Dagblaðið - 18.05.1981, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. MAl 1981
5
„DB-vinningur í hverri viku”:
FYRSTIVINNINGURINN
ER FERD TIL ÍTALÍU
f ' '
með Útsýn
aðverð
mæti 8.000
krónur
Verðlaun í áskrifendaleik Dagblaðs-
ins, „DB-vinningur i viku hverri”, eru
mjög glæsileg. Vinningur er veittur
vikulega næstu 26 vikurnar og fyrsti
vinningurinn er ítaliuferð til Lignano
með Útsýn. Ferðavinningurinn er að
upphæð 8.000 krónur. 1 vikunni verður
dregið út nafn heppins áskrifanda DB
og hann síðan beðinn að svara spurn-
ingu um tiltekna smáauglýsingu og
nefna einnig smáauglýsingasima DB.
Einfalt og ætti ekki að vefjast fyrir
neinum.
Þessi heppni DB áskrifandi á síðan
kost á því að sleikja sólskinið á sólar-
ströndu suður á ítaliu.
Einfaldur
leikur og
vegleg
verðlaun
— þeirsem ekki eru
þegarorðnir
áskrifendurættu
að slá til nú
,,DB-vinningurí viku hverri.” Svoer
lítill leikur Dagblaðsins með áskrif-
endum sínum kallaður, en hann var
fyrst kynntur í blaðinu á laugardaginn.
Þetta er einfaldur leikur en glæsileg
verðlaun í hverri viku næsta hálfa árið
geta orðið heppnum áskrifendum veru-
leg búbót.
Leikurinn felst i því að i hverri viku
birtist í blaðinu, breytilegan vikudag,
ein spurning sem áskrifendum er ætlað
að svara. Spurningin tengist smáaug-
lýsingum Dagblaðsins. Síðan er dreg-
inn út einhver áskrifandi DB og nafnið
hans birt í smáauglýsingadálkum DB.
Áskrifandinn snýr sér síðan til auglýs-
ingastjóra DB og svarar spurningunni
og hlýtur sín verðlaun fyrir rétt svar.
Vinningur hverrar viku er kynntur
daglega á baksíðu DB og er svo í fyrsta
skipti i dag. Spurningin er einnig birt á
sama stað. Nýr vinningur er síðan
kynntur í hverju mánudagsblaði.
' Nýiráskrifendurgetastraxbyrjaðað
taka þátt i leiknum þannig að þeir sem
ekki eru orðnir áskrifendur nú þegar
ættu að grípa símann strax. Síminn er
27022.
- JH
Bílbeltin
hafa bjargað
|JU^FERÐAR
Nýr vinningur verður síðan kynntur í
viku hverri. Þeir eru hver öðrum glæsi-
legri. Utanlandsferðirnar með Útsýn
eru sex, þá tólf 10 gíra DBS reiðhjól frá
Fálkanum og kostar hvert þeirra 3.500.
Tvö myndsegulbönd frá Radióbúðinni
eru einnig meðal vinninga og kostar
hvort 15.000 krónur. Þáer einnig heim-
ilistölva að verðmæti 15.000 kr. frá
Radíóbúðinni og fimm Crown stereo-
hljómflutningstæki, einnig frá Radíó-
búðinni. Hvert þeirra kostar 6.200
krónur. -
Heildarverðmæti vinninganna er
166.000, þannig að til mikils er að
vinna.
- JH
Fyrsti vinningurinn í leiknum
DB-vinningur í viku hverri er t'erö með
Útsýn til Lignano. Heppinn áskrifandi
Dagblaðsins verður dreginn út núna í
vikunni og síðan haldið áfram með sama
hætti vikulega næsta hálfa árið.
• Isskápar
• Frystiskápar
ISSKAPAR
kr. 4360
kr. 6480
kr. 5740
FRYSTISKAPAR
" , ■ ■ '
VT261
kr. 6430
ÞVOTTAVELAR
■
T362............
T564............
T780............
T865með þurrkara
kr. 5960
kr. 6380
kr. 6990
kr. 8390
UPPÞVOTTAVELAR
kr. 6200
kr. 6490
Uppþvottavélar
.v^ ■ .
■:
::■ V' -. ■
• . ‘
Góðir greiðsluskilmálar
SKIPHOLT119. - SÍMI29800.