Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2003, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2003, Blaðsíða 32
32 He lcj a rb la ö X>"Vr LAUGARDAGUR 8. MARS 2003 Söguleg stund í Höllinni I kvöld klukkan 21.00 fer fram mikill merkisatburður í Laugardalshöllinni þegar fyrsta hnefaleikakeppnin siðan 1956 verður haldin á íslandi. Tíu bardagar eru á dag- skránni í kvöld og þar af einn kvennabardagi ásamt því að keppt verður í muay thai og frjálsum bardaga. Því er ekki eingöngu um að ræða fyrstu hnefaleikakeppnina heldur líka fyrsta kvennabardagann og heldur hefur ekki áður verið keppt í muay thai og frjálsum bardaga á íslandi áð- ur. Það eru hnefaleikakappar frá Danmörku sem koma til með að mæta íslendingunum í Höllinni í kvöld og verður hart tekist á þar sem þessir bardagar fara á ferilsskrá hnefaleikakappanna. Undirbúningur staðið í tvo mánuði íslenska liðið er blanda af ungum keppendum, allt frá 18 ára aldri og upp í þrítugt. Þjálfarar íslenska liðsins eru Sigurjón Gunnsteinsson og Oscar Luis Justo en við höfð- um samband við Sigurjón og spurðum hann fyrst að því hveru lengi undirbúningurinn fyrir þessa keppni hefði staðið. „Beinn undirbúningur fyrir þessa keppni er búinn að standa í tvo mánuði. Liðið hefur verið að æfa tvisvar og stundum þrisvar á dag. Þau voru að æfa klukkan 6 á morgnana og svo aftur á kvöldin, og tvisvar í viku í hádeg- inu. Þannig að þetta er búið að vera alvöru æfingapró- gramm,“ sagði Sigurjón og segist jafnframt vera mjög ánægður með það hvernig undirbúningurinn hefur gengið og segir að allir ættu að vera í toppformi þegar stóra stundin rennur upp. Allt lagt undir Eins og áður segir hafa íslensku keppendurnir æft gríð- arlega vel fyrir þessa keppni en hvaða væntingar gerir þjálfarinn til kvöldsins? „Stefnan er að vinna að minnsta kosti helming bardag- anna og helst fleiri en Danirnir," segir Sigurjón en bendir þó á að það verði við ramman reip að draga þar sem Dan- irnir hafi meiri reynslu. „Danirnir eru búnir að keppa allt frá fimm upp í fimmt- án bardaga og hafa augljóst forskot þar en við munum reyna að taka það á hörkunni í staðinn. Það verður þó reynt að stilla bardögunum upp á jafnréttisgrundvelli," segir Sigurjón en hann segir jafnframt erfitt að meta styrk íslensku keppendanna þvi ómögulegt sé að spá í hvernig keppendurnir standast pressuna þegar þeir eru komnir í hringinn með fullt hús af áhorfendum. Þar hafi Danirnir vinninginn þar sem þeir hafi gengið þann veg áður og að jafnframt sé mikiö í húfi fyrir Islendingana þar sem þetta verða fyrstu bardagarnir sem þeir fái skráða á sinn feril. „Það er nú einfaldlega þannig að það er allt önnur pressa að vera í hringnum að keppa heldur en að standa í sama hring á æfingum. Hver einasti islenski keppandi er að fá sinn fyrsta skráða bardaga og geta alls ekki hugsað sér að tapa. Þannig að það verður allt lagt undir,“ sagði Sigurjón. Allir í Höllina Fyrir utan bardagana sem fram fara munu rapptónlist- armennirnir Móri og MC Messías skemmta áhorfendum á milli bardaga þannig að þetta verður mikil og söguleg sýn- ing sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Það er mik- il upplifun að fara og horfa á hnefaleikabardaga og svo veitir okkar fólki ekki af stuðningi