Dagblaðið - 18.05.1981, Blaðsíða 14
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. MAÍ1981.
14
r
Rafha stenzt fyllilega saman-
burð við eriendu vélamar
— Greiðslukjör betri—góð varahlutaþjónusta, en of ninn mætti gjaman vera sjálf hreinsandi
Voss-vclarnar hjá Fönix eru svipaðar Rafha-vclunum. Takkastilling er til fyrir-
myndar — það kviknar Ijós á hverjum takka um leið og hann er settur á straum.
(Ég gerði rönd úr bleiku naglalakki á mína til að geta strax séð hvernig staðan
væri — cn það er óncitanlega dálítið drusló). DB-myndir: Sig. Þorri.
Eldavélin mín er að lognast út af
enda, guð má vita hvað, gömul. Það
er hætt að kvikna nema á einni plötu
og stundum svíkur hún líka. þá þarf
ég að hrista hana og berja, eins þolin-
móð og gömlu konurnar, sem þurftu
að kveikja eld í hlóðunum sínum.
Ofninn krefst líka mikils lang-
lundargeðs. Ég held að hann komist
ekki nema upp í 150 gráður, eða svo.
Ég ætlaði að vera ægilega góð við ör-
þreytta vinkonu mína eitt kvöldið og
bauð henni i stei'kt kálfslæri klukkan
sjö. Jæja, það oru nú hún og ég,
sem sátum í elunúsint fram undir
miðnætti og mændum vonaraugum á
ofninn — en alltaf vætlaði blóð úr
lærinu, þegar við héldum að það
væri tilbúið.
En loksins, loksins varð það ofsa
gott, enda smurðum við það að ofan
með sýrðum rjóma síðasta hálftím-
ann. Æði!
Eftir þetta kvöld áleit ég að tími
væri kominn lii að endurnýja gripinn
og labbaði í þrjái eldavéiabúðir.
Rafha, Vörumarkaðurinn og Fönix
urðu fyrir valinu.
Eftir þennan leiðangur get ég upp-
lýst lesendur neytendasíðu DB um
það að á öllum þessum stöðum má fá
traustar eldavélar á verðinu frá tæp-
lega kr. 5.000—5.500. Á þeim eru
bæði hraðsuðuhellur og ein plata
með stiglausri stillingu (termostat),
ofnar með grillelementi og teinum,
gott hitahólf og síðast en ekki sízt
klukkur, sem eru hreinustu galdra-
verk.
Þær geta kveikt á ofninum meðan
þú ert i vinnunni, svo maturinn er til-
búinn þegar þér þóknast að koma
heim.
Vélar, án hitahólfs, ofns, klukku
og grillteina, fást bæði hjá Rafha og
Vörumarkaðnum og eru allmikið
ódýrari, eða kr. 3.000—3.500.
Ég læt fylgja töflu með verði á
sambærilegum vélum.
Það gladdi mitt ættjarðarelskandi
hjarta, að Rafha kom ágætlega út
samanborið við innfluttu vélarnar,
bæði hvað verð og gæði snerti. Þeir
eru með sígildar gerðir, sem hægt er
að treysta.
Það eina sem ég saknaði verulega
hjá Rafha var að ofnarnir skyldu
ekki vera sjálfhreinsandi eins og hjá
erlendum vélum í sama verðflokki.
Sjálfhreinsunin fer þannig fram að
ofninn er stilltur á geysihátt hitastig
og hverfa þá fituskorpurnar eins og
dögg fyrir sólu.Sumar konur segja að
þetta spari þeim meiri tima en upp-
þvottavélin.
Ég er samt mjög alvarlega að hugsa
um að fá mér Rafhavél i uppáhalds-
litnum mínum (segi ekki hver hann
eri). Þá fæ ég beztu afborgunarskil-
málana. Þeir bjóða nefnilega við-
skiptavinunum að greiða fjórðung út
og afganginn á sex mánuðum. Hin
fyrirtækin viljahelming út og afgang-
inn á fjórum mánuðum.
Ennfremur finnst mér öryggi í því
að vita að um ókomin ár get ég fengið
varahluti ef Rafhavélin mín bilar.
Mér finnst þægilegt að hafa allar
leiðbeiningar á íslenzku og geta, ef
eitthvað kemur upp á, snúið mér
beint til framleiðanda vélanna.
Ég get ekki fundið að það sé neinn
sparnaður í því að kaupa útlenda vél
nokkrum krónum ódýrara, og geta
reiknað með því að sú gerð verði þá
og þegar að víkja fyrir nýrri tízku,
eða hætti að flytjast til landsins.
