Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2003, Qupperneq 52
-O; 56
HelQarblctð H>V
LAUGARDAGUR 8. MARS 2003
Bílasýningin í Genf er vorboð-
inn ljúfi í bílaheiminum og það er
óhætt að segja að það hafi verið
vor í lofti þegar DV-bílar voru þar
á dögunum. Sýningin er nú stærri
en áður enda búið að opna nýjan
sýningarsal sem jók við sýningar-
pláss um fjórðung. Allflestir bíla-
framleiðendur heimsins kynntu
þarna vortlskuna í bíium og bar
mest á tilraunabílum eins og oft
áður en líka voru fjölnotabílar og
flölskyldubílar áberandi,
Framúrstefnulegur Scénie II
Reunault frumsýndi tvo nýja
framleiðslubíla á bílasýningunni í
Genf sem báðir byggja að mestu á
hinu nýja útliti Megané II, Annar
. þeirra er sportútgáfa hans með
stáltoppi sem feila má ofan í þakið
en hinn er i raun önnur kynsióð
Scénic, Með honum segist Renault
vera að ná hagkvæmni flölnota-
bílsins í bíl sem keyrir eins og
fólksbíll. Scénic II er 80 mm lengri
en fyrirrennarinn og verður líkt
og hann aðeins seldur sem fimm
sæta fyrst um sinn en eftir nokkra
mánuði verður einnig boðið upp á
hann í sjö sæta útgáfu sem er sér-
stakt í þessum stærðarflokki. í
fimm sæta útgáfunni er fótarými
226 mm sem er það besta í sínum
flokki. Meðal nýs búnaðar í bíln-
um er sjálfvirkur stöðuhemill og
miðjustokkur sem hægt er að
renna til á sleða, auk Xenon aðal-
ljósa. Einnig verður boðið upp á
nýja gerð öryggispúða þegar sjö
sæta útgáfan kemur á markað en
það er púði sem komið er fyrir í
öryggisbeltunum. Sex vélar verða í
boði í bílnum, þrjár bensínvélar,
1,4 til tveggja lítra, og tvær 1,5 lítra
dísilvélar auk nýju 1,9 lítra dísil-
vélarinnar.
Alfa Romeo og Fiat áberandi
Alfa Rome frumsýndi nýjan
sportbíl í Genf sem er byggður á
Alfa 156 og fer á markaö seint á
þessu ári. Bíllinn var hannaður af
* Bertone hönnunarhúsinu og á að
uppfylla hugmyndir manna um al-
vöru kúpubak. Bertone á svo sem
stutt að sækja hæfileikana til að
hanna fallega Alfa Romeo-bila, bíla
eins og 1900, Giulietta, Giulia og
Alfetta. GT týpan er 4480 mm á
lengd, 1760 mm á breidd og aðeins
1390 mm á hæð sem ásamt verkleg-
um framenda með stórum loftinn-
tökum á stuðaranum skapa sport-
legt yfirbragð. Bíllinn mun fá vél-
ar frá 156 línunni, allt frá 1,8 lítra
vélinni upp í 250 hestafla V6 vél í
GTA-útgáfúnni. Alfa sýndi einnig
tilraunaútgáfu af jepplingi sem
vakti verðskuldaða athygli.
Fiat vakti nokkra athygli í Genf
fyrir tvo bíla sem nánast eru
Fjölnota Focus
Þessi fimm manna flölnota út-
gáfa Focus var fyrst sýndur sem
tilraunabíll á bílasýningunni í
París í fyrra en var nú frumsýnd-
ur í Genf í framleiðsluútgáfu
sinni. SamKvæiRí markaöskönn-
unum virðist ört stækkandi kaup-
endahópur flölnotabíia aðallega
sækjast eftir þremur atriðum,
rými, aksturseiginleikum á pari
við aðra fólksbíla og útliti sem aö-
eins er fært í stilinn. Að sögn
hönnuða hans uppfyilir Focus G-
Max öll þessi skilyrði. Bíllinn er
byggöur á undirvagni næstu kyn-
slóðar Ford Focus en margt í útliti
hans minnir þó á linur sem núver-
andl Focus hefur, Bíllinn er bæði
hærri og breiðari en núverandi
Focus og hefur líka meira hjólhaf.
Þrátt fyrir það er stífleiki yfirbygg-
ingarinnar 10% meiri og vindstuð-
ull hans lægri eða aðeins 0,29 Cd.
Það sem vekur mesta athygli inn-
andyra er aftursætaröðin. Hægt er
að ýta miðsætinu alveg aftur í far-
angursrýmið og hin tvö sætin er
hægt að færa bæði fram og aftur.
