeim. Ég gekk með Páli í Dómkirkjuna og elst upp við hans tónlist. Bach er fyrsta ástin mín og til hans sæki ég alltaf. Ég sat með Páli á Stokkseyri og hlustaði á sinfóníu hafsins. Hann sagði mér að telja öldumar og hlusta á tónlist umhverfisins; tónlist vindsins og öldunnar." Stokkseyri, Álftanes ... Hvemig leið þér í Danmörku? „Ég bjó fyrst á eyjunni Mon sem er í eftirlíkingu af sjó, Eystrasaltinu, sem þó býr yfir öldugangi og öðrum öflum náttúrunnar. Þar er líka hrikalegasta náttúrufyrirbæri Dana: Mons Klint sem er eins og íslensk meðalþúfa. Það var mjög fínt að vera þar. Síðan bjó ég í úthverfi Kaupmannahafnar þar sem ég gat hlustað á þytinn í trjánum og geltið í púðlu- hundi nágrannans." Tónlistin þín er mjög náttúruleg, gæti verið lífrænt rækt- uð. „Þegar ég hugsa til baka er það dálítið þannig. Það kom mér mjög á óvart þegar ég gerði tónlist við mynd eftir Henn- ing Carlsen sem var byggð á Pan eftir Knut Hamsun að fleiri en einn gagnrýnandi sögðu að ég hefði greinilega sökkt mér ofan í Grieg og norska tónlistarhefð. Ég kannast ekki við það; Keith Emerson eyðilagði Grieg fyrir mér. Það er einhvers staðar sem hið myndræna umhverfist og fer yfir i tónlistina. Ég var upptekinn af norsku landslagi; fjörðum, fjöllum, eyj- um og skeijum á sama hátt og íslenskt landslag birtist í því sem ég geri.“ Einhveijar músur á kreiki Þú sagðist hafa reynt að flýja undan tónlistinni. Hvert flúð- irðu? „Ég hef af veikum mætti reynt að vera praktískur og það hefur mistekist herfilega. Það verður að segjast eins og er að ég hef smá-talent á sviði tónlistar en er vita talentlaus á flest- um öðrum sviðum. Ég verð bara að sætta mig við það og halda mig við tónlistina." Margir listamenn tala um hlutverk sitt og skyldur við list- ina. Hvemig litur þú á slíkar skilgreiningar? „Ég veit það ekki. Ég á mjög erfitt með að skilgreina mig sem listamann með ákveðið takmark. Ég held að fyrst og síð- ast sé það skylda mín að vera sjálfum mér trúr. Þau skipti sem ég hef bragðið út af þeirri leið hafa endaö með táram." Tónlistin þín er því mjög persónuleg. „Tónlistin mín á upphaf sitt og endi í mér sjálfúm. En auð- vitað eru einhveijar músur á kreiki og hlutir sem veita mér innblástur. Yfirleitt er það eitthvað sem kallast á við það sem býr í manni sjálfum. Og maður verður að passa sig á því að elta það. Það fer illa fyrir þeim sem svikja sjálfa sig. Þeir út- gefendur sem höfnuðu verki Roberts Graves, White Goddess, á furðulegum persónulegum forsendum enduðu á þvi að hengja sig úti í tré í kvenmannsnærfótum. Fyrirtækið sem var stofnað kringum útgáfu bókarinnar, Faber & Faber, hef- ur hins vegar blómstrað. Maður verður að passa sig á að vera góður við skáldagyðjuna og lofsyngja hana á réttan hátt.“ -sm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.