Dagblaðið - 18.05.1981, Page 4
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. MAÍ 1981.
67. skoðanakönnun Dagblaðsins:
Hvaða stjórnmálaf lokki telur þú þig standa næst um þessar mundir?
L_
Geysimikil fylgisaukning
Sjálfstæöisflokksins
— eins og kannanir DB hafa sýnt að undanfömu — óákveðnum fækkar en eru um þriðjungur kjósenda
Sjálfstæöisflokkurinn heldur sam-
kvæmt skoðanakönnun Dagblaðsins
nú þeirri miklu fylgisaukningu sem
skoðanakannanir DB hafa gefið til
kynna aö undanförnu.
Sjálfstæöisflokkurinn fær sam-
kvæmt síðustu skoöanakönnun stuðn-
ing 46,1 af hundraði af þeim sem taka
afstöðu. Þetta er svipað fylgi og flokk-
urinn hafði samkvæmt könnunum DB í
janúar síðastliðnum og í september í
fyrra. Fylgið er 8,8 prósentustigum
meira en flokkurinn fékk i síðustu
þingkosningum að meðtöldum óháðum
sjálfstæðismönnum. Þetta samsvarar
því, að flokkurinn fengi 28 þingmenn
og bætti við sig 6. Hið sama kom út úr
skoðanakönnunum DB i janúar sl. og
september í fyrra.
Að sjálfsögðu verður engum getum
leitt að því að Sjálfstæöisflokkurinn
gæti fengið slikt fylgi í þingkosningum.
Þeirri spurningu er ósvaraö, hvort hinir
ýmsu „armar” flokksins gætu staðið
að sameiginlegu framboði í kosning-
um. Augljóst er, aö í skoðanakönnun-
um safnast menn úr ýmsum áttum um
Sjálfstæðisflokkinn, hvort sem þeir
telja sig fylgismenn eöa andstæðinga
núverandi ríkisstjórnar.
Enn birtist fylgishrun
Alþýðuflokks
Framsóknarflokkurinn fær sam-
kvæmt skoðanakönnuninni nú 23,6 af
hundraöi, sem er 1,3 prósentustigum
minna en flokkurinn fékk í síðustu
þingkosningum.
Sé þingsætum skipt milli flokka i
beinu hlutfalli við fylgið samsvarar
þetta að Framsóknarflokkurinn fengi
14 þingmenn. Það væri þriggja þing-
RJÖLBRAUTASKÓUNN
/nnrítun
í Fjö/brautaskó/ann
ÍBreiðho/ti
fer fram í Miðbæjarskó/anum í Reykjavík dagana 1.
og 2. júní nk. k/. 9.00—18.00, svo og í húsakynnum
skólans, við Austurberg, dagana 3. og 4. júní á sama
tíma.
Umsóknir um skólann skulu að öðru leyti, liafa borist skrifstofu stofnun-
arinnar fyrir 9. júni. Þeir sern umsóknir senda siðar, gcta ekki vænst
skólavistar.
Fjölbrautaskólinn i Breiðholti býður frani nám á 7 nánissviðum og eru
nokkrar námsbrautirá hvcrju námssviði.
Svið og brautir eru sem hér segir:
Almennt bóknámssvið: (mcnntaskólasviðl. Þar niá velja nulli sex nánis
brauta sem eru: cðlisfrxðibraut, félagsfrxðihraut, náttúrufræðibraut, tón-
listarbraut, tungumálabraut og tæknibraut.
1 leilbrigðissvið: Tvær brautir eru fyrir nýnema, heilsugæslubraut: Itil
sjúkraliðaréttindal og hjúkrunarbraut.
En hin siðari býður upp á aðfaranám að hjúkrunarskólum. Hugsanlegl er
að snyrtibraut, vcrði einnig starfrækt við skólann á þessu nántssviði ef
nemendafjöldi reynist nægur.
Hússtjórnarsvið: Tvær brautir verða starfræktar. Matvælabraut I er
býður frani aðfaranám að Hótcl- og veitingaskóla íslands og matvæla
braut II er veitir undirbúning til starfa á möluneytum sjúkrastofnana.
Listasvið: Þar er um tvær brautir að ræða. Myndlistarbraut bæði grunn
nám og framhaldsnám svo og handmenntabraut er vcitir undirbúning
undir nám i Kcnnaraháskóla Íslands.
Tæknisvið: (iðnfræðslusvið). Iðnfræðslubrautir Fjölbrautaskólans i Breið-
holti cru þrjár: Málmiðnabraut, rafiðnabraut og tréiðnabraut. Boðið er
frani á eins árs grunnnám, tveggja ára undirbúningsmenntun að tækni
námi og 3ja ára braul að tæknifræðinámi. Þá er veilt menntun til sveins-
prófs í fjórum iðngreinutn: húsasmiði, rafvirkjun. rennisntiði og vélvirkj
un. Loksgeta nemendureinnig tekiðstúdentspróf á þessu námssviði. sem
og öllum sjö námssviðum skólans. Hugsanlegt er, að boðið verði frani
nám á sjávarútvegsbraut, á tæknisvæði næsta haust, ef nægilega margir
nemendur sækja um þá menntun.
