Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2003, Blaðsíða 38
38
// e { c) a rb> la ö I>V
LAUGARDAGUR ö. MARS 2003
Betri helmingur
Birgittu
/ ævintýrunum má stundum lesa um menn sem fá
hálft kónqsríkið og prinsessuna að auki. Þetta mætti
seqja um Jóhann Bachmann trommuleikara, eða
Hanna, eins oq hann er oftast kallaður, þi/íhann
trommar bæði íSkítamóral, sem nú hefur verið endur-
reistur, oq írafári sem er ein vinsælasta hljómsveit
landsins. Eins oq það sé ekki nóq þá er hann kærasti
Birqittu Haukdal, sönqkonu írafárs og væntanleqs
Eurovision-keppanda fyrir okkar hönd.
DV hitti einn af öfunduðustu mönnum Islands qfir
kaffi íSmáralind.
Jóhann Bachmann er trommuleikari. Hanni, eins og Jóhann er oftast
kallaður, sat bak við settið í hljómsveit sem hét og heitir Skítamórall
og er frá Selfossi. Sú hljómsveit átti sitt blómaskeið á árunum 1996-2000
og er sanngjarnt að segja að Skímó, eins og þeir voru yfirleitt kallaðir
hafi verið ein vinsælasta sveit landsins á þessum árum. Eftir að hljóm-
sveitin var sett í frí eins og stundum hendir vinsælar sveitir settist Jó-
hann fljótlega við trumbur sínar í hljómsveit sem heitir írafár og hef-
ur orðið nokkurs konar arftaki Skítamórals því fáar sveitir ef nokkur
skákar vinsældum írafárs um þessar mundir.
Skítamórall hefur nú verið endurreistur eða endurvakinn með það
fyrir augum að spila á takmörkuðum fjölda dansleikja eða tónleikum á
vori komanda og í haust. Ekki er að efa aö aðdáendur þeirra muni
fagna því og fjölmenna á samkomur þar sem þeir leika fyrir dansi rétt
eins og þeir gerðu þegar Skítamórall starfaði síðast. írafár mun einnig
starfa af krafti í sumar og þess vegna má segja með nokkrum rétti að
Jóhann muni tromma í tveimur vinsælustu hljómsveitum landsins í
sumar.
Hálft kóngsríki og prinsessu að auki
Eins og það sé ekki nóg er hann unnusti Birgittu Haukdal sem syng-
ur með írafári og verður fulltrúi íslands í Eurovision í Lettlandi í vor
með lagið Segðu mér allt eftir Hallgrím Óskarsson. Vinsældir Birgittu
eru gríðarlegar sem sást best í umtalaðri símakosningu í undankeppni
Eurovision þar sem hún fékk meira en 30% greiddra atkvæða. Birgitta
er eftirlæti allra og fyrirmynd ungra stúlkna um land allt.
Þetta hljómar sannarlega eins og Jóhann sé ofan á í lífinu og sé virki-
lega öfundsverður og geti varla óskað sér neins frekar.
Þegar blaðamaður DV hitti Jóhann á kaffihúsi í Smáralind var ösku-
dagur og þessi risavaxna verslunarmiðstöð löðrandi í börnum sem
voru uppáklædd í tilefni dagsins, máluð og skræpótt.
Þau voru á randi um öll gólf með sína troðnu sælgætispoka og stóöu
í röð fyrir framan þær verslanir sem ekki voru búnar að hengja upp
spjöld þar sem stóð: Allt nammi búið. Einhvern veginn held ég að þenn-
an dag hafi margt verslunarfólk heyrt meira af vondum söng en það
kærði sig um en þetta er nú bara einn dagur á ári.