Dagblaðið - 04.12.1978, Síða 37

Dagblaðið - 04.12.1978, Síða 37
41 \ DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 4. DESEMBER 1978. og hét leiðarsteinn. I bókum frá 11. öld er sagt, að hann sé þá til á Norður- löndum, svo kannski hafa þeir þekkt hann, Ingólfur. Skallagrimur og allt það lið. „Ég er alveg sannfærður um að þeir stýrimenn, sem svo víða eru nefndir i Íslendingasögum, hafa haft einhvers konar áttavita,” segir Konráð. „Þeir hafa verið siglingafræðingar. Og árið 1187 er hann kunnur á Niðurlöndum, þá skrifar albanskur munkur um hann. Annars þýðir ekk- ert að spyrja mig um neitt, ég er sodd- an bölvaður blöðruselur og gleymi helmingnum af öllu og verst er, að ég veit af því, en bráðum gerir það ekkert til, því þá verð ég orðinn svo kalkaður að ég tek ekkert eftir því og þá verður mér alveg sama.” Sé hann búinn að gleyma helmingn- um af öllu, þá hefur hann kunnað mikið fyrir sér áður þvi hann er sjór af fróðleik um allt mögulegt og meðal annars kann hann að ættfæra stjörn- urnar á himninum til grískra guða og veit allt um 'nver elskaði hverja. Hann segir frá Dönu, sem var lokuð inni til að forða henni frá karlmönn- um, en Seifur, sem engan kvenmann gat séð í friði, breytti sér i gullið regn og lak inn til hennar og átti með henni Hann lætur litið yfir því að þetta hafi verið nokkuð hættulegt. Einu sinni fréttist þó að þýzkur kafbátur mundi vera í sundunum. Ársæll var þá að leiðrétta enskan togara með hern- aðarútbúnaði. Hann var sendur undir þiljur, en togarinn lónaði um og lét djúpsprengjurnar falla. „En ég held þetta hafi bara verið gabbogenginn kafbátur þarna. Annað skipti var ég að leiðrétta enskt fragtskip fyrir utan Gróttu — við urðum oftast að fara þangað til að losna við truflanir frá skipunum á höfninni — þegar skeyti barst með fyrirmælum þess efnis að skipið ætti að koma upp í Hvalfjörð og liggja þar um nóttina. Ég og lóðsinn, sem var ►► Á viðgerðaverkstæðinu eru hin dular- fyllstu tól og tæki og þarna er kompásasmiðurinn niðursokkinn í iðju sína, við rennibekkinn. Sjáið okkur jóla- fötunum Laugavegi 66 • Sími 12815 PTRIR BÖRN: Rósótt pífupils m/undirpilsi Einlit krumpflauelspiis m/pífu Velúrkjólar og mussur Axlabandabuxur, flauel og tweed Úrval af peysum, vestum og bolum Kuldaúlpur og skíðagallar Nærföt og náttföt Verið velkomin til viðskipta Póstsendum OG ÞAR MEÐ STÓRAUKIÐ VÖRUÚRVAL soninn Perseif sem seinna varð að stjörnu og tindrar nú á himninum. Konráð er mikið til sjálfmenntaður. Á sínum tíma var hann í Flensborg. Hann er nefnilega innfæddur Gaflari. „Hafnfirðingar voru kallaðir þetta, þvi i staðinn fyrir að fara til rakarans stóðu þeir undir húsgöflum og lugu hver i annan.” Hann las Stýrimannaskólann utan- skóla, úti á sjó, þangað til veikindi ráku hann í land, og fór síðan eitt sumar til Englands og lærði á kompása hjá John Lilley. Það var 1928. Nokkrum árum seinna, þegar Jónas frá Hriflu stýrði Menningarsjóði, datt honum i hug að fá utanfararstyrk til frekara náms. En Jónas vildi ekkert styrkja nema hey og blómarækt. Svo Konráð endaði í hornafræði (trigono- metríu) á sunnudagsmorgnum hjá Sigurkarli Stefánssyni menntaskóla- kennara