Dagblaðið - 18.05.1981, Qupperneq 10
10
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. MAl 1981.
( Erlent Erlent ______________Erlent_______________Erlent )
Tæpur þriðjungur atkvæða Mitterrands talinn kominn f rá kommúnistum:
F/ifð/ þrisvar sinnum úr
fangabúðum á stríðsárunum
— Hinn nýi forseti Frakklands var virkur í andspyrnuhreyf ingunni gegn Þjóðverjum í síðari
Fólk faðmaðist, söng og dansaði á götum Parísar þcgar Ijóst var að Mitterrand hafði verið kosinn forseti.
Mitterrand hjónin giftu sig 28. október 1944. Þau kynntust i andspyrnuhreyfing
unni og höfðu aðeins hitzt þrivegis þegar þau voru gefin saman í hjónaband.
gengur undir dulnefninu
„Morland”.
Hann hittir De Gaulle 2. desem-
ber 1943 I Alsír án þess að gruna að
hann verði einn hatrammasti and-
stæðingur hans i stjórnmálum síðar.
Mitterrand kemur aftur til Frakk-
lands í febrúar 1944 og tekur þátt í
frelsun Parísarborgar.
Nú hefst stjórnmálaferill hans og
hann byrjar á að vera ráðherra fyrr-
verandi andspyrnumanna í stjórn De
Gaulie. 1946 er hann í framboði til
þings fyrir Nievre að Chateav-
Chinon sem er enn þann dag í dag
pólitískt aðsetur hans. Eftir ýmsar
ábyrgðarstöður verður hann innan-
ríkismálaráðherra 1953 og þegar
Alsír-stríðið braust út lýsti hann eftir-
farandi yfir: „Alsír er Frakkland.
Eina lausnin er stríð.”
Hann var oft ásakaður síðar fyrir
að hafa tekið þessa afstöðu, bæði af
hægri- og vinstri mönnum.
Árið 1954 er hannásakaður um að
hafa komið leyndarmálum hersins til
Kommúnistaflokksins og það tekur
hann fleiri mánuði að sanna sakleysi
sitt. Hann er ákæröur í annað skipti
1959, þegar De Gaulle kemst til valda
aftur, um að hafa undirbúið falskar
árásir á De Gaulle. Hann er hvítþveg-
inn af öllum þessum ásökunum.
Á þessu sama tímabili kemst hann í
andstöðu við De Gaulle og er nú
„sannur sósíalisti”. Hann byrjar að
reyna að ná saman allri vinstri
hreyfingunni. Hann vill skapa sterka
fylkingu vinstri manna sem muni
neyða kommúnista til samstarfs. Nú,
tuttugu árum síðar, tókst það loks.
Þegar uppþotin í maí 1968 byrja
hikar hann ekki lengi og 28. maí lýsir
hann yfir: ,,Ríkið er ekki lengur til og
völdin eru ekki lengur i höndum
þeirra sem þykjast stjórna.” En hann
talar of seint því De Gaulle gefst ekki
upp heldur leysir upp þing tveimur
dögum seinna. Menn telja að Mitter-
rand sé búinn að vera sem stjórn-
málamaður. Vinstri samstaðan fellur
og Pompidou er kosinn forseti 1969.
Mitterrand lætur ekki bugast.
Hann byggir upp Sósíalistaflokkinn
og vill samvinnu við kommúnista á
ný.
Loks þann 27. júní 1972 skrifa
sósialistar, kommúnistar og fiokkur
róttækra vinstri manna undir sam-
eiginlegan stjórnarsáttmála.
Pompidou lézt snögglega 1974 og
enn er boðað til kosninga. Mitterrand
tapar fyrir Giscard d’Estaing með
400 þúsund atkvæða mun. Síðan þá
hafa vinstri menn tekið þátt í þing- og
bæjarstjórn ii kosningum 1976 og
1977. Alltaf kemur upp ósætti og
samstarf slitnar scint á árinu 1977.
Árið eftir tapa þeir verulegu fylgi.
Nú er sambandið komið á aftur og
- eftir er að sjá hvernig gengur.
Danielle Gouze, sem nú er frú
Mitterrand, fæddist 29. október í
Cluny. Foreldrar hennar voru kenn-
arar og hún var alin upp við hug-
myndir sósíalista og í trúleysi.
Hún varð að yfirgefa barnaskóla
sex ára gömul vegna þess að hún var
„fermd” að kaþólskum sið. Hún var
sextán ára gömul þegar stríðið brauzt
út og þar sem pabbi hennar var
virkur í andspyrnuhreyfingunni var
hún send til Anneiy til öryggis til guð-
föður síns og þar tók hún stúdents-
próf.
