Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2002, Qupperneq 70
70
// <3 ! cj a rb /a cJ DV
LAU GARDAGUR 14. DESEMBER 2002
Þetta er eitt af því
sem kylfingar nota
við eivum líka allt hitt
Golfkvlfur, Kegngalld, Golfsko, Barnakvlfur.
Kvltubursta, Kvrrur, Goltivvkur, Herrafatnaö,
Gjafakort, K'.cnnfatn.i(V fIðggateljara. F
Kylfuhlífar, Púltera. Burðarólar, Boltavv
KégnhHfar, Svampgolfboltar, Kuiluk
Vetrarhanskar, Goltboíta. Sokka, IVrhúfur. 1
lárnasvtt, Stuttbuxur, Drivcra Boltðtoskur,
B\ rjvndasett, Wedge. Chiþpcra, I’rjónahufur,
v.olfmvndboiid i'uttinottur. < lOlftnn.irit, \vtr
I lanska. SKbhorn, I’okahanúkLeúi. Kerrupoka,
Skúreiman Plastbolta. Storidpoka. Btmiarp'.
I cróapoka, Takka undtrskú, <. .olfarmbond, C!
Nvt. Skótöskur. Driving iron, Boltarór. ö*
l'úttvrhlifar .Witaúar kyÍfur, lúfvlueyðir, St
Skó.iburð, l’ólóboli, Vcstí, Peysur, íþróltatós
Hálf sett, Merktpenna, V'indblússur, ‘Ffir
KafmagU'.kerrur, Pútt’nolur, Urval at g;
Barnasett, Skorkortaveski o.fl. o.fl.
PIN VERSLUN
www.nevadabob.is
Opið til kl. 22:00 öll kvöld
Jackson líkar
ekki poppið
Popp-skrípið Michael Jackson segir
að sér líki ekki popptónlist og að hann
hlusti miklu frekar á klassísk verk.
Þetta kom fram í viðtali sem þýska
tímaritið Bunte átti við poppkónginn
þar sem hann var staddur á Bamba-
viðurkenningarhátíðinni í Berlín, ný-
búinn að sveifla bami sínu út um
hótelglugga með miklum tilþrifum.
Jackson hafði sést kaupa tvo klass-
íska diska í hljómplötuverslun í borg-
inni og sagðist sérstaklega hafa verið
að leita að slíkri tónlist. Það vakti at-
hygli að hann skyldi þora í bæinn án
lifvarða og hann sagði það ólýsanlega
tiifinningu að geta verið einn á ferð.
„Venjulega get ég ekki hreyft mig
án þess að hafa lífverðina með mér og
þess vegna var það frábært að geta
loksins komist út að versla einn síns
liðs eins og venjulegt fólk,“ sagði
Jackson.
Hann notaði tækifærið til þess að
kvarta yfir fjölmiðlafólki sem hafði
gert honum lífið leitt meðan hann
dvaldi á hótelinu. „Það var skelfilegt.
Michael Jackson
Jackon segist þrá friöinn.
Þeir krömdu okkur næstum því með
myndavélunum," sagði Jackson sem
sagðist þrá það að fá frið til að lifa
eðlilegu lífi og geta gengið um göturn-
ar án þess að verða fyrir áreiti. „Ég
man ekki hvenær ég fór síðast i stór-
markað," sagði Jackson.
REUTERSMYND
Kylie kroppur iðar á sviði
Englakroppurinn og söngkonan Kylie Minogue olli aödáendum sínum ekki
vonbrogöum þegar hún þeyttist um sviöiö á tónleikum í Bandaríkjunum.
Townshend að
missa heyrnina
Rokk-goðsögnin Pete Towns-
hend, liðsmaður rokksveitarinnar
The Who, er orðinn næstum því
heyrnarlaus eftir að hafa ofboðið
heym sinni á næstum 40 ára ferli.
Hann þjáist oft af óbærilegum
hlustarverk eftir að hafa komið
fram á hljómleikum og segir sjálf-
ur að ástandið hafa versnað til
muna eftir nýlega hljómleikaferð
um Bandaríkin.
„Hægra eyrað, sem meira hefur
mætt á vegna eigin gítarleiks, er
öllu verra, en stöðug „vélbyssu-
skothríð" trommanna hefur að
mínu mati valdið mestum skaða.
Ég veit ekki hvað hægt er að gera
í málinu en þetta veldur mér
miklum kvölum eftir tónleika,"
sagði Townshend sem orðinn er 57
ára.