Dagblaðið - 18.05.1981, Blaðsíða 1
7
7. ÁRG. —MÁNUDAGUR 18.MAÍ 1981 — ÍIO.TBL. RJTSTJÓRN SÍDHMÍJI A 12. AUÍÍI.VSINGAR ()(J AKíRKIDSI.A ÞVKRHOI.TI 1 l.-AÐAI SIMI 27022.
'—-----( Dagblaðiðkannarfylgiflokkanna:
GEYSILEG FYLGISAUKNING
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
—eins ogundanfamarkannanirDBhafagefíð tilkynna—enn kemur fram fylgishrun hjáAlþýduflokki
Sjálfstæðisflokkurinn nýtur nú
miklu meira fylgis en í siðustu kosn-
ingum samkvæmt skoöanakönnun
sem DB gerði fyrir viku. Niðurstöður
þessarar skoðanakönnunar eru mjög
áþekkar niöurstöðum síðustu kann-
ana DB. Sjálfstæðisflokkurinn nýtur
nú fylgis 46,1 af hundraði þeirra sem
taka afstöðu. Þetta er lítiö eitt meira
en flokkurinn hafði samkvæmt
könnun DB í janúar. Þetta fylgi er
8,8 prósentustigum meira en flokkur-
inn fékk í þingkosningunum 1979 að
meðtöldum óháðum sjálfstæðis-
mönnum. Það samsvarar því að
Sjálfstæðisflokkurinn fengi 28 þing-
menn og bætti við sig 6. Hið sama
kom út úr könnunum DB í janúar
sfðastliðnum og í september í fyrra.
Framsóknarflokkurinn fær sam-
kvæmt könnuninni 23,6% sem er 1,3
prósentustigum minna en hann fékk f
kosningunum. Þetta samsvarar 14
þingmönnum ef - þingsætum yrði
skipt i beinu hlutfalli við fylgið.
Framsókn fær jafnan öllu fleiri þing-
menn en fylgishlutfallið gefur til
kynna, vegna kjördæmakerfisins, og
gæti því fengið fleiri en 14 með því
fylgi sem könnunin gefur til kynna.
Framsókn hefur nú 17 þingmenn.
Alþýðubandalagið fær sarnkvæmt
könnuninni 19,5% sem er nánast
alveg hið sama og flokkurinn fékk í
kosningunum. Þetta samsvarar 12
þingsætum ef þeim yrði skipt í beinu
hlutfalli við fylgi. Alþýðubandalagið
hefur 11 þingmenn nú.
Fylgishrun Aiþýðuflokksins frá
kosningunum kemur enn fram í þess-
ari könnun eins og í fyrri könnunum.
Flokkurinn hefur 10,8% fylgi sam-
kvæmt könnuninni sem er 6,6
prósentustigum minna en í kosning-
unum. Samkvæmt því fengi Alþýðu-
flokkurinn 6 þingmenn og tapaði
fjórum. i
Óákveðnum hefur fækkað frá
síðustu könnun en þeir eru enn rúm
30% af heildinni. 7,8% vildu ekki
svara spurningunni. Það hlutfall var
6,7%íjanúar. -HH.
— sjánánarábls.4
og viðtöl við forystumenn fíokkanna á baksíðu
-
Edda Stefánsdóttir, módel Margrétar Pétursdóttur nema, stendur þarna lengst til
vinstri. Við hlið hennar er Margrét og fyrir framan Halla Leifsdóttir, módel Sólvcigar
Lcifsdóttur sem brosir breitt við hlið Margrétar. Fyrir aftan Sólveigu stendur
Tryggvi Þórisson, módel Garðars Sigurgcirssonar scm hampar bikarnurn lengst til
hægri.
DB mynd Einar Ólason.
Greittogklippt
til íslands-
meistaratitils:
GARDAR OG SOLVEIG
ÍSLANDSMEISTARAR
Sólveig Leifsdóttir hlaut í gær ís-
iandsmeistaratitil í hárgreiðslu. Garðar
Sigurgeirsson hlaut sama titil í hár-
skurði og Margrét Pétursdóttir bar
sigur úr býtum í keppni nema í hár-
greiðslu. íslandsmeistaramótið fór
fram í gær í Íþróttahúsinu á Seltjarnar-
nesi.
Keppt var í hinum sígildu greinum,
klippingu og greiðslu fyrir samkvæmi,
daggreiðslu kvenna og klippingu og
blæstri eftir nýjustu tízku. jafnframt flytja inn snyrtivörur sem rakarar og
kynntu vörur sínar þeir aðilar sem hársnyrtar nota. -DS.
— sjánánarbls.6
..... i
Ásgeirmeð
leynisamning
viðStandard
— aðeinsþriðjungur
tekna hans gefinn
upptilskatts
— sjá íþróttir
bls. 16-20
Óvístummeiri-
Mutafylgivið
bráðabirgðalög
stjómarinnar
Meirihluti fjárhags- og við-
skiptanefndar Alþingis er andvíg-
ur samþykkt bráðabirgðalaganna
um samningsumboð BSRB. Telja
ASÍ-menn, meðal annars verka-
mannasambandið, að samkvæmt
bráðabirgðalögununt hafi BSRB í
raun fengið samningsrétt fyrir
hluta fólks í aðildarfélögum ASÍ.
Fyrsti kafli bráðabirgðalag-
anna gerir ráð fyrir því að þeir
sem vinna hjá stofnunum, sem
eru á fjárlögum, eða sameiginlcg-
um stofnunum ríkis- og bæjarfé-
laga, skuli lúta samningum
BSRB. Hér koma meðal annars
til sjálfseignarstofnanir, svo sem
elliheimili, ýmiss konar vistheim-
ili, dagheimili, þar sem til dæntis
Sóknarfólk er starfandi.
Sókn hefur engan atkvæðisrétt
i BSRB en þó er gert ráð fyrir þvi
að samningar þess gildi fyrir Sókn
i áðurgreindum tilvikum.
Sighvatur Björgvinsson og
alþýðuflokksmenn eru þessu and-
vigir. Þá eru Guðmundur J. Guð-
mundsson og Verkamannsam-
bandið andvíg samþykkt bráða-
birgðalaganna óbreyttra. Albert
Guðmundsson og margir sjálf-
stæðismenn eru einnig andvigir
tilhögun laganna. Óvist cr að
þessir þingmenn geri sér að góðu
yfirlýsingar fjármálaráðherra og
ríkisstjórnar. Er þvf sú staða nú
komin upp að vafi leikur á um
það hvort meirihluti er við bráða-
birgðalögin á þingi. Þau voru sett
hinn 9. sept. 1980 og hafa legið í
salti j nefnd í allan vetur enda
voru þau 38. mál þingsins.
I 'BS J