Uppeldissvið: Á uppeldissviði eru þrjár námsbrautir i boði: Fóstur- og
þroskaþjálfabraut, iþrótta- og féiagsbraut og loks menntabraut er einkum
laka mið af þörfum þeirra, er hyggja á háskólanám til undirbúnings
kennslustörfum, félagslegri þjónustu og sálfræði.
Viðskiptasvið: Boðnar eru fram fjórar námsbrautir: Samskipta- og niála-
braut, skrifstofu- og stjórnunarbraut, verslunar- og sölufræðibraut, og
loks læknaritarabraut. Af þrem fyrstu brautunum, er hægt að taka al-
mennt verslunarpróf eftir tvö námsár. Á þriðja námsári gefst nemendum
tækifæri til að ljúka sérhæfðu verslunarprófi í tölvufræðum, markaðs-
fræðum og sölufræðum. Læknaritarabraut lýkur með stúdentsprófi og á
hið sama við um allar brautir viðskiptasviðsins.
Nánari upplýsingar um Fjölbrautaskólann i Breiðholti má fá á skrifstofu
skólans að Austurbergi 5, sími 75600 og er þar hægt aö fá bækling um
skólann svo og Námsvísi F.B.
Skólameistari
sæta tap frá kosningunum. Þess ber áb
gæta að Framsókn fær jafnan öllu
fleiri þingmenn en þetta hlutfall gefur
til kynna, vegna kjördæmakerfisins.
Alþýðubandalagið fengi samkvæmt
skoðanakönnuninni 19,5 prósent sem
er 0,2 prósentustigum minna en flokk-
urinn fékk í síðustu þingkosningum.
Þetta er hins vegar mesta fylgi sem
Alþýðubandalagið hefur fengið sam-
kvæmt skoöanakönnunum Dagblaðs-
ins síöan kosið var til þings.
Ef þingsætum yrði skipt milli flokk-
anna I beinu hlutfalli við fylgið sam-
svarar þetta að Alþýðubandalagið
fengi 12 þingmenn og bætti við sig ein-
um. Eins og áður segir hagnast Fram-
sókn á kjördæmakerfinu. Því er óvíst
að Alþýðubandalagið gæti hreppt hið
nýja þingsæti, þótt því beri það sam-
kvæmt hlutfallinu.
Fylgishrun Alþýðuflokksins frá
síðustu þingkosningum birtist enn
glöggt I þessari skoöanakönnun eins og
í undanförnum könnunum Dagblaðs-
ins.
Alþýðuflokkurinn nýtur samkvæmt
könnuninni nú fylgis 10,8 af hundraði
þeirra sem taka afstöðu. Þetta er 6,6
prósentustiga tap frá síðustu þingkosn-
ingum.
Það svarar til þess að Alþýðuflokk-
urinn fengi 6 þingmenn og tapaði
fjórum.
Óákveðnum fœkkar
Geysimikill fjöldi kjósenda er
óákveðinn í afstöðu til flokka eins og í
síðustu skoðanakönnunum Dagblaðs-
ins.
Samtals segjast 30,6 af hundraði af
heildinni vera óákveðnir eða „engan
flokk” styðja. í skoðanakönnun DB í
Niðurstöður skoðanakönnunarinnar urðu
þessan
Alþýöuflokkur................. 40eða 6,7%
Framsóknarflokkur.............. 87 eða 14,5%
Sjálfstœðisflokkur.............170 eða 28,3%
Alþýðubandalag................ 72eða12%
„Enganflokk" .................. 47 eða 7,8%
Óákveðnir......................137 eða 22,8%
Vilja ekki svara............... 47 eða 7,8%
Ef aðeins eru teknir þeir, sem tóku afstöðu, vcrða niðurstöðurnar eítirfarandi. (Til
samanburðar eru niðurstöður skoðanakannana DB f janúar síðastliðnum,
septembcr og febrúar i fyrra og úrslit síðustu þingkosningal:
Nú Jan. '81 Sept '80 Feb. '80 Kosn.
Alþýðuftokkur 103% 10,7% 133% 123% 17,4%
Framsóknarflokkur 23,6% 233% 21,7% 26,3% 243%
Sjálfstæðisflokkur 46,1% 465% 462% 435% 37,3%
(að meðtöldum „óhððum sjálfstæðismönnum" í kosningunum 79)
Alþýðubandalag 195% 183% 18,8% 16,8% 19,7%
Aðrir - 15% 0,2% 0,7% 0.4%
Ef þingsætum yrði skipt i beinu hlutfalli við fylgi flokkanna i prósentum vrðu
niðurstöðurnar cftirfarandi. (Til samanburðar er skipting þingsæta eins og hún
hefði orðiö samkvæmt fyrri könnunum DB og úrslit síðustu þingkosningal:
Nú Jan. '81 Sept. '80 Feb. '80 Kosn.
