Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2003, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2003, Page 9
LAUGARDAGUR 8. MARS 2003 9 DV Útlönd Sögusagnir um að tveir synir bin Ladens hafi verið handteknír Castro endurkjörinn Fidel Castro, sem hefur lengst allra þjóðarleiðtoga í heiminum setið á valdastóli, eða síð- an árið 1959, var í gær endurkjörinn forseti Kúbu til næstu fimm ára í leynilegri kosningu í kúbanska þjóðþinginu. Allir þingfulltrúar, 609 að tölu, gáfu Castro atkvæði sitt, en hann er nú að hefja sitt sjötta kjör- tímabil. Fæddurklukkan 3.33-03.03.03 Kona í Flórída í Bandríkjunum fæddi á mánudaginn 3. mars son sem samkvæmt því hlýtur kennitöl- una 03.03.03 og svo framvegis. Það þykir kannski ekki fréttnæmt þar sem mörg börn fæddust þennan sama dag, en að hann skyldi fæðast nákvæmlega klukkan 3.33 þykir með ólíkindum. Drengnum heilsast vel og er auðvitað þriðja bam for- eldra sinna. Flestír vildu Lula da Silva Samkvæmt nið- urstöðum nýrrar en furðulegrar skoðanakönnunar í Argentínu ná vin- sældir Lula da Silva, forseta Bras- ilíu, langt úr fyrir heimalandið. Sam- kvæmt umræddri könnun myndi Lula fara með sigur af hólmi í argentínsku forsetakosn- ingunum, sem fram fara 4. apríl nk., fengi hann að bjóða sig fram. Hann hlaut 56% í könnuninni á meðan enginn argentínsku fram- bjóðendanna náði 20% og þykir það hin mesta hneisa fyrir þá. Náðunarbeiðni Sirhans hafnað Bandarísk náðunamefnd hafnaði í gær beiðni Sirhans Sirhans, sem dæmdur var í ævilangt fangelsi fyr- ir morðið á Robert Kennedy árið 1968, um náðun og er það í tólfta skipti sem slíkri beiðni er hafnað. Beiðninni var hafnað á þeim for- sendum að hann væri hættulegur umhverfi sínu og að geðheilsa hans færi versanadi. Beiðni Sirhans um endurupptöku máls sín var einnig hafnað af hæstarétti í janúar sl. Bilun í hreyfli orsakaði slysið Yfirvöld í Alsír greindu frá því í gær að bilun í hreyfli hefði orsakað flugslysið þegar Boeing 737 farþega- þota frá alsírska ríkisflugfélaginu Alería fórst eftir flugtak frá Taman- rasset-flugvelli í Alsír á miðviku- daginn með þeim afleiðingum að 102 fórust. Einn farþeginn, alsírsk- ur hermaður, komst lífs af úr slys- inu sem er það mannskæðasta í sögu Alsírs. Samkvæmt óstaðfestum fréttum frá Pakistan voru tveir synir hryðjuverkaforingjans Osama bin Ladens, þeir Saad og Hamza bin Laden, handteknir í Ribat-héraði í Afganistan við landamæri Pakist- ans og íraks á fimmtudaginn, eftir að hafa særst í skotbardaga mihi bandarísk-afganskrar sérsveitar og liðsmanna al-Qaeda-samtakanna. Þetta kom fram í viðtali við Sar- dar Sanaullah Zehri, innanrikisráð- herra Baluchistan-héraðs í Pakistan, sem fullyrti að átökin hefðu átt sér stað innan landamæra Afganistans. Abdul Karim Barawi, héraðs- stjóri í Nimroz, sem nær yfir Ribat- héraö, sagði aftur á móti að ekkert væri að marka fréttimar og að þær væru uppspuni. „Sérsveitin er enn þá hér i Ribat og engar aðgerðir eru hafnar. Þeir Dauöur eða lifandi? hafa aðeins verið að kanna svæðið úr lofti. Bin Laden og liðsmenn hans eru Pakistansmegin við landa- mærin og þess vegna getur þetta ekki staðist," sagði Barawi. Samkvæmt fréttum frá Pakistan hafa hersveitir skipaðar pakistönsk- um hermönnum og bandariskum sérsveitarmönnum verið að leita liðsmanna al-Qaeda-samtakanna í fjalllendi Baluchistan-héraðs í Pak- istan við afgönsku landamærin síð- an al-Qaeda-foringinn Khalid Sheikh Mohammed var handtekinn um síðustu helgi en hann er talinn hafa veitt bandarískum leyniþjón- ustumönnum nýjar upplýsingar við yfirheyrslur. Hann mun ítrekað hafa haldið því fram að bin Laden sé enn á lífi og að þeir hafi hist á fundi fyrir rúmum mánuði í fjalla- héruðum Baluchistan þar sem hann fari nú huldu höfði undir vemdarvæng lifvarðarsveitar sem gæti hans dag og nótt. Bandarískir og pakistanskir emb- ættismenn báru þetta þó tO baka í gær og sögðu engar