Dagblaðið - 18.05.1981, Blaðsíða 7
DAGBLADID. MÁNUDAGUR 18. MAÍ 1981.__________________________________7
Stofnfundur Samtaka um frjálsan útvarpsrekstur í kvöld:
„Framundan er nokkurra ára barátta”
—segir Ólafur Hauksson, einn stofnendanna
,,Það er ekki þingmeirihluti fyrir
frjálsu útvarpi eins og er en við eigum
þar marga dygga stuðningsmenn. Við
eigum framundan nokkurra ára bar-
áttu áður en útvarpsrekstur verður
gefinn frjáls,” sagði Ólafur Hauks-
son ritstjóri. Hann er einn þeirra sem
unnið hefur að undirbúningi stofn-
unar Samtaka um frjálsan útvarps-
rekstur. Stofnfundurinn verður á
Hótel Sðgu I kvöld.
„Frjálst útvarp á viða orðið mjög
góðan hljómgrunn. Til dæmis gáfu
flestir vinnu sína, sem við leituðum
til um fyrirgreiðslu vegna stofn-
fundarins,” sagði Ólafur. ,,Og
stuðningsmenn okkar koma úr öllum
stjórnmálaflokkum. Við erum búnir
að leita til manna úr öllum flokkum
um setu f aðalstjórn samtakanna og
undantekningalitið höfum við fengið
jákvæðar undirtektir.”
Sérstakur gestur stofnfundarins í
kvöld verður brezkur dagskrárgerð-
armaður frá Samtökum óháöra út-
varpsstöðva í Bretlandi, Edwin
Riddell aö nafni. Hann mun segja
fundarmönnum frá þróun mála í
Bretlandi, þar sem óháðar útvarps-
stöðvar hafa verið við lýði um nokk-
urra ára skeið i samkeppni við ríkis-
útvarpið, BBC. Jafnframt mun
Riddell svara spurningum, sem
kunna að vakna hjá fundarmönnum.
Auk ávarps Riddells verða flutt
nokkur stutt framsöguerindi. Ólafur
Hauksson ræðir um aðdragandann
að stofnun Samtakanna um frjálsan
útvarpsrekstur, Magnús Axelsson
talar um verkefni -amtakanna og
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson leggur
fram stofnsamþykkt og stýrir
stjómarkjöri.
Fundurinn hefst í kvöld klukkan
20.30.
-At
„MJÖG GÓÐ REYNSLA AF REKSTRIÓ-
HÁÐRA ÚTVARPSSTÖDVA í ENGLANDI
—segir Edwin Riddell dagskrárgerðarmaður
Edwin Riddell kemur hingað til
lands fyrst og fremst tíl að leiðrétta
ýmiss konar misskilning sem hefur
verið á loftí um frjálsar útvarps-
stöðvar. Hann er aðstoöardagskrár-
stjóri í fréttadeild Sambands óháðra
útvarpsstöðva (IBA) í Englandi. Ein-
okun var aflétt af rekstri útvarps þar í
landi árið 1973 og ári síðar réðst
Riddeil til sambandsins.
„Reynslan af rekstri óháðra út-
varpsstöðva í Englandi hefur að
flestu leytí verið ákaflega góð,” sagði
Edwin Riddell í samtali við blaða-
mann DB. „Nú eru 24 stöðvar
leyfðar. Til stendur að fjölga þeim
upp í 44 á næstunni og síðan í 69.”
Það er fyrst og fremst þingmönn-
um íhaldsflokksins að þakka aö ein-
okuninni var aflétt í Englandi. Ridd-
ell sagði aö Verkamannaflokkurinn
hafi verið á móti frjáisum útvarps-
rekstri f upphafi en nú væru flokks-
menn i sjöunda himni.
„Við höfum ákaflega strangar
reglur um að öllum sé gert jafn hátt
undir höfði og ekki halli í frásögnum
og viðtölum á málflutning neins
flokks,” sagði Riddeil. „Gerist for-
ráöamenn einhverrar stöðvar brotleg-
ir við lögin um frjálst útvarp á hann á
hættu að missa réttindin.
Fyrirkomulagið hefur verið þannig
að hver útvarpsstöð fær þriggja ára
leyfi tíl reksturs. Arlega er farið yfir,
hvort allt sé í lagi með reksturinn. Sé
svo ekki hafa forráðamenn stöðvar-
innar tímann þar til samningurinn
rennur út tíl að koma rekstrinum i
lag. Gerist það ekki missir stöðin
leyfi sitt og verður að skila útvarps-
sendinum,” sagöi Riddell.
Stöðvarnar borga leigu á sendinum
til IBA. Hún er mishá eftir hlustenda-
fjölda og tekjumöguleikum af aug-
lýsingum. Þannig greiðir Capital
stöðin til dæmis um milljón sterlings-
pund i leigu á ári. Hún hefur nokkrar
milljónir hlustenda. Oháð stöð í Ply-
mouth, sem hefur um 230 þúsund
hlustendur, greiðir þrjátíu þúsund
pund í leigu á ári.
Edwin Riddell sagði að ekki aðeins
pólitíkusar væru ánægðir með þróun
útvarpsmála í Englandi. Sömu sögu
væri að segja um bæjaryfirvöld og
aðra. Stöðvarnar kæmu að góðum
notum i neyðartilfellum eins og tíl
dæmis þegar mikil snjókoma varð í
Skotlandi og allar samgöngur fóru úr
skorðum.
Edwin Riddell var að lokum
spurður um uppbyggingu dagskrár
óháöu stöðvanna.
„Þetta er blönduð dagskrá svo-
kölluð. Tónlist að hluta í bland við
fréttir, upplýsingar og símaþætti ým-
iss konar (sbr. Bein lína, Eftir
hádegið og fleiri íslenzkir þættir).
Strangt eftirlit er haft með dagskrán-
um til að þær séu innan þess ramma
sem lögin leyfa. Dagskrárgerðin og
reksturinn allur er fjármögnuð með
auglýsingum.”
KJARAKAUP
KUREKASTIGVEL
FYRIR DÖMUR 0G HERRA
Verö 49,50
Verð 35,00
Verð 99,95
Teg. 7007
LttunAntik-
brúntleður
Stærðir 36—46
Teg. 420 -----—
Utir: Rautt, blátt oða brúnt gerviefni
Stærðir 36—41
Verð áður kr, 490.50
Teg.4421
Litur: fíautt rúsklnn
Stærðir 37-41
Verð 99,95
Verð 99,95
Verð 99,95
Teg. 1815
Litur: Hvitt nubuck
Stærðir 40 og 41
Verð áður 286,50'
Nú 149,85
Teg. 26
Litur: Brúnt, biétt, vinrautt og fjólu-
blátt leðurlakk m/leðursólum
Stærðir36—41
Verð áður kr. 298,50
Nú kr. 99,95
Teg. 70 -
Litur: Fjólublátt eða rautt leðurlakk
Stærðir 36-41
Verð áður ku-285,-
Nú kr. 99,95
Teg.13
fjólublátt leðurlakk
Stærðir 36-41
Verð áður kr_298£0
Nú kr. 99,95
Teg. 8001
Utir: Blátt/grátt
rautt/grátt
svart/gratt
lilla/grátt
Stærðir 36-41
Teg.K
Lrtur: Hvítt leður
Stærðir 36-45
Verð áður ki_554i85
Núkr. 349,-
Verð áður kh-245,
Nú kr. 99,95
Skóverzlun
Þórðar Péturssonar
PÓSTSENDUM
KIRKJUSTRÆTI8 - SÍM114181