Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Blaðsíða 68

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Blaðsíða 68
68 HeIqart>laö X>"Vr LAUGARDAGUR 14. DESEMBER 2002 Islendingaþættir Umsjón Kjartan Gunnar Kjartansson Siv Friðleifsdóttir umhverfisráðherra Björg Siv Juhlin Friðleifsdóttir umhverfisráðherra hefur verið í fréttum að undanförnu vegna málefa rjúpunnar og storksins Styrmis. Starfsferill Siv fæddist í Ósló 10.8. 1962. Hún lauk stúdentsprófi frá MR 1982 og BS.-prófi í sjúkraþjálfun frá HÍ 1986. Siv var sjúkraþjálfari hjá Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra 1986-88, starfaði sjálfstætt sem sjúkraþjálfari 1988-95, hefur verið alþm. Framsóknarflokksins í Reykjaneskjördæmi frá 1995 og er umhverfisráðherra frá 1999. Siv var ritari Skólafélags MR 1980-81, sat í ritstjórn Stúdentablaðs HÍ 1983-84, í stjórn Badmintonsam- bands íslands 1984-85 og frá 1997, sat í samstarfsnefnd Norræna félagsins og Æskulýðssambands Islands um skeið frá 1986, í sambandsstjórn Æskulýðssambands íslands 1988-90, i framkvæmdastjórn Norræna félags- ins frá 1989, í bæjarstjórn Seltjarnarness 1990-98. Hún var formaður SUF 1990-92, sat í framkvæmdastjórn Framsóknarflokksins 1990-92 og í landsstjórn og mið- stjórn flokksins frá 1990, í nefnd um velferð barna og unglinga 1992, var formaður byggingarnefndar nýs barnaspítala á Landspítalalóðinni, var formaður nefndar um aukinn hlut kvenna í stjórnmálum og for- maður nefndar um starfsmat til að minnka launamun kynjanna, var varaformaður heilbrigðisnefndar og fé- lagsmálanefndar Alþingis, sat í íslandsdeild Vestur- Evrópusambandsins 1995-99 og í Norðurlandaráði og jafnframt varaformaður Evrópunefndar Norður- landaráðs og í eftirlitsnefnd Norræna Fjárfestingar- bankans 1995-99. Siv var sjúkraþjálfari meistaraflokks karla í hand- knattleik hjá Víkingi um skeið. Hún keppti í badmin- ton um langt skeið, varð íslandsmeistari í tvíliðaleik í unglingaflokki og íslandsmeistari í tvenndarleik í A- flokki 1991 og 1999. Fjölskylda Maður Sivjar er Þorsteinn Húnbogason, f. 24.9.1960, viðskiptafræðingur. Hann er sonur Húnboga Þor- steinssonar, f. 11.10. 1934, ráðuneytisstjóra í félags- málaráðuneytinu, og Jónu Vilborgar Jónsdóttur, f. 5.8. 1942, húsmóður. Synir Þorsteins og Sivjar eru Húnbogi, f. 24.1. 1985, nemi; Hákon, f. 18.5. 1993. Alsystkini Sivjar eru Ingunn Mai, f. 31.5.1964, tann- læknir í Reykjavík; Árni, f. 25.5. 1968, lögreglumaður í Reykjavík;Friðleifur Kristinn, f. 30.3. 1970, deildar- stjóri hjá Islenskum sjávarafurðum hf. í Reykjavík. Hálfsystkini Sivjar, samfeðra, eru Hildur Kristín, f. 22.11. 1956, lögfræðingur; Stefán, f. 5.6. 1958, flugmað- ur hjá Atlanta, búsettur á Akureyri. Foreldrar Sivjar eru Friðleifur Kristinn Stefánsson, f. 23.7. 