Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2003, Blaðsíða 51
LAUCARDAGUR 8. MARS 2003
/ / e l c) a rh lci c) 30 V
55
gerðir sé ég engin sérstök
vandamál. Bílarnir verða bara
settir inn í giröingu eftir tíma-
tökurnar á sama hátt og eftir
keppnina. Þurfi að gera við þá
verða liðin að fá leyfi og síðan
verða viðgerðir framkæmdar
undir eftirliti skoðunar-
manna.“
- Nú á að taka í burtu allan
hjálparbúnað fyrir ökumenn í
keppninni á Silverstone og þar
á eftir. Hvernig heldur þú að
það gangi að fylgjast með fram-
gangi þessara reglna?
„Það verður ekkert erfiðara
að fylgjast með því en fyrir 2
árum þegar megnið af §am-
skiptunum við bílana voru
bönnuð. Það er auðveldara að
fylgjast með engum samskipum
en takmörkuðum samskiptum,
sérstaklega tölvusamskipum,
því að eftirlit með forritum er
mun erfiðara en á töluðu máli.“
- Hvað sýnist þér að gæti orð-
ið mesta vandamálið í fram-
kvæmd á nýjum reglum?
„Það er ekkert sérstakt,
svona fyrirfram, sem ég sé í
því. Reyndin er nú sú, að verði
um slíkt að ræða kemur það
ekki fram fyrr en farið verður
af stað. Starsmenn FIA, eins og
Charlie Whiting keppnisstjóri
og Jo Bauer yfirskoðunarmað-
ur, eru mjög reyndir og hafa
fjölda góðra manna með sér og
ég treysti þeim til að sinna eft-
irlitinu mjög vel. Síðan er alltaf
eftirlit liðanna sjálfra hvert
með öðru sem getur leitt af sér
kærur sem við dómararnir tök-
um á, þannig að ég held að
þetta sé nokkuð vel tryggt. Við
verðum bara að sjá til.“
Kappakstur snýst um
menn
- Hvaða reglubreyting finnst
þér vera áhugaverðust?
„Nýju tímatökurnar eru
áhugaverðastar og spennandi
að sjá hvernig liðin koma til
með að nýta sér þær. Ég held að
þetta nýja fyrirkomulag á tíma-
tökunum sé vel tilraunarinnar
virði. Þær voru orðnar hund-
leiðinlegar, þar sem ekkert var
að gerast fyrsta hálftímann í
hvorri fyrir sig.“
- Ertu sáttur við niðurstöð-
una og sérðu fyrir þér frekari
þróun á reglum í þessa átt?
„Ég er nokkuð sáttur við nið-
urstöðuna og tel að þær séu
mjög til bóta. Þetta á bæði við
um væntanlega meira spenn-
andi tímatökur og ekki síður
meiri keppni milli ökumanna í
staðinn fyrir keppni milli
tölvukubba og forrita.
Kappakstur snýst um keppni
manna, ekki tölva.“
- Hefur þú fengið boð um að
dæma einhverja keppni í ár?
„Nei, ég er ekki búin að fá út-
hlutaða keppni í ár. Ég dæmdi
á Silverstone í fyrra og það boð
kom ekki fyrr en í maí. Síðan
var ég beðinn um að dæma á
Hockenheim með 2ja daga fyrir-
vara eftir að einn dómari komst
ekki vegna dauðsfalls í fjöl-
skyldunni. Ég veit að fyrstu
tvær keppnirnar eru frágengn-
ar. Við erum 20 á lista yfir For-
múlu 1-dómara hjá FIA. 4 eru
fastadómarar sem dæma 4-5
sinnum hver og síðan er okkur
hinum skipað niður eftir þjóð-
erni fastadómaranna og land-
anna sem keppt er í. Það kemur
bara í ljós hvort og þá hvaða
keppni ég tek á þessu ári eða
hvort ég verð sendur í annað
eins og heimsmeistarakeppnina
í rallí eða Grand Touring, sem
getur alveg eins orðið. Það
skiptir mig í raun engu máli og
ég fer bara eftir þeim boðum
sem ég fæ frá Max Mosley og
FIA.“ -ÓSG
Fopmúlumolar
Reglubreytingar
Það voru reglubreytingar og um-
ræður um kostnað við Formúlu 1
sem bar hæst í Fl-umræðunni nú í
vetur. Sitt sýnist hverjum um ágæti
þeirra sem að lokum voru lagðar
fram. Flestir eru þó sammála um aö
þær séu til bóta og komi til með að
auka spennuna sem var með
minnsta móti á síðasta ári. Þeir Ron
Dennis hjá McLaren og Frank Willi-
ams eru hins vegar ekki aideilis sátt*
ir og ætla að fá hlutlausan aðila til
að skera úr um rétt FIA til þess að
ráðskast með Formúluna á þennan
hátt. Þeir segja FIA vera að draga úr
sérstöðu F1 og einfalda hana um of.
