Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2003, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2003, Síða 22
22 H&lgarblctcf 33V LAUGARDA.GUR S. MARS 2003 • • • ... ldkt í snyrtibudduna Brúnbleikt gloss „Þetta gloss er frá No name og er brúnbleikt á litinn. Ég nota svo að segja alla liti á varirnar, nema appelsínugulan. Hversdags er ég með gloss en ef ég er að fara eitthvað fínna, eins og í leikhús, þá set ég dumbrauðan lit á varirnar." Fyrir efri augnlínuna „Þessi brúni blýantur er svo vel notað- ur að ég hef ekki hugmynd um frá hvaða merki hann er. Ég var að fjárfesta i öðrum brúnum blýanti frá No name, en það er nauðsynlegt að eiga einn svona brún- an fyrir augnlínurnar." Burstinn bestur „Síðan ég byrjaði að ganga með mask- ara hef ég að mestu haldið mig við Helenu Rubinstein sem þykkir og lengir augnhárin. Ég hef prófað önnur merki en aldrei verið eins ánægð og með HR-maskarann. Ef ég hef prófað aðra maskara hef ég tekið burstann úr HR-maskaranum og notað hann, því burstinn er sérlega góður.“ Seiðandi og kvenlegur „Ilmvatnið Angel hefur verið mitt uppá- haldsilmvatn í fjögur ár. Það er sérlega kven- legt og seiðandi og ég nota það bara spari, spari og þegar ég vil lokka kærastann." í einu boxi „Þetta kinnalita- og augnskuggabox er úr versluninni L’occitane á Laugavegi. Ég á fleiri vörur frá þeim eins og bodylotion en þetta er æðisleg búð með alls konar bað- og snyrtivör- ur, ilmvötn og rakspíra." / dag kl. 14 verður boðið upp á ókeypis risa eróbikktíma íSporthósinu íKópavogi sem öllum er frjálst að mæta í. I Sporthúsinu vinnur m.a einkaþjálfarinn Anna Sigurðar- dóttir og á hún örugglega eftir að skoppa um á staðnum ídag. Anna tók vel íþað að leyfa okkur að hnýsast ísnyrtibudduna sína en þegar Ijósmyndari mætti á staðinn kom reyndar íIjós að hún á enga snyrtibuddu í þeirri merkingu orðsins heldur dró hún fram íþróttatösku með Nike-skóm og fþróttaföt- um, en íhliðarhólfinu var að finna gloss og maskara og annað málningardót. Halla Rut Sveinbjörnsdóttir og Sigrún Sæmundsdóttir, báðar snvrtifræðingar, bjóða upp á nýstárlega þjónustu á sviði snyrtingar auk þess að reka verslunina Zistak í verslunarmiðstöðinni Firði í Hafnarfirði. DV-mynd E.Ól Konur vilja láta dekra við sig Partýdekur nefnist fyrirbæri sem snyrtifræðinqarnir Halla Rut Sveinbjörnsdóttir og Sigrún Sæmundsdóttir bjóða nú íslenskum kon- um. Það felst íþvíað þær Halla Rut og Sigrún mæta einfaldlega á svæðið og dekra við konur - til dæmis með þvíbjóða vaxmeðferð, plokkun, litun og förðun. „Partýdekrið er hugmynd sem við fengum um síð- ustu jól. Við höfum um árabil stundaö það að snyrta vinkonuhópinn í kringum okkur - hvort sem við erum að fara út á lífið eða ekki. Þetta hafa verið skemmtileg- ar stundir og þess vegna datt okkur í hug að víkka hug- myndina svolítið út. Svo vitum við auðvitað að all- ar konur hafa gaman að því að láta dekra svo- lítið við sig,“ segir Halla Rut Svein- björnsdóttir snyrtifræðing- ur. Halla Rut rekur snyrtivöru- verslunina Zítaz í Firði í Hafnarfirði ásamt Sigrúnu Sæ- mundsdóttur. Þær Halla Rut og Sigrún eru framkvæmdaglaðar því hug- myndin var ekki fyrr sprottin en þær 'hófú að auglýsa „Partýdek- ur“ og segja þær viðtökumar hafa verið framar vonum. Aðspurð segir Halla Rut að Partýdekur geti falið margt í sér - allt eftir óskum hópsins hverju sinni. „I stuttu máli sagt þá mæt- um við á staðinn klyfjaðar því dóti sem þarf í hvert sinn. Stundum eru vinkonur að búa sig fyrir veislu eða dansleik. Þá sjáum við um fórðunina og getum útvegað hárgreiðslumeistara ef með þarf. Hópur- inn hittist oftast heima hjá einni og vinkonurnar geta haldið smáteiti um leiðsegir Halla Rut. Vaxmeöferð, plokkim, litun og naglaásetning eru auk þess meðal þeirrar þjónstu sem þær stöllur bjóða upp á - sem sagt eitt allsherjardekur. „Það kom okkur svolít- ið á óvart í upphafi þegar við vorum kallaðar í sumar- bústaði en það hefur færst nokkuð í vöxt. Það er kannski hópur af vinkonum sem ætlar að njóta lífsins og skemmta sér i sumarbústað eina helgi. Við höfum þá yfirleitt komið snemma á laugardeginum og veitt okkar þjónustu. Stelpurnar eru svo orðnar rosafmar og kátar um kvöldið." En það er ekki allt búið enn því auk Partýdekursins eru þær Halla Rut og Sigrún með annars konar dekur á sínum snærum. Þær fara á sjúkrahúsin og bjóða sjúklingum upp á alhliða snyrtingu. Þær segja þetta hafa gefið góða raun og konur á sjúkrahús- um séu ekkert öðru vísi en aðr- ar - þeim líði mörgum betur ef neglur og húð er í góðu ásigkomu- Engar áhyggjur lagi. Partýdekrið virðist komið til að vera hjá þeim Höllu Rut og Sig- rúnu en þær segjast ekki áður hafa heyrt af svipaðri þjónustu hérlendis. Þær einskorða hópana við fjórar til átta kon- ur í senn - og aðspurðar um kostnaðinn segja þær hann innan hæfilegra marka - enda sé veittur hópafsláttur og verðið metið í samræmi við mnfang snyrtingarinnar hverju sinni. Nánari upplýsingar um Partýdekur er hægt að fá í síma 555 1380. -aþ Konur þurfa ekki að stressa sig þegar partýdekrið er annars vegar enda koma snyrtifræðingarnir með allar græjur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.