1933, tannlæknir í Reykjavík, og Björg Juhlin Árnadóttir, f. 23.6. 1939, B.A., B.Ed. og kennari. Ætt Friðleifur Kristinn er sonur Stefáns Jóns, verka- manns á Siglufirði, Friðleifssonar, útvegsb. á Lækjar- bakka og eins af stofnendum Framsóknarflokksins, Jóhannssonar, b. í Háagerði, Jónssonar. Móðir Frið- leifs var Kristín Friðleifsdóttir. Móðir Stefáns Jóns var Sigríður Elísabet Stefánsdóttir, b. í Hofsárkoti, Björnssonar og Önnu Jónsdóttur. Móðir Friðleifs var Sigurbjörg, systir Þórarins, vatnsveitustjóra á Siglu- firði. Sigurbjörg var dóttir Hjálmars, b. á Húsabakka í Aðaldal, Kristjánssonar, b. í Ystahvammi, Hjálmars- sonar, b. á Laugarhóli í Reykjadal, bróður Jóns, föður Kristjáns fjallaskálds. Hjálmar var sonur Kristjáns, b. í Krossdal, Jónssonar, bróður Jóns ríka á Mýri og Sig- urðar á Gautlöndum, föður Jóns, alþm. á Gautlönd- um, föður ráherranna Péturs og Kristjáns og Stein- grims alþm., afa ráðherranna Haralds Guðmundsson- ar og Steingríms Steinþórssonar forsætisráðherra og langafa Hjálmars Jónssonar alþm. Móðir Kristjáns í Ystahvammi var Sigurbjörg Þorgrímsdóttir, b. á Sveinsströnd, Jónssonar. Móðir Sigurbjargar var Halldóra Guðmundsdóttir. Móðir Halldóru var Ólöf Hallgrímsdóttir, systir Jóns, langafa Björns, afa Her- manns Jónassonar forsætisráðherra, föður Stein- grims, fyrrv. forsætisráðherra. Systir Ólafar var Ingi- björg, langamma Kristjáns, afa Jónasar frá Hriílu. Móðir Hjálmars á Húsabakka var Kristjana Ólína Guðmundsdóttir, b. í Sandfellshaga, Einarssonar. Móðir Sigurbjargar Hjálmarsdóttur var Kristrún Snorradóttir, b. á Geitafelli og eins af hvatamönnum að stofnun Kaupfélags Þingeyinga, Oddssonar, b. á Langavatni, Þórðarsonar. Móðir Snorra var Guðrún Snorradóttir, b. á Stórubrekku, bróður Vatnsenda- Rósu og Sigríðar, langömmu Sigurðar Nordals og Hilmar Þ. Björnsson húsasmíðameistari á Selfossi verður 60 ára í dag Hilmar Þ. Björnsson húsasmíðameistari, Álftarima 11, Selfossi, er sextugur í dag. Starfsferill Hilmar fæddist í Borgarnesi. Hann stundaði barna- skólanám í Laugarnesskólanum í Reykjavík og í Reyk- holti í Biskupstungum og var þá búsettur að Stóra- Fljóti. Hann lauk gagnfræðaprófi frá Héraðsskólanum á Skógum 1960, stundaði síðar nám við Iðnskólann á Selfossi, lærði húsasmíði hjá Guðmundi Sveinsson húsasmið, lauk sveinsprófi í þeirri grein og öðlaðist meistararéttindi. Hilmar starfaði á unglingsárunum í fimm sumur við skógrækt í Norðtunguskógi í Þverárhlíð og víðar undir stjórn Daníels Kristjánssonar frá Hreðavatni. Hann stofnaði verktakafyrirtækið Selós 1973, ásamt Stefáni Jónssyni og Skarphéðni Sveinssyni og hefur starfað hjá fyrirtækinu síðan. Hilmar er félagi í Kiwanisklúbbnum Búrfelli og var svæðisstjóri Sögusvæðis 1987-88. Hann var ritari Meistarafélags Suðurlands í nokkur ár og starfaði með slysavarnadeildinni Tryggva á Selfossi. Fjölskylda Hilmar kvæntist 31.12.1963 Guðrúnu Þorláksdóttur, f. 21.3. 