Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Side 54

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Side 54
5 -4- He Iqo rb lað JOV LAUGARDAGUR DESEMBER 2002 Töfrar bók erfrá 1975 og allt fram á haustið 2002. Aðalhöfundur er lllugi Jökulsson og útgefandi JPV útgáfa. Út er komið þriðja bindi Islands íaldanna rás. Tímabilið sem fjallað er um íþessari Þegar sýknudómur Hæstaréttar lá fyrir fagnaði Kio Briggs ákaflega og féll í faðm lögmanns síns, Helga Jóhannessonar, sem sat honum á hægri hönd. Kio Briggs þegar mál hans var tekið fyrir í Hæstarétti. inga með sér til að kosta dvöl sína á íslandi áður en hann fengi togarapláss sagði hann að íslenskir sjó- menn sem hann hefði hitt á Spáni hefðu tjáð sér að ekkert mál væri að fá skipsrúm á Islandi. Honum myndi duga að fara niður að höfn og fengi hann þá um- svifalaust bæði pláss á skipi og nægjanlegt skotsilfur upp í hendurnar. Lögreglan spurði þá hvers vegna hann hefði einungis verið með léttan sumarklæðnað í farangri sínum en engin skjólgóð fot. Kio Briggs sagð- ist þá alveg eins hafa átt von á því að þrátt fyrir allt myndi honum ekki líka vinnan, hann „yrði sjóveikur og þess háttar", eins og haft var eftir honum. Auk þess hefði sér skilist að sjómönnum væru útveguð hlífðar- fót. Fleira þótti nokkuð vafasamt og mótsagnakennt við framburð Kios Briggs. Hann sat því sem fastast í gæsluvaröhaldi og var ákærður í desember árið 1998 fyrir innflutning á e-töflum til íslands. Hinn 11. mars kvað svo Pétur Guðgeirsson héraðsdómari upp dóm í máli hans. Þá hafði hinn íslenski kunningi Kios Briggs komið til landsins og borið vitni. Sagðist hann ekki hafa átt neina aðild að málinu nema hvað hann hefði séð Kio Briggs búa um e-töflur í farangri sínum áður en hann hélt til íslands. Sem löghlýðnum borgara heföi sér borið skylda til að láta íslensku lögregluna vita. Pétur dómari kvað að vísu ótækt að byggja nokkuð á framburði þessa „vinar“ Kios Briggs þar sem augljóst væri að sá framburður mótaðist af vonum íslendings- ins um ívilnun hjá lögreglunni. En vegna óstöðugs og ótrúverðugs framburðar Kios Briggs og annarra aðila málsins þætti sannað að Bretinn hefði fullvel vitað að hann væri að flytja e-töflur til íslands. Var hann svo dæmdur í sjö ára fangelsi. Hæstiréttur dæmdi í málinu 20. mai. Fjórir dómarar af fimm töldu Pétur Guðgeirsson ekki hafa staðið rétt að málum i héraðsdómi. Þrátt fyrir að íslendingurinn hefði komið upp um Kio Briggs í þágu eigin hagsmuna hefði Pétri borið að taka afstöðu til framburðar hans en ekki einfaldlega víkja honum til hliðar. „[Fjram- burðurinn lýtur að atvikum, sem máli geta skipt um skýringu á atferli ákærða og þeim verknaði, sem hon- um er gefinn að sök. Telja verður ... að dómaranum hafi... borið að leggja mat á trúverðugleika og þýðingu framburðarins,“ sagði meirihluti Hæstaréttar. Var málinu svo vísað aftur til héraðsdóms. Einn dómari tók undir það að gallar hefðu verið á málsmeðferð í héraðsdómi en þeir hefðu ekki verið nægjanlegir til að ómerkja málið og því bæri Hæstarétti að taka málið til efnislegrar meðferðar. Meðan þessu fór fram fyrir dómstólum hafði Kio Briggs setið í fangelsi, lengst af á Litla-Hrauni, og stundað líkamsrækt af kappi. Nú vildi lögreglan halda honum þar áfram meðan mál hans færi aðra umferð í dómskerfinu og var farið fram á nýtt gæsluvarðhald yfir honum. Því var hafnað og ekki talin hætta á að hann styngi af úr landi áður en dómur félli. Hann hefði verið sviptur vegabréfi sínu og kæmist því hvergi. Var Bretinn því látinn laus. Breskur maður var þetta sumar einhver dáðasti sakamaður seinni tíma á íslandi. í héraðsdómi var hann dæmdur í sjö ára fangelsi fyrir smygl á e-töflum til landsins. Hann var síðar sýknaður í Hæstarétti en því miður endaði saga hans illa. Það var 1. september árið 1998 sem Kio Alexander Ayobambele Briggs var hand- tekinn í Leifsstöð þegar hann var að koma til landsins með sólarlandaflugi frá Spáni. í íþróttatösku sem hann bar með sér reyndist vera 2.031 e-tafla en neysla á því hættulega efni hafði auk- ist verulega meðal ungs fólks á ís- landi undanfarin ár. Kio Briggs harðneitaði að hafa vitað um töflurnar í töskunni og sagðist vera kominn til íslands til að leita sér að plássi á togara. Hélt hann því fyrst fram að ein- hver hlyti að hafa laumað töfl- unum í íþróttatöskuna þegar hann leit af henni um tiu mín- útna skeið í flugstöðinni á Benidorm á Spáni. Síðar upplýsti hann að á Benidorm hefði hann komist í kynni við íslending sem hefði aug- ljóslega stundað innflutning á fíkniefnum til íslands og gaf nú í skyn að sá maður hefði stungið e-töflunum í tösku hans. Sjálfur stóð Kio ætíö á því fastar en fótunum að hann hefði ekkert um töflurnar vitað. Þó kom í ljós að íslenski kunninginn hafði borgað fyrir hann flugfarið til íslands og þangað hélt hann með nánast ekkert fé á sér. Þá höfðu fundist i vasa á stuttbuxum í tösku hans teikningar af aðstæðum í komusalnum í Leifsstöð. Inn á teikningarnar var merkt hvar löggæslumenn hefðu aðsetur. En Kio Briggs stóð enn fastur á sínu og sagöist aldrei hafa séð þessar teikningar áður né heldur stutt- buxurnar. íslendingurinn hlyti að hafa laumað buxunum í töskuna án þess að hann tæki eftir. Málið var verulega einkennilegt vegna þess að það var einmitt þessi íslenski kunningi Kios Briggs sem hafði komið upp um hann. Dag- inn áður en Bretinn lagði af stað til íslands hringdi kunninginn frá Spáni í íslensku lögregluna og tilkynnti að Kio nokkur Briggs væri i þann veginn að leggja af stað til íslands með heilmik- ið af e-töflum í fórum sínum. í staðinn fyrir þessar upplýsingar vildi íslendingur- inn fá einhvers konar ívilnun af hálfu lög- reglunnar en hann átti þá yfir höfði sér ýms- ar ákærur fyrir fikniefnaviðskipti, sem hann hafði fengist við af miklum áhuga bæði fyrr og síðar. Lög- reglan mun ekki hafa viljað lofa manninum neinu að launum fyrir upplýsingarnar en tók sem sé með við- höfn á móti Kio Briggs. Lögreglunni þótti sú saga Kios Briggs heldur ótrúleg að hann hefði ekkert vitað um e-töflurnar og væri kominn til íslands að leita sér að togaraplássi. Er hann var spurður hví hann hefði ekki verið með neina pen-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.