Meira að segja er hægt að færa
þau nær miðjunni til að skapa
þægilegt pláss þegar aðeins flórir
eru að nota bílinn. C-Max verður
fáaniegur með tveimur vélum til
að byrja með, 1,8 lítra 118 hestafla
bensínvéi og 133 hestafla, tveggja
lítra Duratorque dísilvél.
Peugeot Hoggar og 307 CC
Hinn óvenjulegi Hoggar til-
raunabíll þeirra Peugeot-manna
vakti mikla athygli gesta á bíla-
sýningunni í Genf. Þetta er algjör-
lega opinn, tveggja sæta bíll sem
ver lítið farþega sína fyrir vatni og
veðrum. Hann er tæpir flórir metr-
ar á lengd og tveir á breidd svo að
hann minnir mjög mikið á
„Buggy“-bíl í útliti. Það sem er sér-
stakt við bílinn er að hann er með
tveimur Hdi dísilvélum með FAP
agnasíum og knýr önnur framhjól-
in en hin afturhjólin. Samtals
skila þær góðu afli, 360 hestöflum
og 800 Nm af togi. Hurðimar, ef
hurðir má kalla, eru vængjahurð-
ir. Innréttingin er blanda leðurs og
áls og í mælaborðinu eru auðvitað
tveir snúningshraðamælar. Leið-
sögukerfi er stjómað með snert-
iskjá sem einnig er tengdur við PC
tölvu sem inniheldur MP3 spilara.
í París í fyrra vakti opin til-
raunaútgáfa Peugeot 307 mikla at-
hygli og það þurfti því ekki mikla
spádómsgáfu til að sjá fýrir frum-
sýningu á framleiðsluútgáfu hans í
Genf þar sem flestir opnu bílamir
eru sýndir fyrir sumarið. Bíllinn
er dálítið óvenjulegur fyrir langa,
aftursveigða framrúðuna sem set-
ur sérstakan hliðarsvip á bílinn.
Afturljósin eru díóðuljós sem
kviknar eldsnöggt á og eiga að
endast líftíma bílsins. Bíllinn opn-
ar eða lokar stálþakinu og læsir
því á aðeins 25 sekúndum með því
einu að ýta á einn takka, þökk sé
fullkomnum tölvubúnaði bíla í
dag. Skynjarar nema höndina á
hurðarhandfanginu áður en hún
opnar hurðina og þeir kveikja á
búnaði sem dregur rúöumar niður
um nokkra millímetra til að auð-
velda opnun hurðanna. Einn takki
getur líka opnað alla gluggana
samtímis. Meira rými er í 307 CC
heldur en litla bróðir hans, 206 CC,
en sætin eru 40 mm neðar en í
hlaðbaknum. Aftursætin eru 80
mm framar til að hægt sé að koma
fyrir veltibogum sem skjótast upp
ef bíllinn veltur. -NG
Nissan Evalia er stúdía um fjölnota þægindavagn en einnig um útlit
næstu kynslóða Nissan-bíla, meðal annars Almera.
Opel Signum er bíll í nýjum stærðarflokki að mati þeirra Opel-manna en
hann er stór fjölskyldubíll með áherslu á þægindi og fjölnotnmöguleika.
Peugeot Hoggar er sértakur tilraunnbill frá Peugeot en hann er með tveiinur dísilvélum og fjórhjóladrifi.
DV-myndir NG
komnir í endanlega útgáfu sína.
Bílarnir eru 169, sem er væntan-
legur arftaki Fiat Panda og
Seicento, og 350 sem er flölnotabíll
sem fer á markað í Evrópu fyrir
áramót. Fiat 169 er kannski smá-
bíll í málum en hann er samt með
þægindi stærri bíla og minnir að
nokkru á litinn flölnotabíl. Bíllinn
er aðeins 3540 mm á lengd og 1580
mm á breidd en tekur flóra til
fimm farþega. Hann er líka meö
eitt stærsta farangursrýmið í þess-
um flokki smábíla, yfir 200 lítra,
og er meö mesta plássið fyrir far-
þega sína. Fyrst mun koma fimm
dyra útgáfa en vænta má flögurra
dyra útgáfu á næsta ári.
Fiat 350 er stærri bíll en 169 en
blandar saman líkt og hann akst-
urseiginleikum og flölnota hag-
kvæmni. Hann er tæpir flórir
metrar á lengd og 1700 mm á
breidd og keppir því við flölnota
bíla eins og Opel Meriva og Ford
Fusion á ört stækkandi markaði.