1942, d. 20.9. 2001, starfaði lengst af á Sjúkra- húsi Suðurlands. Þau slitu samvistum 1991. Guðrún var dóttir Þorláks Bjömssonar, f. 1899, d. 1987, og Ingi- bjargar Indriðadótt- ur, f. 1910, d. 1995. Þau bjuggu að Eyjar- hólum í Mýrdal. Börn Hilmars og Guðrúnar eru Sölvi B. Hilmarsson, f. 22.4. 1963, matreiðslumað- ur, búsettur á Sel- fossi, en unnusta hans er Marjaana Hovi; Bjarki I. Hilmarsson, f. 13.5. 1966, matreiðslu- maður, búsettur í Kópavogi, en sambýliskona hans er Ingileif Eyleifsdóttir og eru synir þeirra Eyleifur Ing- þór, f. 20.1. 1995, og Arnþór Darri, f. 23.10. 1998, en fyr- ir átti Bjarki Hákon Atla, f. 12.12. 1991. Hálfbræður Hilmars, samfeðra, eru Pétur Hilmars- son, f. 1.10. 1947; Guðbrandur Gunnar Hilmarsson, f. 7.4. 1951. Hálfbróðir Hilmars, sammæðra, er Haukur Stefáns- son, f. 26.5. 1953. Uppeldissystkini Hilmars eru Þorsteinn; Aðalbjörg og Sigrún Stefánsbörn Þorsteinssonar. Foreldrar Hilmars voru Björn Finnbogason, f. 13.10. 1916, d. 15.4.1988, og Helga Þorkelsdóttir, f. 22.12. 1914, d. 31.7. 1977. Hilmar verður að heiman á afmælisdaginn. Jónasar Kristjánssonar læknis, afa Jónasar, fv. rit- stjóra DV. Snorri var sonur Guðmundar, b. i Forn- haga, Rögnvaldssonar og Guðrúnar Guðmundsdóttur, b. í Lönguhlíð, ívarssonar, bróður Björns, föður Hall- dórs, langafa Björns, afa Tryggva Þórhallssonar for- sætisráðherra. Foreldrar Bjargar Juhlin voru Arne Juhlin, verktaki í Asker og Nordstrand við Ósló, og k.h., Inger Marie Juhlin. Föðurætt Bjargar er frá Ilvs- borgs lán í Svíþjóð og hafa ættfeður aðallega verið prestar og kennarar. Móðurætt Bjargar er frá Halling- dal og hafa ættfeður verið bændur á bæjunum Harald- set, ofarlega í dalnum. Afmæli Laugard, 14. desember 95ÁRA Anna Kjartansdóttir, Torfnesi Hlíf 1, isafiröi. 80ÁRA Davíð B. Guönason, Álfheimum 62, Reykjavík. Steingeröur Pálmadóttir, Oddagötu 7, Akureyri. 75 ÁRA Ragna E. Samúelsson, Sólvallagötu 52, Reykjavík. Rósa S. Sigurjónsdóttir, Selbrekku 28, Kópavogi. ZOÁRA Gunnar J. Jónsson, Vesturströnd 21, Seltjarnarn. 60 ÁRA___________________ " Þorgils Axelsson, WnÍfSW Álfheimum 31, v 4JML Reykjavík. Kona . jiu hans er Guðlaug Magnúsdóttir. Þau taka á móti fjölskyldum, vinum, vinnufélög- um og St. Sandvíkur kósökk- um í þingsal 4, Hótel Loftleið- um, I dag kl. 17.00-19.00. Ástráður Hreiðarsson, Hofgörðum 26, Seltjarnarnesi. Guörún Jóhannsdóttir, Garðavegi 17, Hvammstanga. Sigurjóna Haraldsdóttir, Dalseli 31, Reykjavík. 50 ÁRA Birgir Sveinarsson, Ægisgötu 1, Akureyri. Helga Margrét Jónsdóttir, Hásteinsvegi 20, Vestm.eyjum. Kristín Birna Jakobsdóttir, Urriöakvísl 8, Reykjavík. 