sannanir fyrir fundi hans með bin Laden. - sagði Hans Blix í skýrslu sinni til Öryggisráðsins í gær REUTERSMYND Kýpur-Tyrkir mótmæla Þúsundir Kýpur-Tyrkja gengu um götur miöborgar Nicosiu í gær til þess aö sína leiötoga sínum, Rauf Denktash, stuöning í andstööu hans viö sáttatillögu Sameinuöu þjóöanna um sameiningu þjóöarbrotanna á Kýpur. Noröur-Koreumenn fyrirskipa tímabundna lokun hafsvæðis Bandarísk stjórnvöld sögðu frá því í gær að Norður-Kóreumenn hefðu fyrirskipað tímabundna lokun á afmörkuðu hafsvæði á Japanshafi úti fyrir ströndum landsins, sem gæfi tO kynna að þeir ætluðu að gera tOraunir með sprengjuflaugar. Bannið mun ná yfir tímabOið 8. tO 11. mars og nær yfir nokkurn veginn sama svæði og þegar tilraunir voru gerðar með skips- varnarflaugar þann 25. febrúar sl. „Við höfum litlar áhyggjur af þessu en munum auðvitað fylgjast grannt með,“ sagði talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins í gær en spennan mOli ríkjanna jókst tO muna í síðustu viku þegar fjórar norður-kóreskar orrustuþotur eltu uppi bandaríska eftirlitisvél í alþjóðlegri lofthelgi yfir Japanshafi. Hans Blix, yfirmaður vopnaeftir- lits Sameinuðu þjóðanna, sagði í skýrslu sinni tO Öryggisráðsins í gær að það gæti tekið mánuði að sannreyna það hvort írakar hefðu farið að öOum kröfum Öryggisráðs- ins varðandi afvopnun. „Það mun ekki taka ár eða vikur, heldur mán- uði,“ sagði Blix. Hann sagði að írakar hefðu frá því í lok janúar aukið samstarf sitt við vopnaeftirlitið til muna eftir aukinn þrýsting frá alþjóðsamfélaginu og að eyðing al-Samoud stýriflauganna hefði verið mikilvægt skref. Þeir hefðu þó ekki að öOu leyti komið tO móts við kröfur vopnaeftirlitsins varðandi fuOa samvinnu og að mik- ið vantaði upp á að þeir hefðu lagt fram nægOeg gögn varðandi fyrri efnavopnabirgðir auk þess sem við- töl við vísindamenn þeirra hefu ekki gengið eftir eins og krafist var. Niðurstaðan væri því sú að ekki væri hægt að segja að þeir hafi sýnt Hans Blix flytur skýrslu sýna Hans Blix, yfirmaöur vopnaeftirlits SÞ í írak, sagöi aö írakar heföi ekki sýnt full- nægjandi samvinnu eins og krafist var í ályktuninni frá þvi í nóvember. fullnægjandi samvinnu eins og kraf- ist var í ályktuninni frá því í nóvem- ber. Mohammed ElBaradei, yfirmaður Alþjóða kjarnorkumálstofnunarinn- ar, flutti Öryggisráðinu einnig skýrslu og sagði að engar sannanir hefðu enn komið fram fyrir því að Irakar hefðu að undanfórnu unnið að þróun kjarnavopna. Viðbrögð Colins PoweOs, utanrík- isráðherra Bandaríkjanna, við skýrslu Blix voru þau að vopna- eftirlitið hefði aUs ekki skUað tUæU- uðum árangri og að írakar hefðu ekki sýnt þá samvinnu sem krafist var. Þeir hefðu þvert á móti stundað blekkingar og frekar reynt að bregða fæti fyrir vopnaeftirlitið og aðeins orðið við kröfum þegar þeir voru beittir þrýstingi. Dominique de VUlepin, utanríkis- ráðherra Frakka, var á öðru máli og sagði sagði aö sýnUegur árangur hefði orðið við vopnaeftrOitið. 2 fyrir 1 til 17. mars 19.550 frá kr. Fegursta borg Evrópu Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Prag þann 17. mars. Þú bókar 2 flugsæti, en Verð kr. 19.550* Flugsæti tii Prag, 17. mars, heim 20. mars. Almennt verð með sköttum. *Flug og skattar per mann m.v. að tveir ferðist saman. Verð kr. 3.900 greiðir aðeins fyrir 1 og getur kynnst þessari fegurstu borg Evrópu á einstökum kjörum. Þú getur valið um úrval góðra hótela í hjarta Prag og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra Heimsferða í Prag allan tímann. Verð fyrir mann, m.v. 2 í herbergi á Pyramida, per nótt m. morgunmat. Völ um góð 3 og 4 stjömu hótei. Ferðir til og frá flugvelli, kr. 1.800. Heimsferðir Munið Mastercard ferðaávísunina Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Gæd tekið mánuði að sannreyna að írak- ar hafi farið að kröfum SÞ um afvopnun

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.