og lærði eðlisfræði af sjálfum sér. „Barentshafið er grunnt, flóðið I þvi og fjaran tefja jörðina á snúningi meira en nokkurt annað haf. Þó leng- ist sólarhringurinn ekki meira við töfina en eina sekúndu á 120 árum," segir hann mér. Stríðsárin „Ég er enginn striðsmaður, hef aldrei snert á byssu siðan ég sem strákur reyndi að skjóta kind — en hún stóð jafnrétt eftir, ég hafði hitt í homið. Jú, það var oft mikið að gera. Loks gat ég ekki einu sinni tekið mér fri á föstudaginn langa, sem ég ætlaði þó endilega að halda heilagan. Þjóðverjar settu seguldufl á grunn- slóðir og þegar járnskip fóru framhjá þá lyftist einhver takki og setti sprengjuna i samband. Við þessu fundu Englendingarnir það ráð að setja rafmagnsþræði um allt skipið og afsegulmagna það til þess að duflið virkaði ekki. En aðallega var það Ársæll kafari, sem lagði þessa vira. Ég var mest í leið- réttingunum.” enskur, urðum að fara með. Þegar uppeftir kom var farið að ræða, hvar við ættum að sofa. Fyrst var okkur boðið að vera í „bestikkinu” eða korta- herberginu framan við skipstjóraklef- ann. En það afþökkuðum við, skit- hræddir, því að kallinn hafði andazt i hafi og lá dauður í rúmi sínu. Ég þorði ekki fyrir mitt litla líf að sofa í næsta herbergi við hann. Maður veit aldrei nema þeir opni hurðina, blessaðir. Svo við enduðum með að sofa í borðsalnum, annará gólfinu. Nei, ég hef ekki orðið fyrir neinum slysum. Það er reyndar merkilegt, að mann skuli aldrei hafa tekið út við allt þetta príl. — Aldrei dottið I sjóinn? — Nei, þá sæti ég ekki hér. Ég kann ekki að synda og er eins og kross- fiskur i vatni. En einu sinni fór ég á báti út i skip, sem átti að leiðrétta. Þegar við komum að þvi var kaðal- stiga rennt niður til okkar. Ég byrjaði að klifra upp, og var kominn hálfa leið, jregar lóðsinn keyrði í burtu. En> neðri endi stigans hafði krækzt fastur i borðstokkinn á honum og fylgdi með. Ég sveif þarna I lausu lofti þangað til stiginn loksins losnaði og ég skall af miklu afli utan í skipshliðina. En ég held mér hafi ekkert orðið meintafþvi. Annað skipti kviknaði i jakkanum minum. Ég var uppi á þaki i nótabát. Neisti hrökk I jakkann minn og þarna stóð ég logandi eins og Kári forðum. En ég flýtti mér að rífa af mér jakkann og brenndi ekki svo mikið sem fingur.” Það var kuldalegt um borð I Árna Friðrikssyni, i það minnsta i augum okkar Dagblaðsmanna, þegar við príl- uðum með Konráði og syni hans Guð- mundi upp og niður brúna á skipinu. En þeir kalla þetta vist ekki mikið sjó- mennirnir og í huganum óskuðum við skipshöfninni góðrar ferðar en áætlun þeirra var að halda til rannsóknar- starfa á hafinu út af Langanesi. Við snerum aftur á móti aftur frá borði og þökkuðum okkar sæla fyrir hitaveit- una á ritstjórnarskrifstofunni. - IHH AKtaf atthvað nýtt KafTtsopi í borðsalnum á Árna Frið- rikssyni. Skipstjórinn, Kristján Sigur- jónsson, situr lengst til hægri, við hliðina á honum er sonur hans, Ronald Kristjánsson, en Konráð til vinstri. Hún er smart þessi: buxur, vesti, mussa FYRIR DÖMUR: Peysur, buxur, vesti, mussur, pils og kjólar Ný kjólasending í vikulokin

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.