40ÁRA____________________ Ásta Baldvinsdóttir, Hringbraut 128e, Keflavík. Harpa Gunnarsdóttir, Brekkusmára 4, Kópavogi. Lovísa Bjórk Kristjánsdóttir, Byggöavegi lOlb, Akureyri. Margrét Ingiþórsdóttir, Faxabraut 35a, Keflavík. Selma Rut Magnúsdóttir, Kaplaskjólsvegi 54, Reykjavlk. Siguröur Gunnar Helgason, Hllðarvegi 16, Grundarfirði. Sigurlaug Linda Haröardóttir, Flögu 1, Kirkjubæjarklaustri. Valdís Guðmundsdóttir, Rauðási 12, Reykjavík. Sunnud. 15. desember 90 ára Ida Ingólfsdóttir, Snorrabraut 58, Reykjavlk. 80ÁRA____________________ Erna B. Árnadóttir, Dalshrauni 5, Hafnarfirði. 75 ÁRA Hjálmar Þorleifsson, Áshamri 31, Vestmannaeyjum. Ingólfur Kristjánsson, Breiðuvík 10, Reykjavík. Þorsteinn Guömundsson, Búðageröi 10, Reykjavlk. 70ÁRA Gunnar Jóhannesson, fyrrv. bóndi að Hömrum I Gríms- nesi, Fosstúni 21, Selfossi. Eiginkona hans er Kristín Carol Chadwick. Þau verða aö heiman. Ásdís Sigrún Magnúsdóttir, Austurbrún 6, Reykjavlk. Bóas Gunnarsson, Stuðlum, Reykjahllð. Guörún Hafliðadóttir, Litlagerði 2, Reykjavík. 60 ÁRA Aðalheiður Sæmundsdóttir, Nýbýlavegi 26, Hvolsvelli. Ásmundur Leifsson, Krummahólum 21, Reykjavík. Björg Kristín Jónsdóttir, Arnarási 7, Garðabæ. Guðrún Jónsdóttir, Hamragaröi 11, Keflavík. Jóhanna Gústafsdóttir, Hólmaseli, Selfossi. Óskar Kristinsson, Hraunbæ 102b, Reykjavík. Sigrún Jóhannsdóttir, Höfða, Isafiröi. Valgerður Siguröardóttir, Amartanga 81, Mosfellsbæ. 50 ÁRA Hrafnhildur Þorgeirsdóttir bókasafns- og upplýsingafræð- ingur verður 50 ára þ. 18.12. Af því tilefni verður hún heima I Kögurseli 22, ásamt fjölskyldu sinni, 14.12. kl. 20.00 og tekur þar fagnandi á móti vinum sínum, vandamönnum og velunnurum. Rannveig Stefánsdóttir, Skipholti 10, Reykjavík, verður 50 ára 16.12. Hún tekur á móti gestum I Hreyfllssalnum, Fellsmúla 26, 15.12. kl. 18.00-21.00. Fanney Ólafsdóttir, Borgarvík 16, Borgarnesi. Finnbogi Ingólfsson, Urriðakvísi 8, Reykjavlk. Garöar Óskarsson, Kirkjubraut 12, Njarðvlk. Guðmundur Þ. Óskarsson, Dælengi 12, Selfossi. Hinrik Ingi Jóhannesson, Raftahllð 13, Sauðárkróki. Hulda Bjarnadóttír, Eyjavöllum 5, Keflavík. Phimpha Saengrach, Hólalandi 12a, Stöövarfiröi. Samúel Ingimarsson, Efstaleiti 69, Keflavík. Þorbjörn Jóhann Sveinsson, Miðtúni 39, ísafirði. Þórarinn Óskarsson, Selvogsbraut 27, Þorlákshöfn. 40 ÁRA Armando A. Pereira Cabica, Álftahólum 6, Reykjavik. Gunnar Kjartansson, Hæðargerði 11, Reyðarfirði. Gunnar Sigurbjörn Auðunsson, Kirkjuvegi 57, Keflavik. Hrafnhildur S. Siguröardóttir, Skagabraut 23, Garði. Ingdís Líndal Jensdóttir, Fjallalind 5, Kópavogi. Jolanta Newel, Hjallavegi 5h, Njarðvík. Óli Fjalar Böövarsson, Suðurengi 18, Selfossi. Páll Guöjónsson, Mjóuhlíö 10, Reykjavík. Sveinbjörg R. Sumarliöadóttir, Egilsgötu 16, Reykjavík. Þór Bjarkar Lopez, Stigahlíð 59, Reykjavik.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.