Hönnuðir Fita segja hann höfða til
þeirra sem eru að kaupa bíl í
fyrsta skipti og eru því opnari fyr-
ir nýjungum. Hann verður vel bú-
inn og má þar nefiia tvöfalda loft-
ræstingu, sex öryggispúöa og val-
skiptingu. Mælaborðið er með
mælana fyrir miöju og inniheldur
tvöfalt hanskahólf auk fleiri hólfa.
Hægt er að stilla halla aftursæt-
anna um ailt að 45° og fella fram-
sæti fram til að búa til borð. Vél-
arnar verða 1,2 til 1,4 lítra bensín-
vélar auk 1,9 lítra Multijet dísilvél.
Opel Signum frumsýndur
Einn athyglisverðasti bíllinn í
Genf var eflaust Opel Signum sem
sýndur var í sinni endanlegu út-
gáfu. Bíllinn brýtur blað í því
hvemig flokka á bíla, með óvenju
miklu hjólahafi og langri yfirbygg-
ingu sem sameina á góða akst-
urseiginleika, flölnota möguleika
og mikil þægindi fyrir farþega
sína. Aftursætaröðin er sér á parti
en hægt er að renna endasætunum
aftur um allt að 130 mm. Sætisbök-
in má stilla um allt að 30° til meiri
þæginda. Þetta er gert mögulegt
með hjólahafi sem er 130 mm
lengra en í Opel Vectra, þrátt fyrir
það að bíllinn sjálfur sé aðeins 40
mm lengri. Hvorki meira né
minna en sjö vélar verða i boði,
flórar bensínvélar frá 100 upp í 211
hestöfl og þijár dísilvélar, sú
stærsta þriggja lítra V6 vél. Stærri
vélamar verða með sex gíra bein-
skiptum kassa eða fimm þrepa val-
skiptingu. Bíllinn verður boðinn í
þremur útgáfum: Elegance, Sport
og Cosmo, og kemur á markað í
maí í Evrópu.
Líkt og Nissan frumsýndi Opel
sportlegan hlaðbak sem gefa á inn-
sýn í útlit næstu kynslóðar Opel
Astra. Bíllinn er kallaður GTC
Genéve og stendur það fyrir Gran
Turismo Compact. Líkt og annars
staðar í þessum flokki er sportlegt
útlit í fyrirrúmi núna en hönnuðir
hans hafa líka leyft sér hluti sem
við eigum líklega ekki eftir að sjá
í framleiðslubílnum. Má þar nefha
lágan prófilinn (1352 mm) og
reyklitað glerþak. Bíllinn er flög-
urra sæta og innréttingin er búin
brúnu leðri og er möttsvört þess á
milli. Hún er líka rúin öllu nema
nauðsynlegasta rafbúnaði til að
einfalda heildarútlitið.
Evrópufrumsýning Nubira
Daewoo Nubira kemur til lands-
ins í sumar í nýrri útgáfu sem var
sýnd í Genf á dögunum. Ný Nu-
bira er hönnuö af Pinifarina og
fljótlega getum við átt von á bæði
hlaðbaks- og langbaksútgáfum.
Bíllinn er annar nýi bíllinn á
markað eftir endurfæðingu Da-
ewoo undir verndarvæng GM. Líkt
og undanfarið er hann byggður á
hógværri hönnun með evrópsku
yfirbragði og mun verðlagning
hans líklega verða jafnhógvær
líka. Einnig gaf að líta í bás Da-
ewoo tilraunaútgáfu þeirra af jepp-
lingi sem komið gæti á markað
fljótlega.
Nissan Evalia tílraunabíllinn
Meðal þeirra tilraunabíla sem
frumsýndir voru á bílasýningunni
í Genf var Nissan Evalia en meö
honum skyggnumst við inn í hugs-
anlegt útlit næstu bíla Nissan, þar
á meðal Almera. Hönnunin er
blanda af línum sportbíls saman
við hagkvæmni hlaðbaksins og
kemur frá nýju hönnunarhúsi
Nissan í Evrópu, nánar tiltekið í
London. Langflestir bOaframleið-
endur í Asíu hafa nú hannað bíla
sina að undanfomu i Evrópu tU að
mæta betur þörfum kaupenda þar
og verður ný Almera engin undan-
tekning á því. Það sem er óvenju-
legt við þessa tflraunaútgáfu eru
vængjahurðir og vöntun á B-bita,
sem tryggja gott aðgengi að rúm-
góðu farþegarýminu. Hvort það
nær í framleiðslu er frekar ólík-
legt en líklegra er að gott rými
blandaö sportlegum undirvagni
haldi sér.