Dagblaðið - 04.12.1978, Síða 19
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR4. DESEMBER 1978.
19
pwm 'í &
llJZEZL^ihh
T"
Bræðraborgarstíg 16 Slml 12923-19156
David Morrell
Síðasta
herförin
Mexíkanskur skæruliöaforingi og upp-
reisnarseggur rænir bandaríska landa-
mærastöð. Bandaríkjamenn gera út refsi-
Jeiðangur á hendur honum, gegn vilja
mexíkanskra yfirvalda. Það er engin misk-
unn í Síðustu herförinni eftir höfund bók-
anna í greipum dauðans og Angist sem
seidúst upp jafnskjótt og þær komu út.
Síðasta herförin hefur af bandarískum
gagnrýnanda verið kölluð langbesta verk
Morrells.
SÍÐASTA HERFÖRIN
DAVID MORRELL
Banvænn
farmur
Okkur er hrint inn í æsilegustu atburði
síðasta áratugs, þar sem samviskulausir
ofstækismenn hafa tekiö gerlavopn í
þjónustu sína. Kaupskip klýfur öldur Mið-
jaröarhafsins hlaðið átta þúsund tonnum
af eitri. Atburðarásin veldur andköfum hjá
lesandanum. í Banvænum farmi er líf
heillar þjóðar lagt að veði og áhættan er
eftir því.
Brian Callison varð víöfrægur fyrir bók
sína Hin feigu skip. Menn veltu því fyrir
sér hvort honum tækist aö skrifa aðra bók
sem jafnaðist á við hana. Honum tókst
það. Og miklu meira en það.
MacLean Svartagull
Á vissum stöðum og hjá vissu fólki var nafnió Sænornin
mjög illa séð. En aö langmestu leyti beindist andúöin að
Worth nokkrum lávarði og milljónamæringi, sem var eig-
andi olíuborpallsins Sænornarinnar...
Æsispennandi skáldsaga um átök og spillingu í fjármála-
heiminum — átök sem kunna aó kosta líf milljóna. Hér er
barist um auö og völd — og engum hlíft. Höfundurinn,
Alistair MacLean, kann þá list að halda lesandanum í
spennu fram á síðustu blaðsíóu — og taugum lesandans
er ekki heldur hlíft í þessari bók hans, sem er ein sú
magnaðasta sem hann hefur látið frá sér fara.
Brian Callison
METSOLU
HOFUNDAR
George Lucas
Stjörnustríð
Logi geimgengill ögraði stormsveitar-
mönnum fjarlægs stjörnukerfis í hættu-
legri sendiför — þar sem lífsmáttur varð
að dauðaorku. Með hugrekki sitt eitt að
vopni ásamt geislasverði því, sem verið
hafði í eigu föður hans, lendir Logi í
grimmilegasta geimstríói, sem háð hefur
verið — og á þá í höggi við öflugasta virki
fjandmannanna, Helstirnið.
Óstytt útgáfa — engu sleppt og engar
endursagnir. Æsilegasta vísindaskáld-
saga sem samin hefur verið.
Hammond Innes
Gulldíki
Gulldíki gerist í Ástralíu. Gjaldþrota
breskur námuverkfræðingur á flótta
undan réttvísinni kemst á snoðir um
gamla gullnámu. Spennan í sögunni
magnast stig af stigi um leið og atburðir
fortíðarinnar skýrast. Gullþorsti. Nikkel-
æði. Og græögin nær yfirhöndinni. Fáum
höfundum er eins lagið og Hammond
Innes að gefa sannfærandi lýsingar af
staðháttum og atburðum í sögum sínum.
Gulldíki hefur til að bera alla kosti þessa
vel metna höfundar.