Hún bauð sig fram sem sjálfboða-
liði til hjúkrunarstarfa sautján ára
fyrir andspyrnuhreyfinguna. Hún var
enn sautján ára þegar hún kynntist
Francois Mitterrand í apríl 1944. Þau
giftu sig 28. október sama ár eftir að
hafa hitzt þrisvar sinnum. Giftingin
fór fram í kirkju að vilja manns
hennar. Þau hjón eignuðust þrjá
syni, Pascal sem dó ungur, Jean-
Christophe sem nú er blaðamaður og
Gilbert sem kennir lögfræði.
Danielle hefur lítið sézt opinber-
lega og um hana er sagt að hún vilji
frekar rækta blóm en bera þau opin-
berlega. Hún er alls ekki alltaf sam-
mála eiginmanni sínum en styður
hann eindregið sem sósíalista.
Um konu sína segir Mitterrand:
,,Hún er miklu sannari sósíalisti en
ég.” Þessi hægfara kona, sem vill
sem minnst hafa sig í frammi, er einn
harðasti baráttumaðurinn í hreyfing-
• unni „Eining fyrir Salvador og
Rómönsku Ameríku”.
Sigríflur M. Vigfúsdóttir
skrifar frá París:
„Tíu, níu, átta, sjö, sex, ftmm,
fjórir, þrír, tveir, einn. . . .” Þulur-
inn i franska sjónvarpinu telur
síðustu sekúndurnar áður en klukkan
verður átta að frönskum tíma.
„Mitterrand er forseti Frakk-
lands.” Um leið og þulurinn sleppir
orðunum má heyra hróp og köll úti á
götu, bílhom eru þeytt af öllum lífs
og sálarkröftum.
Fólk þyrpist að Bastillu-torginu.
Það faðmast og syngur. Rauðum rós-
um og fánum er veifað. „Við
unnum, við unnum.” Gleðin heldur
áfram fram undir morgun. Það er
dansað á götum úti. Rauða rósin er
tákn franska sósíalistaflokksins. í
fysta skipti í 23 ár mun sósíalisti
setjast i forsetastól Frakklands.
Meginástæðan til sigurs Mitter-
rand er vafalaust sú að kreppan hefur
þrengt mjög svo að kaupmætti
franskrar alþýðu og atvinnuleysi er
mikið. Tæpar tvær milljónir manna
eru á atvinnuleysisskrá.
Greinilegt er að öll vinstri hreyfing-
in hélt höndum saman og sennilega
hafa gaullistar líka lagt hönd á plóg-
inn. Mitterrand hlaut rétt rúm 52
Mitterrand gekk undir dulnefninu „Morland” í andspyrnuhrcyfingunni. Hann cr
annar frá vinstri i efri röð.
Frú Mitterrand með rauðar rósir.
tákn sósialista. Um konu sina segir
hinn nýi Frakklandsforseti: Hún er
miklu sannari sósialisti en ég.
prósent atkvæða á móti tæpum 48
prósent atkvæða Giscard d’Estaing.
Af þessum 52 prósentum má álíta
að um það bil 15 prósent komi frá
kommúnistum. Þótt okkur finnist
4 prósent ekki mikill munur þá er hér
um að ræða um 1,2 milljónir manna.
Benda má á til samanburðar að
Giscard d’Estaing vann með um 400
þúsund atkvæða mun í síðustu
forsetakosningum, 1974.
Francois Maurice Adrien Marie
Mitterrand fæddist 26. október 1916
að Jarnac í Charente héraði. Hann
var fimmta barn foreldra sinna af
átta börnum. Faðir hans vann við
járnbrautarstöðina og varð stöðvar-
stjóri. Fjölskylda hans var mjög
trúuð og Francois lærði og tók
stúdentspróf hjá kaþólskum prest-
um.
Að þvi loknu, 18 ára gamall, fer
hann til Parísar að nema lögfræði og
stjóni málafræði.AÖ prófum loknum
1938 fer haun i herinn.
Þann 14. júní 1940 er hann tekinn
til fanga af Þjóðverjum. Fyrsta
flóttatilraun hans er 5. marz 1941.
Hann gengur í 22 nætur og sefur á
daginn. Eftir 600 km göngu er hann
tekinn fastur aftur. 1 nóvember sama
ár flýr hann öðru sinni og kemst með
lest til Metz. Þar felur hann sig á litlu
gistihúsi en borgin er full af Þjóðverj-
um og starfskona á hótelinu segir til
hans.
Enn er hann settur í sérstakar
búðir. Hann gefst ekki upp og tíu
dögum seinna klifrar hann berfættur
yfir hliðið og hleypur í burtu. Hann
heldur á heimaslóðir og gengur í and-
spyrnuhreyfinguna þar sem hann