gegn Dönunum. Fyrsti kvennabardaginn Það verður áhugavert að fylgjast með kvennabardaga kvöldsins þar sem hin íslenska Marta Jónsdóttir mætir dönsku stelpunni Rikke Tuxen Svendsen en kvennahnefa- leikar hafa ekki sést áður á íslandi. Marta er búin að æfa hnefaleika í átta mánuði og er gríðarlega efnileg. Hún er síöur en svo eina konan sem er að æfa hnefaleika á íslandi því konur hafa flykkst í æf- ingasalina undanfarna mánuði til þess að æfa hnefaleika. „Það er fullt af stelpum að æfa hnefaleika þessa dagana. Við erum með þrjú byrjendanámskeið og á þeim öllum eru fleiri stelpur en strákar þannig að það er mikill uppgang- ur hjá stelpunum í boxinu þessa dagana,“ sagði Sigurjón. Það er mikil eftirvænting fyrir bardaga Mörtu og Rikke og Sigurjón er bjartsýnn á að Marta geti velgt þeirri dönsku undir uggum. „Marta er svo mikil skapmanneskja. Það verður virki- lega spennandi að fylgjast með þessum bardaga," sagði Sigurjón. Árni „úr jámi“ keppir í muay thai Fyrir utan þá 8 hnefaleikabardaga sem fara fram verð- ur keppt í muay thai og frjálsum bardaga. í muay thai-' bardaganum mætir Árni „úr járni“ ísaksson Hoilendingn- um Fred Aardenburg en þess má geta að Árni keppti í þessari íþróttagrein í fyrsta skipti í London fyrir skömmu og rotaði þá andstæðing sinn á 48 sekúndum. Árni er Það verður hart tekist á í Laugarclalshöllinni í kvöld þegar Danirnir mæta íslensku víkingunum í fyrstu keppuisbardögunum á íslandi síðan 1956. DV-mynd Hari reyndar búinn að æfa íþróttagreinina í mörg ár og þykir mjög efnilegur. Muay thai er þjóðaríþrótt Tælendinga og mætti kalla hana sparkhnefaleika á íslensku. Keppendur mega bæði sparka og kýla í þessari íþróttagrein. Hún er að mörgu leyti svipuð og hnefaleikar þar sem keppt er eftir stiga- kerfi. Bardaginn stendur í tvisvar sinnum þrjár mínútur og til landsins kemur dómari frá Hollandi sem er þaulvan- ur í að dæma slíka bardaga. Þessi bardagi verður verulega áhugaverður en þó er vonandi að hann standi lengur en síðasti bardagi Árna. Sérstakur gestur keppninnar er Bob Schrijber sem hef- ur keppt rúmlega 130 sinnum í kickboxi, frjálsum bardaga og svokölluðum „cagefight" úti um allan heim. Hann er jafnframt fyrrum heimsmeistari í frjálsum bardaga. Með honum kemur kona hans, Irma Verhoeff, en hún hefur sjálf keppt 46 sinnum í frjálsum bardaga þannig að athygl- isvert par er þar á ferðinni. Hvað er frjáls bardagi? Það verður einmitt einnig keppt í frjálsum bardaga í kvöld og þar mætast Hollendingurinn Marco Merodio og Daninn Thomas Frederiksen. t þessari íþróttagrein geta júdómenn keppt gegn karatemönnum, karatemenn gegn taekwondomönnum og svo mætti lengi telja. í frjálsum bardaga eru einnig leyfð högg og spörk rétt eins og í muay thai. Það er þó gengið lengra í þessari grein því bardaginn getur lent í gólfinu og þar er leyfilegt að beita lásum og tökum. Keppnistíminn er tvisvar sinnum þrjár minútur. Þessi bardagi verður væntanlega mikil sýn- ing en þessir kappar hafa sýnt íþróttina úti um allan heim. -HBG Undirbúningur íslenska liðsins fyrir stóru stundina liefur staðið í tvo mánuði og það var góð stemning í liópn- um rétt fyrir hclgina eins og sjá iná á þessari rnynd. DV-mynd Hari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.