Hver fær krónumar?
Montezemolo, forseti Ferrari,
kvartaði undan því í október sl. að
of mikið af tekjum F1 rynni til
Bemie Ecclestone. Bemie, sem er
prímus mótor Formúlimnar, brást
ókvssða við og sagði réttast að for-
setinn tæki frekar til í sinum ranni
en að vera að gagnrýna hann. Ferr-
ari borgar Schumacher sem nemur
um 500.000 ísl. kr. á klst., hvort sem
heimsmeistarinn er vakandi eða
sofandi, í vinnu eða fríi. Launa-
greiðslur til Schumachers eru 15%
af heildarkostnaði Ferrari við út-
gerð Formúlu 1.
Formúlan í strandhögg
Ecclestone hyggur á landvinninga
þar sem hann vill ekkert frekar en
F1 öðhst vinsældir um veröld alla.
Fyrirhuguð er Fl-keppni í Moskvu
strax 2004 en sama ár lýkur gerð
brautar í Kína. Ecclestone hefur
sýnt mikinn áhuga á því að færa út
kvíamar og á döfmni er að halda
keppni í Báhrain Ihnan ekki svo
langs tima. 11 af 17 mótum ársins
hafa verið haldin í Evrópu en nú í ár
hverfúr Spa af dagatalinu og einung-
is 16 mót fara fram í þeirri álfu er
fóstrar öll Fl-liðin.Ý
Jagúar söðlar um
Jagúar verður með nýtt ökumann-
steymi nú í ár þar sem þeir Mark
Webber og Antonio Pizzonia - gjam-
an kailaður frumskógardrengurinn
- leysa þá de la Rosa og Eddie Irvine
af hólmi. Niki Lauda sagðist alsæll
með teymið og sagði þá skemmtilega
ólíka sem áreiðanlega myndi skila
sér í góðum árangri. Ekki leið á
löngu áður en Lauda sjálfur var lát-
inn fara en enn hefur ekki verið ráð-
inn liðsstjóri hjá Jagúar.
■ é
...þaö er augljóst
uismnPhis
+50% meira Ijós
Fynr ökumenn sem leggja mikla áherslu á
öryggisþáttinn i umferðinni og sækjast eftir
mikilli lýsingu.
Innnrsrlim
LongerLife perurnar höfða alveg sértaklega
til atvirmubflstjóra, t.d. ieigubílstjóra og
annarra sem aka mikið. Slíkir ökumenn aka
gffurlegar vegalengdir á hverju ári. LongerLife
perurnar eiga reyndar alveg sérstakt erindi
t il islenskra bíleigenda því hér á landi er ekió
með Ijósum allan daginn.
RlimUismn
fyrir ökumenn sem ekkt sætta sig við neitt
minna en allra nýjustu tækni. BlueVision
perurnar frá Philips veita bílum með halogen
perur alla kosti bjartrar dagsbirtu.
PHILIPS
RHIUPS
lÁttu/ljóiUttskm!
SKEIFUNNI 11 ■ SiMI 520 8000
BÍLDSHÖFÐA 16 • SÍMI 577 1300
DALSHRAUN113 • SÍMI 555 1019
SMIÐJUVEGI 68 ■ SÍMI 544 8800
EYRARVEGI 29 • SÍMI 483 1800
www.stilling.is
<
••<