Alþýðuflokkur 6 6 8 7 10
Framsóknarflokkur 14 15 13 16 17
Sjálfstæðisflokkur 28 28 28 27 22
Alþýðubandalag 12 11 11 10 11
janúar var þessi hópur mun stærri eða
samtals 38,9 prósent.
Nú vildu 7,8 af hundraði ekki svara
spurningunni um stjórnmálaflokk. Það
hlutfail var í janúar 6,7 prósent.
Úrtakið í skoðanakönnuninni var
600 manns eins og í könnunum DB að
undanförnu. Helmingur þess hóps er á
höfuðborgarsvæðinu og því helmingur
utan þess. Jöfn skipting er milli kynja.
Skoðanakönnunin var gerð fyrir
rúmri viku, samtímis þeirri könnun á
fylgi ríkisstjórnarinnar, sem DB birti
fyrir helgina, og var sama fólkið spurt
beggja spurninganna.
- HH
Athugasemdir fólks í skoðanakönnuninni:
ENDIST ÁKVÖRÐUNIN
TIL KJÖRDAGS?
,,Ég er sjálfstæð kona og því vel ég
Sjálfstæðisflokkinn. Ég vil bara að allir
séu á eitt sáttir í flokknum og ég vil
ekki komma,” sagði kona í Hafnar-
firði þegar hún svaraði spurningunni í
skoðanakönnuninni. „Ég get sagt i
dag: Sjálfstæðisflokkur en það geri ég
með hangandi hendi og ekkert víst að
sú ákvörðun endist til næsta kjör-
dags,” sagði kona á Vestfjörðum.
„Sjálfstæðismaður og styð Albert en er
á móti bröltinu I Gunnari Thor,” sagði
karl á Reykjavíkursvæðinu, sem tók
einnig fram að Hitler hefði gert betur
en núverandi valdhafar hér.
„Framsókn er flokkur ok'kar bænd-
anna,” sagöi kona í sveit. „Ætli ég
kasti ekki atkvæði á Framsókn, svona
mest af gömlum vana,” sagði karl á
Akureyri. „Held ég kjósi helzt Fram-
sókn. Ég er alltaf svo hrifin af Óla
Jóh.,” sagði kona á Reykjavíkursvæð-
inu. „Ég segi Framsókn en það er sko
langt í frá aö ég sé ánægö meö frammi-
stöðu framsóknarmanna,” sagði kona
á Vesturlandi.
„Ég er alþýðubandalagsmanneskja.
En núna er ég hundóánægð og mér
finnst enginn ljómi um bandalagiö
lengur,” sagði kona á Austurlandi.
„Ég er hrifinn af Gunnari Thor. og
Ólafi Ragnari en ég kýs Alþýðuflokk-
inn,” sagði kona á Vestfjörðum.
„Guðhjálpi mórl"
„Þessir stjórnmálaflokkar eru allir
orðnir jafnvitlausir svo að ég styð
engan,” sagði karl á Suðurnesjum.
„Ég er ráðvilltur um hvar ég mundi
setja krossinn, ætti ég að kjósa á morg-
Augljóst er að i skoðanakönnunum safnast menn úr ýmsum áttum um Sjálfstæöis-
flokkinn, hvort sem þeir telja sig fylgismenn eða andstæðinga núvcrandi ríkisstjórnar.
un,” sagði karl á Raufarhöfn. „Það er
enginn flokkanna þannig að maöur geti
komið nálægt þeim,” sagði karl í sveit.
„Þetta er allt sama tóbakið,” sagði
annar karl í sveit. „Ég segi nú bara:
Guð hjálpi mér! Eru ekki allir búnir að
fá nóg af þeim öllum?” sagði kona á
Rey kj avík ursvæðinu. „Óákveðinn.
Þetta er óttalegur hrærigrautur,” sagði
karl á Reykjavíkursvæðinu. „Þetta eru
allt þröngar fjölskyldu- og hagsmuna-
klíkur,” sagði karl á Reykjavíkursvæð-
inu.- „Búinn að missa trú á öllum
flokkum. Þetta eru hálfgerðir vitleys-
ingar allt saman,” sagði karl á Reykja-
víkursvæöinu.
„Þetta er allt sama tuggan. Ég kýs
engan þeirra,” sagði karl á Noröur-
landi eystra. „Ég get engum flokki
treyst lengur,” sagði kona á Reykja-
vikursvæðinu. „Ég er vinstri mann-
eskja, en mér finnst enginn vinstri
flokkur vera til lengur,” sagði kona úti
á landi. „Það eru alltof margir flokk-
ar,” sagði kona í sveit. „Þeir hafa allir
líka stefnu. Ég styð ekki neinn,” sagði
kona 1 sveit. „Mér dettur ekki I hug að
kjósa neinn þeirra,” sagði karl í sveit.
„Það er ekki hægt að verja þaö gagn-
vart samvizku minni að kjósa neinn
flokkanna. Því skila ég óákveðnu,”
sagði kona á Austurlandi. „Hef verið í
Alþýðubandalaginu en er búin að
gefast upp og mundi ekki kjósa í dag,”
sagði kona í Reykjaneskjördæmi.
- HH