Dagblaðið - 04.12.1978, Page 8
8
DAGBLADIÐ, MÁNUDAGUR 4. DESEMBER 1978.
Allir voru beztir
á Jólakonsert 78
Þegar kom að kunnuglegum lögum, sungu hljómleikagestir fullum hálsi, en fengu sér bara ópal þess á milli.
DB myndir: Ragnar Th. Sigurðsson.
Sérstakur gestur Jólakonserts '78 var Magnús Magnússon heilbrigðisráðherra,
sem lætur þarna fara vel um sig i glöðum hópi. Kynnir hljómleikanna, Þorgeir
Ástvaldsson komst svo að orði að hann vonaði að nærvera ráðherrans væri
staðfesting á þvi að hann væri hlynntur þvi málefni, sem verið væri að styrkja.
—Heilbrigðis
ráðherra var
meðalgesta
„Ruth Reginalds og Brunaliðið voru
bezt — og Halli og Laddi líka. . . Það
voru allir beztir,” trúði lítil stúlka móður
sinni fyrir að loknum hljómleikum
Hljómplötuútgáfunnar hf. og fleiri í
gærdag. Á þá var boöið vistmönnum um
þrjátíu stofnana á Reykjavíkursvæðinu,
sem hýsa fatlað fólk, andlega og likam-
lega. Húsfyllir var.
Tugir listamanna á öllum aldri
skemmtu á tæplega tveggja tíma löngum
konsert. Allir gáfu þeir vinnu sína og
sömuleiðis skemmtu þeir án launa á
öðrum hljómleikum í gærkvöld. Þar var
selt inn á 3.500 krónur. Ágóði kvöld-
hljómleikanna rennur óskiptur til stofn-
sjóðs meðferðarheimilis fyrir geðveik
börn.
Meðal gesta á hljómleikunum, sem
nefnist Jólakonsert ’78 var Magnús
Magnússon heilbrigðisráðherra. Kynnir-
inn, Þorgeir Ástvaldsson, kvaðst vona
að nærvera hans væri staðfesting á þvi
að ráðherrann væri hlynntur þvi
málefni, sem verið væri að styrkja.
Væntanlega hefur Þorgeir einnig haft i
huga að vonandi beitti Magnús Magnús-
son sér fyrir því að opinber gjöld, sem
inna þarf að hendi af miðasölu, yrðu
felld niður og ágóðinn með þvi gerður
tugum prósenta stærri.
Alls komu um hundrað manns nálægt
þessu hljómleikahaldi, ýmist sem starfs-
menn eða skemintikraftar. Meðal þeirra
sem fram komu voru bræðurnir Halli og
Laddi, Björgvin Halldórsson, Ruth
Reginalds, tuttugu félagar úr Karlakór
Reykjavíkur, Kór öldutúnsskóla og
fleiri. Hljómsveitin Brunaliðið lék undir
i öllum atriðunum.
í lok hljómleikanna gekk allur hópur-
inn, sem fram kom, út i salinn með kerti
í höndum og söng Heims um ból ásamt
samkomugestum, sem tóku rösklega
undir. -ÁT.
Skálatúnsstrákurinn hann Gústi (lengst til hægri á myndinni) sat við einn af
inngöngum Háskólabiós og kastaði kveðju á alla vini og kunningja, sem framhjá
gengu. Hann sat i hjólastól að þessu sinni, enda með gifshlunk um fótinn. Hann
hafði að sögn verið skorinn nýlega i fótinn, en varnú tekinn að gróa sára sinna.
Fjöldi fólks i hjólastólum kom til að
skemmta sér á Jólakonsert’78.
Hér er einn af yngri kynslóðinni.
Það fór ekki á milli mála, hver var vinsælasti skemmtikrafturínn á Jólakonsert
'78 númer eitt. Ruth Reginalds átti hug og hjörtu allra i salnum.
r w
Hefur þú tekið þátt í
LJOMA samkeppninni?