Öryggið er mér dýrmætara en stæl-
arnir — og svo líður mér afskaplega
vel á sálinni í hvert skipti sem ég styð
islenzkan iðnað — ég tala ekki um í
dæmi eins og þessu, þegar ég get gert
það án þess að færa fórnir á sviði lífs-
þægindanna.
-IHH
Valdís Steingrimsdóttir afgreiðslukona sýnir ofn með grillteini í Rafhavél. Vélarnar fást í fimm fallegum litum, avocado-
grænu, antik-gulu, koparbrúnu, rauðu og bláu. Og svo i hvitu, að sjálfsögðu.
Glóðarrist og djúpsteik-
ingarpottur í eldhúsborðinu
meðal nýjunga frá Gaggenau íVörumarkaðnum
Alls konar tilbrigði við sígildu Margir vilja hafa plöturnar sér og sleppur við að beygja sig.
eldavélagerðirnar efu til á markaðn- ofninn sér. Er þá ofninn venjulega Vinkona mín, sem á ofn sér og
um. uppi á vegg í augnhæð, svo maður plötur sér í íbúð sinnt í Reykjavík en
Verðsamanburður á eldavélum
Verð á góðri vél „með öllu" 11. maí
Rafha Voss (Hjá Fönix) Electrolux (í Vörumarkaðnum)
hvit kr. 5.118.-* kr. 4.730.- kr. 5.800.- (ný sending)
mislit kr. 5.516.- kr. 4.975.- kr. 5.450.-
Einfaldari vél: hvorki hitahólf né klukka
hvít kr. 3.345.-
mislit
kr.3.661.
kr. 2.940.-
(aðeins 3 plötur)
ATH. Vióstaðgreiðslu lækka öll þessi verð um 5%.
* Þess má geta að hægt er að fá Rafhavélarnar án klukku á kr. 652 og án grilltcina á 499 og lækkar þá verðið
samsvarandi, niður í ea 4000 krónur.
allt samfast upp á gamla móðinn í
sumarbústaðnum segir að það sé
miklu sniðugra að hafa þetta bara allt
í einu lagi (en hún er í leikfimi þrisvar
i viku).
Hjá Rafha er lítill verðmunur á
þessu tvennu. Fjórar hellur sér og ofn
(sem er ekki afgreiddur öðru visi en
með klukku) kosta samtals kr. 4.468 í
hvítu og 4.904 i mislitu. Þá fylgir
ekki hitahólf með ofninum en annars
er þetta nauðalíkt samföstu gerðinni
af Rafha-eldavélunum.
Vilji maður hafa meiri stæla á hlut-
unum þá er Vörumarkaðurinn með
afar frumleg — og sniðug — eldunar-
tól frá Gaggenau í Þýzkalandi.
Þar er um ýmsar gerðir að velja.
Til dæmis er hægt að fá plötuborð,
sem er rennislétt og gert úr hörðum
glerblönduðum leir. Hvít strik sýna
hvar á að setja pottana, hvar á að
sjóða og hvar á að halda volgu. Still-
ingar eru stiglausar og nákvæmnin
svo mikil að maður getur hitað upp
mjólk í glerflösku, án þess að óttast
að hún sjóði upp úr.
Verð á þess háttar borði með
tveimur suðu„reitum” er kr. 2.560,
og með fjórum 4.210.
í stil við jietta geturðu keypt þér
„grill” af svipaðri stærð og sett það
ofan í eldhúsbekkinn þinn. Maturinn
fær sama bragð og af útigrilli. En í
stað kola eru steinar, hitaðir með raf-
magni. Mest af feitinni brennur burtu
en annars er hægt að skipta um stein-
ana eða þvo þá. Hitastillingar eru ná-
kvæmar, frá 1—12.
Þetta kostar kr. 2.230 og ekki er
hægt að segja að það sé óstjórnlega
dýrt. Að minnsta kosti ekki fyrir þá
sem oft hafa nautasteik. (Svo má
setja ýsuflökin-tálpappir með sítrónu
og kryddi — og þá er ódýr og hollur
kvöldverður ekki lengi að verða til.)
Ef þú ert mikið fyrir djúpsteik-
ingar þá hefur Gaggenau til sölu
ágætis tæki til slíkra hluta. Það líkist
djúpum stálvaski og er sett ofan í
borð. Ofan í þennan vask er olíu eða
annarri feiti hellt og hún hituð upp.
Síðan dýfirðu því sem þú ætlar að
steikja, kartöflunum eða humarhöl-
unum eða hvað það nú er, ofan i
vaskinn í þar til gerðri körfu. Þetta
tæki kostarkr. 4.590.
Loks framleiðir þetta fyrirtæki
ofna í öllum stærðum, allt frá litlum
örbylgjuofnum sem þíða frosinn mat
á augabragði.-upp í heljarstóra tvö-
falda ofna, þar sem steikin getur