Dagblaðið - 18.05.1981, Page 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. MAÍ 1981.
*
Sjónvarp — Dallas:
Hættið
að sýna
þessa
lágkúru
— er tvímælalaust það
lélegasta sem
éghefséð
Guðný hringdi:
Mikið finnst mér sjónvarpið
leggjast lágt með því að sýna þennan
Dallas-þátt.
Þetta nýjasta æði í Bandaríkjunum
er með því allra lélegasta sem ég hef
nokkurntíma séð.
Ekki nóg með það að í þessum
framhaldsmyndaflokki safnist saman
hin mestu hrakmenni heldur virðist
myndatakan og innihald þáttanna
vera tekið frá vægast sagt undarlegu
sjónarhorni. Eins og í síðasta þætti
þegar rass einar leikkonunnar var
sýndur vendilega þegar hún var að
dansa. Hves vegna? Spyr sá sem ekki
veit.
Ég vil endilega biðja sjónvarpið að
hætta að sýna slika lágkúru og það
sem fyrst.
Fúlmennið J. R. úr framhaldsmynda-
flokknum Dallas.
Sjónvarp
— Mörg eru dags augu:
Góð
mynd
um
sérstætt
lífríki
— sjónvarpið ættiað
kaupa fleiri slíkar
Guðmundur Gunnarsson hringdi:
Mig langar til að láta í Ijós ánægju
mína með sýningu myndárinnar
Mörg eru dags augu í sjónvarpinu 10.
rnai sl.
Þessi mynd er sú bezta sem ég og
vinnufélagar mínir hafa séð í langan
tíma í sjónvarpinu. í myndinni var
tekið með fágætri nærgætni á
umfjöllunarefninu og eiga höfund-
arnir !of skilið fyrir þessa mynd.
Sjónvarpið mætti gera meira að
því að kaupa gott efni sem unnið er
af mönnum sem ekki starfa hjá sjón-
varpinu. Þessi mynd sýnir ljóslega
hvað einstaklingsframtakið getur
afrekað.
Raddir
lesenda
Barnafatnaður frá
hinu heimsþekkta
fyrirtæki
(cacharel)
Mikið úrval
af sumarfatnaði,
ennfremur alltaf
eitthvað nýtt af
hinum vinsœla
ungbarnafatnaði
frá
VANLI
BARNAFATAVERZLUN LÆKJARTORGI SlM110470
1P -;
H
HOOVER Töfradiskurinn S 3005 er ryksuga sem vekur
undrun. vegna þess hve fullkomlega einföld hún er.
Sogstyrkurinn er ósvikinn frá 800 W mótor, og rykpokinn
rúmar 12 litra, já 12 lítra af ryki. HOOVER S 3005 er
ennfremur léttasta ryksuga sem völ er á, hún líður um
gólfið á loftpúða alveg fyrirhafnarlaust
fyrir þig. svo létt er hún.
HOOVER er heimilishjálp
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
Verö kr. 1593,-
Ryksugan sem svifur
✓
Gunnar Steindórsson kennari: Ég er
óánægður með störf meirihluta þing-
manna á liðnum vetri.
Hvaö
störf
vetri?
um
Spurning
dagsins
Ágúst Kjartansson bilstjóri: Ég er bara
nokkuð ánægður með störf Alþingis
miðað við aðstæður.
Pétur Björnsson framleiðslustjóri:
Mér finnst að störf Alþingis í vetur hafi
verið til meiri fyrirmyndar i vetur en
undanfarin tvö þing. Störf meirihlut-
ans bera með sér að stefnt sé að
ákveðnu marki.
Hallgrimur Benediktsson byggingar-
meistari: Ég er óánægður með að ekki
skuli nást betri samstaða innan rikis-
stjórnarinnar. Nú síðast er Eggert
Haukdal að derra sig út af engu.
Jóna Ragnarsdóttir skrifstofumaður:
Ég hef bara ekki orðið vör við að þeir
gerðu nokkurn skapaðan hlut.
Gylfi Guðmundsson trésmiður: Ég hef
lítið tekið eftir verkum alþingismanna.